Færsluflokkur: Bloggar

Konur og aftur Konur og meira af Konum

Hvernig skyldi standa á því að maður eða menn eins og ég sjá ekki sólina fyrir fallegum konum, feministiþannig að maður er með lafandi tunguna niður á maga. Ég er samt ekki neitt gefin fyrir margar enda best að vera (einar) konu maður að fenginni reynslu, en þegar maður er rosesvona ungur eins og ég, þá er radarinn alltaf á fullu. Það er í lagi að horfa er það ekki ? Sérlega er maður hangir á sundlaugar BARMInum eða STRANDbarmi daginn út og inn. Enda er hér allt fullt af konum ekki bara Asiu konum heldur mikið af Evrópu konum og gífurlegur fjöldi af austantjalds stelpum, enda virðist það lið vaða í aurum eftir fall sovétskúrkanna. Ég hef átt því láni að fagna að geta ferðast víða og skoðað hin ýmsu lönd, ekkert land eða heimsálfa hefur komið mér eins mikið á óvart og Asía fjær og þá suðaustur Asia, fólkið á þessu svæði er mjög sérstakt enda brosir þetta fólk twinsút í eitt, þjónustu lundin ódrepandi, og konurnar alveg sér kafli  af Íslenskum ólöstuðum ! Ég man eftir því að þegar ég var krakki þá sá ég myndir af Erro og austurlenskri spúsu hans. Hef aldrei gleymt því, ég hét mér þá að ég yrði að fara í ferðalag er ég yrði stór og skoða svona "konur" það tók mig yfir fjörtíu ár að verða nógu stór til að fara til Asiu ..


Þetta er undarlegt með skóinn er fannst í Svíþjóð.

Ég var að lesa þessa frétt á MBL áðan varð hreinlega steinhissa, en þar segir að strandvörður hafi fundið skó og er betur var að gáð var fótur í skónum, hum þessi skór eða fótur mun hafa rekið á land þarna. Og mér varð hugsi, gekk ekki þessi fótur eða skór á land? Það er sagt að hvalir gangi á land þó enga hafi þeir fæturna og þeir gera þetta víst dauðir líka miða við það er foturmaður les í blöðum. Hef ekki verið hægt að orða þetta sem svo að fótur hefði gengið á land og verið vel skóaður, mér er spurn? Það skrítna við þetta mál er að ég var að horfa á gervitunglasjónvarpið í dag, stöð er sendir út frá suður Afríku, þar var í fréttum að menn höfðu fundið hægri fót á strönd. Það skyldi þó ekki vera að þetta hafi verið vinstri fótarskór er innihélt fótinn er fannst í Svíþjóð, já ég bara spyr. Nú veit ég ekkert hvort einhver fótur sé fyrir þessari sögu frá Afríku eða Svíþjóð en ef satt er og þeir eiga sama eiganda hvernig komst þá Svía fóturinn alla leið til Tylösand í Svíþjóð, varla hefur hann gengið óstuddur ? Var þetta kannski skórinn og fóturinn ? hann er að vísu í sandalalostfoot5 á myndini hér hægra megin ? Jari


Bara ég

Var beðinn um að fylla út lista. þennan listazipper_breath

1.ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ?

Öfum.

2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ?

Í gær, sá svo fallega stúlku að ég grét yfir fegurð hennar æææ.

3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ?
Kann ekki að skrifa.

5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ?
Já, sjö stk með 11 konum, ef þú trúir því.

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ?
Þoli ekki kallinn á stundum og get því ekki verið vinur hans.

7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ?

Já, það held ég.

8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ?

Nei, get það ekki, skaddaður á hálsi.

9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ?

Nautasteik með a la Einar sósu.

10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ?

Nei - geng í kínverskum sandölum.

11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKAN ?

Bæði og.

12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ?

Jarðarberja og sítrónu sorbit.

13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ?

Limaburður og ára.

14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR ?

Ég nota svartan ef ég kemst í hann

15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ?

Heimskuna í mér og vantraust, er ég sýni sjálfum mér.

16. HVAÐA MANNESKJU(M) SAKNAR ÞÚ MEST ?

Drafnar Einarsdóttur + rest.

17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ?

Þarf ekki að eyða bleki í mig og mitt bull.

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ?

Svörtum hermannabuxum og kinverskum sandala lögguskóm númer 46.

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ?

Nautarstimlar í ostrusósu með grjónum, er búinn að vera með harðlífi síðan.

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ?

Röfl í húskettinum, gleymdi að vaska upp...

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ?

Bleikur.

22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ?

sjávarlykt.

23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ?

Ruglaði við barrekanda í Pattaya.

24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR?

Nei, kom mér í vandræði.

25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ?

Glasalyftingar.

26. ÞINN HÁRALITUR ?

Grænn með gráu ívafi.

27. AUGNLITUR ÞINN ?

Heiðskýr.

28. NOTARÐU LINSUR ?

Nei, bara smá gleraugu stundum.

29. UPPÁHALDSMATUR ?

Hamborgari úr kattakjöti og létt steiktur sendiráðs puddelhundur a la Kina.

30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR?

Svona sögur eru ekki lengri.

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ?

Rambó.

32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ?

Klára málið með stæl og þær gleyma því ekki...

33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ?

Ís með grænum líkjör 

34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG BIRTA ?

Veit ekki, Haffi Gun..... en hann kann ekkert á tölvu

35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ?

Olga systir.

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ?

Bankabókina mína, hún er mjög fljótlesin.

37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ?

Af fyrrverandi... þykir gott að rúlla yfir hana.

38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ?

Ekkert, fór á ball og það á mánudegi.

39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ?

Stormsker, hinir kunna ekkert..

40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ?

Yfir miðbaug, ekki kjöldreginn.

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ?

Ég er skemmtilegri oftar en ég er leiðinlegri (Haha)

42. HVAR FÆDDISTU ?

Keflavík, fyrir tóm mistök dooo!


Það var OG !

Eftir að fréttist af hugsanlegum Bjössa á hálendinu skeiðuðu norðanmenn til fjalla ásamt lögreglu og picsk04þyrlu er var við æfingar í grennd ( er ekki alltaf rigning þar? ). Kom í ljós að líklega var Hveravalla-Bjössi bara hestur og það á tveimur jafn fljótum.....hum... Skondnir Pólverjar þessir að þekkja ekki hófafar frá hrammi. Þessir Pólverjar hafa líklega aldrei komið á pólinn enda aðeins æft sig sem göngumenn í skógum Póllands að sögn. Var þetta ekki bara kölski sjálfur er var þarna á ferð ? Notar hann ekki hófa sem gönguskó ? Mér er spurn og hef gaman af.. Jari..

Stóra litla leyndarmálið

Ertu símaóður eða bara móður ? Þá mæli ég með þessum: free phone

bush_internets 


Er Fjalla Eyvindur Bjössason mættur á Hveravöllum?

Fréttir af Bjössa á Hveravöllum, Humm ?? iglo

Ætli umhverfisráðherra sé ekki orðin nokkuð vön að hrópa skjóta en það gerið hún síðast með sínum eðal mjóróma róm er líktist ískri í gamalli legu "afar afar" æst, hrópaði og hrópaði kjarkurinn Ráðherrann skjóta , skjóta !

Smá ráð ef þú sérð Bjössa:

Fylgist með birninum en ekki horfast í augu við hann, hann getur verið feiminn og það líkar honum ekki.

Ekki ögra honum. Ísbirnir eru forvitnir um menn en þeir eru líka skræfur eins og kræklingar, hræðast auðveldlega menn en ef ísbjörn gerir sig líklegan til að ráðast á ykkur þá er vopnlausum ferðalöngum ráðlagt að hræða hann í burtu með því lyfta höndum upp eða flík, láta sig þannig sýnast stærri og öskra og garga á björninn. En þá verður hann að hafa flóttaleið. Standið saman í hóp. Komið ykkur burt af svæðinu en alls ekki hlaupa.

Ef menn lenda í slag er best að standa fastur fyrir og berjast á móti með tiltækum vopnum, spýtum eða grjóti. Ísbjörninn kemst ekki á lista yfir hættulegustu dýr jarðar en þar er móskítóflugan á toppnum með tvær milljónir mannslífa á ári, en síðan koma snákar, sporðdrekar, krókódílar, fílar, býflugur, ljón, flóðhestar, marglyttur og hákarlar, og er þá maðurinn sjálfur undanskilinn.

Góður þessi-EINSTAKAR MYNDIR-

Hér er góð grein um búrið

Heimild Visir.is og aðrir góðir menn !


Ekki reiður ! Eggjaveislan !

Mér bara blöskrar hvernig stuttsnoðaði draumahernaðarforingi kræklinga kemur fram og sýnir heimsku sína fyrir alþjóð. Skyldi ekki vera að hann hafi sótt um starf í friðargæsluliðinu, rámar mig í að hafa séð nafnið áður, sem betur fer eru einungis ráðnir gæðingar og það vammlausir. Það er vandi að höndla skotfæri...egghead Ég mæli með því við Björn Bjarnason að hann setji þig af nú þegar, enda einn kassi af kvörtunum. Tími kominn fyrir nýja réttsýna menn. Menn er vaða ekki áfram í skjóli valds, bara af því þeir fengu hatt hjá strætó í den og vildu verða miklir menn ... Jari .. sjá hlekk í storminn. hér: skaltu lesa !

Fékk þetta comment áðan en það datt út:

Höfundur mun vera Jóhanna: Svona menn eins og þú, ættu nú bara að leggjast með tærnar upp í loft og breiða upp fyrir haus Hver ól þig eiginlega upp???? Það ert þú sem sýnir ÞÍNA heimsku fyrir alþjóð!!: Svar: Gott að ég kom þér á hreyfingu, af hverju sendir þú ekki nafn eða netfang? !


Getraun !

Tilveran er undarleg og þó! Hvernig í ósköpunum stendur á því að hvítabirnir veiða ekki eða éta ekki mörgæsir sem eru í milljónatali á ísnum ?

965_medved
Svar: munlópruðron á rinribsí ne unituaksruðus á aúb risægröm ða ívþ fa re ðaþ 

 


Dooo, Þeir drápu kærustuna mín !

Þeir eru við sama heygarðshornið fyrir norðan, það varð að drepa hana Birnu enda stefndi hún til sjávar. DoooSooo? Var ekki þyrla á svæðinu og hægt að fylgja henni hæglega eftir, þyrlan búin hitasjónauka hvað þá meira af tækjum til að finna eitt stk Birnu.. Þetta eru bara skotglaðir aumingjar sem ætti sem best að senda til Iraks þar sem skotið er á móti. Held að þessir lítilmenni ættu að skoða sinn gang. Hvernig er það; sofa þessir kallar á nóttunni með vopn í fanginu? Ekki getur það verið bangsi.. 


Annar ísbjörn í leit að heilsusamlegu fæði !

Ætli þessi bangsi verði ekki aflífaður eins og sá fyrri, ef satt er að annar sé komin á land í leit að heilsusamlegu jurtafæði eins og reyndist vera með frænda hans, hann hafði aðeins etið trefjaríkt heilsufæði úr íslenskri náttúru og sennilega bara í heilsubótarheimsókn enda var hann í góðum holdum að sögn. Gæti verið að hann hafi heyrt af landi ekki langt undan er kennt væri við ís, enda bráðnar ísinn hratt á norðurhjaranum og þrengir það mjög að heimkynnum hvítabjarnarins. Hann hefur lagt á sig langt ferðalag er það kemur í ljós að þetta eru orðin tóm, hér eru bara óvinveittir tvífætlingar er víla ekki fyrir sér að murka lífið úr hvítum böngsum er sækja hingað í kraftmikið jurtafæði. Ekki ráðlegt að koma til Íslands í jurtafæði eða eggjaveislu fyrir Björn Bjarnarson !

Banvænar Íslandsferðir hjá böngsum340 


mbl.is Grunur um annan ísbjörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband