Færsluflokkur: Bloggar
Gálgafrestur á engu !
23.6.2009 | 10:55
En verið að slá ryki í augu landsmanna ?! Hvenær hættir þetta lið að segja ósatt, mér er spurn? Það vita allir að samtök atvinnurekenda munu aldrei, vinna að hag vinnandi stétta, heldur reyna með öllum ráðum að keyra niður laun og launa skyldur, það er eðli slíkra samtaka. Hver heldur að strengjabrúðu stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fái að lækka vexti meðan AGS=IMF er við völd hér á landi.
Á meðan Ríkisstjórnin heykist við að fara frá, enda í andaslitrunum, gerist ekkert nema að töf verður á batanum, sem er ekki undir sitjandi.
Hlekkur í aðalsíðu HÉR
![]() |
Samkomulag um launalið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Boða greiðsluverkfall almennings !
22.6.2009 | 14:50
Það kom að því að einhver færi að hugsa! Hvers vegna í ósköpunum ættu heimilin að vera að borga fyrir styrktaraðila samspillingarinnar, mér er spurn, hvað hefur kerfiskellingin gert fyrir heimilin eða fólkið í landinu annað en ráðast með ofsa á eldhúsbuddur þeirra, svo miklum ofsa að ekkert situr eftir ekki einu sinni slitið fóðrið. Drögum að ályktun sem greidd verða atkvæði um á félagsfundunum á morgun segir að samtökin hvetji almenning á Íslandi til að grípa til greiðsluverkfalls til að knýja fram leiðréttingar á húsnæðislánum vegna forsendubrests af völdum kreppunnar.
Markmið greiðsluverkfalls er að ná fram eftirfarandi kröfum:
1. Íbúðalán með viðmiðum við gengi erlendra gjaldmiðla verði leiðrétt og yfirfærð í íslenskrar krónur frá lántökudegi á gengi þess tíma.
2. Verðtryggð íbúðalán verði leiðrétt þannig að verðbætir verði að hámarki 4% á ári fá 1. janúar 2008.
3. Lagabreyting leiði til þess að ekki verði gengið lengra í innheimtu verðlána en að leysa til sín veðsetta eign.
4. Lagabreyting leiði til þess að við uppgjör skuldar fyrnist eftirstöðvar innan 5 ára og verði ekki endurvakin.
5. Gerð verði tímasett áælun um afnám verðtryggingar lána innan skamms tíma og vaxtaokur verði aflagt.
Félagsfundirnir verða haldnir klukkan átta í kvöld.
Fundarstaðir eru:
Reykjavík: Iðnó við tjörnina
Keflavík: Frumleikhúsið Vesturbraut 17
Akureyri: Um borð í Húna (Húni II)
Selfoss: 800 barinn
Flúðir: Golfhúsið Snússa
Þessir ræflar er hirtu allan gjaldeyrir úr bönkunum áður en þeir ultu um koll eiga borga þetta til baka ásamt því að sitja í gapastokkum, ef ekkert er plássið í fangelsum landsins. Samkvæmt fréttum þá var ekki til einn dollar í landsbankanum né kaupþingi, hvað varð um þessa aura er bankarnir áttu? Eru þeir á reikningum hjá styrktarvinum Jóhönnu svo kölluðum útrásarvíkingum, um víða veröld ? Hvað liggur að baki því að Jóhanna Sigurðardóttir né Steingrímur J. Sigfússon fara framá í gegnum Interpol að þjófarnir verði handteknir hvar sem er í heiminum, menn hafa verið teknir fyrir minna, en það að ræna heila þjóð.
![]() |
Ætla að boða greiðsluverkfall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 27.6.2009 kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ók á dyr slökkviliðsins. Það verður að hjálpa fólkinu í landinu !
21.6.2009 | 22:27
Það gengur ekki lengur að stjórnvöld geri ekkert fyrir landslýð, annað en blóð mjólka hann ! Það er greinilegt að fólk er að missa vitið, grafandi bíla og brjótandi niður hús. Það tekur heldur engin heilvita maður uppá því að skemma öryggis kerfi borgaranna, nema hann hafi hreinlega misst vitið ! Nú er mál að þessir asnar fari frá og að komi fólk er veit hvernig ástandið er í landinu. Fólk sem setur sig ekki á háan hest og situr í fílabeinsturni. Fólk sem er í takt við þjóðina!
![]() |
Ók á hurðir slökkviliðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.6.2009 kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hrokinn gagnvart þjóðinni gengur út fyrir alla þjófabálka.
21.6.2009 | 11:48
Jóhanna Sigurðardóttir segir það blá kalt að Þjóðinni koma það ekki við og hafi ekkert með það að segja hvort hún fari viljug eða verði neydd í ESB, það kemur þjóðinni einfaldlega ekki við ! Þetta er lýðræði kommúnistana er sitja við völd þessa daganna og vinna hörðum höndum á að fletja út landsmenn í eina flata getulausa,blanka pönnuköku. Landsmenn skulu með góðu eða illu gefa landið og sjálfstæðið frá sér, þetta er tónninn í einræðisherranum.
Þjóðin mun ekki eiga síðasta orðið um ESB !
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, upplýsti á Alþingi þann 18. júní að stefna ríkisstjórnarinnar væri að halda einungis ráðgefandi þjóðaratkvæði um hugsanlegan samning um inngöngu í Evrópusambandið en ekki bindandi.
Sjá nánar á heimasíðu Heimssýnar http://www.heimssyn.is
Það er löngu ljóst að undir þessu verður ekki setið, það verður að koma þessari stjórn frá hið fyrsta og setja á sterk Þjóðstjórn skipaða hæfu fólki. Þá legg ég til að Jóhönnu og hennar hyski verði komið fyrir á viðeigandi stofnun !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Íranska aðferðin og Svínslegt eðli
20.6.2009 | 19:00
Stjórnvaldið kýs að ljúga til um fjölda fólks er mótmælir aftökum á sjálfum sér, börnum sínum og heimilum, enda á fólkið í landinu ekki neitt til að borga með fyrir afglöp styrktaraðila samspillingarinnar, löggæslunni er greinilega sagt að gleyma barnaskólanum sínum og geta nú einungis talið upp á tíu. Það er mikil lukka að þeir væru þó tíu og fengu út 100 manns, ég helda það þurfi því að fá fleiri löggæslu menn á svæðið þannig að tölur verði nákvæmari. Með allri virðingu fyrir löggæslunni þá verða þeir víst að fara eftir skipunum yfirboðara sinna, sem í þetta skiptið var að telja bara uppá 10 haha Ok..
Ef þjóðin þarf á einhverju virkilega að halda þessa daganna, þá er það góður meindýraeyðir!
![]() |
Stemmningin var góð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er Jóhönnu stjórnað af djöflinum? Nú á að ráðast á gamla fólkið og öryrkja ! Enda heimilin tóm og farin.
19.6.2009 | 22:04
Bloggar | Breytt 20.6.2009 kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kerlingar og Karlar er halda að hundar séu skraut fiskar!
19.6.2009 | 15:11
Hvernig væri fyrir þetta fólk að ganga, skokka með hunda sína í Heiðmörk sér og hundi til heilsubótar, en hanga ekki í kjaft klúbbum um víðan völl eða í strætó skýlum meðan hundurinn hleypur stjórnlaust fyrir bíla eða laxveiðimann er borgar okur verð fyrir það eitt að sjá einn lax hvað þá fá eitt striki. Nei kannski besta veiði trikkið er að hafa stóð af geltandi hundum á árbakkanum það líka laxinum vel og heldur að hann sé í flottri ómengaðri sveita á. Já það ervit að lifað á klakanum þessa dagana. Laxa karlar eiga bara að skjóta hundana og hundafólkið að skjóta laxinn málið leyst eða hvað? Nei málið er öllu alvarlegra það. Vandinn er kynlíf laxa og hunda er endar bara illa, alls ekki gott segir "Össur Skarphéðinsson" doktor í kynlífi laxa.
Það hleypur einfaldlega hundur í laxinn !
![]() |
Styrjöld á Geirsnefi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jóhanna Sigurðardóttir kann ekki að skammast sín!
18.6.2009 | 19:49
Hin gagnsæja, ''hæstvirta" Jóhanna Sigurðardóttir, sakar þingmenn um hræðsluáróður. Hvaðan kom þessi kona og hvert ætlar hún ? Kerlan hefur steinþagað undan farið og ekkert gert nema stimpla öll sín skjöl sem leyndó sem og múlbundið þingmenn sína og ráðherra. Síðan gerist það að kerlan grípur andann á lofti á þjóðhátíðardag og þagnar bara ekki síðan, heldur sendir bendingar og ávirðingar í allar áttir ! Er ekki komin tími á að læknar grípi inní og skoða hvort kvengripur þessi sé með fullifemm ?
![]() |
Hræðsluáróður, segir Jóhanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Er Jóhanna að plata sig eða þjóðina núna ?
18.6.2009 | 14:29
Veit Jóhanna eða Steingrímur ekki hvenær þau segja ósatt ? Það er slæmur geðsjúkdómur er fólk platar svo mikið að það trúir því sjálft ! Joseph Goebbels sagði að ef lygin væri sögð nógu oft þá yrði hún af sannleika í eyrum fólks!
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að engar líkur væru á að með Icesave-samningunum sé hætta á gjaldþroti Íslands.
![]() |
Gjaldþol ríkisins ekki í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Einræðisherrann heilög Jóhanna á að stíga úr stólnum nú þegar !
18.6.2009 | 11:56
Er ég horfði og hlustað á ræðu forsætisráðherra í gær gat ég ekki annað hugsað en þar færi forsætisráðherra er talaði undarlega við þjóð sína. Radd-beiting var ótrúleg með ívafi af hroka semog virðingarleysi, enda talaði hún hreinlega niður til þjóðarinnar. Hvað hún á að verja og vilja veg sem velferð mesta, enda hefur hún skrifaði undir með drengskapar heiti þar að lútandi. Nei valdhrokinn er í algleyming hjá kerlingu. Hún nefndi styrktar aðila sína og kallaði þá nokkra útrásarvíkinga, hverjir voru það eða við hverja þeirra átti hún ? Hversvegna gat hún ekki bara sagt að þetta væri liðið er borgaði undir rassinn á henni og "samfylkingunni", nei það gat hún ekki ! Þjóðin á að borga og borga og borga fyrir vinahóp hennar. Þar af auki en meira ef Hollendingum eða Bretum líkar ekki hvað er borgað þá mega þeir bara sækja það er þeir vilja eins og Landsvirkjun, vatnið okkar, fiskin okkar, Olíuna okkar, já eða hvað eina það er þeim hugnast, enda engin varnagli í þessum vanhugsaða afsamda samning landráðamannanna þjóðarinnar, þar sem einræðisherrann og landráðamaðurinn Jóhanna Sigurðardóttir fer fremst í flokki ! Furðulegt að konan með hrokann hafi brotið öll loforð sín við þjóðina á fyrstu vikum stjórnar sinnar, hreinlega rekið tunguna framan í fókið í landinu, meðan hún "heilög" Jóhanna Sigurðardóttir skrælar utan af fólki heimilin sem og alleiguna með skattakrumlu sinni. Þetta er sama konan er tafði í sífelldu störf Alþingis með sí malanda sínum og málþófi, trekk í trekk, Þegar hún ekki sat á sínum breiðrassi í ráðherrastóli. Hver er dómur við landráðum eða drottningarsvikum?
![]() |
Allar eignir ríkisins lagðar að veði? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)