Færsluflokkur: Bloggar
Sverrir Stormsker spyr hvað eru stjórnmál?
27.8.2008 | 02:44
Sverrir hefur víst alltaf verið svona, eða eins og hann er með skarpar og flugbeittar skoðanir á öllu, það kom strax í ljós í barnæsku eins og sjá má á þessari sögu er ég heyrði og átti sér stað er hann var innan við metri að hæð og þá þegar farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni.
Einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann: "Hvað eru Stjórnmál?" Pabbi hans svaraði: Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á þennan hátt: Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig auðmagnið. Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldum og þess vegna skulum við kalla hana stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum svo við skulum kalla þig fólkið. Við getum síðan haldið áfram og kallað barnfóstruna öreiga. Litla bróður þinn skulum við kalla framtíðina. Farðu nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og saman.
Þannig að Sverrir litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem pabbi hans sagði honum. Um nóttina vaknaði hann upp við grátinn í bróður sínum, þegar hann kemur inn í herbergi hans finnur hann fljót að bleian hans er blaut og mikil fýla af henni. Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína sofandi. Þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst. Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni. Að lokum gefst Sverrir litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.
Næsta morgun segir hann við föður sinn: "Pabbi, ég held núna að ég skilji hvað stjórnmál ganga út á." Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því. Þá sagði Sverrir litli: Jú sjáðu til, á meðan auðmagnið riðlast á öreiganum er ríkisstjórnin steinsofandi. Fólkið er hunsað og framtíðin er í djúpum skít.............
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þær fara fyrstar um borð um björgunarbáta og ef slys ber að höndum er þeim sinnt fyrst.. Bömmer.
Þær geta hrætt yfirmann sinn hroðalega ef hann er maður með hrikalegum ásökunum.. Bömmer.
Þegar þær kaupa víbrator þykir það flott hjá þeim, en ef menn kaupa plastdúkku eru þeir klikk.. Bömmer.
Karlmannsföt á konu gerir þær flottar og eftirsóknarverðar, karl í kvenmannsfötum er eins og hálfviti.. Bömmer.
Konur geta verið grúpppíur, menn er haga sér eins og grúpppíur eru stalkers.. Bömmer.
Konur falla aldrei fyrir teiknimyndafígúrum né vilja vera eins og aðalhetjan í tölvuleiknum.. Bömmer.
Konur fá alltaf leigubíla.. Bömmer.
Konur lifa lengur en menn og fá líftrygginguna þeirra.. Bömmer.
Konur líta ekki út fyrir að vera skúra gólf er þær dansa, það gera menn.. Bömmer.
Konur vita hvort stærðin passar þeim, það gera menn ekki.. Bömmer. Konur geta alltaf kennt karlinum um ef hún hefur ekki nóga aura, menn geta ekki kennt konunni um.. Bömmer.
Konur þurfa ekki að reka hroðalega við til að skemmta sjálfum sér eins og menn gera.. Bömmer.
Konur þurfa ekkert að velta því fyrir sér hvort þær komu eða ekki eins og menn gera.. Rosa Bömmer.
Smart Man + Smart Woman = Romance
Smart Man + Dumb Woman = Pregnancy
Dumb Man + Smart Woman = Affair
Dumb Man + Dumb Woman = Marriage
Smart Boss + Smart Employee = Profits
Smart Boss + Dumb Employee = Production
Dumb Boss + Smart Employee = Promotion
Dumb Boss + Dumb Employee = Overtime
Bloggar | Breytt 10.8.2008 kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Auminga maðurinn, lagðist í ferðalög um víða veröld.
7.8.2008 | 21:43
Það er oft svo með eldri menn sem séð hafa tímana tvenna að þeir horfa öðrum augum á heiminn en við gerum sem upplifum tölvur, geimskutlur og babyboomer´s. Hér er t.d. einn sem var alveg frábær. Rétt eftir að ég opnað internetþjónustuna SmartNet komu tveir eldri og velþekktir menn til mín og vildu fá áskrift. Þeir höfðu daginn áður fjárfest í tölvum og nú vildu þeir skoða þetta fyrirbæri er allir voru að tala um. Það var auðsótt mál fyrir þá og fór ég með þeim til að setja netið upp fyrir þá. Nema hvað, um kvöldið hringir annar til mín
rétt undir miðnætti og segir mér að hann sé í vandræðum með netið. Nú ég sá ekkert að og var hann tengdur og hafði verið hreyfing á honum, ég spyr hvað sé að og hvernig lýsir þetta sér? Sko sjáðu til, ég er búin að fara víða um Evrópu, Ameríku, meira að segja til Ástralíu og nú er ég orðinn þreyttur og vill ekki ferðast meir. Ha segi ég. Viltu ekki bara hjálpa mér heim þannig ég geti farið að sofa. Ég hugsa mig um smá stund og það varð ljós haha. Sagði kalli að setja músarörina á home takkann og smella ! Eftir nokkrar sekúndur segir hann Takk Einar minn, ég er kominn heim og get nú farið leggja mig og hann kvaddi. Ég hugsa þetta samtal smá og fatta það að kallinn lifði sig bókstaflega inn í Netið og heim var heimasíða SmartNets þar sem ferðalagið hófst!
Bloggar | Breytt 9.8.2008 kl. 07:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er ekkert grín að vera tuddalegur !!!!
6.8.2008 | 21:24
Bóndi nokkur kaupir helming í nauti á móti vini sínum svo þeir geti fjölgað nautgripum sínum. Nokkrum vikum síðar kemur vinurinn að athuga með hvernig gangi með
tuddann og sjá hvernig fjárfestingin standi sig. Bóndinn kvartar rosalega og er aumur með tuddann, segir hann bara éta gras og líti ekki við kúnum. Eftir nokkra umhugsun stingur vinurinn uppá að fá dýralækni til að líta á gripinn. Viku seinna kemur vinurinn aftur til að athuga hvort dýralæknirinn hafi hjálpað. Bóndinn leikur á alls oddi og segir að tuddinn hafi þjónustað allar kýrnar sínar auk þess hafi hann brotist út úr girðingunni og tekið allar beljur nágrannans. Hvað segir þú, hvað gerði dýralæknirinn eiginlega við nautið ? Hann gaf honum einhverjar pillur, segir bóndinn. Ha, hvernig pillur spyr vinurinn undrandi, Tja þær voru bleikar og smakkast svona líkt og piparminta.
What a woman says...
This place is a mess! C'mon!
You and I need to clean up! Your stuff is lying on the floor and You'll have no clothes to wear if we don't do laundry right now!
What a man hears...
blah blah blah blah blah C'MON! YOU AND I blah blah blah blah! blah blah blah blah ON THE FLOOR blah blah blah NO CLOTHES blah blah blah blah blah blah blah RIGHT NOW!
*****#*****
An old Indian was asked the name of his wife.
He replied, "Wife Name - Three Horse."
"That's an unusual name for your wife, Three Horse. What does it mean?"
"It's an old Indian name. Means Nag, Nag, Nag."
Bloggar | Breytt 27.9.2009 kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kallinn ögn hressari
5.8.2008 | 14:47
Jæja, fékk góðan vin í heimsókn sem neyddi mig til að borða Gazpacho sem hún lagaði í djúsvélinni, en hún er köld grænmetissúpa, stútfull af vítamínum og krafti. Búin til ca svona; 1 kíló tómatar, 1/2 laukur, 1 græn paprika, 1 gúrka, 1 til 2 hvítlauksrif ef vill, góð sletta af olifuvirginoliu, 2 tsk edik, 200gr af brauði bleyttu í vatni saltað og piprað eftir smekk. Ristað brauð skorið í teninga, slatti af tómötum skornir í smá bita, eins rauð og græn paprika, gúrka, laukur, eitt harðsoðið egg, allt smátt skorið til að strá ofan á súpuna. Þá er gott að setja ísmola í hana eða kæla mjög vel, því kaldari því betri. Eldaði hún líka smá af kjöti með grænmeti á pönnu og neyddi mig til að borða sem ég og gerði en smátt var það. Ég hef ekkert getað borðað í langan tíma nema drukkið grænt te er inniheldur mikið af K-vítamíni og fyrir vökvatapið á mér. Já það er gott að eiga góða að er maður er veikur. Og nú er kallinn á leið í bælið aftur enda MAGNLAUS lasarus. Ég veit bara ekki hver fjárinn er að plaga mig, þetta er eitthvað allt annað en gekk að mér í haust og vetur sem leið, enda stefni ég á heimferð á spítala um leið og ég fæ aura, annað ekki hægt í stöðunni. Eins er mun ódýrara að fara á sjúkrahús í Singapure heldur en hér í Thai og stutt flug þangað, hér borgaði ég um 300þús ISK fyrir þrjá daga í rannsóknir og lyfjagjafir...
Bloggar | Breytt 6.8.2008 kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kerlingu vantar, hún verður að vera eins og slæmt munnangur! Og vera falskari en skrattinn.
25.7.2008 | 21:10
Óumflýjanleg nauðsyn krefst þess að kerlingin sé búin þessum kostum:
Kerlingin verður að vera komin af góðu fólki þó ekki megi hún bera það með sér, verða flestir að halda að þetta sé gæðagripur en það má alls ekki vera.
Kerlingin verður að hafa þann kost helstan að geta grætt hvern þann er á vegi hennar verður.
Kerlingin þarf helst að vera mjög blönduð í genum (genamengun).
Kerling þessi á að vera önug með afbrigðum og fara um með naggi og gaggi.
Kerlingin verður að hafa mjög leiðinlegan talanda.
Kerlingin má ekki eiga vini eða hafa átt vini.
Kerling verður að eiga frændfólk sem hunsar hana.
Kerling má ekki vera þoluð af vinnufélögum og verða þeir að leita í aðra vinnu til að losna við baktal og nag.
Kerlingin má ekki stunda heiðarleika og verður að segja ósatt við hvert tækifæri.
Kerling má ekki gera sér grein fyrir þeim leiðindum og álagi sem hún veldur sínum nánustu hvað þá öðrum.
Kerlingin verður getað valdið fólki stórum áhyggjum vegna velferðar þeirra er í návist hennar dvelja.
Kerlingin verður að vera lævís sem köttur og læða sér inn í líf annarra þar sem hún getur valdið varanlegum skemmdum og sársauka.
Kerlingin verður að vera viðbúin að greiða skaðabætur í himnaríki fyrir hvern þann harm er hún veldur.
Kerlingin verður að getað abbast uppá ókunnugt fólk útaf engu.
Kerlingin verður að ganga sem mest í sömu fötum.
Kerlingin verður að geta komið af stað erjum milli nágranna sinna.
Þeir sem finna eða þekkja kerlingu búna þessum kostum er bent á að senda póst á undirritaðann.
Bloggar | Breytt 6.8.2008 kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Spaugileg uppákoma í tölvuheiminum
21.7.2008 | 22:00
Oft skeður eitt og annað skondið við vinnu í tölvuheiminum, T.d. fékk ég þetta bréf frá manni er sárlega vantað gistingu fyrir mann og konu á hóteli.
Bréfið hljóðaði svona:
From:"XXXX Garðarsson" [mailto:XXX@xxxxmis.is]
Sent:Thursday, September 01, 2005 11:07 AM
To: xxxxx@smart.is
Subject: Gisting
Okkur vantar gistingu fyrir hjón föstudagsnóttina 9 sept., er nokkuð laust hjá ykkur
Kv Xxxxx Garðarsson xxxxxmarkaður Íslands xxx@xxxxmis.is
Sæll vertu, jújú nóg pláss hjá okkur, bara smá hængur á, ef þú átt aðferðina við breyta hjónakornunum í tölvutækt form þá eruð þau velkomin og þið fáið gistinguna fría! Þar að auki þar sem þau yrðu fyrstu lífrænu gestir okkar getið þau dvalið eins lengi og þeim hugnast.Málið er að við rekum BlogHótel sem er eingöngu stafræn hýsing á dagbókarfærslum..Ég vona svo sannarlega að þú finnir góða gistingu og einfaldari í framkvæmd .. Með bestu kveðjum Vefstjóri SmartNets..
Bloggar | Breytt 22.7.2008 kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er mál að þakka fyrir sig! Ég geri of lítið af því :)
21.7.2008 | 19:11
Helst af öllum vill ég þakka eftirfarandi aðillum:
1. Föður og Móður minni fyrir allt er gert var fyrir mig er þau lifðu, það er fúlt að vera munaðarlaus en gangur lífsins er að maður eldist.
2. Tóbaksframleiðendum fyrir að búa til svo ógeðslegar fýlumengandi sígarettur að ég neyddist til hætta notkun á þessum viðbjóð! Reyndar fyrir langa löngu, væri steindauður ef ekki.
3. Samtökum Sveitarfélaga fyrir allt og trúna á mér!
4. Coka Cola fyrir að búa til svo vont Coke að það var ódrekkandi, meira segja með vodkabragðbætingu, þannig nú stunda ég Pepsí og undanrenu drykkju.
5. Rakel fyrir að hafa bjargað mér frá drukknun en ég hefði sjálfsagt drukknað.
5. Vee fyrir að kveikja eitthvað í hjarta mér sem ég hélt að væri dautt og sýna mér hvernig fólk getur komið fram eins og PIECE OF SHIT.
6. Dætrum mínum, Natalie og Nereu fyrir alla hjálpina er ég veiktist.
7. Dröfn dóttur minni fyrir að geyma mig í hjarta sínu!
8. Óráðstafað, óráðstafað, óráðstafað ( láttu þig dreyma )
9. Guðjóni fyrir að finna upp og stofna íþróttagreinina þunglyndiskast með sleggju dómum.
10. OLGU fyrir að tala bara ekki við mig.
11. Einari Blikk fyrir traustið og biðlundina.
12. Sverri Stormsker fyrir að vera til og allan húmorinn + morgunverðina er við borðum saman eftir klukkan 20.
13. Begga fyrir að vera vinur minn, bíð eftir að þú komir aftur til Siam.
14. Bee fyrir allt sem hún gerir fyrir mig.
15. Areyu (Jú Jú) fyrir Jetinn og allt það sem því fylgir á ströndinni.
16. Ploy fyrir allar áhyggjurnar sem hún hafði af mér, allt framað að hún lést langt fyrir aldur fram ég vona að það fari vel um þig hjá Guði, þú varst ákaflega velgerð og góð kona.
17. Sigurði Inga fyrir allt, ekki leiðinlegt að búa hér með þig hérna.
18. Síðast en ekki síst fyrir að vera enn á lífi.
19. Takk til Huldu fyrir alla hjálpina !
20. Lögmanni mínum sem er jafn pirraður og gáttaður, eins og ég er!
21. PP Travel fyrir allt sem þær gera fyrir mig.
22. Þér sem bíður þarna úti og veist (ekki) að ég er til en gjóar augum mikið.
23. Binna þarf ekki að segja meira.
24. Takk þangað sem það á heima!
Þegar á heildina er litið er þetta eitt hið undarlegasta ár hvað varðar framkomu fólks við mig, á það við um bæði góða og slæma framkomu. Það hafa verið gríðarleg átök á þessu ári með veikindum er hófust skyndilega í fyrra haust, eftir stend ég sterkari og lífsreyndari sem aldrei fyrr. Jari.
Tíminn flýgur !
Bloggar | Breytt 11.1.2009 kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Good/Bad/Worse/ekki fyrir skræfur/væmintítlur
21.7.2008 | 16:49
Bad: You can't find your vibrator. Worse: Your daughter "borrowed" it.
Bad: You find a porn movie in your son's room. Worse: You're in it.
Bad: Your children are sexually active. Worse: With the neighbors.
Bad: Your husband's a crossdresser. Worse: He looks better than you.
Bad: Your son's involved in Satanism. Worse: As a sacrifice.
Bad: Your wife wants a divorce. Worse: She's a lawyer.
Bad: Your wife's leaving you. Worse: For another woman.
Bad: Your wife's leaving you. Worse: To enter a convent.
Bad: Your wife's arrested for soliciting. Worse: She implicates you.
Good: Hot outdoor sex. Bad: You're arrested. Worse: By your husband.
Good: The postman's early. Bad: He's wearing camos and has an AK-47.
Good: The secretary said "yes." Bad: Your wife says "no."
Good: The teacher likes your son. Bad: Sexually. Worse: He's gay.
Good: You came home for a quickie. Bad: So did the postman.
Good: You came home for a quickie. Bad: Your wife walks in.
Good: You get a three-day weekend. Bad: You get the flu on Friday.
Good: You get tickets to the theatre. Bad: It's performance art.
Good: You go to see a strip show. Bad: Your daughter's the headliner.
Good: Your boyfriend's exercising. Bad: So he'll fit in your clothes.
Good: Your car conveniently "runs out of gas." Bad: For real.
Good: Your child's "waiting for Mr. Right". Bad: Your son, that is.
Good: Your daughter's on the Pill. Bad: She's eleven.
Good: Your neighbor exercises in the nude. Bad: He weighs 350 pounds.
Good: Your son's doing extra credit work. Bad: Making a sex ed video.
Good: Your uncle leaves you a fortune. Bad: It's counterfeit.
Good: Your wife bought a porn video. Bad: Your daughter's the star.
Good: Your wife likes outdoor sex. Bad: You live downtown.
Good: Your wife meets you at the door nude. Bad: She's coming home.
Good: Your wife's kinky. Bad: With the neighbors. Worse: All of them.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svik Kínverja við fólkið er býr þessa jörð og þangað mun nú fólk ferðast í tilefni af OL
21.7.2008 | 14:44
Í Júlí 2005 veiktust 68 einstaklingar í nokkrum þorpum í Sichuan héraði í Kína af dularfullum sjúkdómi. Aðeins 27 lifðu þetta af þannig að dánartíðnin var 63%. Sjúkdómseinkennin voru hár hiti, lungnabólga, uppköst, slappleiki, meðvitundarleysi og marflekkir undir húð. Opinber fréttastofa landsins sagði keðjukokk (Streptococcus suis) hafa herjað á fólkið. Óstaðfestar fréttir herma að nú hafi hátt í 200 manns smitast og dánartíðnin sé um 74%.
Fyrir utan þá staðreynd að opinber fréttastofa Kína tekur við beinum skipunum frá stjórnvöldum, þá eru aðallega tvær ástæður fyrir því af hverju við ættum að taka á þessum upplýsingum með töngum. Keðjukokkur er baktería sem myndast í svínum og hefur aldrei verið neitt stórvandamál eða faraldur. Síðan bakterían var greind er ekki vitað um meira en 150 tilfelli í öllum heiminum þar sem fólk hefur sýkst. Í öðru lagi þá er það líka í hæsta máta óvenjulegt að bakteríusýking dreifi sér eins og vírus yfir stórt svæði og drepi 63% fórnarlamba sinna. Keðjukokkur í fólki getur valdið hita, gigt, mengisbólgu og heyrnarleysiþetta er enginn Svartidauði. Fyrir nokkrum árum, þegar SARS faraldur byrjaði í Kína, reyndu stjórnvöld að fela þá staðreynd fyrir umheiminum. Við höfum því fulla ástæðu til þess að vera á varðbergi og spyrja hvort H5N1 vírusinn hefur þegar breytt sér eða blandast vægari vírus í Kína og fuglaflensan þar sé byrjuð að berast á milli fólks. Þegar 63% sjúklinga deyr og blæðingar undir húð eru með í pakkanum, þá er eins gott að skoða málið betur.
Í frægu bréfi sem læknir við hersjúkrahús í Boston skrifaði 29. september 1918 (birt í British Medical Journal 22. desember 1979) er spænsku veikinni lýst á ekki ósvipaðan hátt og dularfulla sjúkdóminum í Sichuan héraði. Menn voru lagðir inn með háan hita, misstu meðvitund, fengu lungnaólgu og hátt hlutfall þeirra dó úr veikinni. Tveim tímum eftir að þeir voru lagðir inn mynduðust marblettir á kinnbeinum, sem síðan breiddust út um allt andlitið"þar til erfitt var að greina þeldökkan mann frá hvítum"en þessu ber mjög saman við lýsingu sem dr. Þórður Thoroddsen gaf og skráð er í Ísland í aldanna rás (bls. 150). Þórður segir þar að líkin hafi verið helblá. Svartidauði lýsti sér á svipaðan hátt með húðblæðingum og líkin voru helblá eða allt að því svört.
Stjórnvöld í Kína hafa lengstum litið á smitsjúkdóma sem ríkisleyndarmál og þegar fréttastöð á Netinu birti frétt í apríl um fugladauða í Qinghai af völdum H5N1 þá voru 17 af 19 fréttamönnum Boxun handteknir. Mánuði seinna viðurkenndu stjórnvöld loks dauða 8000 fugla, en þögðu þunnu hljóði yfir örlögum 127 einstaklinga sem fréttaritarar Boxun fullyrtu að hefðu líka smitast af fuglaflensu. Þá hefur opinber fréttastofa landsins ekki sagt orð um fuglaflensufarald sem heimamenn hafa staðfest í bæði Shantou og Yunnan. Í stuttu máli þá neitar Kína að viðurkenna að einn einasti maður í landinu hafi smitast af fuglaflensu þótt veikin hafi drepið 57 manns í nágrannaríkjunum.
Í júlí 2005 birti vísindaritið Nature niðurstöður rannsókna á erfðamengi H5N1 vírusa sem voru tekir úr fuglum sem sýktust á þessu ári í Guangdong, Hunan og Yunnan. Viðbrögð stjórnvalda í Kína voru eins og við var að búast. Þau ásökuðu dr. Guan Yi, vísindamann við háskólann í Hong Kong, um að stela ríkisleyndarmálum og hótuðu honum öllu illu. Yfirvöld eru e.t.v. á nálum vegna þess að einstaklingar í borginni Ziyang hafa verið að látast úr fuglaflensu og næsti alþjóðlegi flugvöllurinn er aðeins í 250 km fjarlægð (í borginni Chengdu).
Í Kína geta menn farið í fangelsi fyrir að taka myndir. Þúsundir fugla liggja dauðir eða eru í andaslitrunum. H5N1 vandamálið í Kína er margfalt verra en yfirvöld viðurkenna.
Drepsóttir eru misjafnlega mannskæðar og Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) hefur ítrekað varað við að eins slík sé á næstu grösum. Þessa stundina (svo sannað sé) gerist það aðeins örsjaldan að H5N1 sýkilinn berst frá fuglum til manna, en þegar veiran nær að breyta sér þannig að fólk byrji að smita hvert annað þá er fjandinn laus. Lófaklapp vegna nýrra bóluefna er alls ekki tímabært vegna þess að enginn veit hvernig endanleg útgáfa H5N1 á eftir að vera samansett. Það er nú þegar töluverður munur á erfðamengi sýkilsins sem herjar á Suðaustur-Asíu og útgáfunnar sem nýlega hélt innreið sína í Rússland og Evrópu. Þegar H5N1 síðan gengur í eina sæng með öðrum flensuvírus þá er hætt við að leitin að bóluefni verði að byrja upp á nýtt.
Það er óþolandi á tuttugustu og fyrstu öldinni að láta eitt ríki komast upp með að leyna upplýsingum um sýkingu sem hugsanlega gæti verið upphaf drepsóttar sem síðan breiðist út um allan heim. Nýlegar hugmyndir sem hafa komið fram um að hægt sé að halda drepsótt á borð við spænsku veikina í skefjum og innan ákveðinna svæða eru vægast sagt hæpnar. Það þarf ekki nema einn smitbera í 300 manna flugi frá t.d. Hong Kong til London. Farþegar á þeirri leið gætu verið í áframhaldandi flugi til 1020 borga í Evrópu. Búið spil.
Drepsótt á borð við spænsku veikina virðist allt að því óumflýjanleg og sennilega eiga sögubækur eftir kalla þessa "kínversku pláguna" eða hliðstæðu nafni. Þegar stórhættulegur vírus eins og H5N1 nær að þróast þá verður að kæfa hann strax í fæðingu. En kínversk yfirvöld drógu lappirnar og því er vírusinn þessa stundina í heimsreisu, falinn í holdi og blóði farfugla. Framferði Kínverja í þessu máli er forkastanlegt.
Þessi nýjasta sýkingeinn fuglafræðingur lýsir henni sem "útbreiddustu og banvænustu fuglaflensu er menn hafa séð í villtum fuglum"byrjaði í lok apríl 2005 á lítilli eyju sem er staðsett á Qinghai stöðuvatninu í vesturhluta Kína. Gæsir byrjuðu að fá krampa, veikin breiddist út um allt vatnið og þúsundir fugla lágu brátt í valnum. Stuttu seinna byrjuðu fuglar í suðurhluta Kína að drepast á svipaðan hátt, en yfirvöld gerðu allt sem þau gátu til þess að halda því leyndu.
Dr. Yi Guan, sem í mörg ár hefur stjórnað hópi vísindamanna sem rannsaka fuglavírusa, kvartaði í júlí yfir sinnuleysi Kínverja í viðtali við breska blaðið Guardian:
"Þeir hafa gert sama og ekki neitt til þess að hafa stjórn á þessum faraldri. Þeir hefðu átt að falast eftir hjálp erlendis frá. Þessir fuglar fara til Indlands og Bangladesh og þeir munu blandast fuglum frá Evrópu."
Þótt yfirvöld í Kína hafi staðið hjá frosin á meðan H5N1 fór úr böndunum, þá höfðu þau nóga orku til þess að ráðast á vísindamenn sem höfðu áhyggjur af ástandinu. Rannsóknarstofu dr. Yi Guan við Shantou háskólann var t.d. lokað og hótanir um málssókn lágu í loftinu í þessu landi sem lítur á fuglaflensu sem ríkisleyndarmál. Möppudýr landbúnaðarráðuneytisins taka nú við rannsóknum sem sjálfstæðari hópar stunduðu áður.
Eins og þetta kort sýnir þá er fuglaflensan komin á ferðalag sem enginn getur lengur stöðvað. Fuglaflensan hefur nú þegar drepið fólk í Víetnam, sýkt svín í Indónesíu, drepið gæsir í Mongólíu og endur í Síberíu. Á hverju hausti hefja farfuglar sig til flugs frá Síberíu og halda til Suður-Evrópu, Kanada og Alaska. Annar hópur er þessa dagana að byrja ferðalag frá vesturhluta Kína til Indlands og þaðan til Ástralíu. Yfir 100 þúsundundir fugla hafa þegar fallið í Rússlandi
Þessi landfræðilega útbreiðsla ásamt fjöldi tegunda sem hefur smitast af H5N1 tryggir nær fullkomlega að vírusinn á eftir að breyta sér þannig að hann getur gengið á milli fólks. Sérfræðingar á vegum WHO og tímaritið Science segja núna að möguleikar á farsótt séu 100%.
Þriðji heimurinn stendur algjörlega berskjaldaður og er ófær um að taka á móti flensu sem líkist þeirri sem gekk yfir heiminn 1918. Mannfall á jörðinni gæti því hæglega farið yfir 500 milljónir í næstu drepsótt. Ef vírusinn veikist ekki töluvert við breytinguna sem gerir honum kleift að berast meðal fólks, þá gæti þessi tala orðið miklu hærri.
Mörg þróuð ríki eru búin að sanka að sér sýklalyfjum sem eiga eftir að hjálpa mikið. En hugmyndir um að nýtt bóluefni eigi eftir að bjarga öllu eru annað hvort loftkastalar eða tilraun til þess að hughreysta fólk. Jákvæðar niðurstöður tilrauna sanna alls ekki að umrætt bóluefni eigi eftir að vinna á móti vírus sem ekki er enn fullmótaður og enginn veit hvernig verður nákvæmlega samansettur. Það tekur líka marga mánuði bara að undirbúa framleiðslu á þessu bóluefni og takmarkað framboð á frjóvguðum eggjum gerir framleiðsluna óþægilega hæga. Dr. Michael Osterholm, yfirmaður smitsjúkdómadeildar háskólans í Minnesota, útskýrir hvernig málin velkjast í sambandi við bóluefni og lyf sem hugsanlega sporna við væntanlegum fuglaflensufaraldri hjá fólki:
"Fólk einfaldlega skilur þetta ekki. Ef við hæfum nýtt verkefni í dag sem væri eitthvað í líkingu við Manhattan-áætlunina [atómsprengjuverkefnið fræga] til þess að auka framleiðslu bóluefna og lyfja, þá mundum við ekki árum saman hafa mælanleg áhrif á framboðsmagn þessara mikilvægu efna svo hægt væri að takast á við heimsfaraldur."
Ennþá hefur ekkert komið fram sem bendir til að fuglar á Íslandi hafi sýkst af fuglaflensu. Tekin hafa verið sýni úr öndum á Tjörninni í Reykjavík og á alifuglabúum og fyrirhugað er að taka sýni úr villtum fuglum.
Mikilvægt er að gera greinarmun á þeirri inflúensu sem herjar á mannfólkið árlega og fuglainflúensu. Einnig er vert að geta þess að þó ákveðnar tegundir af fuglainflúensu gangi meðal fugla þá hafa þær að öllu jöfnu ekki smitað fólk. Flest tilfelli fuglainflúensu í mönnum má rekja til þess beinnar snertingar við smitaða fugla eða úrgangs frá þeim.Heilbrigðisyfirvöld um allan heim eru nú að vinna að ráðstöfunum til að verjast og bregðast við hugsanlegum faraldri og byggja á fyrri reynslu af margs konar sóttum og faröldrum þeim tengdum.
Hvaða varúðarrástafanir eru fyrir hendi?
Ekki er mælt með ferðatakmörkunum en ferðamönnum sem eru leið til landa þar sem fuglaflensa hefur verið greind er bent á eftirfarandi varúðarráðstafanir:
- Forðast að komast í snertingu við lifandi hænsnfugla og villta fugla.
- Forðast að heimsækja markaði með lifandi fuglum og fuglabú.
- Forðast að snerta yfirborð sem menguð eru af fuglaskít.
- Forðast að snerta dauða fugla.
- Að borða ekki ósoðið eða illa soðið fuglakjöt og egg.
- Huga að almennu hreinlæti og tíðum handþvotti.
- Ekki flytja heim með sér fuglaafurðir til landsins.
Staðreyndin er sú að eins og er þá eru meiri líkur eru á að fólk smitist af hefðbundinni" inflúensu. Almennar ráðleggingar varðandi smithættu hvort sem um er að ræða inflúensu eða aðrar sýkingar eru:
- Láta bólusetja sig - ef bóluefni er til.
- Reglulegur handþvottur.
- Halda sig heima ef maður er veikur.
Meiri upplýsingar má fá á vef Landlæknisembættisins
Fólkið var lagt inn á sjúkrahús með háan hita og átti við öndunarvandamál að stríða. Þeir sem létust voru með sömu einkenni. Heimild: MBL.IS
Heimildir fengnar hist og her..
Bloggar | Breytt 6.8.2008 kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)