Færsluflokkur: Bloggar
Haraldur Briem sóttvarnalæknir og ráðamenn þjóðarinnar virðast vera sama um "50%" landsmanna!?
12.7.2009 | 15:53
Landlæknisembættið hefur pantað 300 þúsund skammta af bóluefni gegn svínaflensuveirunni H1N1 og er von á bóluefninu til landsins með haustinu. Skammtarnir duga til að bólusetja hálfa þjóðina?
Eitthvað skítur þetta nú skökku við á meðan í Noregi og í Bretlandi stendur til að bólusetja alla landsmenn og gæti bólusetningin orðið ein stærsta aðgerð sem heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi hafa gripið til þar í hálfa öld., já bólusetja HVERN OG EINN ! og það ekki einu sinni heldur tvívegis, en það er talið nauðsynlegt til að ná fram fullri virkni á bóluefninu, er það nema von að landslýður sé ærið þreyttur á þessum svo kölluðu (Ó) ráðamönnum ?

Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
![]() |
Bólusetja alla Norðmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ísland fótum troðið og svívirðu ausið !
12.7.2009 | 08:26
Það er ekkert nýtt í umræðunni að vorkunnsamir Bretar og vinir þeirra hollarnir eru samstíga í hriðjuverkum á Íslenska þjóð, þeir eru einnig svo forhertir að þeir setja hryðjuverkalög á smáþjóðina! Já allt er þetta orðin gömul tugga, en það að AGS og Steingrímur Jóhann banka frömuður með meiru, taki þátt í þessum ljóta leik, tekur ekki nokkri hemju gremju laust. Sjálf skipaðir séníar fall oftast hraðar en þeir rísa, þannig verður það einnig um þann sjálfskipaða bankamann Steingrím J. Hann verður maður að meiru ef hann sér að sér, og segir afsér það gera menn ef þeir hafa rangt fyrir sér! Það er ekki nokkur hemja að fjármálaráðherra Íslands geti ekki með nokkru mót viðurkennt að hafa einfaldlega verið plataður og ginntur til lags við Jóhönnu hjartlausu og hvað þá sá gjörningur að senda reynslulausan vandræða gemling með Erindisbréf í gin ljónsins, Svavar Gestsson hefur nákvæmlega enga reynslu af alþjóðlegum samningum.
Nú er svo komið að ég geng ekki svo til náða að ég biðji ekki almættið um hjálp við að koma vitinu fyrir vitskertan manninn Steingrím Jóhann sem og meðreiðarsveina hans, þannig að ekki þurfi að koma hreinlega til uppreisnar á landinu blá. Verja verður Landið okkar og fjölskyldur með öllum þeim ráðum er duga!
Hungurvofa Steingríms og Jóhönnu á ekkert erindi inn á Íslensk heimili!
Þjóðin verður að standa samman, allir sem einn! Sendiherra Breta þarf að senda heim, IMF=AGS skal nú þegar vísað úr landi. Íslenska þjóðin getur rétt sig við með eigin getu og hugviti, en það gerum við eftir okkar skilmálum og getu, ekki AGS þjóðmorðingja eða Breskum/Hollenskum nýlendukúgurum.
Ég bendi eins og oft áður á góða og vel upplýsandi grein eftir Ólafur Arnarson er ber nafnið Fíaskó!
Einnig ættu menn að lesa tengilinn er fylgir þessari grein á MBL.IS!
Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
![]() |
Starfsmenn AGS mótmæltu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stormurinn kemur heim..
5.7.2009 | 04:23
Bloggar | Breytt 11.7.2009 kl. 22:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar neyðin er .., ráðast menn á Davíð
4.7.2009 | 20:13
Steingrímur Joð á enga innistæðu lengur hjá þjóðinni, það eina sem hangikjötinu dettur í hug er að ráðast á Davíð, enda rís þessi gamli norðan "Sovét" Stalínisti aldrei upp frá grilli sínu aftur. ?!, S.Jóhann grillari hefur loksins ratað á braut sannleikans,,, kallin segir loXins rétt og satt frá hvers vegna hann ræðst á gamalmenni og lífeyrisísþega. Svarið er einfalt þjóðin geldur þess að ellilífeyrisþeganum Davíð eru borgaðar bætur !! Er nú býslaginu hér með lokað .. Hengjum Joðið og dýrkum zzzzzutna einsog Sverrir sagði enga zzzetu fyrir mig!
Dabbi segir enfremur í viðtali Mbl að yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þá-verandi utanríkisráðherra, svo síðar Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og Jóhönnu Sigurðardóttur ofstækisráðherra, hafa skaðað málstað Íslendinga gríðarlega í Icesave deilunni. Það hafi þau gert með því að lofa að standa skil á Icesave-skuldunum. Látum Gordon hanga! lengi.....
Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
![]() |
Ekki setja þjóðina á hausinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 5.7.2009 kl. 05:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Meirihluti þjóðarinnar er mótfallinn Icesave samkomulaginu !
2.7.2009 | 06:15
Samt rembist Steingrímur eins og rjúpa við staur. Hvers á þjóðin að gjalda skilur maðurinn ekki aðþennan ólukku pappír vill þjóðinn ekki. Áður en langt um líður verður um 80% landsmanna á móti, Þannig HÆTTU að reyna troða þessu niður í kokið á þegnum Íslands. Forsjárhyggja óvitna er eitthvað er þjóð okkar þarf ekki á að halda á þessum tíma.
Þú ættir í raun að taka hatt þinn og staf og rölta upp á elliheimili og sækja um pláss. Lifðu síðan á ellistyrknum eingöngu og sjáum þá hvaða vindur er í þér við þær aðstæður !?
Þá bendi ég lesendum á merkilega grein eftir Jón Baldvin Hannibalsson, hægt er að nálgast greinina HÉR
AGS vill ekki stýrivaxtalækkun. Seðlabanki Íslands ætti að láta stýrivexti sanda í stað til að styðja við krónuna og styrkja gengi hennar. Þetta hefur fréttasíða mbl.is eftir Bloomberg eftir Franek Rozwadowski, talsmanni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), í gær. Það er löngu laust að þessi stjórn er nú situr eru bara saman safn af Sovét prumphænsnum og það valdalausar strengjabrúður! Burt með þessa glæpona sem AGS er ! Þar af auki ber stjórninni að segja af sér, hún nýtur ekki traust þjóðarinnar á þessum válindu tímum. En platar Steingrímur í Níu fréttum rúv segir hann að helmingur þjóðarinnar styðji stjórnina, Humm er kallin frá plánetunni Caos, 49% er ekki helmingur ! 51% er ekki heldur helmingur en 51% er á móti strengjabrúðustjórninni. Steingrímur heldur greinilega að þjóðin sé búin að gleyma því er hann narraði allt að níu miljónum út úr kerfinu í sambandi við eftirlaunafrumvarp þingmanna! Steingrímur GO HOME !
Taktu þátt í áskorun til forseta Íslands um að samþykkja ekki Icesave samningana ! www.kjosa.isSlóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
![]() |
Meirihluti mótfallinn Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ríkisstjórnin er rúin trausti !
1.7.2009 | 22:15
Ólafur Arnarson skrifar á Pressan.is að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra tali út í eitt um að fyrirliggjandi Icesave samningur sé sá besti sem völ sé á og að himininn muni hrynja samþykki Alþingi hann ekki. Honum er mikið niðri fyrir í þessu máli. Þannig herma fregnir að hann hafi í tvígang ráðist gegn þingmanni Vinstri grænna, sem hefur lýst andstöðu við samninginn, þannig að þingmaðurinn grét undan aðför formanns síns. Já miklir menn erum við Hrólfur minn!
Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
![]() |
Fylgi stjórnarflokkanna minnkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Iceseve samningurinn sendur öfugur ofan í kokið á stjórninni !
1.7.2009 | 16:36
Boðað er til mótmæla vegna Icesave samningsins á morgun, 2. júlí, klukkan 15:00 á Austurvelli og munu mótmælin standa frameftir deginum, að því er segir í tilkynningu.
Fólki með hugann við velferð Íslensku þjóðina er eindeigið ráðlagt að skrá sig á www.kjosa.is og taka þátt í áskorun til forseta Íslands um að samþykkja ekki Icesave samningana !
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra gerir sig breiðan sem endranær enda stór og mikil, hann er einn af þessu kerfis köllum er ekki eiga heima í stjórn málum heldur ætti hann heima sem barnaskóla kennari út á landi. Ráðherrann sendur nú í ströngu við að berja á þjóðinni með sömu lygunum og fjármálaráðherra og það í fullu umboði Jóhönnu Hjartlausu Sigurðardóttur.
Skrifa skal undir aftöku plaggið hvað svo sem þjóðin hefur um að segja! Kallinn er sjálfsagt búin að nurla nóg og þiggja teboðin hjá Bretum fyrir sig og sína.
Það er nú staðfest að IMF=AGS er úlfur í sauðagæru, en það vissu nú flestir er kynnt hafa sér sögu sjóðsins og alþjóðabankans.
Úrdráttur úr frétt lesa hér: MBL.IS
Á sama tíma er málið með enn skýrari hætti en áður tengt við IMF (Alþjóðagjaldeyrissjóðinn). Mikil harka kom fram á fundinum og vakti framganga Þjóðverja sérstaka athygli. Má telja víst að hlutaðeigandi ríki hafi verið búin að stilla saman strengi. Átti íslenski ráðherrann í vök að verjast."
Er hér átt við Árni M. Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra, er átti í vök að verjast á fundi fjármálaráðherra Evrópusambandsríkja (ESB) og EFTA ríkjanna í Brussel í byrjun nóvember á síðasta ári.
Af þessu er full ljóst að það eru saman tekin ráð í gangi um að fella Íslensku þjóðina til þess eins að komast yfir orku hennar og landgæði, þetta er nú í framkvæmd með níðingslegum hætti og fullþingi nokkurra landráðamann í ríkisstjórn Íslands.
Allt er þetta er komið að undirlagi Breta sem með sínu svínslegu eðli hafa þjappað öðrum ríkjum aðbaki sér sem og glæpamönnunum í AGS til að ná fram hemdum íslensku þjóðinni enda gleymir breska svínið engu, þar sem það var svínbeygt í landhelgisdeilum þjóðanna. Breska svínið fyrir gefur ekkert og er langminnugt að hætti svína.
Það að skrifa undir óbreytan samning vegna Icesave er eins og að skrifa sjálfur undir sinn eigin dauða dóm. Það gerir ekkert venjulegt fólk! þegar upp kemst um svikin, komast upp svik um síðir. Þá verður það bara alltof seint fyrir land okkar og þjóð, enn ég er viss um að þetta fólk verður elt á hjara veraldar fyrir svik sín við þjóðina, Íslenska þjóðin er og hefur alltaf verið langþreytt til reið en nú er svo komið að það kraumar í pottum lýðræðis okkar, það ættu þessir landráða menn að hafa í huga áður en þeir fremja þennan aftökugjörning á þjóðinni.
Og nú hafa frænd þjóðir okkar skrifað undir lán til okkar, Þökk sé þeim! Því ber er hver að baki, nema sér bróður eigi !
Lesa meir um þetta hér: MBL.IS
Norrænu ríkin hafa skrifað undir langtímalánasamning við íslenska seðlabankann en alls munu þau lána Íslendingum 1,775 milljarða evra, rúma 318 milljarða íslenskra króna. Norðmenn lána Íslendingum 480 milljónir evra.
Í tilkynningu frá Seðlabanka Noregs kemur fram að skrifað hafi verið undir samkomulagið í dag en það sé liður í stuðningi norrænu ríkjanna við Ísland.
HÉR MEÐ FELLUR LYGA ÁRÓÐUR RÍKISSTJÓRNARINNAR UM AÐ LÁN FRÁ FRÆNDÞJÓÐUM OKKAR KOMI EKKI NEMA MEÐ UNDIR SKRIFT Á ICE-SLAVE SAMNINGNUM.
Þessi svo kallaði stöðugleikasáttmáli er hreint út sagt ekki svo stöðugur heldur væri nær að kalla hann Óstöðugleikasáttmálann enda plagg til að berja á þjóðinni með hungur vofunni, Í gamla sovét var þetta stundað til að hafa vald á lýðnum, eins og nú er orði hér, öll mannréttindi rifin af fólkinu og það keyrt áfram með hræðsluáróðri.
Og en úr fréttum, nú hefur Verkalýðsfélags Akraness fengið nóg og krefst þess að það fari fram allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna sinna er þá hætta á að á eftir fylgi önnur félög enda stöðugleikasáttmálinn aðför að réttindum þeirra er minnst meiga sín.
Þökk sé vinstrirauðum og flokki samspillingar.
Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
![]() |
Icesave samningi mótmælt á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.7.2009 kl. 01:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
En heykist ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur á ósannsögli ! Steingrímur selur þjóð sína í hendur Breta og Hollendinga!
30.6.2009 | 19:09
Ríkisábyrgðar á Icesave-skuldbindingum gætu orðið á bilinu 6070 milljarðar kr. Taktu eftir! Árlega á árabilinu 2017 til 2023, en helmingur þeirrar upphæðar árin 2016 og 2024. Árleg greiðsla af höfuðstól yrði þannig um 50 milljarðar króna. Hvar ætlar stjórn Jóhönnu Sigurðar dóttur að taka þessa peninga ? Ekki gerir hún það hjá heimilum landsmanna né með hærri sköttum þjóðin, hún ber það einfaldlega ekki. Það sem stjórnin geri er að afhenda Landsvirkjun á silfur fati til Breta og vatns réttindin til Hollands, olían ef af verður fer svo í vaxta vexti og fiskurinn sömu leið. Í staðin fær þetta landráða fólk störf í bakherbergum ESB í Brussel. Hvenær fær fólk eiginlega nóg af þessum matreiddum lygum leppstjórnar AGS á Íslandi ? Nú ríður á að allir þingmenn með snefil af samvisku hugsi sinn gang og felli þennan óhæfugjörning sem Ice-slave samningurinn er
Af 100 daga verkefnalista stjórnarinnar eru flestum stærstu verkum stjórnarinnar ólokið talið er að einhverjum 30 smáverkum sé lokið, en ríkistjórnin sendir frá sér að þeir séu búnir með mun fleiri verkefni og stærri.
Á vef www.ruv.is kemur fram að, forsætisráðuneytið heldur því fram í fréttatilkynningu í morgun að ríkisstjórnin hafi afgreitt heldur fleiri mál eða 32 af 48. Það virðist þó orðum aukið. Þar er sagt að lokið hafi verið við samninga um erlend lán við vinaþjóðir en ekki hefur verið skrifað undir slíka samninga enn, þá er sagt að endurskoðun sé hafin á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Sú endurskoðun er hins vegar ekki hafin enda ekki búið að skipa nefndina sem það á að gera. Loks er sagt að lögð hafi verið fram frumvörp um persónukjör og ráðgefandi stjórnlagaþing. Hvorugu frumvarpinu hefur hins vegar verið dreift á Alþingi.
Ef stöðugleikasáttmálinn er frá talinn standa öll stærstu verkefnin eftir. Þannig hefur úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna efnahagsáætlunarinnar enn ekki verið afgreidd í stjórn sjóðsins, ekki hefur verið dregið úr gjaldeyrishöftum, ósamið er við erlenda eigendur krónubréfa, endurreisn bankakerfisins er að mestu ólokið og samkvæmt yfirliti á síðunni www.Island.is hefur sparnaðarátak í ríkiskerfinu með þátttöku starfsmanna, stjórnenda og notenda þjónustu enn ekki verið sett í gang.
Semsagt það er ekki einu orði trúandi er kemur frá stjórn völdum frekar en fyrri daginn, hvernig á fólk að bera eitthvað traust til ósanninda parsins Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrín J. varðandi nokkur skapaðan hlut ef plögg og upplýsingar eru ekki haldið leyndum, þá er bara gripið til lyga og eða með hafsjó af hræðslu blekkingum. Þessi ríkisstjórn ætti að fá stjörnur í afrekabók sína fyrir hvað þeim tekst einstaklega vel upp við að líkja eftir gamla sovét stjórnarfarinu. Lygar og áróður eru ær og kýr þessarar samspillingarstjórnar!
Það verður athyglisvert að heyra hverju ríkisstjórnin ætla okkur að kyngja, á fréttamanna fundi kl: 16,30 í dag. Ég bíð spenntur hvernig verður farið með staðreyndir sem og sannleikan á þessum fundi. Fundurinn hófst nú reyndar ekki fyrr enn klukkan 17,00 og kom ekkert nýtt fram nema hver lygin ofan í aðra sem og hræðslu áróðurinn er var í algleymingi. Steingrímur J talið eins og hann væri að tala við lítið barn er hegðaði sér illa. Semsagt en og aftur talaði lítilkappinn niður til þjóðar sinnar!
Fellum Ice-slave frumvarpið ! Áður en frumvarpið fellir þjóðina undir ánauð Breta og Hollendinga!
Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
![]() |
60-70 milljarða árleg greiðsla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þjóð í fjötrum ranglætis, frá allsnægtum til örbirgðar !?
30.6.2009 | 06:31
Er Þjóðin endanlega búin að missa vonina og tekin upp á því að brenna og brjóta
niður eigur sínar (fyrrverandi kannski) í örvæntingu sinni?
Slökkvilið var kallað að Granaskjóli 34 vegna vélsleða sem stóð á björtu báli á plani hússins. Nærliggjandi götum var lokað meðan á slökkvistarfinu stóð en talsverður reykur var vegna brunans. www.vísir.is segir frá.
Hvað er til ráða er þjóðin missir vonina og hefur ekki traust á stjórnvöldum?
Það er öllum sönnum Íslendingum full ljóst að þjóðin getur ekki meir, hvað þá farið að borga fyrir glæpamenn, til þess eins að halda Bretum og Túlípönum ánægðum er smyrja vel á útrásar summuna okur vöxtum. Hvenær hafa Bretar eða Túlípanarnir í Hollandi gert nokkuð fyrir landi okkar annað en ásælast landgæði þessi ?
Þjóðfélagið er hreinlega komið á hvolf og elskuleg stjórnvöld gera ekki annað en stýra skútunni beint í strand fyrir vinni sína hjá AGS.
Þetta fólk á að draga fyrir dómara ásamt útrásarstyrkjaraðillum þeirra.
Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
Bloggar | Breytt 12.7.2009 kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
150 ára fangelsi. Hvað er það?
29.6.2009 | 15:55
Smotterí fyrir fyrir kall á hans aldir, svikahrappurinn er aðeins 71 árs gamall ! Hann hafði narrað 65 milljarða dollara út úr viðskiptavinum sínum.
Hvað ætli þeir fengju er rændu landið okkar, það lítur út fyrir að þeir fái eingöngu skömm í hattinn, enda hefur þessi stjórn er nú situr eitthvað mikið að fela, rannsóknin á gjörningnum er bara ryk í augu almennings, ekkert annað en dugleg notkun á sóp! Allt skal undir rauðgræna teppið, Skítalykt af þessu!
Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
![]() |
Madoff í 150 ára fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)