Færsluflokkur: Bloggar
Minn besti milli fóta vinur dinglar ekki !
14.6.2008 | 23:29
Ákvað að setja þetta í sér færslu: Ég tók magalyf í morgun og eitthvað rúmum hálftíma seinna tók ég eftir því að ég var bara alltaf á pissiríinu, hum, fór að skoða dolluna og viti menn; ég hafði tekið þvagræsilyf Argg#$%& en magatöflurnar voru í eins boxi. Nú er ég á pissinu og mjög þyrstur enda hafði ég ekki bjúg né eitt eða neitt í þá áttina. Lyfið komið í aðra skúffu!
Ég nenni ekki að standa í þessu, alltaf að heilsa uppá félagann girrrr
Bloggar | Breytt 16.6.2008 kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Leitaði ég langt yfir skammt ?
14.6.2008 | 22:27
Ég á það til þegar mig vantar eitthvað úr verslun eða þannig að bruna oft eitthvað út í bláinn, kannski bæinn þveran og endilangan, því að ég hafði verslað þar áður, eins er með matvörurnar. Það skrítna við þessa hegðun er að úti á horni þar sem ég á heima er líka þetta fína mall (5. mín á hægu rölti) með öllum þeim búðum og veitingahúsum er maður þarf á að halda, meira segja Home Pro. Nei, ekki fyrir mig, skrölti frekar á hjólinu í geggjaðri umferð bæinn á enda og þakkandi Guði fyrir að sleppa lifandi úr þessari umferðarómenningu eins og er í Asíu.. Breytti til í gær því mig vantað bara niðursoðna tómata í pastasósu er ég var að elda, skrepp í mallið og finn ég ekki líka þessa feiknastóru matvöruverslun á 2 hæð. Vöruúrvalið frábært, GRÆNMETIÐ, steikurnar, þarna var líka ilmandi bakarí. Eins og gefur að skilja fór ég ekki heim með eina dós af tómötum,,,, HAHA ,,,,
Svona er ég ! Fer alltaf lengri leiðina í flestu sem ég geri. Jari
Búðir og veitingastaðir í Mallinu ekki tæmandi listi: | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Bloggar | Breytt 18.6.2008 kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
MONSOON SEASON Regn, rigning og endalausar þrumur + hávaði
10.6.2008 | 09:15
Ég vaknaði við ægilega sprengingu í morgun og hélt að það væri hryðjuverk í gangi :) enda ekki vel vaknaður, svo kom önnur og önnur. Kallinn út á svalir, hef sjaldan séð annað eins nema er ég bjó í Arizona, þar gat þetta orðið mjög geggjað en stóð stutt yfir. Hér aftur á móti er þetta búið að standa í ca. sex
tíma og loksins farið að draga úr þessu, rignir smá ennþá en þrumur og eldingar hættar, kominn tími á það enda klukkan að verða þrjú eftir hádegi. Svona verður þetta fram í sept, okt. Vaninn er að þetta standi mjög stutt í einu og þá helst á nóttunni sem er hið besta mál. Það er nefnilega mjög skítt fyrir ferðalanginn að þurfa að hanga heima eða á bar þegar veður guðirnir láta illa, 1. mín úti við og þá ertu gegnblautur innan sem utan ! Ég var einhvern tímann í fyrra að reka erindi á mótorhjólinu er svona veður skall skyndilega á. Var ekki annað að gera en stoppa því maður sá ekkert og hlaupa inn á næsta hótel, það endaði bara á einn veg; fór á barinn og hitti þar fullt af veðurtepptu fólki. Viti menn, sumt að þessu fólki er enn í bandi við mig og góðir vinir :) Jari..
Bloggar | Breytt 18.6.2008 kl. 07:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fyrrverandi Kellan hún Vee og búið í Korat Thailandi
9.6.2008 | 15:10
Mynniskortið í símanum mínum hefur ekki virkað síðan í fyrra vor og ég hélt að allar myndirnar + skeytin (sms) væru ónýt-ar. Reif kortið upp í dag og stakk því í tölvuna, viti menn náði nokkrum myndum og slatta af sms-um og má sjá myndirnar hér fyrir neðan, veit ekki hvort ég nái að gera við fleiri? Kemur bara í ljós síðar, þá hoppa þær á netið líka..
Sagan:
Er ég kom þarna fyrst var svo sem ekki mikið í gangi nema ávaxtarækt er gamla seldi á markaðnum og smá fiskirækt. Mér líkaði ákaflega vel þarna enda mikið blómahaf út um allt, minnti hreinlega á Eden nema þaklaust. Ég spurði hana hvort ekki væri hægt að gera eitthvað meira þarna sagði hún að sig langaði í geitur, það væri peningur í því. OK, keyptar geitur og áður en ég vissi af voru þær hátt í 60 minnir mig, allt vindur þetta upp á sig. Þessar geitur voru bráðskemmtilegar, eltu mann t.d eins og hundar gera, einfalt að rækta þær enda nóg land til. Leið nú fram á sumar, þá fékk mín þá flugu í kollinn að það væri betra að rækta beljur og ég keypti belju-rrr. Þá kom í ljós að beljur
og geitur fóru ekki saman í ræktun, beljurnar brjálaðar er þær sáu geit og hreinlega réðust á þær. Geiturnar seldar! og ég fjárfesti í fleiri beljum og tuddum. Arg, hún hafði verið mér góð svona flesta daga en er fór að minnka í buddunni þá versnaði skapið, ég gat lítið gert enda faðir minn alvarlega veikur. Ég með rútunni til Phattya, leið nú og beið, var í stöðugu sambandi við köttinn og endaði á að snúa heim aftur til KoRaT. Er ég mætti sá ég að hún hafði heldur betur tekið til hendinni snarsnúið húsinu, byggt nýtt eldhús og frábært klósett + sturtuaðstöðu. Ég hafði reyndar sent henni alla þá aura er ég gat og var á barmi örvæntingar, átti bara ekki krónu til að lifa af. OK, átti
góða daga þarna í einhvern tíma, þá skipti hún aftur um persónu og ég með rútunni til Pattaya. Held að hún innihaldi þrjár persónur; 1 sem er mjög blíð og góð, 1 sem er með allt á hornum sér en staldrar stutt við í hvert sinn og 1 sem er hreinlega geggjuð og getur verið lengi á svæðinu. Það furðulega við þetta er að hún gerir sér fyllilega grein fyrir þessu og lét mig stundum vita að nú væri gott að ég færi í göngutúr eða út að keyra. Ekki mátti orða að hún færi til læknis. Sá hana ekki í fleiri mánuði eftir þennan viðskilnað og saknaði búsins og KoRaT mjög, hún var samt í
símasambandi annað slagið og allt í einu komu boð um að ég ætti að koma heim. NEI, sagði ég og liðu þá einhverjar 3 vikur þangað til ég fór uppeftir enda kom hún og sótti mig + allt mitt drasl. Í þetta sinn var ég heima í rúmlega hálft ár, þá sauð uppúr og ég til Pattya á inniskónum, sá ekki fötin mín í 2 mánuði og fékk bara hluta af þeim aftur. Veit ekki af hverju hún er að geyma restina, hulin ráðgáta ? Nema hvað, ég hef ekki farið upp eftir í rúmt ár en hef hitt hana nokkrum sinnum hér í Pattaya og reyndar séð hana tilsýndar mun oftar.... Þetta eru búnir að vera mjög erfiðir tímar hjá mér eða síðustu 3 ár. Held þó að það hafi bara hert mig og kennt mér á fólk og innræti þess, sér í lagi hvernig fjsk... hefur komið fram eftir lát föður míns. Einar B. hér er hlekkur í myndir / photos: Sveittar Sveitamyndir!
Hvað um það, framundan er betra líf og gott að geta lifað því lifandi !
You will work hard, eat hard, travel hard, and I Will enjoy life !
Adiós y hasta la vista, con buena suerte hasta usted Copra Serpiente Wphawadee.
Bloggar | Breytt 18.6.2008 kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Enn um Thai
8.6.2008 | 02:46
Það er alveg stórfurðulegt hvað maður dettur um hér í Siam. Fyrst datt ég um Miranda appelsín, man einhver eftir því ? Næst datt ég um Krakus Bláber í krukku með sírópi, með hana heim og eldaði þennan líka fína hrísgrjónagraut en mér til furðu
voru Thailendingarnir vitlausir í hann "haha" bæði heitan sem kaldan, varð að senda eftir annarri krukku af bláberjum. Mikið gaman að elda ef fólki líkar, þó svo ég sé drullulasinn, en það lagast áður en ég gifti mig. Ef ekki, verður ekkert gift sig, enda engin boðið mér upp í dans svo ég muni
!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pattaya er Tælandi !
7.6.2008 | 21:34
Pattaya (พัทยา) eða Phattaya er borg á austurströnd Tælands og stendur við Thai flóann (The Golf of Thailand) í héraði er kallast Chonburi, ca.170 km fjarlægð suðaustur af Bangkok og ca 2.5 til 3 tíma akstri frá alþjóðaflugvellinum sem er splunkunýr. Þetta er einn af stærstu ferðamannabæjum í Tælandi , með nokkrar milljónir gesta í heimsókn hvert ár.

Aðrir koma hingað vegna hins víðfræga næturlífs, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi ! Giftir sem ógiftir.
Almenningssamgöngur eru frábærar og hægt að komast borgina á enda milli fyrir smá aura, með svo kölluðum batt bílum en þeir eru í þúsundavís á ferðinni ca 20kr á flestum leiðum en ef þú leigir hann til eigin nota þá um ca 200.kr, stoppar hann hvergi fyrr en á leiðarenda. Einnig má leigja Vespur 125cc fyrir um 5000 til 6000.kr á mánuði. Þeir sem koma til lengri tíma velja þó oft að kaupa Vespu eða stærri hjól enda má losna við þau á hagstæðu verði er að heimkomu líður. Ég hef sagt það áður, þetta er magnað land og ákaflega fallegt. Jari.
Bloggar | Breytt 15.6.2008 kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sauðir á ísbjarnarveiðum með leyfi ráðherra
3.6.2008 | 14:18

Bloggar | Breytt 18.6.2008 kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pirraður furðufugl ég.
3.6.2008 | 10:37

P.s sér varla á hjólinu nema afturljósið er brotið enda fór ég heilan kollhnís á því hahaha hvernig sem ég fór af því....;
Bloggar | Breytt 8.6.2008 kl. 03:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Halló Halló þú!
1.6.2008 | 09:36
Fann loksins flugmiða er var virkur og gilti breytt. Ég var að hugsa um að rjúka heim til að passa Dröfnina mína en eftir að hafa hugsað mikið og meira komst ég að því að það væri tóm vitleysa. OK, gott og vel, það er hugsað vel um hana enda móðirin ósköp góð við hana. Hún lét mig vita að allt væri í lagi með þær nema húsið væri mjög sprungið og skemmt. Það er fyrir mestu að allir séu heilir á skjálftasvæðinu. Guð geymi ykkur. Jari ! !
Bloggar | Breytt 9.6.2008 kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrr má nú vera
30.5.2008 | 09:06
Ég hreinlega ætlast til þess að það sé tekið mark á mér, í það minnsta börnin mín!
Já, vegna þess að allt sem ég hef sagt við mitt fólk hefur komið fram. Fyrir um 3 vikum síðan sagði ég að stór skjálfti væri að koma og fyrir 3 dögum ítrekaði ég við dæturnar að taka allt niður er gæti brotnað. Engin hlustaði frekar en fyrri daginn. Síðast sendi ég aðvörun til allra sem ég þekkti + fjölmiðla og sagði að 2 risa skjálftar væru á leiðinni. Er Skeggi skjálfti var spurður út í þetta sagði kallinn að þetta væri bóla, mikill gáfumaður. Hann sagði líka sem frægt er orðið eftir fyrri Suðurlandsskjálfta "þetta er búið, nema það komi annar" Hvað um það, er ég fór að rýna í fréttir í gær og sérlega frétt frá Færeyjum um að sjórinn hegðaði sér undarlega, þá vissi ég að norðursprungan væri á hreyfingu, þetta má allt skoða hér: NeiC OK, ég vona að það verði ekki meira, en er ansi hræddur um að í þetta sinn verði þeir 3 og gos fylgi þar á eftir. Eins er með heitapottinn í USA en þar er kvikan komin upp að yfirborðinu, má lítið bera útaf svo ekki verði gos.
Þessir asnar læra aldrei. Þeir boruðu niður í kviku í kröflu og það gaus, sama getur gerast á Hengilsvæðinu sem er mjög virk eldfjallastöð. Engin sagði frá því er kvikan hljóp upp á svæðinu fyrir einhverjum árum, aðeins fáir útvaldir voru aðvaraðir um að gos gæti brostið á ! Það er eins og þetta lið sé enn í forsjárhyggjudeild komma og múgurinn má ekkert vita, hvað þá um hjálp til að forða sér af svæðinu ! Sem betur fór varð ekki gos, en það er stutt í að það verði. Vonum það besta fyrir þjóðina og ég legg til að menn á Ríkislaunum hætti að naga blýanta sem og að bora í nefið á sér. Ykkur ber skylda til að láta þegnana vita ! Jari !
Bloggar | Breytt 7.6.2008 kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)