Færsluflokkur: Bloggar
Alvarlegur boðskapur!
24.5.2009 | 14:20
Alvarlegur félagslegur vandi segir Robert Zoellick, bankastjóri Alþjóðabankans. Ef við grípum ekki til aðgerða er alvarleg hætta á mannlegum og félagslegum vandamálum, segir Zoellick í viðtali
dagblaðið El Pais. hann segir nákvæmlega ekkert í þessu viðtali. Svona háttarlag stundað Alan Greenspan einnig, heimurinn stóð á öndinni og hlustaði já gleypti í sig hvert orð er Greenspan sagði enda kallinn mikil vitringur, það var bara einn galli á gjöf njarðar kallinn sagði aldrei eitt né neitt þó svo að hann hafi talað lengi. Alan Greenspan þessi var bankastjóri Federal Reserve í USA samanber Selabankastjóri Bandaríkjanna, en Robert Zoellick er bankastjóri Alþjóðabankans ( World Bank ) og einn af æðstu stjórnendum IMF þar að leiðandi. Munurinn á þessum tveimur er að Geenspanvar virtur en Zoellick er forhertur glæpon og þjóðar ræningi og nú er hann tekur upp leik Greenspan´sað tala bara í hring og það á þessum voða tímum sínir sem best innræti Zoellick, Innrætið er ekkert finnst ekki ! Maðurinn er gjörsamlega samviskulaus gagnvart alþýðumanna.
Það sem var í upphafi efnahagslegt vandamál, en varð síðan að alheimskreppu, er nú að komast á það stig að verða alvarlegt félagslegt vandamál, einkum vegna atvinnuleysis, segir Zoellick, og vitnar til vaxandi atvinnuleysis víðas vegar um heiminn. Eins og málin horfa við mér þá veit í rauninni enginn hvað mun gerast vegna þess að nú er komið tímabil viðvarandi atvinnuleysis víða. Það besta sem hver getur gert er að undirbúa sig undir það versta, segir Zoellick. Sem sagt engin lausn í boði hjá þessum kjóa, enda upptekin við að sölsa undir sig landið okkar með manni og mús.
![]() |
Alvarlegur félagslegur vandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Verður maður ekki að vera ópólítískur og vinalaus í þokkabót ?
24.5.2009 | 12:50
Það er nefnilega þannig að stjórnmála menn taka stundum uppá því að skjóta vinni sína. Eins og Dick Chaney gerði í frægri veiði fer er hann skaut vin sinn Harry Whittington. Hvað skyldi hann annars hafa verið að veiða pólitíska vini eða óvini, var kallinn edrú en hann gengur yfir leit með snafs uppá vasann til að ylja veiði vinum og þá í þetta sinn bráðinni. Ætli það sé nokkur von að fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna fá byssu leifi á Íslandi ég bara spyr maður með þessa líka sögu á bakinu.
Í athugasemdum við 17. grein frumvarpsins segir m.a.: Skilyrði um reglusemi er í löggjöf nokkurra nágrannaríkja og verður að telja bæði eðlilegt og sanngjarnt. Óregla og skotvopnaleyfi geta ekki með nokkru móti farið saman. Óregla er hér hvers konar ofneysla áfengis eða annarra vímugjafa. Óreglu má staðreyna með ýmsum hætti svo sem lögregluskýrslum, læknisvottorðum og öðrum sönnunargögnum.
Þá er það nýmæli að gert er ráð fyrir því að umsækjandi samþykki að lögreglustjóri kanni hvort hann standist skilyrðin um andlega heilbrigði, reglusemi og almennt hæfi. Ekki getur þetta skilyrði talist vera íþyngjandi fyrir umsækjandann þegar litið er til þess að skotvopn eru hættuleg tæki og almenningur hlýtur að mega treysta því að óhæfir einstaklingar fái ekki skotvopnaleyfi.
Hvernig verður þetta með rjúpnaveiði menn þeir virðast haldnir miklu skammdegis þunglindi og verða gjör ringlaði svo villtir að þeir snú bara ekki til byggða og þarf iðurlega að senda vopnlausa menn til leitar af þessum viltu mönnum og það þrælvopnuðum með ærnum kostnaði verður það ekki að fylgja lögum þessum að menn séu einnig vel áttaðir? Sem sagt reglusemi, geðheilsa, almennt hæfi ?, ekki stakt orð hér um kunnáttu í meðferð skotvopna sem skilyrði til skotvopnaleyfis. Hversvegna er endalaust verið að setja þessi boð og bönn, þjóðin hefur lifað af ágætlega hingað til
án þess að vera skjóta mikið einn og annan. Þessir reglugerðar postular koma í sífeldu með nýjar reglur og að endingu má maður ekki kasta af sér vatni án þess að lesa einhvern doðrantinn um þann nauðsinnilega gjörnað.
OK Fín lög kaupi mína gæs / rjúpu bara í Hagkaupum og það þurr í fætlurnar og óvilltur.
![]() |
Reglusemi skilyrði skotvopnaleyfis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvenær eru vitni í stöðu grunaðra?
24.5.2009 | 01:35
Ég ætla ekki að taka ofan hattinn minn fyrr en ég sé að einhver verði dæmdur og sendur austur fyrir fjall en ekki á K-víða-bryggju eins og þekktur þingmaður fékk að reyna Í grjótinu !
Það er löngu komin tími á að setja þessa menn alla með tölu í gæsluvarðhald þannig að gögnum verði ekki spillt, en Íslenski Inquisition "rannsóknarrétturinn" virðis alls ekki hafa áhuga á að gæta hagsmuna þjóðarinnar heldur lætur þessa menn valsa um í vellystingum um víðan völl hvað þá sýnandi sig í partýum fræga fólksins. Sérstakur ekki svo mjög en Sérstakur saksóknari á að frysta allt það fé er hann nær til sem og eigur þessara manna, en ekki láta sem ekkert sé með blinda leppinn fyrir augu sínu.
Hvernig ætlar Sérstakur saksóknari að finna t.d. Jón Ásgeir ef hann vildi eiga við hann orðstað, ekki finnur Breska blaðið Telegraph hann segir í grein í blaðinu lestu HÉR allir þessir menn gufa smátt og smátt upp og sérlega eigur og fjármunir þeirra ( Þjóðarinnar ) og þá er það spurningin:
Búist er við að fleiri heldur en færri muni fá stöðu grunaðra í rannsókn sérstaks saksóknara á kaupum Q Iceland Finance ehf. á hlutum í Kaupþingi. Er þetta gert til þess að girða ekki fyrir hugsanlegar ákærur á síðari stigum rannsóknarinnar og einnig til þess að tryggja að þeir einstaklingar sem í hlut eiga fái notið réttlátrar málsmeðferðar. Já förum mildum höndum um þessa aumingja menn, þeir voru bara haldnir græðgi.
Embætti sérstaks saksóknara rannsakar núna hvort kaup Q Iceland Finance, sem er í eigu sjeiks Mohamed Bin Khalifa Al-Thani, á fimm prósenta hlut í Kaupþingi í september varði hugsanlega við ákvæði um markaðsmisnotkun í lögum um verðbréfaviðskipti eða ákvæði í auðgunarbrotakafla almennra hegningarlaga. Meðal annars er embættið að rannsaka hvort með viðskiptunum hafi verið send villandi og röng skilaboð til markaðarins sem voru til þess fallin að hafa áhrif á verðmyndun hlutabréfa í bankanum rétt fyrir bankahrun.
![]() |
Fleiri en færri fá stöðu grunaðra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fyrir heimilin okkar !
23.5.2009 | 21:23
Þessi stjórn er situr hér er hand ónýt og á að sjá sóma sinn í því að segja afsér hér á að mynda þjóðstjórn er vill og getur tekið á málum. Eins og Bubbi sagði í dag "Hver hefði trúað því að vinstri stjórn með öll loforðin kæmi svona fram" Heldur þú að þessi stjórn geri eitthvað ? Sjá mynd:
Heimilin eru ekki að biðja um ölmusu. Heimilin eru að biðja um leiðréttingu, sagði Ólafur Garðarsson, stjórnarmaður í Hagsmunasamtökum heimilanna á Austurvelli í dag. Tóku fundarmenn vel undir orð hans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Takið ekki á móti glæpamönnum !
23.5.2009 | 17:47
Það er hrein móðgun við þjóðina að taka á móti þessu fólki er hefur bara það eitt að markmiði að sölsa undir sig land og þjóðarauð, engar vöfflur í þetta lið !
Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er komin til landsins. Mun nefndin, sem í eru ellefu manns, skoða endurreisn efnahagslífsins sem m.a. byggist á samstarfi við sjóðinn.
Ath. IMF = AGS hefur aldrei gert neitt fyrir neinn nema setja þjóðir á hausinn og hirða náttúruauð og eignir þeirra.
![]() |
IMF hittir fyrirtæki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skaut óvart undan sér !?
23.5.2009 | 16:28
Það er stór furðulegt að taka uppá því að ganga með byssu í buxnavasanum yfirleit notar maður þar til gert hulstur eð stingur henni í strenginn, aldrei í buxnavasann. Þýskur maður varð fyrir því óláni nýverið að skjóta sig í kynfærin þegar hann gleymdi að setja öryggið á skammbyssuna sem hann var með í buxnavasanum. Ég skil ekki alveg hvernig stóð á því að skotið reið af þó svo hann hafi haft byssuna í vasanum annað hvort hefur haninn verið spenntur eða hann hefur stungið hendinni í vasann til að ná henni upp og set fingurinn í gikk stöðu og öryggislæsing ekki á, byssur hleypa ekki af sér sjálfar það þarf eitthvað til.
Nú á hann yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi fyrir ólöglegan vopnaburð en hann getur væntanlega andað öndinni léttar því læknum tókst að bjarga kynfærum hans, samkvæmt Ananova-vefnum. Það er ekki nóg fyrir mig ef einhver er bara skotin í tillanum !
Shot himself in the dick- 1 definition - When you blow your chances of getting any action after a date with your girlfriend.
![]() |
Skaut sig óvart í kynfærin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nægar lyfjabirgðir ?
23.5.2009 | 13:51
Nú segir landlæknir að einungis séu til lyfjabirgðir fyrir þriðjung þjóðarinnar !? Hvenær eru nægar birgðir nægar og afhverju bara þriðjung þjóðarinnar, hvað ef flensan tekur stökk með haustinu eins og flestar flensur gera og leggur nær alla þjóðina hver á þá að velja hver fær lyf og hver ekki ég bara spyr. ??!
Við höfum verið að kynna viðbragðsáætlanir okkar undanfarið og nú verður skerpt á því að fylgst verði með einkennum. Það er einnig full ástæða til að kanna sjúkdómstilfelli innanlands því það er spurning hvenær þetta fer að berast innanlands. Á einhverjum tímapunkti fer flensan að fá sjálfstætt líf í samfélögum þó ekki hafi borið mikið á því á Vesturlöndum. Það hefur þó verið tilfellið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó," segir Haraldur
Hann segir að nægar lyfjabirgðir séu til á landinu sem geti unnið ágætlega á flensueinkennunum. Við erum með lyfjabirgðir fyrir meira en þriðjung þjóðarinnar. Það er birgðamagn sem ætti að duga. Við erum þó ekki að gefa fólki fyrirbyggjandi meðferð og það er undir hverjum lækni komið hvernig meðferð hann beitir," segir Haraldur.
Einkennin eru eins og með inflúensu yfirleitt. Hár hiti, vöðvaverkir, höfuðverkur, hálssærindi og hósti. Einkennin koma oft skyndilega en það geta líka verið væg einkenni svo fólk verður að vera vakandi fyrir þessu sérstaklega ef það er að koma frá svæðum þar sem þetta hefur greinst. Það er betra að taka sýni en ekki, segir Haraldur.
Minni á að eitt besta ráði við flensum yfir höfuð er að þvo sér vel og vandlega um hendurnar og það oft með sótthreinsandi sápu. Sjá vef Landlæknis HÉR Spurningar og svör eru að finna HÉR
![]() |
Var bara tímaspursmál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svínaflensa á Íslandi
23.5.2009 | 12:57
Það hlaut að koma að því á flensan kæmi heim, ekki sleppum við frekar en aðrir svo mikið er víst.
Eitt tilfelli inflúensu A (H1N1) hefur verið staðfest hér á landi og grunur leikur á að fjórir til viðbótar séu smitaðir. Sýni þar að lútandi verða send til rannsóknar. Viðkomandi tilfelli eru á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnarlækni.
Eitt besta ráði við flensum yfir höfuð er að þvo sér vel og vandlega um hendurnar og það oft með sótthreinsandi sápu. Sjá vef Landlæknis HÉR Spurningar og svör eru að finna HÉR
![]() |
Svínaflensa á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Davíð vakti athygli lögreglu á Kaupþingsviðskiptum !
23.5.2009 | 12:35
Hverskonar vinnu brögð eru það að vinna svona mál á skjaldböku hraða ? Ef árangur á að nást í svona efnahags brota málum verður að vinna hratt og örugglega þannig að gögnum sé ekki eitt ef menn hafa mánuði til að fela slóðir sína þá gera þeir það. Meðan svona vinnu brögðum er efnahagsbrotadeila að að vinna í þágu brota aðila, vinnu hraðinn er svo hægur að brotin verða fyrnd er þau ná til dómara ! Maður hefur það á tilfinningunni að þessir menn séu í raun að hlífa einhverjum mönnum eð hóp manna !? Það verður að skipa rannsóknar aðillar er þora og geta eins og goðsögnin Eliot Ness við höfum ekkert við þessar skjaldbökur að gera ef við á annað borð viljum ná árangri og loka þessa menn inni í hvítflippa fangelsinu Kvíabryggju.
Fram kom í Kastljósviðtali við Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóra í febrúar, að hann hefði skrifað bréf til efnahagsbrotalögreglu ríkislögreglustjóra í desember sem urðu til þess að sjeik í Katar og hundruð milljarða tilfærslur á peningum komu upp á yfirborðið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skoðanakönnun
23.5.2009 | 06:15
Ég bendi á skoðanakönnun mína á hvort þú berð traust til AGS - IMF eðurey eftir að 68 hafa tekið þá er ég ekki hissa á hvernig landið liggur, taktu endilega þátt, það verður gaman að sjá hverju 100 manns skila. Könnunin er vinstara megin á forsíðu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)