(Skattaparadísin Ísland) Þjóðarsvikarar!

Þú mátt ekki eiga eitt né neitt lengur, nú áttu klæðast gráum klæðum er ógnarstjórnin leggur til ! Þetta er aðal áhersla vinstriflokkanna, þeir rífa niður allt er heitir einstaklings frelsi, jafna allt út í flatneskju liðleysunnar, flata pönnuköku án sykurs, sultu eða rjóma. Óstjórnarstjórn Jóhönnu og draumkommans Steingríms J er að takast að draga landið aftur á 18 öld. Nú stendur til að vinnandi fólk gjaldi miðstjórninni allt að 45% af innkomu sinni sem og neyslu! Hvar eiga heimilin eða hinn vinnandi stétt að taka frá fyrir skuldum, fyrir nauðþurftum sem og skólagöngu barna þeirra, eða eiga smá varasjóð ef óhapp verður ? Mér er það einnig spurn hvernig á Gamalmennið, Sjúklingurinn eða Öryrkinn að lifa? Fólkið er minnst á og á engan möguleika á að bjarga sér, Ólukku konan Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J eru svikarar á öllum þeim kosningaloforðum er frá stjórnarflokkunum komu fyrir kosningar.

Icelandic-weak-government-using-terrorism-g 

Sannleikurinn er sá að allt það er þetta ólukku fólk vann við að bæta hag þeirra lægst settu, var bara unnið til að veiða atkvæði og slá ryki í augu þeirra sem minnst mega sín. Bankamála og sjáfskipaður fjármálasérfræðingurinn Steinríkur, skerðir nú kjör aldraðra og öryrkja, sem mest hann getur að undirlagi konunnar með steinhjartað, þeim tókst að ljúga svo að þjóðinni að hún féll kylliflöt fyrir orðskrúðinu og þeirri vinnu er framkvæmd var áður til að bæta kjör þeirra er minnst máttu sín fyrir þjófnaðinn, en nú rífur ólukkuparið allt til baka og meira en það, parið það arna hættir ekki hér heldur ætlar sér að ganga milli bols og höfuðs á heimilunum í landinu sem og rest af landslýð. Allt er þetta gert í anda og stíl Stalíns er rak alla bændur á vergang, drap þar með meira af fólki sínu úr sulti og örbyrgð, en öll heimsstyrjöldin kostaði Rússa. Alræðisvaldið ógurlega er komið til að vera, nema Þjóðin grípi strax til aðgerða. Það er lífsnauðsyn þjóðarinnar að koma í veg fyrir óhæfuverk þjóð-svikaranna er starfa sem strengjabrúður IMF=AGS. En það var að undirlægi IMF=AGS að Jóhanna ætlar sér að troða Ice-slave neyðarsamningunum ofaní kokið á þjóðinni við mikinn fögnuð Breta og Hollendinga.

island-sveltir-g 
Stöðugleikasáttmáli ? Hvað er þetta annað en að hneppa þjóðina í mun verri fjötra, enda er nú svo komið að mennta fólkið, já eða allir er geta með einhverju móti komið sér burt eru að pakka saman, burtu farnir að eylífu!? Reynslan sínir að lítið brot af fólki er fer kemur aftur heim. Það er mjög miður ! Hvernig stendur annars á því að sömu fjaðurlaususvikafuglarnir eru en við völd í stjórngeiranum, bönkum og ábyrgðar stöðum er voru við völd er hrunið varð? Fólk er stuðlaði beinlínis að hruninu og ráninu, þetta fólk á að koma frá stjórnunarstörfum nú þegar, ef þjóðin á að eiga von. Þetta á að sjálfsögðu við um konuna með steinhjartað Jóhönnu Sigurðardóttir fyrst og fremst. Þá lítur út fyrir að Jóhanna Sigurðardóttir hafi misskilið Terroristalög þau er Bretar settu á þjóðina! Hún heldur að nú eigi hún að beita terrorlögum á þjóðina í formi gengdarlausra skattahækanna og árása á heimili landsmanna að ógleymdum lítilmagnanum er getur ekki borið hönd fyrir höfuð sér á nokkurn máta. Nú klappar þetta ginkeypta fólk fyrir undirskrift á stöðugleikasáttmálanum ! Ég yrði ekki hissa þó þjóðinni sé óglatt þessa stundina! Stöðugleikasáttmálinn er Óstöðugleikasáttmáli enda almennt orðaður, "almennt orðaður?" Hvað þýðir það? Þýðir það ekki að endalaust megi breyta orðalagi og virkni, eftir hentisemi hvenær sem er ? Semsagt ónýtt samsæris plagg ætlað til að slá en og aftur ryki í augu þjóðarinnar. Hafið skömm fyrir og ég segi sveiattan !

Slóð í forsíðu HÉR


mbl.is Ekki meira en 45% skattar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband