Námskeið fyrir ósjálfbjarga menn !

Námskeið fyrir karlmenn !!!!!  852_internationales

Kvöldskóli fyrir karlmenn. Hvert námskeið er 10 vikur og lýkur með skriflegu prófi. Nemendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðsins, sem þeir geta framvísað á alþjóðlegum markaði.

Hvernig á að smyrja brauðsneið án þess að setja eldhúsið á hvolf. Skref fyrir skref, sett fram á myndrænnhátt.

Mánudaga 17.00-18.30 Klósettpappír- er það satt að maður geti sjálfur sett nýja rúllu á klósettpappírshaldarann? Verkleg æfing á verkstæðinu.

Þriðjudaga 18.00-20.00 Á að lyfta klósettsetunni áður en maður pissar? Er mögulegt að pissa án þess að hitta gólf, veggi eða setuna? Verklegar æfingar.

Mánudagar 18.30-20.00 Grundvallarmunur á baðherbergisgólfinu og þvottakörfunni Mynda-, ferla- og skipuritasýning.

Föstudaga 16.30-21.30 Er mögulegt að vera góður elskhugi til lengri tíma? Farið verður í grundvallarmuninn á milli "einnar-nætur-gamans" og innhaldsríks kynlífs. Þetta námskeið er í 3 þrepum. "Það þarf meira en tippi til", "Tímasetning og alúð í verki", "Konur elska með öllum kroppnum". Skriflegt próf og meðmæli "ástkonu" eru nauðsynleg til að færast á milli þrepa.

Mánudaga 17.30-19.00 Tilvistarkreppa - hefur þú tapað betri helmingnum af sjálfum þér? Stuðningshópar og heimsóknir til íþróttamanna sem hætt hafa að spila.

Laugard. 19.00-20.30 Lært að leita að hlutum. Byrjað verður á því að fara í gegnum hvar hlutir eru vanalega geymdir og stress- og öskurviðbrögð æfð. Leikþættir og raunverulegar lífsreynslusögur.

Miðvikud. 18.00-21.00 Að gefa konunni blóm og tækifærisgjafir, hefur ekki skaðleg áhrif á sjálfið. Sett fram á mynd- og hljóðformi.

Föstudaga 17.00-20.00 Heilbrigðir menn spyrja til vegar þegar þeir villast. Gestafyrirlesarar og dæmi úr raunveruleikanum.

Miðvikud. 19.30-21.00 Konan undir stýri. Er mögulegt að sitja rólegur og hreyta ekki í hana ókvæðisorðum í föstudagsumferðinni Bílhermir.celeb014

Mánudaga 18.30-20.00 Hugsum í víddum. Farið verður í grunnmismun á milli mömmu og kærustu/konu. Stuðist við handbók í byrjun, byggist annars á hlutverkaleik.

Þriðjudaga 20.00-21.00 Er hægt að eyða degi í Kringlunni með fjölskyldunni? Afslöppunaraðferðir, hugleiðsla og öndunaræfingar.

Föstudaga 15.00-21.00 Hvert er samhengið á milli leikja í enskudeildinni og merkisdaga í fjölskyldunni? Gerð persónulegra samhengiskorta og "Til hamingju..."æfingar.

Nemendur fá viðurkenningarskjal ef þeir standast próf ! Námskeiði lýkur..


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband