Færsluflokkur: Bloggar

Uppköst og niðurköst

ÉG er alltaf sami bjáninn og það er orð á sönnu. þannig er að á Fimmtudags eftirmiðdag skrapp égtomyumgoonað sækja einhvern fjárann, og kom við á smá resturant þar sem mér var boðið uppá bolla af Tom Yum Goong (hlekkur) súpu en það er rosalega góð og hressandi súpa en eitthvað mikið var af kryddi í þessari súpu að hætti Thaiara, ég logaði enda á milli og 2-3 tímum seinna stóðu straumarnir uppúr mér semog niður, þetta varð allsherjar hreinsun að hætti Jónínu Ben haha, tók alla aðfararnótt föstudags sem og allan föstudaginn, er rétt farin að lagast núna og klukkan að ganga 16.00 á Laugardag. Ég held nú loksins niðri koniak lögg til að róa magann en þarf að verða mér út um korktappa í hinn bordercambodiaendann. Þetta var ansi leiðinleg upp/niður koma enda þurfti kunningi minn að skreppa til Cambodiu, ég hefði vel getað hugsað mér að fara með enda mjög oftborder2 skropið þangað í ferðir sem og næla í Wisky á gjafverði, það eina sem er hryggilegt við að sjá í Cambodiu er þessi hræðilega fátækt er hrjáir fólkið og hvað þá börnin. Það undarleg tilfinning að ganga inn í ríkuleg Casino þarna með alla þessa eymd fyrir utan og á landamærunum enda allt vaðandi í betlurum, AÐALEGA BÖRN OG LIMALAUST fólk eftir hörmungar fyrri ára, er Pol Pot framdi á þjóðinni með aðstoð rauðu khmeranna.  

Ég ekki skilja boffs?

Hvernig getur ríkisstjórnin flutt skuldir yfir í nýu bankana en skilið hlutabréfin eftir? Dæmi: Fólk erframh lagði sparnað sinn í hlutabréfa eign í KB og landsbankanum á ekki baun í bala í dag, en þeir er skulduðu gömlu bönkunum fá sífeldar rukkanir og hótanir. Hlutafjáreign horfin en skuldirnar ekki, þannig ég bara ekki skilja neitt :( Kannski best að fara smyrja framhlaðninginn og skjóta einn og annan eða aðallega annan í fótinn.

Ekki góð frétt..

Hélt mikið uppá þig er ég var ögn yngri. Geymi þig!David Carradine

Bandaríski leikarinn David Carradine, fannst látinn á hótelherbergi sínum í Bangkok á Taílandi.


mbl.is David Carradine látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það gerist ekki sættara hættur að nota sykur í kaffið :)

Villtist af leið á leiðinni heim í gær enda áttvilltur, en hér er ástæðan ! Gerist ekki betra..

7+6

Grænt Te frá kina

Ég hef mestmegnis talið Kínverja skrítna, en eftir að ég fór að heimsækja þá að staðaldri kom í ljós aðondin þetta eru bara flottir kallar og kerlingar upp til hópa og góðir heim að sækja. Soltið stífir ennn.. Hverjum öðrum en þeim hefði dottið það í hug að troða appelsínu í Peking öndina ? 


mbl.is Óljósar fregnir af sendiherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Jóka djók-ari ?

Hum-ari, hrærari, hressari, værari, vitari, leigari, sjóari, þjálfari, grafari, boxari, hlaupari, fyndnari, söngvari, reiðari, kafari, fúnari, múrari, raulari, söngvari, bankari, hringjari, pípari, nánari, gaflari, trommari, suðari, blautari, bakari, skóari, slúðrari, þurrkari, lygari, kaldari, gætnari, flagari, laglausari, tengdari, innraðari, ljósari, kátari, þénari, teiknari, feitari,jskennari, rætnari, klippari, flottari, vefari, veiðari, þorpari, sveittari, bloggari, bullari, tatari, klifrari, flatari, þurrari, klókari, snyrtari, þambari, snertari, tamari, sniffari, dúkari, teljari, setjari, ýtnari, rukkari, ríkari, okrari, straujari, fljótari, runkari, ræktari, húkari, tæpari,  ræðari, sterkari, lánari, grillari, kjaftari, gaufari, blíðari, leikari, sleipari, tætari, spilari, graðari, betlari, myndhöggvari, þrasari, grínari, sæðari, sópari, kóðari, nuddari, flísari, upptakari, hringjari, fisknari, aumari, borgari, splæsari, kuklari, krúnkari, smakkari, sníkjari, prakkari, pakkari, flakkari, skreppari, skyldari, skrifari, safnari, fangari, bónari, kleppari, hreinsari, flinkari, púari, framari, veikari, teikari, smartari, grónari, potari, plotari, ruglari, þrumari, sminkari, prentari, fiktari, liftari, En hún er góður penslari og málari kannski þunglyndari "ráðstafari" Valdari... Vertu bara ARI, Bless-Ari.


Að fjara út ?!

Hvernig getur skjálftavirkninni fjarað út ? ok orða tiltæki en sjá neic_hfch_w

Ekki er ég gosi en nef mitt veit meir en það nær ! Vittu til.


mbl.is Skjálftahrinan að fjara út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í skotlínu !?

Þetta er nú bara eins og þegar kallinn sló félagann og var spurður hverju þetta sætti, ''Jú sjáðu til hann lár-navy svo vel við höggi'' Sennilega hefur þessi bær bara dottið í miðið hjá skyttunni eða þannig og smell passað í skot línunna, KaaBúmmm.
mbl.is Skutu á þorp í misgripum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil vilji

Heitir þetta ekki einbeitur brota vilji ? Maðurinn virðis áfjáður í að komast í húsnæði, kannski heimilislaus oginnbrot sér ekkert annað en að komast í langtíma gistingu. -Misjamt hafast mennirnir að-

Samkvæmt upplýsingum er ungi maðurinn annar þeirra, sem brutust inn í hús við Barðaströnd á Seltjarnarnesi í síðustu viku og réðust á húsráðanda þar.


mbl.is Braust strax inn aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinur minn vill bara svína kjöt og uppskar Orma!

Einhverju sinni er ég var í sveitinni ( Korat ) varð mér brátt í brók og skellti mér á Vesinið . Gekk aðgerðin eins og í sögu enda átti ég ekki von á öðru, lifði mjög heilbrigðu líferni eins og alltaf er ég var þarna uppfrá að leika bónda, reglulegur matur og svefn.ormur

Mér var því brugðið er mér varð litið í skálina er ég ætlaði að sturta niður, allt var iðandi í skálinni og kringum hægðir mínar.

Skrattinn sjálfur, varð mér hugsað, ég er kominn með orma og það ekki fáa. Arggg er mér hugsað, ég hef ekki steikt svínakjötið nóg, verð að passa mig á þessu, þetta er ekki eins og heima á klakanum.

Sturta öllu niður og viti menn enn eru ormar í skálinni, ekkert smá magn. Verð að fara í bæinn og kaupa ormalyf. Leita Vee uppi og heimta lyklana af bílnum ég þurfi að reka erindi í borginni. Hún horfir á mig undrandi og segir, "er eitthvað að?" Nei, allt i fínu lagi, þarf bara að skreppa smá, tjái ég henni, "á ég ekki að koma með þér" spyr hún, ertu viss um að rata, já ég rata og verð ekki lengi.

Ég skelli mér upp í jeppann og brunaði á stað til Nakhon Ratchasima ca. klukkutíma akstur. Á leiðinni hugsa ég stöðugt um orma og hvort þeir geti lagst í ferðalög og skriðið upp um mig allan, þetta er hið versta mál. Ég finn apótek í mallinu og kaupi ormalyf fyrir mannskepnur, eldrauður í framan.

Heimferðin gekk vel, mun ég hafa keyrt ansi greitt á köflum enda leið mér ekki vel hugsandi um þessa bévitans orma. Ormalyfið kom í kassa með nokkrum töflum í og sem betur fer voru leiðbeiningar á ensku sem og thai, ég tók mesta skammt er mátti fyrir fullvaxta, það átti að vera nóg til að drepa heila hjörð af ormum.

Daginn eftir er ég undarlegur og hálf illt í maganum og er mér varð mál skellti ég mér á vesenið. Allt var við það sama, iðandi skál. Arrrrrrggg, sturtað niður og restin af töflunum sturtað niður í maga með vatni. Vee er endalaust að spyrja hvað sé að plaga mig, ég svara henni engu heldur ráfa um svæðið og á þessu rölti mínu kíki ég í vatnstankinn fyrir klósettið en öllu vatni er safnað í stóra tanka ef ekki skildi rigna í langan tíma.

Viti menn, er mér er lítið í tankinn og sé ég að allt er iðandi í vatninu. Það renna á mig tvær grímur, ég gríp til fótanna til að finna Vee, dreg hana með mér að tanknum og spyr hvaða lirfur eru þetta "Mosquito" svar hún og fer.

Nú verður stríð hugsa ég, fer heim og sæki tvo brúsa af klór og helli í tankinn. Vee sér til mín og spyr hvað ég sé eiginlega að gera ? "Drepa þessar andskotans mosquito lirfur, ég hata þær" Vertu ekki að spandera klórnum í þetta, það kom kall með lyf til að setja í tankinn, þarf að gera áður en regntíminn byrjar, nú af hverju er það ekki setta í vatnið, bara gleymska segir Vee.killer

Ég finn lyfið og sturta slatta í tankinn og viti menn, lirfurnar hætta að sprikla og fljóta upp, haha ég vinn hugsa ég glaður í bragði.

Um kvöldið var Vee enn að spyrja hvað ég hafi verið að gera í bæjarferðinni og hálfvitinn ég segi henni alla söguna. Mér er enn strítt á ormalyfinu.

Ef ég fer á næstu bæi, hvíslar fólk "þetta er sá orm-lausi" og sveitavargurinn hlær. 

Í dag þann 31-05-09 er staðan svona í Cambódíu hefur fundist afbrigði af malaríu  (Köldu) veirunni er hefur gríðarlegt þol gagnvart mótefnum, er talið að þessi veira er berst með mosquito deyði eitt barn í heiminum á sekúndu. sem er skelfilegt. Veira þessi kom fyrst fram í afríku en barst síðan til suður Ameríku og áfram inn í vestur bandaríkin sama hefur orðið í Asíu þar sem malaría er landlæg. Þá er nú gott að búa á Íslandi enda lifir Mosquito ekki á klakanum okkar né Grænlandi, en við eigum þó mývarginn og ekkert við hann að gera annað en skjótan á færi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband