Færsluflokkur: Bloggar
Illa bilaður þessi
23.5.2009 | 02:48
Já hann er skrítinn þessi heimur, ég get ekki skilið hvað er sexí eða klámfengið við konur á klósettinu að sinna þörfum sínum? Hver í ósköpunum skoðar myndir sem þessar á netinu, ég er orðlaus, en það er nú ekki oft.
Brasilíumaður hefur verið ákærður fyrir að taka myndir í leyfisleysi af yfir 2.000 konum sem notuðu klósettið í fyrirtæki þar sem hann var framkvæmdastjóri. Maðurinn tók myndir af konunum með farsíma og hefur verið gert að borga 14.700 dollara í skaðabætur. Lestu meira:
![]() |
Myndaði konur á klósettinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
í bleikum nærbuxum
22.5.2009 | 23:48

![]() |
Á bleikum nærbuxum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lágflug ?!
22.5.2009 | 19:00

![]() |
Flugvél út í skurði á Flúðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Græna GrænaHerbergið
22.5.2009 | 09:20
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir allt er vænt sem vel er grænt, tja eða þannig. Þessa dagana sér formaðurinn ekkert nema græna herbergið jú gamlir ættfeður höfðu komið þarna í yfir fimmtíu ár til skrafs og ráðagerða sem og leynimakks. Sigmundur telur að þeir eigi herbergið þar sem komið hafi í ljós er betrekk var niður rifið að herbergið væri grænt, því væri það þeirra og komin hefð á það. Nú spyr ég eins og álfur útúr grænum hól hvernig stóð á og hverjir betrekktu yfir grænalitinn fína, kannski það hafi verið vinstri armurinn er læðst hafa inn og betrekkt herbergið til vinstri ? Til að geta krafist vistar í vinstrabetrekktu herberginu, voru miðjuhægri framsóknamenn svo uppteknir að þeir tóku hreinlega ekki eftir því að herbergið fína græna hafði tekið breytingum eða var þetta á þeim árum er framsókn hallaðist til vinstri sem og áferð þingherbergis þeirra. Gæti verið. Nú er svo komið þegar hálf þjóðin eða ríflega það er í uppnámi og ríkisstjórnin hleypur fram og aftur. Formaður Framsókna lætur ekki mikið í sér heyra enda með hugann við græna herbergið, þannig hann getur hreinlega ekki á heilum sér tekið. Heldur fjasar hann fram og aftur um græna herbergið, þetta sé bara ekki hægt flokkurinn muni stækka aftur í grænubyltingunni.
Ég sár vorkenni formanninum ef VG kemst í herbergið þá verður það náttúrulega Græn-RAUTT.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hrikaleg helgispjöll á börnum !?
22.5.2009 | 00:06
Börnin voru beitt andlegu og líkamlegu ofbeldi auk þess sem þau voru vanrækt. Þetta kalla þeir Kristindóm, Spænski rannsóknar rétturinn pyntaði og drap fólk í nafni Krists og kirkju. Prestar kaþólsku kirkjunnar nauðguðu ungum piltum og stúlkum í nafni guðs, ég spyr hverskonar kirkja er þetta því kirkjan hlíttur að vera það og eins og þeir er að henni standa. Ég get ekki kallað þetta annað en satanisma í kirkju á villigötum. Hversvegna grípur Páfinn ekki inní svona viðbjóð ? Viðbjóð sem þagaður hefur verið í hel gegnum aldir.
Sean Brady, kardínáli á Írlandi, baðst í gærkvöldi afsökunar á því ofbeldi sem kirkjunnar þjónar beittu írsk börn á síðustu öld. Í skýrslu, sem birt var í gær, kom fram að misnotkun og ofbeldi hafi verið landlægt vandamál í kaþólskum stofnunum fyrir börn, einkum drengi, á Írlandi.
![]() |
Baðst afsökunar á ofbeldi presta gegn börnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ófríðar kerlingar!
21.5.2009 | 19:38
Það er hár rétt er ég las einhvers staðar á blogginu að þær femínista forsjárhyggju kellingar er vildu loka súlustöðum, banna berbrjóst konur á sviði, leikhúsum, heimahúsum, baðströndum sem og sundlaugum væru yfir leitt mjög ófríðar konur yfir fullar af minni máttarkennd, þetta á einnig við einn og einn samkynhneigðan karlmann, er hefur áhyggjur af kvenlegu eðli sínu og útliti. Þetta þarf ekkert að vera svona því fegurð er afstæð og það er alltaf einhver er þykir ljótleikinn fagur og öfugt.
Níu þingmenn úr öllum flokkum sem sæti eiga á Alþingi hafa lagt fram frumvarp sem felur í sér að undanþáguheimild í lögum til nektarsýninga í atvinnuskyni á veitingastöðum verði felld úr gildi.
Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Siv Friðleifsdóttir þingmaður Framsóknarflokks.
Aðrir flutningsmenn frumvarpsins eru Atli Gíslason, Ásta R. Jóhannesdóttir, Birgitta Jónsdóttir, Eygló Harðardóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Þuríður Backman.
Frumvarpið felur í sér fortakslaust bann við því að bjóða upp á nektarsýningar eða að gera með öðrum hætti út á nekt starfsmanna eða annarra sem á staðnum eru. Er þetta framtíðin ?
![]() |
Vilja banna nektarsýningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hugmyndafræðilega steingelt ríkisstjórn !?
21.5.2009 | 10:20
Hvernig er þetta með þessa ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er virðingar leysið algjört við fólkið og heimilin í landinu. Á hinu háa eða mjög svo lága Alþingi er sýnd þvílík vanvirðing við þjóðina að mann blöskrar !
það er furðulegt að ekkert mál er á dagskrá þingsins er varðaðar stöðu heimilanna. Þar er dagskráin eins og í kaffi klúbb verið að ræða úrgangs meðhöndlun, erfðabreyttar lífverur og kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækjum. Hvaða fyrirtæki eru það ? þau verða ekki til innan skamms tíma, vegna aðgerðaleysi stjórnarinnar sem og þingmanna. Þjóðin á ekki að borga þessum lágvitum laun fyrir að þamba kakó og úða í sig vöfflum! Þingheimur ætti að skammast sín og hugsa sig vel um hvort þeir hafi nokkuð með það að gera, að snú aftur að loknu fríi. Þingmenn eiga ekkert með það að sitja á Alþingi og gera ekkert nema kíla út á sér vömbina á kostnað skattgreiðanda.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, svaraði því til að forsætisráðherra myndi ræða stöðu efnahagsmála eftir helgina, en þingið er nú komið í langt helgarfrí.
![]() |
„Átti ekki að ræða eitthvað allt annað?“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Carla Bruni æf út í páfa ?!
21.5.2009 | 06:43
![]() |
Eiginkona Sarkozy æf út í páfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eitthvað rangt við þennan páfa !?
21.5.2009 | 02:35
Ég trúi ekki alveg skýringum Emperor Palpatine um að hann hafi ekki verið nasisti eða tekið þátt í Hitlers þýskalandi. Sögurnar eru of margar, of gamlar til að það sé ekki einhver fótur fyrir þeim, hófust löngu áður en hann varð páfi. það er eitthvað skrítið við kallinn og þann mikla áróður er Vatíkanið heldur úti til
að verja páfann, jú hann er nú reyndar páfinn þannig að þeir verða að verja kallinn. Hvað þá þessi smokka vitleysa er hrjáir þá, betra að liðið farist í eyðni en að geta lifað með öryggið á oddinum.
Opinber gagnrýni Cörlu Bruni, eiginkonu Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, á Benedikt XVI. páfa, vegna afstöðu hans til notkunar getnaðarvarna í Afríku eru einsdæmi í franskri stjórnmálasögu.
![]() |
Gagnrýni Bruni einsdæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Beiskir Breta Bjánar !
21.5.2009 | 00:50
Ætli það komi ekki í ljós að við eigum ekkert að borga þessum Ice-Bretum til baka þeir hafa bara rangt við. Ef þeir fara ekki eftir reglum og leiðbeiningum sérfræðinga sinna, er þeir lögðu inn á reikninga eða fjárfestu í bréfum, skuldum við þeim ekkert nema í mesta lagi einn good morning á kjammann.
Sniðgengu ráðgjöf um Glitni:
Bæjaryfirvöld í Stroud á Englandi fóru ekki að þeim ráðleggingum sérfræðinga sinna að fjárfesta aðeins til þriggja mánaða í Glitni, að því er fram kemur í skýrslu sem lekið hefur verið til fjölmiðla.
Um óháða skýrslu er að ræða en þar kemur fram að fjármálaráðgjafar hafi lagt til að fjárfestingin yrði aðeins bundin í Glitni í þrjá mánuði.
Hljóðaði fjárfestingin upp á þrjár milljónir punda, um 600 milljónir króna.
Talsmaður bæjaryfirvalda í Stroud sagði ákvörðun hafa verið tekna um að halda skýrslunni leyndri svo að hún hefði ekki áhrif á tilraunir til að endurheimta féð. Eftir því sem staðan hefði breyst hafi verið ákveðið að hún fengi opinbera birtingu.
þetta gerir okkur akkúrat stykk frí. Bretar eru undirförlir plottarar sem og falskari er skrattinn er kemur að þeirra hag. Við greiðum þeim í mesta lagi með lægðum er við sendum þeim reglulega í formi kulda, hvassvirðis og rigningu með ögn af vosbúð, meira fá þeir ekki frá vorri þjóð puntur og basta.
![]() |
Sniðgengu ráðgjöf um Glitni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)