Færsluflokkur: Bloggar
Þjóðhátíð vegna !?
17.6.2009 | 13:11
Yfir hverju á þjóðin að gleðjast með vitfirrt fólk við stjórn, er stefnir að því eina að gera þjóðina að engu ! Þetta fólk lýgur líka að þér á 17 júní sem aðra daga, næst taka þeir pottanna þína enda ekkert í þeim og koma þannig í veg fyrir aðra búsáhaldabyltingu smá borgara landsins.
![]() |
Það er kominn 17. júní |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er þjóðin okkar þegar dauð og það á 17 júni ?
17.6.2009 | 11:52
Hvenær er þjóð farin yfir móðuna miklu ? þegar hún er fullveldislaus og sjálfstæðislaus, er þá þjóð látin ? Flestar þjóðir tína lífi sínu í náttúru hamförum, hernaði eða hreinlega leggja upp laupanna. Á Íslandi og hjá Íslendingum er annað uppá teningnum þjóðin dó, eða er deyandi innanfrá. Þetta er þó þekkt í veraldarsögunni að heilu þjóðirnar og menningar ríki hafi bókstaflega gufað upp og horfið af yfir borði jarðar.
Þær eru ekki fagrar aðgerðirnar er sitjandi ríkisstjórn aðhefst. Stjórnin virðist aðeins róa að því öllum árum að murka lífið úr landsmönnum sem og beita óráðum sínum í að koma landinu undir erlend yfirráð, ef ekki undir Alþjóðabankann og IMF, þá undir blýant nagaranna í Brussel.
Ég segi til lukku með loka þjóðhátíð okkar í stuttu sögu endurheimts sjálfstæðis þjóðarinnar.
Þökk sé sitjandi ráðleysisríkisstjórn og nokkrum skuggalegum bankamönnum, er ríkisstjórnin heldur hlífðarskildi yfir og má ekki til þess hugsa að þeir verði sóttir til saka, nei skítlegt eðli þessarar stjórnar er slíkt að hún vil frekar kyrkja heimilin í landinu sem og alþýðu manna er eingin heimilli eiga lengur. Í tilefni dagsins legg ég til að þetta missendis fólk á stjórnar heimilinu verði sent nú þegar í betrunar vist á Brimarhólmi.
Ekki sá/sér sitjandi forsætisráðherra nokkra ábyrgð hjá sjálfri sér að hafa setið í og verið aðili að hrun ríkisstjórn síðasta árs. Konan er gjörsneydd allri sammvirsku sem og siðblind. Það er sómi og skylda íbúa þessa lands að draga þetta fólk til ábyrgðar nú þegar, en sigla ekki sofandi að feigðar ósi !
![]() |
Heyjum á ný sjálfstæðisbaráttu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Milljarða skattahækkanir í burðarliðnum!
16.6.2009 | 13:33
![]() |
Skattahækkanir úr ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Apaköttur gerir mér lífið leitt.
15.6.2009 | 12:57
Kerlingar skömm hringir á lögguna er ég hafði sagt henni til syndanna á bar skrýpi enda óvenjulega dónaleg af Thaiara að vera. En þarna höfðum við félagar litið við, á laugardagskvöld.. Nú löggan með mig á stöðina þar sem ég var ekki með skilríki og síminn straumlaus, tók ekki betra við þar enda ákaflega leiðinlegur maður við stjórnvölinn og varla talandi stakt orð í ensku, fóru leikar svo að mér var stungið í svartholið í monkey house og fékk að dúsa þar þar til vinkona mín er hafði leitað af mér um allt, öllum spítölum og þar er sem ég legg vanalega leið mína, var fólkið mitt komið á þá skoðun að ég hefði verið drepin enda ekki vanur að hverfa svona gjörsamlega, á endanum fékk Bee að kíkja inn í Monke house þar sem hún fann mig 18 tímum eftir að ég lenti í kerlingunni slæmu. Ekki fékk ég vott né þurrt í þessari vist og er helst á að varðstjórinn hafi verið frændi kerlu, hann síðan löngu komin í frí er ég loksins fannst. Hugsa ég helst að ég muni sendi kerlinguna í ferðalag er ég hef hvílt mig, við kallinn er svo sem lítið hægt að gera enda bæði auli og thai-lögga, en ætla þó að leggja fram kvörtun á skrifstofu lögreglustjóra hér í borg enda maðurinn er stakk mér inn fyrir engar sakir nema munsöfnuð við sauð, þjófur í þokkabót. Ekki það þetta var mjög fróðlegt, enda hitti ég furðulegast fólk eins og smákrimma, mellur, lady-boy-a, snarbrjálaðan kana, og hágrennandi Svía og er þá fátt upp talið af karakterum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rússa saga 2
11.6.2009 | 19:48

Bloggar | Breytt 30.7.2009 kl. 02:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vald eða ekki vald ?!
11.6.2009 | 07:42

![]() |
Piparúði á þrotum þegar átökin náðu hámarki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Á verönd heimilis míns.
11.6.2009 | 04:13
Rakinn og hitinn geta gert mann undarlegan að ég held. Ég er nú ekkert beint vanur að tjá mig um mitt persónulega líf, en nú verður ekki hjá því komist. Einn morgun vakna ég upp við þessi voðalegu læti, sem og oftar kerling nágranni minn há grenjandi sem er eiginlega daglegur viðburður hér.Þannig er að einn nágranninn er Rússi og mella er hefur þennan viðbjóðslega, svakalega, svaðalega Rússa pimp (dólg) og er kallinn kemur að innheimta leikur bara allt á reyði skjálfi, ekki nóg með það hann hefur einhverja sérstaka þörf fyrir að smalla hurð kerlingar, nú svo komið að þetta hurðskrípi, vart hangir samman eða á hjörum, Arggg mér varð nógboðið og ákvað að gera eitthvað í málum því kerlan sígrenjandi, ég vissi nú ekki alveg hvað ég ætti að gera enda Rússinn hár og mikil rumur, eftir smá vítamínskammt og hugdettur fann ég óborganlega lausn. Það var bara eitt að gera koma bjána á óvart þannig að ég skellti mér í sundskýlu og eina af löggu/hermanna skyrtum okkar Begga hengdi ég öll þau heiðurs merki er til voru á mig sem og skýluna + smelti á mig kúrekahatti og skeiðaði í lyftuna til að sækja öryggisverði. Verðirnir gjörsamlega sprungu úr hlátri er þeir sáu dýrið, útlitið eða búninginn á mér. Ok ég með þá upp í lyftunni, barði hressilega á hurðargarminn öskrandi Polise ! Vinurinn rússneski horfir á mig eins og viðundur, greinilega aldrei séð löggu með tíkarspenna skólausan á sundskýlu með heiðursmerki. Það kom humm "How can I fix this" það var það eina er kallinn stundi upp .. Haaa Well borgaðu öryggisvörðum 2000bht núna og ég geri ekki mál úr þessu.. kallinn borgaði um hæl og eftir lágu verðir afvelta af Wiski þambi. Gott ef þessi Rússi drepi mig ekki. Hann er þó hættur á græta kerlu sem og smalla hurðina hjá henni. Í næstu íbúð við mig býr engin hvorki til hægri né vinstri né fyrir neðan mig. Ennnnn fyrir ofan mig býr drjóli er tekur til brúks kerlu á um eins og hálfs tíma fresti eru hljóðin engu öðru lík, nema að mér rennir ígrun að um Ópavogs parið sé flutt inn og haldi að hér sé löglegt að öskra ómææælt.. Nema hvað í fyrradag fluttu inn þrjár stúlkur beint á móti mér, vel greindar enda
kallandi lovely yfir laugina, ekkert að gera í stöðunni annað en varpa sér í sund með þeim. Ekki vakti það beint kátínu með Írönum er búa á móti mér, enda vilja þeir helst eiga allt, áður en ég snéri mér við var laugin full að öldungum sem og kerlingum Írana er sýndu getu sýna í hunda-sundi ekki það Írönsku strákarnir eru ágætir og blautari en ég kannski í útlegð spyr ekki.. NemaHvað er ég kom úr sturtu var bankað létt á dyrnar og er ég laukupp stóð ekki þessi fallega stúlka brosandi upp að hársverði með spangirnar sínar glóandi, ég horfði smástund á hana undrandi, sagði þá fljóðið "can we go to bed" ?" Ég hváði gvvvað ertu gömul eða ung,, 18 var svarið.. OkY úr vöndu að ráða í stöðunni, því ekki vildi ég styggja né afneita góðu boði. Þannig að ég greyp til lyga Im soooo sooo sorrryyy Im only sleeping with my boyfriend Mr. Smirnoff...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hundur í Sóla og kynlífið ???
10.6.2009 | 23:06
Það er ekki lognmolla á þessum bæjum félaga, Bubbi orðlaus eftir tvíhöfða, Sóli skelfilega omulettu laus. Þetta er bara hið versta mál, Bubbi er hafði gaman af söng og tjáningu er gjörsamlega orðlaus, kemur bara ekki stuna frá honum og nú hljóp hundur í Sólmund og hefur sennilega eyðilagt fyrir honum allt kynlíf, en eins og flestir vita hafa egg mikið með kynlífs getu karla að gera, Nú er lítið að gera hjá Sóla !? Ekkert annað að gera fyrir kallinn en sækja strax um hjálp frá bjargráðasjóð til að laga eggja framleiðslu sína.. Stór hundur, sem var með eigendum sínum í orlofshúsabyggðinni í Akurgerði í Ölfusi, réðst að hænsnum á bænum Borgargerði um miðjan dag í gær. Náði hann að drepa eina hænu og skaða hanann á bænum áður en tókst að stöðva hann.
Þetta kemur fram á vefnum sunnlendingur.is. Þar segir að mikið af lömbum sé við nærliggjandi bæi sem hundurinn hefði allt eins getað ráðist að ef hann hefði ekki verið stöðvaður.
Sólmundur Sigurðsson, bóndi í Borgargerði, tók hundaárásinni létt þegar Sunnlendingur.is spjallaði við hann í dag og sagði að ekki yrðu eftirmálar af hans hálfu vegna þessa. Fólkið sem átti hundinn varð miður sín en málið var leyst innan húss og lögregla ekki kölluð til. Haninn mun vonandi jafna sig og ég fæ nýja hænu frá fólkinu," sagði Sólmundur í samtali við vefinn.
Sólmundur heldur hænur eingöngu til heimanota en sé horft til þess hlutfalls stofnsins sem hundurinn komst í er skaðinn gríðarlegur. Ég er nú bara með fimm hænur þannig að þessi eina sem drapst samsvarar 20% af bústofninum," segir Sólmundur hlæjandi í samtali við vefinn. Mestar áhyggjur hef ég af því að fá ekki eggin mín því hinar hænurnar eru auðvitað í sjokki."
Sólmundur þakkar fyrir að tengdadóttir hans var heima við. Annars hefði hundurinn klárað hænurnar en þegar hún kom að var hann búinn að drepa eina og byrjaður að tæta í sig hanann," segir Sólmundur.
Þó Sólmundur taki málinu af stillingu eru dæmi um að bændur í Ölfusi séu óhressir og einn þeirra sagði í samtali við Sunnlending.is: Furðulegt að fólk skuli hleypa svona skaðræðisskepnum lausum, þó það sé uppi í sveit."
Eiga hundar almennt ekki heima í sveitum ég á eða átti 3 og +2 er komu til heimsóknar 2-3 í mánuði eða þangað til eigandinn sótti þá, alltaf snéru þeir aftur á búið mitt og létu hænurnar vera haha
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er ekki Asni ? Bara kú !
9.6.2009 | 12:11
Það undarlegt með kýr og þekki ég nokkrar skrítnar, Ein var t.d. þannig að ég gat ekki með nokkru móti fóðrað hana fyrr en ég tók eftir því að hún reyndi ávalt að stinga hausnum út á milli rimla í gerðinu og ná því er hafði fallið á jörðina, en snerti ekki við korni né heyi er borið var fyrir hana sem og aðrar kýr er ég átti (Á) í norðuraustur Thailandi. Ég hugsaði málið um stund því kýrin nærðist illa á þessu háttarlagi sínu, og voru góðráð rándýr. Varð ég að fá mér að hugsa mikið hugsaði þangað til, mér datt í huga að taka kúna úr gerðinu og tjóðra hana við tré, sótti svo bala og gaf henni í hann, vitji menn kýrin fór að éta sem aldrei fyrr og tók að braggast heldur betur. Þessi kýr vildi semsagt eingöngu nærast ein, eða með sjálfum sér og látaþjóna sér til jötu. Einn tudda átti ég líka er vitlaus var í alla grænmetis afganga er féllu til en ég ætlaði í geitur og hænsni, vildi hann tómata, ananas, gullrætur, jarðaber, lauk, já afskurð, er ég bjó til salat eða ávaxta drykki mér til heilsubótar í djúsara held samt að tuddinn hafi bragast betur en ég á þessum tíma. Nú berast fréttir af kú enskri er hefur þennan einstaka karakter að þola ekki Breskaverkamannaflokkinn. Kýr þessi er í miklum metum hjá mér, þó svo hún hafi farið manna vilt. Hún átti að sjálfsögðu að ráðast á hrosshausinn Gordon Brown. Legg ég því til að forseti vor sendi menn og smelli svo sem einu stikki orðu á kúna, Því hún hefur greinilega meira vit en Íslenskir stjórnmálamenn, það sýndi hún sannarlega með því að banka innanríkismálaráðherra Bretlands, David Blunkett.
Ég veit að almenningur er reiður út í stjórnmálamenn en hafði ekki gert mér grein fyrir því að óánægjan hefði einnig náð fótfestu í kúastofnum landsins." sagði Blunkett í samtali við The Guardian.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Icesave-samningarnir, svívirða við þjóðinna !
8.6.2009 | 16:53

![]() |
Samið af sér með skammarlegum hætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)