Færsluflokkur: Bloggar

Er Steingrímur. J. Ærulaus með öllu !?

Nú er komið að þeim kafla í sögu þjóðarinnar að sjá hvaða þingmenn fremja landráð og hverjir ekki !?

Ég endurbirti:

Franek RosvadovskyFranek Rozwadowski, "landsstjóri" og fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi, heldur því fram að Þjóðarbúið fari ekki á hliðina vegna Iceslave! Hver á trúa manninum, ef þjóðarbúið rúllar er þjóðarauðurinn í höndum þessara IMF=AGS manna! Það hefur sýnt sig víða um heim hvernig þessir skúrkar hjá IMF=AGS vinna og hver enda lok þjóða hafa verið er lent hafa í ægi krumlum IMF=AGS. Þjóðirnar hafa hreinlega tapað landgæðum sínum og þjóðarauð í hendurnar á þessu missemdis mönnum, er sett hafa fram kröfur um einkavæðingu á öllu því bita stæða er þjóðirnar hafa átt, síðan kaupa þeir á mjög svo niðursettu verði, eða hreinlega á smánar verði allt það er einkavætt var í eigu þjóðar.Það er löngu leynt og ljóst að stjórnvöld Breta, beita gífurlegu þrýsting á alþjóðagjaldeyrissjóðinn, með það eitt í huga að knésetja þjóð okkar, enda illmenni sem og lítilmenni, þekktir fyrir að ráðast á hernaðarvanbrúnarþjóðir. Tek ég þá smátt upp í mig! 

Hversu margar skyldu þær vera stjórnirnar er setið hafa á Ísland, er hafa gert í því að ljúga upp í opið geðið á landsmönnum ? Sitjandi stjórn er sennilega ein sú versta er setið hefur að völdum í landinu miða við framkomu við þjóðina.

ulfurStjórnin hefur reynst vera úlfur í sauðargæru, brotið öll kosninga loforð er hún lofaði þjóðinni. Ráðist á heimili landsmanna er hún lofaði að standa vörð um, ráðist að lífeyrisþegum er varla áttu til hnífs né skeiðar fyrir, ráðist á fyrirtækin, atvinnulífið, hækkað verð á orku upp úr öllu valdi, hleyft erlendum banka mönnum að stjórnartaumum landsins, mönnum er hafa það eitt að markmið sínu að komast yfir orku landsins sem og vatnið okkar, líklega gull framtíðarinnar. Hvernig fólk og hverskonar stjórn hagar sér svona?

revolution2 

Stjórnin hefur í hótunum við þegna landsins, ber vilt og galið lygar á borð sem og hræðsluáróður, stjórn er svífst einskins til að halda völdum og ber enga virðingu fyrir þjóðinni, stjórn er reynir að þvinga þjóð sína í þágu Breskra kúara og Hollenskra túlibana. Samt sem áður er þessi stjórn allt af því valdalaus þar sem erlend sveit þjóða morðingja ( IMF=AGS ) fer með yfirstjórn allra mála á Íslandi. Það eru ótvíræð brot á stjórnarskrá okkar sem og á fullveldi okkar. Það er stórfurðulegt að þessi stjórn hefur ekkert gert í því að Ísland sætir nú efnahagslegum árásum að undirlagi Breta það var ekki nóg fyrir þá að setja á smáþjóðina hryðjuverkalög. Bretar hafa ekki gleymt þorskastríðum sínum við Íslendinga og nú ætla þeir að ganga frá smáríkinu Íslandi í eitt skipti fyrir öll. Pennavinur Breska þingsins gerir ekkert frekar enn fyrri daginn, það litla er hann hefur afhafst var að bjóða sendiherra Breta í Te og smákögur undir léttu spjalli, Humm ???

Ólafur Arnarson segir í grein sinni á pressunni:

Það var dónaskapur hjá samningamönnum Íslands að koma heim með þennan samning og dómgreindarleysi hjá ríkisstjórninni að taka samningamönnunum og samningsóhæfu þeirra fagnandi. Við viljum einfaldlega betri samning!

Hann segir en fremur:

Það getur verið að illskan hjá ráðandi þjóðum í ESB vegna Icesave sé slík að ætlunin sé að veita okkur Íslendingum ráðningu í hefndarskyni. Ef staðan er sú af hverju var okkur ekki sagt frá því strax? Af hverju talaði fjármálaráðherra um Icesave samning flokksfélaga síns sem „glæsilega niðurstöðu“ ef þetta var nauðarsamningur, sem keyrður var ofan í kokið á okkur með ofbeldi?

Það er lágkúrulegt að senda leiguliðana nú fram á völlinn með dómsdagsspár. Ef þessi ríkisstjórn hefur verið að segja ósatt varðandi Icesave mun hún ekki sitja áfram. Og enginn mun sjá á eftir henni.

Lesa alla greinina HÉR

Þór Saari skrifar:

Það saman stendur af fremur kjarklausum eiginhagsmunaseggjum sem fyrst og fremst hugsa um eigin völd og áhrif heldur en hag almennings.  Það er dapurlegt að vita til þess hvernig þingmenn láta kúga sig, sumir í VG til hlýðni við Steingrím, allir í VG til hlýðni við Samfylkingu og Samfylkingin eins og hún leggur sig til hlýðni við Jóhönnu.  Jóhanna eltir svo embættismennina í faðm IMF og Evrópusambandsins og á meðan verða auðlindir seldar úr landi og VG stingur höfðinu í sandinn hafandi brotið nánast allar samþykktir hreyfingarinnar.  Aldraðir, öryrkjar, ESB, og nú síðast með hinni s.k. þjóðarsátt.

Það má lesa greinina HÉR 

Mér er spurn hvernig stendur á því að það er fullt af fólki út um allt land er tekur undir með skoðunum  Ólafs Arnarssonar og Þórs Saari, en gerir ekkert ? Það er þörf fyrir breytingar í pólitíkinni strax í dag, landinu og þjóð okkar verður að bjarga !!!

Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR


mbl.is Icesave-ábyrgð úr ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Steingrímur Nakin og út á þekju !?

Það sést alltaf betur og betur hver er við völd á Íslandi í dag. AGS=IMF stjórnar greinilega öllu hér í landinu okkar! Ekki veit ég hvenær þjóðin afsalaði sér fullveldi sínu ? Enn Steingrímur J er svo út á þekju að hann veit ekki einu sinni sinn vitjunar tíma, hann er strengjabrúða og veit greinilega ekki af því sjálfur. Það hlýtur að vera afar slæmt fyrir "fjármálaráðherra" að geta ekki stjórnað verski þjóðarinnar sjálfur eins og hann var valin til að gera í starfandi strengjabrúðustjórn Jóhönnu lífeyrisþega bana Sigurðardóttur.

Rúv segir frá því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi komið að miklu leyti að gerð fjögurra ára áætlun í ríkisfjármálum sem ríkisstjórnin lagði fyrir Alþingi í gær. Þetta er mat háskólaprófessors í hagfræði.

varpid-r

Það er því ljóst að það er ekki starfhæf stjórn í landinu, heldur eru það bévítans útlendingar sem eru með krumlurnar í öllu hér á landi. Ég efast um að þjóð okkar komist ósködduð frá þessum harmleik er sitjandi stjórn stendur að og með.

Steingrímur J Sigfússon fjármálaráðherra segir efnahagsáætlunin uppfylli kröfur alþjóðagjaldeyrissjóðsins og að „Þetta er unnið í samræmi við hans hugmyndir um hvernig þetta sé sett fram og ég treysti því að hann telji þetta fullnægjandi," sagði Steingrímur J. Sigfússon á frétta vef RÚV. Merkilegt er að alþjóðagjaldeyrissjóðurinn líki gjörningurinn, haha enda frá sjóðnum sjálfum komin.

Steingrímur J segir unnið í samræmi við hugmyndir IMF=AGS. Er Steingrímur J að plata aftur og ný búin að plata mikið ? Var efnahagsáætlunin ekki bara sett fyrir framan (meintan fjármálaráðherra) Steingrím J og hann krotaði Xeftir bestu getu, fyrir undirskrift sína. Óhæfuparið Steingrímur J. og Jóhanna S. ættu nú að taka saman föggur sína og halda til síns heima, eða bara norður og niður þannig að á landinu verði vinnu friður til að endur ræsa landið okkar. Við eigum yfirdrifið að góðu fólki er bæði vill og getur rétt landið við aftur án IMF=AGS.

Íslandi á að vera stjórnað af Íslendingum og eingöngu Íslendingum. Allt annað eru landráð ! Landslýður á að rísa upp og verja arfleið sína nú þegar !

Rekum AGS=IMF burt frá landinu með valdi ! 

Slóð í forsíðu HÉR


Ögmundur Jónasson er merkilegur karl og sér ljósið !

Þar kom að því að er ég hefði aldrei trúað að óreyndu ! Ögmundur Jónasson vill IMF=AGS útúrogmundur landinu sem fyrst og enga Ice-slave samninga við Breta né Túlípananna í Hollandi hann segir á www.visir.is í dag að Þessar gömlu nýlenduþjóðir eru farnar að haga sér með ólíkindum, það er ekki nóg fyrir þær að íslenska ríkið sé líklega reiðubúið að taka á sig Flag of British Colonialþessar himinháu skuldbindingar vegna Icesave innstæðna, heldur vilja þær líka hagnast á okkur með himinháum vöxtum. Hollendingar lærðu þetta í Indónesíu og Bretar hafa mergsogið sínar gömlu nýlendur í gegnum tíðina og vilja gera það sama við okkur," sagði Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, í samtali við Vísi. 

Það er öllum fullljóst að Bretar og túlípanarnir eru hreinlega að taka landann þar sem sólin ekki skín, ef til eru fleiri réttsýnis menn í þessari stjórn, ef þeir eru þar þá eiga þeir að taka undir með Ögmundi Jónassyni og fella Icesave óhamingju plaggið, það má aldrei verða þannig að Bretar ná hér fótfestu þeir hafa farið hroðalega með allar nýlendur sínar í gegnum aldirnar og það hvað mest smáríki eins og Ísland, helst ríki er geta engan vegin varið sig, það líkar Bretum best enda kúgunarar fram í fingurgóma.

Ögmundur "sykursnúður" Jónsson á heiður skilið fyrir að koma fram með þessar föstu einbeitu skoðanir sínar, hann mætti gera meira að slíku. Eitthvað held ég að það hringli núna í kolli heilagrar og fjármálasnillans við þessar yfirlýsingar Ögmundar og er það vel.      

Sjá forsíðu HÉR


mbl.is Umsátur um Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ice-slave-málið, er það ekki málið!

Hótanir og hræðslu áróður undirsáta IMF, er með ólíkindum! Hvað geta væmnitítlulegir Steingrímur jBretar eða Hollendingar gert, akkúrat ekkert! Hvers vegna eru öll þessi læti um ónýtan nauðarsamning er reynt er með öllu ráðum og óráðum að neyða þjóðina til að borga. Það væri réttast að þeir er settu upp og græddu/rændu Icesave ættu öllu heldur að borga, en ekki senda reikninginn á Jón og Gunnu út í bæ með kveðjum frá Grámann. Ég hélt að Steingrímur J væri ekki svona voðalega blár þótt litlaus sé og kanski ögn gáfaðri en þetta. Það er ekki hægt að hóta eða beita hræðslu áróðri á Íslendinga, enda víkinga eðlið kraumandi í blóði okkar, við hræðumst ey svona skvaldur. Steingrímur J  má bulla og rugla sitt rugl, hvar sem er og hvenær sem er enda tekur ekki nokkur Íslendingur mark á Grámann stjórnmálakalli eins og hann er fastur í gráu komma hugsuninni er hann telur að sé græn, hann er en í sömu gráu litlausu fötunum, en með sama svart/hvíta sjónvarpið og en með stillt á gömlu gufuna að henni ólastaðri. það skyldi þó ekki vera að kallhróið sé litblint ?

Hvað skyldi hafa orðið um mann eins og hann ef hann hefði fæðst á STURLUNGAÖLD ?vikingkottur 

Ætli hann hafi farið í köttinn? 

Slóð í forsíðu HÉR   


mbl.is Strandi Icesave, strandar allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi hefði átt að vinna fyrir Jóhönnu

Hér áður fyrr voru sendiboðar með slæmar fréttir drepnir. Ef þessi vitringur hefði nú álpast til að vinna fyrir heilaga Jóhönnu þá hefði spekingurinn fengið vel greitt í myntkörfum, reyndar tómum.

alfur-g
Allt fyrir Ísfólkið !

Enda Jóhanna í álfa heimi með sinn álfa stöðugleikasáttmála fyrir álfa, handa álfum skrifaður af álfum og þegar þetta álfa gagnsæja blað virkar ekki þá hefði vitringurinn ekki verið handtekinn heldur hrósað í hástert eins og öðrum álfum út úr hól er á landinu bláa búa. Engin hætta á að vitringur lenti í steininnum enda allt fullt þar ef ekki af smá álfum þá smákrimmum er ekki höfðu styrkt samspillingar kerfiskellinguna meðFortune Teller peninga gjöfum.

Lögreglan á Sri Lanka segist hafa handtekið stjörnuspeking sökum þess að hann spáir því að ríkisstjórn forsetans, Mahinda Rajapakse, stefni í mjög alvarleg stjórnmálaleg og efnahagsleg vandamál á næstunni.

Orðið á götunni er að enginn sé spámaður í sínu föðurlandi. Nema... 

Sjá aðalsíðu HÉR

 


mbl.is Handtóku stjörnuspeking fyrir slæma spádóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borað niður í skallann á kölska og bráðna kviku!

Hvenær læra menn ? Var ekki talið að ýmsum að Kröflueldar væru bein afleiðing á borunum áborun svæðinu? Enda var létt óhemju þrýsting af fljótandi eldarkikkunni, ekki það að allir hafi verið sammála þessari staðhæfingu. Nú er leikurinn leikin aftur á svæðinu og komið niður í kviku á aðeins rétt rúmum tveim kílómetrum er þykkir mjög grunnt, þeir eru heppnir að hafa ekki steikt undan sér bormennirnir eða eitthvað þaðan í vera. Hellisheiðin er mjög virkt svæði og langt frá kraflaað vera útdautt, þar hleypir Orkuveitan ógini af yfirþrýstrigufu upp á yfirborðið og léttir þrýsting á berginu niðurundir Hellisheiði, Það eru ekkert ýkja mörg ár síðan nokkuð stórt kvikuhlaup varð á þessu svæði, að vísu er dæltHellisheidi Geothermal Power Plant niður vatni aftur en það vatn er ekki gufa á yfirþrýstingi eins og það er upp kemur, ætli þeir getihellisheidi ekki bráðlega farið að grilla sér hamborgar á heiðinni bara sí svona enda svæðið sem og reykjaneshryggurinn mjög lifandi ! Ekki yrði ég mikið hissa ef þetta endi ekki með gosi á svæðinu innan skamms enda hleypar þeir ótrúlegu svartsengimagni af yfirþrýstir gufu upp í kringum Svartengissvæðið og á Hellisheiði, tölum nú ekki um Kröflu þar er skallinn á kölska er bara við yfirborðið.

Er hætt við að það verði ekkert túristagos!

 Slóð í Aðalsíðu HÉR


mbl.is Borað niður á bráðið berg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

(Skattaparadísin Ísland) Þjóðarsvikarar!

Þú mátt ekki eiga eitt né neitt lengur, nú áttu klæðast gráum klæðum er ógnarstjórnin leggur til ! Þetta er aðal áhersla vinstriflokkanna, þeir rífa niður allt er heitir einstaklings frelsi, jafna allt út í flatneskju liðleysunnar, flata pönnuköku án sykurs, sultu eða rjóma. Óstjórnarstjórn Jóhönnu og draumkommans Steingríms J er að takast að draga landið aftur á 18 öld. Nú stendur til að vinnandi fólk gjaldi miðstjórninni allt að 45% af innkomu sinni sem og neyslu! Hvar eiga heimilin eða hinn vinnandi stétt að taka frá fyrir skuldum, fyrir nauðþurftum sem og skólagöngu barna þeirra, eða eiga smá varasjóð ef óhapp verður ? Mér er það einnig spurn hvernig á Gamalmennið, Sjúklingurinn eða Öryrkinn að lifa? Fólkið er minnst á og á engan möguleika á að bjarga sér, Ólukku konan Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J eru svikarar á öllum þeim kosningaloforðum er frá stjórnarflokkunum komu fyrir kosningar.

Icelandic-weak-government-using-terrorism-g 

Sannleikurinn er sá að allt það er þetta ólukku fólk vann við að bæta hag þeirra lægst settu, var bara unnið til að veiða atkvæði og slá ryki í augu þeirra sem minnst mega sín. Bankamála og sjáfskipaður fjármálasérfræðingurinn Steinríkur, skerðir nú kjör aldraðra og öryrkja, sem mest hann getur að undirlagi konunnar með steinhjartað, þeim tókst að ljúga svo að þjóðinni að hún féll kylliflöt fyrir orðskrúðinu og þeirri vinnu er framkvæmd var áður til að bæta kjör þeirra er minnst máttu sín fyrir þjófnaðinn, en nú rífur ólukkuparið allt til baka og meira en það, parið það arna hættir ekki hér heldur ætlar sér að ganga milli bols og höfuðs á heimilunum í landinu sem og rest af landslýð. Allt er þetta gert í anda og stíl Stalíns er rak alla bændur á vergang, drap þar með meira af fólki sínu úr sulti og örbyrgð, en öll heimsstyrjöldin kostaði Rússa. Alræðisvaldið ógurlega er komið til að vera, nema Þjóðin grípi strax til aðgerða. Það er lífsnauðsyn þjóðarinnar að koma í veg fyrir óhæfuverk þjóð-svikaranna er starfa sem strengjabrúður IMF=AGS. En það var að undirlægi IMF=AGS að Jóhanna ætlar sér að troða Ice-slave neyðarsamningunum ofaní kokið á þjóðinni við mikinn fögnuð Breta og Hollendinga.

island-sveltir-g 
Stöðugleikasáttmáli ? Hvað er þetta annað en að hneppa þjóðina í mun verri fjötra, enda er nú svo komið að mennta fólkið, já eða allir er geta með einhverju móti komið sér burt eru að pakka saman, burtu farnir að eylífu!? Reynslan sínir að lítið brot af fólki er fer kemur aftur heim. Það er mjög miður ! Hvernig stendur annars á því að sömu fjaðurlaususvikafuglarnir eru en við völd í stjórngeiranum, bönkum og ábyrgðar stöðum er voru við völd er hrunið varð? Fólk er stuðlaði beinlínis að hruninu og ráninu, þetta fólk á að koma frá stjórnunarstörfum nú þegar, ef þjóðin á að eiga von. Þetta á að sjálfsögðu við um konuna með steinhjartað Jóhönnu Sigurðardóttir fyrst og fremst. Þá lítur út fyrir að Jóhanna Sigurðardóttir hafi misskilið Terroristalög þau er Bretar settu á þjóðina! Hún heldur að nú eigi hún að beita terrorlögum á þjóðina í formi gengdarlausra skattahækanna og árása á heimili landsmanna að ógleymdum lítilmagnanum er getur ekki borið hönd fyrir höfuð sér á nokkurn máta. Nú klappar þetta ginkeypta fólk fyrir undirskrift á stöðugleikasáttmálanum ! Ég yrði ekki hissa þó þjóðinni sé óglatt þessa stundina! Stöðugleikasáttmálinn er Óstöðugleikasáttmáli enda almennt orðaður, "almennt orðaður?" Hvað þýðir það? Þýðir það ekki að endalaust megi breyta orðalagi og virkni, eftir hentisemi hvenær sem er ? Semsagt ónýtt samsæris plagg ætlað til að slá en og aftur ryki í augu þjóðarinnar. Hafið skömm fyrir og ég segi sveiattan !

Slóð í forsíðu HÉR


mbl.is Ekki meira en 45% skattar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greiðsluverkfall Íslendinga !

Á fundum Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) í Reykjavík, Selfossi og víðar í gærkvöld samþykktijohanna tekur hus félagsfólk ályktun um stuðning við greiðsluverkfall „fjölda Íslendinga.“ Verkfallið var samþykkt samhljóða á öllum fundunum. 

Málið er að það er ekkert að borga með því einfalt að borga ekkert og þarf ekkert að fjasa um það. Útrásarvíkingar sáum það ásamt stjórnvöldum er taka hverja ráðleysis ákvörðun á eftir annarri.

Samspillingar kerfiskellingin heilög Jóhanna hefur fundið hjá sér sérstaka þörf á að ráðast á heimilin með skattahækkunum svo miklum að heimilin geta ekki borgað okur skuldir sínar, ekki ekið fjölskyldu bíl sínum til vinnu né skutlað börnum sínum, ekki keypt inn fyrir heimilin né endurnýjað fatnað sinn. hjalpÞetta gerði Jóhanna forsætisráðherra vor skæl brosandi ásamt Steingrími fjármálasnilla, enda úthrópuðu þau og báru á torg, að staða heimillanna væri bara hreint ekki svo slæm. Þetta sýnir svart á hvítu, að stjórnin hefur ekki hugmynd um hvað gengur á hjá landslýð eða í heimilishaldi þjóðarinnar, enda á stjórnarpakkið nóg að bíta og brenna. Ekki fátæktin né skorturin þar á bæ, enda haldið fast í stólanna. Samspillingar kerfiskellingin heilög Jóhanna hefur nú þegar lagt fram frumvarp um lækkun launa aldraðra og öryrkja fyrsta júlí. En hún ætlar að hækka samkvæmt samkomulagi  Sa og Así laun launþega. Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á sömu hækkun á lífeyri sínum og launþegar almennt fá á launum.  Ráðleysisríkisstjórnin verður að fara í hring, verður því að draga til baka launalækkun lífeyrisþega enda óhæfu verk að lækka laun á öldruðum. Allt annað eru ólög, ruglstjórninni ber að hækka laun lífeyrisþega 1.júlí  til samræmis við launahækkun launþega. þetta er þvílík endaleysa og vitleysa að hálfa væri nóg. Ég skil ekki hvað þetta stjórnarlið er að hugsa, enda geng ég ekki með þingmann né forsjárhyggju í maganum.

box-g
Tilvitnun í ályktun: Markmið greiðsluverkfallsins er að knýja fram breytingu, eða leiðréttingu eins og segir í ályktun HH, á húsnæðislánum vegna brostinna forsenda fyrir skilmálum þeirra vegna efnahagsþrenginganna. Í ályktuninni er markmiðin tíunduð nánar: „Lán sem hvíla á íbúðarhúsnæði með viðmiðun við gengi erlendra gjaldmiðla verði leiðrétt og yfirfærð í íslenskar krónur frá lántökudegi á gengi þess tíma. Verðtryggð lán sem hvíla á íbúðarhúsnæði verði leiðrétt þannig að að verðbætur verði að hámarki 4% á ári frá 1. janúar 2008. Lagabreyting leiði til þess að ekki verði gengið lengra í innheimtu veðlána en að leysa til sín veðsetta eign. Lagabreyting leiði til þess að við uppgjör skuldar fyrnist eftirstöðvar innan 5 ára og verði ekki endurvakin. Gerð verði tímasett áætlun um afnám verðtryggingar lána innan skamms tíma og vaxtaokur verði aflagt.“ Tilvitnun endar.

Við þessum gjörningum hefur Jóhanna sagt sem og smámennið Steingrímur J að væri bara kúgun ávonleysi stjórnvaldinu, bankarnir og stjórnin myndu halda sínu striki og greiðslufall myndi bara koma heimilunum í kollin aftur! Já það er ekki uppá logið á þessa stjórn, að hún sé ekki með heimilin í huga, þegar ekki er verið að ljúga af þjóðinni, þá er henni hreinlega hótað, þeir/þau geta hótað eins og þeir/þau vilja! Það er einfaldlega ekkert til að borga með enda ekki eitt né neitt til að taka af fólkinu eða heimilum, já nema seigluna, dugnaðinn og stoltið er einkennir þjóðina okkar, það er eini auðurinn sem eftir er. Allt annað er veralegt, þegar farið já þjófstolið. Ráðleysisríkisstjórn er lifir eingöngu vegna skattahækkana, niðurskurðar, verðhækkana, eignarýrnunar í umboði AGS er ekki uppbyggileg stjórn, hún er niðurrifsstjórn í anda fyrrverandi stjórna ráðstjórnarríkjanna. Ég sem hélt að sá draugur væri löngu dauður!

                                                   Hlekkur í aðalsíðu HÉR 


mbl.is Hagsmunasamtök heimilanna styðja greiðsluverkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna er pallróleg !

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er svo pallróleg að það bærist ekki áhyggjur í höfði hennar, þetta sýnir að henni er gjörsamlega sama um heimilin í landinu. Ég hreinlega efast um að hún lesi þær skýrslur er berast inn á borð hennar, hvað þá hlusti á sérfræðinga stjórnarinnar. Það að hún telji að nýtt lögfræðiálit bendi eindregið til þess að rétt leið hafi verið valin fer nú bara eftir við hvern er talað og hver framkvæmdi semog hvað viltu fá að heyra til notkunar í áróður. Hún segist enfremur telja að þingmenn stjórnarflokkanna styðji málið.  Nú held ég að hún þurfi að telja aftur!

                                                                  Aðalsíða bloggs HÉR

mbl.is Tortryggni í samfélaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna og Ice-slave reikningurinn hennar

Nú er lag á að kerfiskerling annað hvort handtaki strákana eða ráði þá til að laga skítinn eftir sig, launalaust! Auðinn til baka ásamt vöxtum ! Hver er ástæðan fyrir því að ríkisstjórnin og aðrir mafíuósar ónafngreindir vilja ekki ráða Evu Yoly til að rannsaka hrunið og ránið ? Er ekki akkurat tími núna, fyrir ráðleysisríkisstjórn Jóhönnu að sækja strákana, enda getur hún ekkert gert annað í stöðunni, Heilög valdalaus Jóhanna er svo úti á þekju að hún veit ekki einu sinn stöðu heimilanna hjá þjóð sinni. Það er ekki hægt að forsætisráðherra sé staurblindur sér ekkert nema evrópusambandið og ekki virðist forsætisráðherrann vera með púlsinn á hjarta þjóðarinnar, en ég hélt að það væri nauðsin fyrir stjórnendur að finna hjartslátt fyrirtækja sinna hvað þá sem forsætisráðherra að finna hvernig þjóðinni líður. Bankarnir eignast heimilin stendur í frétt í DV Lesa HÉR það er grein er ráðherrann á að lesa!
innras2 
Heim með dýrin !
Hlekkur í aðalsíðu HÉR

mbl.is Hugsar daglega um Icesave-klúðrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband