Færsluflokkur: Bloggar

En er bruðlað!

Hvað kostar að senda eitt stk þyrlu, eitt stk sérsveit full vopnaða, fíkniefnahund í einkadrossíu og tveggja tíma leit i lestum hjá skötuselsköllum ? ég bara spyr fyrst það sást svona vel til þeirra í radar mátti þá ekki senda gúmtuðru eftir þeim en eitthvað er fréttin skrýtin, það sést til þeirra í radar en samt tók það tveggja tíma umfangsmikil leit að þeim ? en spyr ég hversvegna týndust þeir, ekki eru þeir nú á hraðskreiðum bátum skötuselskallanir (vona að ég móðgi engan með þeirri fullyrðingu) Þá hafa þeir sérsveitarmenn lýklega ekki lyktað nógu vel eftir leitina í lest bátanna, Bara venjuleg slorlykt er mallar drengir þola illa. Sem sagt þetta voru ekki einu sinni eiturlyf í skötulíki og ekki fundin með ærnum kostnaði. þarna er ákafin greynilega við stjórn ! Gangi þeim bara betur næst, við veiði á smyglurum.

    Vona að þeir hafi farið heim með marhnút í soðið til að bæta hag heimilis enda verskið tómt!

marhnutur

Leiðrétting það tók víst tvo tíma að leita í bátunum en ekki að þeim ;)


mbl.is Sérsveitin tók á móti skötuselsveiðimönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Koll vitlaus stefna !

Þjóðin átti sér einskis ills von er banka kerfið hrundi skyndilega að vísu voru nokkrir postular með áhyggjur en gera ekkert já ekkert! Það undarlega var að ýmsar banka stofnanir sem og ríkisstjórnir ónefndra landa sáu sér leik á borð að knéseta þessa útrásar þjóð í norðri, Bretar skelltu eitt stykki hryðjuverkalögum á smáþjóðina vopnlausu með hroðalegum afleiðingum, IMF = World Bank fékk blood po tannen og bauð fram hjálp á ofur vöxtum sem þá verandi vesalings stjórn gleypti við einsrenur ut timinn og barn er fær sælgætis pokann sinn á laugardegi.

Þar með var búið að leggja netið, þjóðin orðin föst í svikamillu IMF og engan vegin fær um að borga þessi lán til baka. Með þessu ætlar IMF sér að knýja stjórnina til að einkavæða (privatization of all) fiskin, orkuna, vatnið, olíuna ef af henni verður og sjálfsagt gera þeir kröfu í hreina loftið okkar einnig með skatt töku á andardrætti þjóðarinnar.

Nei þetta er ekki grín þessir menn eru hér til að gleypa þjóðina, plús allt það er hún byggir á og á sér til viðurværs. Það er hrein heimska að snerta þessa peninga frá IMF = AGS og þeir aurar er komnir eru í hús á að skila strax enda eru þessir peningar á banka í USA ef ég heyri rétt og bera aumingja vexti, en þjóðin borgar fyrir þessa trojan aura risa vaxna vexti, það er og verður alltaf tap á að gera viðskipti við mafíu stofnanir eins og IMF = AGS.

Það fólk er starfar í utanríkismálanefnd þingsins ætti hæglega að geta aflað sér nákvæmra upplýsinga um sögu og óhæfu verk IMF-World Bank, þjóðin verður að fá að vita hverju hún á von á er hún missir sjálfstæði sitt aftur. Þetta var stutt sjálfstæði þjóðarinnar aðeins 65 ár, 1944-2009 ef fram fer sem horfir.

Þeir sem horfðu á heimildarmyndina á RÚV í gær hafa ekki matarlyst í dag. Þar kom glögglega fram hegðun og græðgi IMF-AGS og hvernig hann hefur farið með fólkið í löndunum er IMF-AGS hefur veitt lán til.

Islendsk-Jardarfor

Þjóðin er ösku reið það reið að það má búast við að blaðran springi. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ber skylda til að gæta að hag þjóðarinnar sem og fólksins í landi okkar !

Endur greiða á svika silfur IMF strax og vísa þeim úr landi okkar nú þegar. Tíminn er úti!


mbl.is Utanríkismálanefnd í lykilhlutverki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skera niður

Það fer vel á því að Þingflokkar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna sitja nú á fundi í Þjóðminjasafninu, enda stefnir þjóðin hratt á minjasafnið vegna dugleysis.
kross

mbl.is Auka tekjur og skera niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleyptir hráir

Íslendingar verð gleyptir hráir í Evrópusambandinu, þar að auki er það engin lausn fyrir þjóðina í þeim vanda er hún á við að etja þessa daganna. Aðildar umsókn að Evrópusambandinu tekurI-Fish-Iceland langan tíma og ómæld fundar höld í samningu um sér stöðu Íslands, það er engan vegin ljóst hvor við fáum yfir höfuð einhverja ívilanir og sumar þeirra er ríkisstjórnin nefnir eru óskhyggja ein sem og tóm fyrra.

Komi umsókn þarf ég að ræða við nokkur af aðildarríkjunum áður en ég eða Evrópusambandið geta gengið til viðræðna um umsóknina," hefur Jyske-Vestkysten eftir Reinfeld. ,,Ég fagna því ef fleiri lönd ákveða að sækja um aðild, ekki síst nágrannalönd okkar," segir Reinfeld. Hann segist þó vita, að nokkur stór aðildarríki vilji bíða með frekari stækkun Evrópusambandsins þar til búið er að staðfesta svonefndan Lissabonsáttmála, sem gerir ráð fyrir breytingum á stjórnkerfi sambandsins.

Segir mér svo hugur að þetta sé allt Jóhönnu blindni er starir bara eingöngu á Evrópusambandið. Það á að eyða kröftum í að laga ástandið hjá þjóðinni, síðan má snúa sér af öðru er árangur fer að sjást. Ef ríkistjórnin væri svona áhugasöm um lausn vanda landsins og EU draum Jóhönnu um Evrópusambands aðild, hefði miklu verið áorkað í lausnum fyrir þjóðina! Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur veit ekki hvernig á að forgangs raða málum. Enda er ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur veruleika fyrt eins og hún heldur á málum, sér ekkert nema það að það sé betra hinum megin við ána. Hrein heimska er margur hefur reynt.

andlat-rikisstjornar

mbl.is Myndi fagna ESB-umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ég hættur að hnýta í EUuu Jóhönnu!?

Ekki vill ég að Jóhönnu ráðlausu langlífa í ríkisstjórn! Nú mun ég aðeins skrifa minningar grein er stjórnin geispar andlausri golunni, enda líklega ólæknandi af úræðaleysi, getuleysi, sammvinnuleysi hvað þá miklu háttleys er hrjáir hell sjúkan, sjúklinginn.

Ég mun öllu heldur hnýta í eða lofa hvern þann er á það skilið framvegis.

Slóð í grein á mbl.is HÉR

Þetta er bara svona:

Suður-Afrískur verkamaður var rekinn úr starfi eftir að hann setti ummæli um yfirmann sinn á Facebook, hann kallaði yfirmann sinn „rað-runkara" hvað sem það nú þýðir.

andlat-rikisstjornar
Betra er að ráða menn með réttu ráði, en ráðamenn.

Sé ekki að Stjórnin þori !?

Það að stjórnin kæmi á fastgengisstefnu kæmi mér mjög á óvart, ríkisstjórnin þorir ekki fyrir sitt stutta líf að gera eitt né neitt hvað þá taka eina ákvörðun! Þetta er orðið skrípó dæmi og má ekki ganga svona öllu lengur. Bara Það að Jóhanna Sigurðardóttir er hótandi vinstri grænum með stjórnar samstarfs slitum ef þeir skila ekki atkvæðum sínum um ESB sýnir glöggt ástandið á þessu óstjórnar heimili . Það er ljóst að það verður að styrkja Krónuna og það strax, kannski þessi fastgengis stefna gangi kannski ekki en það verður að hefjast handa við að byggja upp atvinnulífið og heimilin allt er sennilega  betra en ekkert ! Það sem þjóðin færa í eyrun er eintómt gaspur, tal út og suður, en mest norður og niður. Á fundum aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda, um svonefndan stöðugleikasáttmála hefur verið um það rætt að festa gengi krónunnar miðað við gengisvísitöluna 160 til 170 ef af verður er það strax til bóta til að starta atvinnu hjólinu og er agnar lítil hjálp við heimilin. Eins og áður segir þá er ég hræddur um að þetta sé bara en eitt kvakið um ekkert í hringavitleysu ríkisstjórnarinnar.

getuleysi-radleysi
Jóhanna Sigurðardóttir þinn tími er komin og liðinn.
Tak hatt þinn og staf og gakk. 
Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn.

mbl.is Festa gengið í 160 - 170
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrkeypt verður Ráðleysisríkisstjórn Jóhönnu Öll !

Ráðleysisríkisstjórn Jóhönnu ber en höfðinu við steinninn og stein þegir ef ekki væri nema smá kvak er kom frá Steingrími Jóhanni Sigfússyni fjármálaráðherra í viðtali á öldum ljósvakans. Ef ekkert hefði heyrst hefði ég haldið að Ráðleysisríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur væri öll. Ekki var það nú svo gott, en athygli mína vekur að Jóhanna Sigurðardóttir steinþegir og kemur ekki púst frá henni, þá er Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra stein þagnaður og fer lítið fyrir brosi á herranum.

woman-j
Jóhanna Sigurðardóttir þinn tími er komin og liðinn.
Tak hatt þinn og staf og gakk. 
Betra er að ráða menn með réttu ráði en ráðamenn.

Hvað er hættulegra en ..... fyrir ísland ?

Nú eru Þrjár Norskar F16 Þotur í KEF en þær munu hafa komið í gær ásamt fjörtíu mannaliði er sinnirf16 Norsku sveitinni er áætlað að þær verði hér í um tvær vikur og gæti flughelgis gæslu í himinn hvolfinu yfir landinu eða svo kallaðri loftrýmisgæslu, "hum" Nýverið hættu Spánverjar við að senda flugsveit hingað til lands vegna kostnaðar sem er skiljanlegt vegna ástands í efnahags málum Evrópu og heimsins, en stóra Ísland á yfir drifið nóg af aurum til að borga sinn hluta kostnaðar einhverjar sex til átta milljónir króna sennilega meira, til þess að engin óboðin flækist upp að landinu og næli sér í fallega mynd af fegurð landsins. það er með ólíkindum að ráðamenn séu að bruðla svona ef einhver vill líta landið á, þá bara gerir hann það er þessi loft gæsla er ekki í gangi, þar að auki fylgjast Norðmenn fjarska vel með flugumferð nær landinu, það sem meir er sitjandi heima hjá sér, og það kostnaðar laust fyrir þjóðina. Íslandi stafar ekki ætta af neinum, ekki Rússum, Ekki Kjarnorku veldinu Norður Kóreu. Heldur stafar Íslandi stór hætta af IFM = AGS, og sennileg en meiri hætta af Stjórnmála mönnunum er sitja Alþingi þessa dagana, stefnandi Þjóð okkar að feigðar ósi. 


Situr stjórnin bara til að sitja ! Ráðalaus, Framkvæmdalaus og Andlaus ?

Það er af og frá stjórnarandstaðan eða aðrir séu upplýstir um gang mála á stjórnar heimilinu,Althingi sennilega er það vegna þess að á því heimilli er ekki nokkur hlutur að gerast. Stjórnarandstaðan kvartar sáran um að fá ekki að vera með á fundum nefnda t.d. viðskiptanefndar, þeir þurfa ekkert að vera Kvarta þetta það eru engir fundir svo þeir eru ekki að missa af neinu formaður viðskiptanefndarinnar er að baka vöfflur og vara formaðurinn les um Jóakim frænda og ofur önd, það er nú það eina er þessi merkilega nefnd gerir. Gagnsæi óstjórnar Jóhönnu og upplýsinga þjónusta við þjóðina er líka bráð virk, að halda öðru fram er tóm tjara, og ekki rétt. Málið er bara að það er ekkert að gerast hjá stjórninni né nefndum það kviknar ekki á einni peru á stjórnarheimilinu. Er þessi sparaður stjórnarinnar ekki komin út í öfgar ég bara spyr? þarf að spara svo mikið að ekki er notuð ein heilasella eða svo. Það væri nú að sýna lit ef notaðar væru í það minnsta 3 þannig að þjóðin vissi að það væri einhver í brúnni.  Ráðleysisríkisstjórn Jóhönnu ber skylda til að taka til hendinni strax eða lýsa yfir vanhæfni sinni og segja af sér, allt annað eru glæpsamleg drottningar svik gagna vart þjóðinni.

Ráðleysisríkisstjórn Jóhönnu

Er Sportacus eða Íþróttaálfurinn þreyttur ?

 Ekki skildi mig undra að kallinn hann Maggi álfur sé orðin ansi þreyttur á þessu hoppi enda hoppandi hvar sem ég kem um heiminn, Ekki get ég opnað sjónvarpstæki í neinu landi er ég hef lagt leið um undanfarin ár, að ég detti ekki um þátt með Sportacus á kapalkerfum hótela sem og í heima húsum. Ég stend mig oft að því að festast og horfa á álfinn um stund, hversvegna jú þetta er Íslenskur álfur og velheppnaður álfur sem og markaðsvara.Þættirnir hefðu ekki náð svona langt nema fyrir það eitt hér er vandaður sjónvarps þáttur á ferðinni er kitlar Íslendinginn í mér með stolti.

housewife
Skoskar húsmæður í smábænum Hamilton á Skotlandi urðu heldur betur hvumsa þegar þær mættu með börnin sín og ætluðu að leyfa þeim að sjá hetjuna þeirra úr sjónvarpi; Sportacus eða Íþróttaálfinn. Samkvæmt skipulagðri dagskrá mikillar matarhátíðar átti Sportacus að mæta á svæðið og sýna listir sínar. Mæðurnar létu ekki rigningu á sig fá enda krakkarnir alveg óðir af spenningi yfir því að sjá íslensku ofurhetjuna. „Við urðum alveg rosalega reiðar þegar við sáum að þetta var ekki Magnús Scheving heldur einhver ástralskur táningur í ljótum búningi með yfirvaraskegg sem var alltaf að detta," segir Mairi Breen í samtali við staðarblaðið The Hamilton Advertiser. Vísir segir frá því á vefsíðu sinni að Skoskar húsmæður hafi ekki haldið vatni fyrir reiði er þær fengu ekki að sjá kyntröllið Magnús Scheving og þótt súrt í broti að þurfa standa í grenjandi rigningu og hávaðaroki til að horfa á einhverja eftirlíkingu. Hvort voru það börnin er drógu mæðurnar á hátíðina, eða voru það mæðurnar er drógu börnin ?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband