Færsluflokkur: Bloggar

Er komin hreifing á Steingrím J ?! Vonandi.

SjSSteingrímur hélt út til Svíþjóðar í dag ásamt Svein Harald Øygard seðlabankastjóra og Jóni Sigurðssyni, formanni viðræðunefndar íslenska ríkisins um gjaldeyrissamningana. Steingrímur segir að verið sé að vinna að því að ganga frá samningunum og lánakjörum. Hann segist þó ekki geta sagt til um það hvenær þeirri vinnu lýkur en vonast til að það gerist bráðlega.

Um er að ræða lánafyrirheit sem Norðurlöndin gáfu Íslendingum með samkomulagiðLilja Mosesdottir við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til hliðsjónar. Lilja Mósesdóttir, nýr þingmaður VG, hefur hins vegar lýst yfir vilja til þess samningum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn verði sagt upp og samið um frekari lán, á betri kjörum, við Norðurlöndin.  Undir þessa skoðun tók Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar við umræður um stefnuræðu forsætisráðherra, sem fram fór í vikunni.

"Nú fer yfir pirraður að kættast ögn" það er komið mál að eitthvað sé aðgert í þessu landi og allt það er þarf til að sparka IMF = AGS út í hafsauga, helst ætti að senda þá heim með togara það ætti að kenna þeim sitt hvað, ég er nokkuð viss um að hingað kæmu þeir aldrei aftur eftir þá ferð enda hvítflipa glæpapakk er varla þolir að standa á bryggju enda, nema lystisnekkja hangi við hana.

Byggt á frétt hjá visir.is


En fellur blessuð anskot... krónan !

Hverskona óstjórn er á þessu óstjórnar heimilli eða er það Glæpagengi IMF= AGS sem ætlar bara að ganga milli bols og höfuðs á þjóðinni strax eins og þorsknum ?imfkrona Gengi íslensku krónunnar lækkaði um 1,32% á gjaldeyrismarkaði í dag. Stendur gengisvísitalan í 230 stigum en var 227 stig við lokun markaða í gær. Á meðan eyða þessir asnar tímanum í þingmál eins og þennan óþurfta, Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald (bann við nektarsýningum)  þetta forsjárhyggju pakk er heldur að það viti allt betur ! því væri nær að eyða púðrinu í að finna leiðir til að styrkja gengið og henda IMF = AGS út úr landinu. Ég segi Aumingjar !

Meðflutningsmenn þskj. 20 á 137. löggjafarþingi.

1.
Siv Friðleifsdóttir6. þm. SV, F
2.
Atli Gíslason4. þm. SU, Vg
3.
Ásta R. Jóhannesdóttir10. þm. RS, Sf
4.
Birgitta Jónsdóttir9. þm. RS, Bhr
5.
Eygló Harðardóttir7. þm. SU, F
6.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir8. þm. SV, S
7.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir11. þm. RN, Sf
8.
Þórunn Sveinbjarnardóttir7. þm. SV, Sf
9.
Þuríður Backman5. þm. NA, Vg


mbl.is Gengi krónunnar lækkar um 1,32%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ormar í svínakjöti ( ekki fyrir viðkvæma )

Ef svínakjöt er smitað og ekki eldað eða steikt nóg fyllist þú af ormum þannig að þú yðar að innan, ef þú lítur hægðir þínar á þá synda þær í skálinni óhugguleg sjón. Af mestu hefur Íslenska svínið verið hreint svín og laust við óværu. Njót því svínakjöts og gegnum steiktu það eða sjóddu.

Ekki trúa öllu sem þú sérð á netinu, en ormar og svínakjöt eiga oft samleið.
Sagan mín af ormum.
Ormarnir í KoRaT Thailandi ''Ormar og aftur Ormar''
Einhverju sinni er ég var í sveitinni ( Korat ) varð mér brátt í brók og skellti mér á salernið. Gekk aðgerðin eins og í sögu enda átti ég ekki von á öðru, lifði mjög heilbrigðu líferni eins og alltaf er ég var þarna uppfrá að leika bónda, reglulegur matur og svefn.ormur

Mér var því brugðið er mér varð litið í skálina er ég ætlaði að sturta niður, allt var iðandi í skálinni og kringum hægðir mínar.

Skrattinn sjálfur, varð mér hugsað, ég er kominn með orma og það ekki fáa. Arggg er mér hugsað, ég hef ekki steikt svínakjötið nóg, verð að passa mig á þessu, þetta er ekki eins og heima á klakanum.

Sturta öllu niður og viti menn enn eru ormar í skálinni, ekkert smá magn. Verð að fara í bæinn og kaupa ormalyf. Leita Vee uppi og heimta lyklana af bílnum ég þurfi að reka erindi í borginni. Hún horfir á mig undrandi og segir, "er eitthvað að?" Nei, allt i fínu lagi, þarf bara að skreppa smá, tjái ég henni, "á ég ekki að koma með þér" spyr hún, ertu viss um að rata, já ég rata og verð ekki lengi.

Ég skelli mér upp í jeppann og brunaði á stað til Nakhon Ratchasima ca. klukkutíma akstur. Á leiðinni hugsa ég stöðugt um orma og hvort þeir geti lagst í ferðalög og skriðið upp um mig allan, þetta er hið versta mál. Ég finn apótek í mallinu og kaupi ormalyf fyrir mannskepnur, eldrauður í framan.

Heimferðin gekk vel, mun ég hafa keyrt ansi greitt á köflum enda leið mér ekki vel hugsandi um þessa bévitans orma. Ormalyfið kom í kassa með nokkrum töflum í og sem betur fer voru leiðbeiningar á ensku sem og thai, ég tók mesta skammt er mátti fyrir fullvaxta, það átti að vera nóg til að drepa heila hjörð af ormum.

Daginn eftir er ég undarlegur og hálf illt í maganum og er mér varð mál skellti ég mér á vesenið. Allt var við það sama, iðandi skál. Arrrrrrggg, sturtað niður og restin af töflunum sturtað niður í maga með vatni. Vee er endalaust að spyrja hvað sé að plaga mig, ég svara henni engu heldur ráfa um svæðið og á þessu rölti mínu kíki ég í vatnstankinn fyrir klósettið en öllu vatni er safnað í stóra tanka ef ekki skildi rigna í langan tíma.

Viti menn, er mér er lítið í tankinn og sé ég að allt er iðandi í vatninu. Það renna á mig tvær grímur, ég gríp til fótanna til að finna Vee, dreg hana með mér að tanknum og spyr hvaða lirfur eru þetta "Mosquito" svar hún og fer.

Nú verður stríð hugsa ég, fer heim og sæki tvo brúsa af klór og helli í tankinn. Vee sér til mín og spyr hvað ég sé eiginlega að gera ? "Drepa þessar andskotans mosquito lirfur, ég hata þær" Vertu ekki að spandera klórnum í þetta, það kom kall með lyf til að setja í tankinn, þarf að gera áður en regntíminn byrjar, nú af hverju er það ekki setta í vatnið, bara gleymska segir Vee.killer

Ég finn lyfið og sturta slatta í tankinn og viti menn, lirfurnar hætta að sprikla og fljóta upp, haha ég vinn hugsa ég glaður í bragði.

Um kvöldið var Vee enn að spyrja hvað ég hafi verið að gera í bæjarferðinni og hálfvitinn ég segi henni alla söguna. Mér er enn strítt á ormalyfinu.

Ef ég fer á næstu bæi, hvíslar fólk "þetta er sá orm-lausi" og sveitavargurinn hlær. 


Facebook (Vírus) ormur reynir að lokka fólk !

Búið er að uppfæra tölvuorminn Koobface sem herjar á notendur Facebook og Myspace.

Nú reynir ormurinn að lokka fólk til að kaupa ónothæft veiruvarnaforrit. Samkvæmt upplýsingum fráormur tölvuöryggisfélaginu CSIS er hin uppfærða útgáfa af orminum þannig að hann niðurhalar „forritinu" inn á vefsíður Facebook og Myspace og býður síðan notendum þar „forritið" til kaups. Verðið á því er mun lægra en á raunverulegu veiruvarnaforriti. Ef notandinn lætur lokkast til að kaupa þessa „vöru" er ormurinn kominn inn í stýrikerfi tölvunnar þar sem hann tekur til við að þefa uppi allar viðskiptaupplýsingar um eigenda tölvunnar sem þar er að finna. Í framhaldi af þessu hafa bæði Conficker ormurinn og vírusinn Waledec hoppað á vagninn og bjóða nú svipaða  gervi „vöru" til sölu. vísir.is segir frá.


Bossa spark. Hverskonar rugl er þetta!?

Hæstiréttur hefur dæmt karlmann til að greiða konu 1,3 milljónir króna í bætur. Konan starfaði á skemmtistað á Akureyri og taldi manninn hafa sparkað í sig. Það gerðist árið 2000. sem sagt gamalt bossa spark og rótgróið !?

Það er eitthvað mikið að þessu dómskerfi okkar. Barna níðingar fá minni dóma en þetta ! Fer þetta kannski eftir því hver átti þennan gull bossa því eitthvað hlíttur þetta að vera spes bossi, ég skal glaður sparka í þennan bossa oftar en einu sinni því ekkert af mér að hafa eftir að aðrir gull bossar lögðu landið og eignir mínar í rúst. Í það minnsta fengi ég húsnæði sem og vatn og brauð ef ekki annað er til. Ég hugsa ef ég færi útí svona bossa spörk þá yrði ég ansi bussy við að sparka í þá gull bossa er mér er í nöp við. Kannski best að skella sér í ræktina og æfa nokkur bossa spörk, svona til að vera vel bossa spark hæfur.

KickAss2you

mbl.is Dæmdur til að greiða konu bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynlífi umsækjenda ?

Þýska fjarskiptafyrirtækið Deutsche Telekom heldur skrá með upplýsingum um starfsmenn ogtelecomvæntanlega starfsmenn, meðal annars um einkalíf þeirra, samkvæmt frétt þýska viðskiptablaðsins Handelsblatt í dag. Er kynlíf umsækjenda og kynhegðun þeirra þar ekki undanskilin. Hvað meina þeir hvað kemur kynlíf starfsgetu við ? það er eitthvað mikið að í kollum stjórnanda þessa fyrirtækis, sennilega ætti fyrirtækið að heita The Deutsche Sex Telekom og gera út á kynlífs fíkla. Lestu greinina hlekkur hér fyrir neðan:
mbl.is Fylgst með kynlífi umsækjenda um störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar við klifum upp fjöllin til Tibet.

Það var mjög erfitt ferðalagið upp fjöllin bröttu er við Sverrir Stormsker ákváðum að heimsækja Tíbet. Skil nú ekki hvernig Kallinn sleit þremur pörum af fjalla skóm en ekki sást slit á mínum lúxushima bomsum. Kannski hann hafi keypt eitthvað drasl undir iljarnar á sér hver veit. Þessa dagana er ég er að spá í hvort kallinn nenni ekki með mig yfir hæstu fjöll jarðar (8848m) í fjallarisanum Himalia, þar býr líka mjög sérstakt og flott fólk sem áræðnilega er gaman að heilsa uppá, þótt strjálbýlt sé þarna er það ok, hann er svoddan göngu garpur kallinn hann Stormsker, hreinlega æðir áfram upp fjöll og firnindi.

211mountain-climbing
Myndin er tekin er við löguðum í hann frá Pattya í Thailandi

„Mamman og pabbinn“

pabbiFurðulegt hvað veltur uppúr Steingrími J, Hvernig getur hann ásamt Jóhönnu verið mamman eða mammapabbinn ? Þau eru búin að gefa það frá sér yfir til IMF = AGS og ráða engu um uppeldi þjóðarinnar lengur. Hafa verið svipt titlinum Mamma og Pabbi enda ekki hæfir foreldrar þjóðarinnar. Þessir svo kölluðu foreldrar vorir reyna ekki einu sinni að  spyrna við fótum til að halda foræðinu yfir börnum sínum, er þau voru kosin til að gera. Góðir foreldrar gæta barna sinna en setja börnin sín ekki í þrælkun  eða ánauð glæpamanna, Þá vildi ég frekar fá Ömmu og Afa aftur þau höfðu þó bein í nefinu þó svo þau kynnu ekkert til verka í aðgæslu barna barna sinna.

Kannski þau hafi lært á reynslunni núna, er gömlu brýnin sjá afleiðingar gjörða sinna.

Þá fer ég fram á að IMF=AGS verði vísað útúr landinu nú þegar.


Munnmök að hætti mínum!

Ég hef snarleg ákveðið að setja upp þjálfunar skóla fyrir leikkonur er þurfa á æfingu að halda vegna leiks í ástarsenum og öllu því tengdu. Ég sé það nú ég gjörsamlega á rangri hillu í lífinu hvað varðar starf. Ég hef að vísu takmarkað reynslu í munmökum, en ég skal vinda mér í það snarlega að bæta þekkingu mín á þessum gjörning þannig ég geti miðlað af fag þekkingu minni sem og reynslu með glæsibrag.

Spænski kvikmyndaleikstjórinn Pedro Almodóvar gerir ýmislegt til þess að koma skilaboðum tilPenélope Cruz samverkafólks síns. Eru munnmök þar ekki undanskilin.

Á blaðamannafundi í Cannes í dag sagði Almodóvar að hann gengi í öll störf við upptökur en á blaðamannafundinum var hann að kynna nýjustu mynd sína Los abrazos rotos.

Að sögn Almodovar kenndi hann leikara, sem lék í kvikmynd hans fyrir löngu síðan, hvernig munnmök hann vildi sjá í myndinni. Svo það myndi skila sér rétt til leikarans hafði leikstjórinn munnmök við leikkonuna sem lék á móti leikaranum í viðkomandi mynd.

Þá er bara að fylgjast með hér á blogginu hvenær fyrsta ástarsenu og munmaka námskeiðið verður haldið ! Þess má geta að ég er ágætlega tungu fær og get lagt fyrir mig hinar ýmsu tungur.

Hlekkur í Grein


Þessir unglingar ! Ók í gegn um bílskúrshurðina.

Þeir eru sífellt til vandræða þessir unglingar, enda fá þeir bílprófið allt of snemma. Í það minnsta ætti að setja upp æfingar brautir þar sem unglingum er kennt að aka við hin ýmsu skilyrði svo sem lausa möl, hálku og krappar beygjur svo ég minnist nú ekki á bílskúrshurðaropnara. þá er aldrei tuggið nóg í unglingin að það er bannað að keyra drukkin(n)

unglingur-a-nírædis-aldri

Maður á níræðisaldri var handtekinn á Selfossi í kvöld grunaður um ölvun við akstur eftir hann að hann hafði ekið á bíl og hús og síðan í gegn um bílskúrshurðina heima hjá sér.

ATH, myndin er ekki af vettvangi.

 


mbl.is Ók í gegn um bílskúrshurðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband