Hrikaleg helgispjöll á börnum !?

 Börnin voru beitt andlegu og líkamlegu ofbeldi auk þess sem þau voru vanrækt. Þetta kalla þeir Kristindóm, Spænski rannsóknar rétturinn pyntaði og drap fólk í nafni Krists og kirkju. Prestar kaþólsku kirkjunnar nauðguðu ungum piltum og stúlkum í nafni guðs, ég spyr hverskonar kirkja er þetta því kirkjan hlíttur að vera það og eins og þeir er að henni standa. Ég get ekki kallað þetta annað en satanisma í kirkju á villigötum. Hversvegna grípur Páfinn ekki inní svona viðbjóð ? Viðbjóð sem þagaður hefur verið  í hel gegnum aldir.

Sean Brady, kardínáli á Írlandi, baðst í gærkvöldi afsökunar á því ofbeldi sem kirkjunnar þjónar beittu írsk börn á síðustu öld. Í skýrslu, sem birt var í gær, kom fram að misnotkun og ofbeldi hafi verið landlægt vandamál í kaþólskum stofnunum fyrir börn, einkum drengi, á Írlandi.


mbl.is Baðst afsökunar á ofbeldi presta gegn börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Einar.

Ég ekki síður en þú fyllist  hryllingi yfir þessu framferði allra þeirra sem þarna áttu í hlut. Ég held bara að það sé ekki til orð yfir svona viðbjóð !

En mig langar að biðja þig að tengja þetta ekki einlægri Kristinni trú eins og ég þekki þá trú,

Svo skrýtið sem það er og kenningarnar eru margar,  og afhverju þetta tengist alltaf eða alloftast Kaþólsku kirkjunni. Ég er kominn á sjótugsaldur og þegar ég var ungur og ekkert farin að hugsa um einlæga trú, þá var ég að lesa í tímariti sem var þá gefið út og hét tímaritið Satt og þar las ég oftar en einu sinni um svona níðingsverk gagvart börnum,

það eru fjörtíu ár síðan að ég best veit.

Og af hverju er ekki gert eitthvað í þessu ? Það finnst mér enn óskiljanlegra og skil ekki hverjir geta fengið sig til að verja svona hrylling.

En því miður er til fullt af fólki út um allan heim sem gefur sig út fyrir að vera trúað, en er allt annað og verra en nokkur getur skilið .

Þarna að mínu mati, eru djöfulleg öfl á ferð.!

Þetta er mín persónulega skoðun á því sem að ég veit og skil .

 Engin manneskja hvort hún er trúuð eða ekki, hagar sér aldrei svona gagnvart umkomulausum börnum, því trúi ég ekki. 

Þú verður að afsaka mig. ég get varla skrifað um þetta, svo mikið tekur þetta á mig.

Kær kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 00:29

2 Smámynd: Einar B  Bragason

Þetta er rétt hjá þér þetta er voðalegt!

Einar B Bragason , 22.5.2009 kl. 00:36

3 Smámynd: Sigurveig Eysteins

Það má ekki gleyma öllum Íslensku börnunum sem var misþyrmt í boði Íslenska ríkisins, það er verið að rannsaka þetta núna, það kemur skýrsla út núna í  júní um nokkur heimili sem er búið að rannsaka núna í vetur, þá á eftir að koma ýmislegt í ljós, og svo er að byrja rannsókn á Silungapolli, og niðurstaða úr því kemur sjálfsagt ekki fyrr en á næsta ári, þegar verður búið að taka þetta saman verður það ekkert skárra en það sem gerðist á Írlandi.

Írland komst í heimsfréttir, ætli það sama gerist hjá okkur, ég efa það.

Sigurveig Eysteins, 22.5.2009 kl. 03:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband