Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Jóhanna Sigurðardóttir kann ekki að skammast sín!

Hin gagnsæja, ''hæstvirta" Jóhanna Sigurðardóttir, sakar þingmenn um hræðsluáróður. Hvaðan kom þessi kona og hvert ætlar hún ? Kerlan hefur steinþagað undan farið og ekkert gert nema stimpla öll sín skjöl sem leyndó sem og múlbundið þingmenn sína og ráðherra. Síðan gerist það að kerlan grípur andann á lofti á þjóðhátíðardag og þagnar bara ekki síðan, heldur sendir bendingar og ávirðingar í allar áttir ! Er ekki komin tími á að læknar grípi inní og skoða hvort kvengripur þessi sé með fullifemm ?

gagnsaei-nef
Og nú ætlar stjórnvaldið sjálfsagt að kæra húsbrjótarann og beita hann viðurlögum með allt af sex ára fangelsisvist, allt til að fólk taki nú ekki upp á því að brenna eða jarða fyrri eigur og lífsstarf. Gera síðan ekkert, já lyfta ekki einusinni litla putta til að hafa hendur í hári, né ,,ætluðum eigum þeirra,, er rændu þjóðina brosandi, plús það að þeir settu svona húsbrotamann og fjölskyldu á götuna.
Þvílík hræsni er þetta fólk sýnir landsmönnum ! Það sést vel að konan er gagnsæ í ógagnsæi sínu, hver fer um með hræðslu áróður annar/önnur en þessi kona? Nú ætlar hún sér að moka og grafa yfir sannleikan með tilskipunum, kjaftvaðli og bendingum í allar áttir. Ég segi sveittan !
                                                                 Aðalsíða hér!

mbl.is Hræðsluáróður, segir Jóhanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Jóhanna að plata sig eða þjóðina núna ?

Veit Jóhanna eða Steingrímur ekki hvenær þau segja ósatt ? Það er slæmur geðsjúkdómur er fólk platar svo mikið að það trúir því sjálft ! Joseph Goebbels sagði að ef lygin væri sögð nógu oft þá yrði hún af sannleika í eyrum fólks!

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að engar líkur væru á að með Icesave-samningunum sé hætta á gjaldþroti Íslands.

gosar

mbl.is Gjaldþol ríkisins ekki í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einræðisherrann heilög Jóhanna á að stíga úr stólnum nú þegar !

eiherrannEr ég horfði og hlustað á ræðu forsætisráðherra í gær gat ég ekki annað hugsað en þar færi forsætisráðherra er talaði undarlega við þjóð sína. Radd-beiting var ótrúleg með ívafi af hroka semog virðingarleysi, enda talaði hún hreinlega niður til þjóðarinnar. Hvað hún á að verja og vilja veg sem velferð mesta, enda hefur hún skrifaði undir með drengskapar heiti þar að lútandi. Nei valdhrokinn er í algleyming hjá kerlingu. Hún nefndi styrktar aðila sína og kallaði þá nokkra útrásarvíkinga, hverjir voru það eða við hverja þeirra átti hún ? Hversvegna gat hún ekki bara sagt að þetta væri liðið er borgaði undir rassinn á henni og "samfylkingunni", nei það gat hún ekki ! Þjóðin á að borga og borga og borga fyrir vinahóp hennar. Þar af auki en meira ef Hollendingum eða Bretum líkar ekki hvað er borgað þá mega þeir bara sækja það er þeir vilja eins og Landsvirkjun, vatnið okkar, fiskin okkar, Olíuna okkar, já eða hvað eina það er þeim hugnast, enda engin varnagli í þessum vanhugsaða afsamda samning landráðamannanna þjóðarinnar, þar sem einræðisherrann og landráðamaðurinn Jóhanna Sigurðardóttir fer fremst í flokki ! Furðulegt að konan með hrokann hafi brotið öll loforð sín við þjóðina á fyrstu vikum stjórnar sinnar, hreinlega rekið tunguna framan í fókið í landinu, meðan hún "heilög" Jóhanna Sigurðardóttir skrælar utan af fólki heimilin sem og alleiguna með skattakrumlu sinni. Þetta er sama konan er tafði í sífelldu störf Alþingis með sí malanda sínum og málþófi, trekk í trekk, Þegar hún ekki sat á sínum breiðrassi í ráðherrastóli. Hver er dómur við landráðum eða drottningarsvikum? 

Sjá forsíðu hér: hlekkur


mbl.is Allar eignir ríkisins lagðar að veði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðhátíð vegna !?

Yfir hverju á þjóðin að gleðjast með vitfirrt fólk við stjórn, er stefnir að því eina að gera þjóðina að engu ! Þetta fólk lýgur líka að þér á 17 júní sem aðra daga, næst taka þeir pottanna þína enda ekkert í þeim og koma þannig í veg fyrir aðra búsáhaldabyltingu smá borgara landsins.buinn

Hlekkur: Sjá aðalsíðu !!!

mbl.is Það er kominn 17. júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þjóðin okkar þegar dauð og það á 17 júni ?

Hvenær er þjóð farin yfir móðuna miklu ? þegar hún er fullveldislaus og sjálfstæðislaus, er þá þjóð17-juni-1944 látin ? Flestar þjóðir tína lífi sínu í náttúru hamförum, hernaði eða hreinlega leggja upp laupanna. Á Íslandi og hjá Íslendingum er annað uppá teningnum þjóðin dó, eða er deyandi innanfrá. Þetta er þó þekkt í veraldarsögunni að heilu þjóðirnar og menningar ríki hafi bókstaflega gufað upp og horfið af yfir borði jarðar. 

Þær eru ekki fagrar aðgerðirnar er sitjandi ríkisstjórn aðhefst. Stjórnin virðist aðeins róa að því öllum árum að murka lífið úr landsmönnum sem og beita óráðum sínum í að koma landinu undir erlend yfirráð, ef ekki undir Alþjóðabankann og IMF, þá undir blýant nagaranna í Brussel.

Ég segi til lukku með loka þjóðhátíð okkar í stuttu sögu endurheimts sjálfstæðis þjóðarinnar. 

Þökk sé sitjandi ráðleysisríkisstjórn og nokkrum skuggalegum bankamönnum, er ríkisstjórnin heldur hlífðarskildi yfir og má ekki til þess hugsa að þeir verði sóttir til saka, nei skítlegt eðli þessarar stjórnar er slíkt að hún vil frekar kyrkja heimilin í landinu sem og alþýðu manna er eingin heimilli eiga lengur. Í tilefni dagsins legg ég til að þetta missendis fólk á stjórnar heimilinu verði sent nú þegar í betrunar vist á Brimarhólmi.

Ekki sá/sér sitjandi forsætisráðherra nokkra ábyrgð hjá sjálfri sér að hafa setið í og verið aðili að hrun ríkisstjórn síðasta árs. Konan er gjörsneydd allri sammvirsku sem og siðblind. Það er sómi og skylda íbúa þessa lands að draga þetta fólk til ábyrgðar nú þegar, en sigla ekki sofandi að feigðar ósi ! 

17-jun-g
Fór Jarðarförin fram í kyrrþey, með einu af leyniplaggi Jóhönnu? 
Gleðilegan þjóðhátíðardag !  

mbl.is Heyjum á ný sjálfstæðisbaráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milljarða skattahækkanir í burðarliðnum!

Jóhanna er við sama heygarðshornið! Skilur ekki að það er ekki af neinu að taka hjá fjölskyldum í landinu, nema það væri þá galtóm eldhúsbudda heimillanna, hún er þegar búin að hirða gatslitið fóðrið úr buddunni ! Þessi kona er landráðamaður og á að meðhöndlast sem slík af þjóðinni sem og vesalingurinn skattmann hinn samviskulausi.
skatstjornin

mbl.is Skattahækkanir úr ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Apaköttur gerir mér lífið leitt.

Kerlingar skömm hringir á lögguna er ég hafði sagt henni til syndanna á bar skrýpi enda óvenjulega dónaleg af Thaiara að vera. En þarna höfðum við félagar litið við, á laugardagskvöld.. Nú löggan m-housemeð mig á stöðina þar sem ég var ekki með skilríki og síminn straumlaus, tók ekki betra við þar enda ákaflega leiðinlegur maður við stjórnvölinn og varla talandi stakt orð í ensku, fóru leikar svo að mér var stungið í svartholið í monkey house og fékk að dúsa þar þar til vinkona mín er hafði leitað af mér um allt, öllum spítölum og þar er sem ég legg vanalega leið mína, var fólkið mitt komið á þá skoðun að ég hefði verið drepin enda ekki vanur að hverfa svona gjörsamlega, á endanum fékk Bee að kíkja inn í Monke house þar sem hún fann mig 18 tímum eftir að ég lenti í kerlingunni slæmu. Ekki fékk ég vott né þurrt í þessari vist og er helst á að varðstjórinn hafi verið frændi kerlu, hann síðan löngu komin í frí er ég loksins fannst. Hugsa ég helst að ég muni sendi kerlinguna í ferðalag er ég hef hvílt mig, við kallinn er svo sem lítið hægt að gera enda bæði auli og thai-lögga, en ætla þó að leggja fram kvörtun á skrifstofu lögreglustjóra hér í borg enda maðurinn er stakk mér inn fyrir engar sakir nema munsöfnuð við sauð, þjófur í þokkabót. Ekki það þetta var mjög fróðlegt, enda hitti ég furðulegast fólk eins og smákrimma, mellur, lady-boy-a, snarbrjálaðan kana, og hágrennandi Svía og er þá fátt upp talið af karakterum. 


Rússa saga 2

Flottur í dag tók 50cm í sundi eins og vanalega, er ég heyrði af manni sem var að selja nautakjöt út við hlið mjög ódýrt enda dottið af flutningabíl, ég í hlaupaskó og náði í þessa fínu steik 400gr... Ok skellti steik í mareringu og jarðepli í ofn. Aftur í sund að skoða já hvað skoðar maður í sundi ? jæja klukkutímabokud síðar komin að pönnu og hóf að brasa steik ásamt sneiða niður salat enda átti þetta að vera smá veisla fyrir einn lonly kall, í miðri piparsósu gerð byrjar ekki Rússa asninn að öskra á kerlinguna gleðilegu með því líkum látum að ég ákvað að smella mér í aðgerð gagnvart dólg. Öskraði smá á hann og hann gaf fuc... merki ég með það sama greip Kartöflu og grýti manninn ekki nema það hitti hann beint í ennið eins og fæddur hafnarbolta spilari. Og Og hvað dólgur bara horfir á mig eins og ég sé viðundur sparkar upp hurð glöðupíu og hverfur inn, Hummm hugsa ég bjáninn átti að stein liggja eftir sendinguna fögru ?? tja klára kokkeri og ætla setjast að snæðing mundi þá eftir jarðeplinu. Argg ég hafði grýtt vibbann með rangri kartöflu!!

Vald eða ekki vald ?!

Það á að leggja lögreglu landsins allt til er hún þarf á að halda, enda að vinna að gæslu okkar sem borgara. Sú tíð er ofbeldisseggir sveitavargar og aðrir missendis menn er voru ráðnir í balllöggurjong eða afleysingar er löngu liðin, yfir 99,9 prósent af þessum mönnum/konum er nú starf við gæslu okkar eru hámenntaðir og mjög velviljaðir við borgaranna. Það eina er hrjáir þessa stétt manna er skortur á fé, skorturinn er svo mikil að færustu menn hreinlega flýja starfið og hanga á línu veiðibátum til að eiga í sig og á. Þar nást ekki endar saman heldur. Jón Geir er maður er þroskast með hverjum klukku tíma enda í sömu kreppu og alþýðan. Ég hefði endilega vilja ráða Gogga vin minn sem löggustjóra heldur en Dýrið er hugsar bara um búninginn sinn og hnappa. Ekki það að Goggi er að gera flott starf í gæslunni eins og allt er hann kemur að. Sammála Karl?.. Mikið vildi ég að BB væri en við völd..:) 
mbl.is Piparúði á þrotum þegar átökin náðu hámarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á verönd heimilis míns.

Rakinn og hitinn geta gert mann undarlegan að ég held. Ég er nú ekkert beint vanur að tjá mig um mitt persónulega líf, en nú verður ekki hjá því komist. Einn morgun vakna ég upp við þessi voðalegu læti, sem og oftar kerling nágranni minn há grenjandi sem er eiginlega daglegur viðburður hér.pimpÞannig er að einn nágranninn er Rússi og mella er hefur þennan viðbjóðslega, svakalega, svaðalega Rússa pimp (dólg) og er kallinn kemur að innheimta leikur bara allt á reyði skjálfi, ekki nóg með það hann hefur einhverja sérstaka þörf fyrir að smalla hurð kerlingar, nú svo komið að þetta hurðskrípi, vart hangir samman eða á hjörum, Arggg mér varð nógboðið og ákvað að gera eitthvað í málum því kerlan sígrenjandi, ég vissi nú ekki alveg hvað ég ætti að gera enda Rússinn hár og mikil rumur, eftir smá vítamínskammt og hugdettur fann ég óborganlega lausn. Það var bara eitt að gera koma bjána á óvart þannig að ég skellti mér í sundskýlu og eina af löggu/hermanna skyrtum okkar Begga hengdi ég öll þau heiðurs merki er til voru á mig sem og skýluna + smelti á mig kúrekahatti og skeiðaði í lyftuna til að sækja öryggisverði. Verðirnir gjörsamlega sprungu úr hlátri er þeir sáu dýrið, útlitið eða búninginn á mér. Ok ég með þá upp í lyftunni, barði hressilega á hurðargarminn öskrandi Polise ! Vinurinn rússneski horfir á mig eins og viðundur, greinilega aldrei séð löggu með tíkarspenna skólausan á sundskýlu með heiðursmerki. Það kom humm "How can I fix this" það var það eina er kallinn stundi upp .. Haaa Well borgaðu öryggisvörðum 2000bht núna og ég geri ekki mál úr þessu.. kallinn borgaði um hæl og eftir lágu verðir afvelta af Wiski þambi. Gott ef þessi Rússi drepi mig ekki. Hann er þó hættur á græta kerlu sem og smalla hurðina hjá henni. Í næstu íbúð við mig býr engin hvorki til hægri né vinstri né fyrir neðan mig. Ennnnn fyrir ofan mig býr drjóli er tekur til brúks kerlu á um eins og hálfs tíma fresti eru hljóðin engu öðru lík, nema að mér rennir ígrun að um Ópavogs parið sé flutt inn og haldi að hér sé löglegt að öskra ómææælt.. Nema hvað í fyrradag fluttu inn þrjár stúlkur beint á móti mér, vel greindar endajamkallandi lovely yfir laugina, ekkert að gera í stöðunni annað en varpa sér í sund með þeim. Ekki vakti það beint kátínu með Írönum er búa á móti mér, enda vilja þeir helst eiga allt, áður en ég snéri mér við var laugin full að öldungum sem og kerlingum Írana er sýndu getu sýna í hunda-sundi ekki það Írönsku strákarnir eru ágætir og blautari en ég kannski í útlegð spyr ekki.. NemaHvað er ég kom úr sturtu var bankað létt á dyrnar og er ég laukupp stóð ekki þessi fallega stúlka brosandi upp að hársverði með spangirnar sínar glóandi, ég horfði smástund á hana undrandi, sagði þá fljóðið "can we go to bed" ?" Ég hváði gvvvað ertu gömul eða ung,, 18 var svarið.. OkY úr vöndu að ráða í stöðunni, því ekki vildi ég styggja né afneita góðu boði. Þannig að ég greyp til lyga Im soooo sooo sorrryyy Im only sleeping with my boyfriend Mr. Smirnoff... 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband