Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009
Greiðsluverkfall Íslendinga !
24.6.2009 | 11:56
Á fundum Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) í Reykjavík, Selfossi og víðar í gærkvöld samþykkti félagsfólk ályktun um stuðning við greiðsluverkfall fjölda Íslendinga. Verkfallið var samþykkt samhljóða á öllum fundunum.
Málið er að það er ekkert að borga með því einfalt að borga ekkert og þarf ekkert að fjasa um það. Útrásarvíkingar sáum það ásamt stjórnvöldum er taka hverja ráðleysis ákvörðun á eftir annarri.
Samspillingar kerfiskellingin heilög Jóhanna hefur fundið hjá sér sérstaka þörf á að ráðast á heimilin með skattahækkunum svo miklum að heimilin geta ekki borgað okur skuldir sínar, ekki ekið fjölskyldu bíl sínum til vinnu né skutlað börnum sínum, ekki keypt inn fyrir heimilin né endurnýjað fatnað sinn. Þetta gerði Jóhanna forsætisráðherra vor skæl brosandi ásamt Steingrími fjármálasnilla, enda úthrópuðu þau og báru á torg, að staða heimillanna væri bara hreint ekki svo slæm. Þetta sýnir svart á hvítu, að stjórnin hefur ekki hugmynd um hvað gengur á hjá landslýð eða í heimilishaldi þjóðarinnar, enda á stjórnarpakkið nóg að bíta og brenna. Ekki fátæktin né skorturin þar á bæ, enda haldið fast í stólanna. Samspillingar kerfiskellingin heilög Jóhanna hefur nú þegar lagt fram frumvarp um lækkun launa aldraðra og öryrkja fyrsta júlí. En hún ætlar að hækka samkvæmt samkomulagi Sa og Así laun launþega. Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á sömu hækkun á lífeyri sínum og launþegar almennt fá á launum. Ráðleysisríkisstjórnin verður að fara í hring, verður því að draga til baka launalækkun lífeyrisþega enda óhæfu verk að lækka laun á öldruðum. Allt annað eru ólög, ruglstjórninni ber að hækka laun lífeyrisþega 1.júlí til samræmis við launahækkun launþega. þetta er þvílík endaleysa og vitleysa að hálfa væri nóg. Ég skil ekki hvað þetta stjórnarlið er að hugsa, enda geng ég ekki með þingmann né forsjárhyggju í maganum.
Við þessum gjörningum hefur Jóhanna sagt sem og smámennið Steingrímur J að væri bara kúgun á stjórnvaldinu, bankarnir og stjórnin myndu halda sínu striki og greiðslufall myndi bara koma heimilunum í kollin aftur! Já það er ekki uppá logið á þessa stjórn, að hún sé ekki með heimilin í huga, þegar ekki er verið að ljúga af þjóðinni, þá er henni hreinlega hótað, þeir/þau geta hótað eins og þeir/þau vilja! Það er einfaldlega ekkert til að borga með enda ekki eitt né neitt til að taka af fólkinu eða heimilum, já nema seigluna, dugnaðinn og stoltið er einkennir þjóðina okkar, það er eini auðurinn sem eftir er. Allt annað er veralegt, þegar farið já þjófstolið. Ráðleysisríkisstjórn er lifir eingöngu vegna skattahækkana, niðurskurðar, verðhækkana, eignarýrnunar í umboði AGS er ekki uppbyggileg stjórn, hún er niðurrifsstjórn í anda fyrrverandi stjórna ráðstjórnarríkjanna. Ég sem hélt að sá draugur væri löngu dauður!
Hlekkur í aðalsíðu HÉR
Hagsmunasamtök heimilanna styðja greiðsluverkfall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jóhanna er pallróleg !
23.6.2009 | 18:17
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er svo pallróleg að það bærist ekki áhyggjur í höfði hennar, þetta sýnir að henni er gjörsamlega sama um heimilin í landinu. Ég hreinlega efast um að hún lesi þær skýrslur er berast inn á borð hennar, hvað þá hlusti á sérfræðinga stjórnarinnar. Það að hún telji að nýtt lögfræðiálit bendi eindregið til þess að rétt leið hafi verið valin fer nú bara eftir við hvern er talað og hver framkvæmdi semog hvað viltu fá að heyra til notkunar í áróður. Hún segist enfremur telja að þingmenn stjórnarflokkanna styðji málið. Nú held ég að hún þurfi að telja aftur!
Tortryggni í samfélaginu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 24.6.2009 kl. 11:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jóhanna og Ice-slave reikningurinn hennar
23.6.2009 | 12:36
Hugsar daglega um Icesave-klúðrið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gálgafrestur á engu !
23.6.2009 | 10:55
En verið að slá ryki í augu landsmanna ?! Hvenær hættir þetta lið að segja ósatt, mér er spurn? Það vita allir að samtök atvinnurekenda munu aldrei, vinna að hag vinnandi stétta, heldur reyna með öllum ráðum að keyra niður laun og launa skyldur, það er eðli slíkra samtaka. Hver heldur að strengjabrúðu stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fái að lækka vexti meðan AGS=IMF er við völd hér á landi.
Á meðan Ríkisstjórnin heykist við að fara frá, enda í andaslitrunum, gerist ekkert nema að töf verður á batanum, sem er ekki undir sitjandi.
Hlekkur í aðalsíðu HÉR
Samkomulag um launalið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Boða greiðsluverkfall almennings !
22.6.2009 | 14:50
Það kom að því að einhver færi að hugsa! Hvers vegna í ósköpunum ættu heimilin að vera að borga fyrir styrktaraðila samspillingarinnar, mér er spurn, hvað hefur kerfiskellingin gert fyrir heimilin eða fólkið í landinu annað en ráðast með ofsa á eldhúsbuddur þeirra, svo miklum ofsa að ekkert situr eftir ekki einu sinni slitið fóðrið. Drögum að ályktun sem greidd verða atkvæði um á félagsfundunum á morgun segir að samtökin hvetji almenning á Íslandi til að grípa til greiðsluverkfalls til að knýja fram leiðréttingar á húsnæðislánum vegna forsendubrests af völdum kreppunnar.
Markmið greiðsluverkfalls er að ná fram eftirfarandi kröfum:
1. Íbúðalán með viðmiðum við gengi erlendra gjaldmiðla verði leiðrétt og yfirfærð í íslenskrar krónur frá lántökudegi á gengi þess tíma.
2. Verðtryggð íbúðalán verði leiðrétt þannig að verðbætir verði að hámarki 4% á ári fá 1. janúar 2008.
3. Lagabreyting leiði til þess að ekki verði gengið lengra í innheimtu verðlána en að leysa til sín veðsetta eign.
4. Lagabreyting leiði til þess að við uppgjör skuldar fyrnist eftirstöðvar innan 5 ára og verði ekki endurvakin.
5. Gerð verði tímasett áælun um afnám verðtryggingar lána innan skamms tíma og vaxtaokur verði aflagt.
Félagsfundirnir verða haldnir klukkan átta í kvöld.
Fundarstaðir eru:
Reykjavík: Iðnó við tjörnina
Keflavík: Frumleikhúsið Vesturbraut 17
Akureyri: Um borð í Húna (Húni II)
Selfoss: 800 barinn
Flúðir: Golfhúsið Snússa
Þessir ræflar er hirtu allan gjaldeyrir úr bönkunum áður en þeir ultu um koll eiga borga þetta til baka ásamt því að sitja í gapastokkum, ef ekkert er plássið í fangelsum landsins. Samkvæmt fréttum þá var ekki til einn dollar í landsbankanum né kaupþingi, hvað varð um þessa aura er bankarnir áttu? Eru þeir á reikningum hjá styrktarvinum Jóhönnu svo kölluðum útrásarvíkingum, um víða veröld ? Hvað liggur að baki því að Jóhanna Sigurðardóttir né Steingrímur J. Sigfússon fara framá í gegnum Interpol að þjófarnir verði handteknir hvar sem er í heiminum, menn hafa verið teknir fyrir minna, en það að ræna heila þjóð.
Ætla að boða greiðsluverkfall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 27.6.2009 kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ók á dyr slökkviliðsins. Það verður að hjálpa fólkinu í landinu !
21.6.2009 | 22:27
Það gengur ekki lengur að stjórnvöld geri ekkert fyrir landslýð, annað en blóð mjólka hann ! Það er greinilegt að fólk er að missa vitið, grafandi bíla og brjótandi niður hús. Það tekur heldur engin heilvita maður uppá því að skemma öryggis kerfi borgaranna, nema hann hafi hreinlega misst vitið ! Nú er mál að þessir asnar fari frá og að komi fólk er veit hvernig ástandið er í landinu. Fólk sem setur sig ekki á háan hest og situr í fílabeinsturni. Fólk sem er í takt við þjóðina!
Ók á hurðir slökkviliðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.6.2009 kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hrokinn gagnvart þjóðinni gengur út fyrir alla þjófabálka.
21.6.2009 | 11:48
Jóhanna Sigurðardóttir segir það blá kalt að Þjóðinni koma það ekki við og hafi ekkert með það að segja hvort hún fari viljug eða verði neydd í ESB, það kemur þjóðinni einfaldlega ekki við ! Þetta er lýðræði kommúnistana er sitja við völd þessa daganna og vinna hörðum höndum á að fletja út landsmenn í eina flata getulausa,blanka pönnuköku. Landsmenn skulu með góðu eða illu gefa landið og sjálfstæðið frá sér, þetta er tónninn í einræðisherranum.
Þjóðin mun ekki eiga síðasta orðið um ESB !
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, upplýsti á Alþingi þann 18. júní að stefna ríkisstjórnarinnar væri að halda einungis ráðgefandi þjóðaratkvæði um hugsanlegan samning um inngöngu í Evrópusambandið en ekki bindandi.
Sjá nánar á heimasíðu Heimssýnar http://www.heimssyn.is
Það er löngu ljóst að undir þessu verður ekki setið, það verður að koma þessari stjórn frá hið fyrsta og setja á sterk Þjóðstjórn skipaða hæfu fólki. Þá legg ég til að Jóhönnu og hennar hyski verði komið fyrir á viðeigandi stofnun !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Íranska aðferðin og Svínslegt eðli
20.6.2009 | 19:00
Stjórnvaldið kýs að ljúga til um fjölda fólks er mótmælir aftökum á sjálfum sér, börnum sínum og heimilum, enda á fólkið í landinu ekki neitt til að borga með fyrir afglöp styrktaraðila samspillingarinnar, löggæslunni er greinilega sagt að gleyma barnaskólanum sínum og geta nú einungis talið upp á tíu. Það er mikil lukka að þeir væru þó tíu og fengu út 100 manns, ég helda það þurfi því að fá fleiri löggæslu menn á svæðið þannig að tölur verði nákvæmari. Með allri virðingu fyrir löggæslunni þá verða þeir víst að fara eftir skipunum yfirboðara sinna, sem í þetta skiptið var að telja bara uppá 10 haha Ok..
Ef þjóðin þarf á einhverju virkilega að halda þessa daganna, þá er það góður meindýraeyðir!
Stemmningin var góð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er Jóhönnu stjórnað af djöflinum? Nú á að ráðast á gamla fólkið og öryrkja ! Enda heimilin tóm og farin.
19.6.2009 | 22:04
Bloggar | Breytt 20.6.2009 kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kerlingar og Karlar er halda að hundar séu skraut fiskar!
19.6.2009 | 15:11
Hvernig væri fyrir þetta fólk að ganga, skokka með hunda sína í Heiðmörk sér og hundi til heilsubótar, en hanga ekki í kjaft klúbbum um víðan völl eða í strætó skýlum meðan hundurinn hleypur stjórnlaust fyrir bíla eða laxveiðimann er borgar okur verð fyrir það eitt að sjá einn lax hvað þá fá eitt striki. Nei kannski besta veiði trikkið er að hafa stóð af geltandi hundum á árbakkanum það líka laxinum vel og heldur að hann sé í flottri ómengaðri sveita á. Já það ervit að lifað á klakanum þessa dagana. Laxa karlar eiga bara að skjóta hundana og hundafólkið að skjóta laxinn málið leyst eða hvað? Nei málið er öllu alvarlegra það. Vandinn er kynlíf laxa og hunda er endar bara illa, alls ekki gott segir "Össur Skarphéðinsson" doktor í kynlífi laxa.
Það hleypur einfaldlega hundur í laxinn !
Styrjöld á Geirsnefi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)