Er Steingrímur Nakin og út á þekju !?

Það sést alltaf betur og betur hver er við völd á Íslandi í dag. AGS=IMF stjórnar greinilega öllu hér í landinu okkar! Ekki veit ég hvenær þjóðin afsalaði sér fullveldi sínu ? Enn Steingrímur J er svo út á þekju að hann veit ekki einu sinni sinn vitjunar tíma, hann er strengjabrúða og veit greinilega ekki af því sjálfur. Það hlýtur að vera afar slæmt fyrir "fjármálaráðherra" að geta ekki stjórnað verski þjóðarinnar sjálfur eins og hann var valin til að gera í starfandi strengjabrúðustjórn Jóhönnu lífeyrisþega bana Sigurðardóttur.

Rúv segir frá því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi komið að miklu leyti að gerð fjögurra ára áætlun í ríkisfjármálum sem ríkisstjórnin lagði fyrir Alþingi í gær. Þetta er mat háskólaprófessors í hagfræði.

varpid-r

Það er því ljóst að það er ekki starfhæf stjórn í landinu, heldur eru það bévítans útlendingar sem eru með krumlurnar í öllu hér á landi. Ég efast um að þjóð okkar komist ósködduð frá þessum harmleik er sitjandi stjórn stendur að og með.

Steingrímur J Sigfússon fjármálaráðherra segir efnahagsáætlunin uppfylli kröfur alþjóðagjaldeyrissjóðsins og að „Þetta er unnið í samræmi við hans hugmyndir um hvernig þetta sé sett fram og ég treysti því að hann telji þetta fullnægjandi," sagði Steingrímur J. Sigfússon á frétta vef RÚV. Merkilegt er að alþjóðagjaldeyrissjóðurinn líki gjörningurinn, haha enda frá sjóðnum sjálfum komin.

Steingrímur J segir unnið í samræmi við hugmyndir IMF=AGS. Er Steingrímur J að plata aftur og ný búin að plata mikið ? Var efnahagsáætlunin ekki bara sett fyrir framan (meintan fjármálaráðherra) Steingrím J og hann krotaði Xeftir bestu getu, fyrir undirskrift sína. Óhæfuparið Steingrímur J. og Jóhanna S. ættu nú að taka saman föggur sína og halda til síns heima, eða bara norður og niður þannig að á landinu verði vinnu friður til að endur ræsa landið okkar. Við eigum yfirdrifið að góðu fólki er bæði vill og getur rétt landið við aftur án IMF=AGS.

Íslandi á að vera stjórnað af Íslendingum og eingöngu Íslendingum. Allt annað eru landráð ! Landslýður á að rísa upp og verja arfleið sína nú þegar !

Rekum AGS=IMF burt frá landinu með valdi ! 

Slóð í forsíðu HÉR


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband