Færsluflokkur: Bloggar
Jóhanna og Steingrímur róa nú lífróður til bjargar Gordon Brown...
10.1.2010 | 20:30
Flugumenn Vinstri grænna og Samspillingar róa nú að því öllu árum að halda Íslands nýðingnum Gordon Brown við stjórnvöllinn í Bretlandi. þar sem hann kennir Íslendingum um alla sýna óstjórn og misgjörðir. Hefur parið valið sér til halds og trausts vel þekkta áróðursmeistara sem og önnur lítilmenni er notast á við til að svíkja þjóðina í hendur nýlenduherrana.
Stefnan er að fá þjóðina til að fella ekki svikasamninginn, þann er þeir/þau kenna við góðgjörðir Breta til handa örríkinu Íslandi.
Icesave má aldrei samþykkja ef þjóð okkar á að lifa, enda stendur nú upp maður eftir mann sem og þjóðir, er segja það hreint út að þennan samning á þjóðin enga skyldu til að borga né ber hún til þess nokkra ábyrgð.
Þetta lætur svika og óhæfustjórn Jóhönnu / Steingríms sér í léttu rúmi liggja, nú sé lag að koma Íslensku þjóðinni í hendur Breta og Hollendinga eða það sem betra er, fyrir kattarnef.
þetta eru flugumennirnir og aðstoðar mennirnir er ríkisstjórnin hefur valið sér til fulltingis:
Ingvi Örn Kristinsson er aðstoðarmaður Félagsmálaráðherra Árna Páls Árnasonar, en hann var framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans. Einnig starfar hann sem ráðgjafi Forsætisráðherra.
Benedikt Stefánsson var í Greiningardeild Landsbankans og er núna aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar Efnahags- og Viðskiptaráðherra.
Björn Rúnar er skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstöðumaður í Greiningardeild Landsbankans. Edda Rós er núna fulltrúi Íslands í AGS í gegnum Samfylkinguna. Hún var forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans.
Arnar Guðmundsson var í Greiningardeild Landsbankans. Hann er núna aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur Iðnaðarráðherra.
Áhugavert að allir þessir aðstoðarmenn eru fyrrum starfsmenn Björgólfsfeðga.
Nú verður Íslenska þjóðin að standa saman sem aldrei fyrr og losa sig við svikráða pakkið!
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
samtínsla nafna Cilla Ragnarsdóttir
![]() |
Brown í kröppum dansi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Komin til London! að hitta Gordon Gin Brown...
10.1.2010 | 00:29
Ath hér er um hreina sögufölsun og grín að ræða, í svartnættinu.
![]() |
Vill þýskan sáttasemjara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Löngu ljóst að Gordon Brown er geggjaður!
9.1.2010 | 12:10
Gordon Brown er geggjaður! Þetta skrifar Vicki Woods dálkahöfundur hjá breska blaðinu Telegraph á vef blaðsins í dag. Það eru því fleiri en Íslensk heimili er sjá að Gordon Gin Brown er snar geggjaður! Þeir einu er ekki virðast vita um geggjun Gordons eru mis drukknir af vínanda eða valdagræðgi á Alþingi okkar og það viss sturlun í ofanálag.
Það á að senda Alþingi heim næstu þrjú árin í það minnsta og setja á þjóðstjórn valinnkunnra manna. þá er það lámarks krafa, er Alþingi verði kallað saman aftur að þingmenn verði skikkaðir til þess að gangast undir vitsmuna próf þar þeir sýni framá lámarks greind til setu á Alþingi þjóðarinnar.
Ég sé enga ástæðu fyrir því að Íslendingar eigi að endurgreiða" Icesave," skrifar Vicki Woods dálkahöfundur hjá breska blaðinu Telegraph enfremur á vef blaðsins í dag.
Það er engin launung að Gordon Brown reynir hvað hann getur að beina sjónum Breta frá mistökum og afglöpum hans sjálfs, og það með árásum á örríkið Ísland, enda maður í gríðarlegum vanda heima fyrir og þurfti ekki Íslenska banka til að svo yrði.
þá er hann sagður ofstopa og skapvargur hinn mesti að það fljúga víst ófá húsgögnin sem og skrautmunir um ganga niðurgangsstræti 10, er karlinum líkar ekki eitthvað, það verður því hátíð á númer 10 er hann fellur í komandi kosningum á Bretlandi, og þá starfsfólk von á því að geta gengið óhult um húsið.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
Telegraph: Engin ástæða til að Íslendingar greiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekkert meir um það að segja...
8.1.2010 | 17:06
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér er klárlega slegið í innstunguna og riðið hratt frameftir !
6.1.2010 | 17:09
Ari verður hann æ þunglyndari.
Kannski hann yrði hressari ef hann væri leigari, sjóari, þjálfari, grafari, boxari, hlaupari, fyndnari, söngvari, reiðari, kafari, fúnari, múrari, raulari, pípari, nánari, gaflari, trommari, suðari, blautari, bakari, skóari, slúðrari, þurrkari, lygari, kaldari, gætnari, flagari, laglausari, tengdari, innraðari, ljósari, kátari, þénari, teiknari, feitari, kennari, rætnari, klippari, flottari, vefari,
sveittari, bloggari, bullari, tatari, klifrari, flatari, þurrari, klókari, snyrtari, þambari, snertari, tamari, sniffari, dúkari, teljari, setjari, ýtnari, rukkari, ríkari, okrari, straujari, fljótari, runkari, sterkari, lánari, grillari, kjaftari, gaufari, blíðari, leikari, sleipari, tætari, spilari, graðari, betlari, myndhöggvari, þrasari, grínari, sæðari, sópari, kóðari, nuddari, upptakari, hringjari, fisknari, aumari, borgari, splæsari, kuklari, smakkari, flakkari, skreppari, bónari, kleppari, hreinsari, flinkari, púari, framari, veikari, teikari, smartari, grónari, potari, þrumari, sminkari, prentari, fiktari, liftari, Thaiari... enn er bara beiskur breskur rababari...
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
eigandi myndar hernám ruv
Bloggar | Breytt 8.1.2010 kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íslendingar hafðir að háði og spotti í suðaustur Asiu...
31.12.2009 | 09:29
Er ég fór í morgun niður á strönd hér þar sem ég er staddur í jóla frí, svona rétt til að kanna prógrammið fyrir áramóta kvöldið varð ég fyrir hrópum og aðkasti Breta er ég kannaðist við lítillega, Bretarnir kölluð þjóð mína vesalinga er væru að flytja aftur í moldarkofana, þegar ég fór síðan heim um klukkan 15.00 en hér er sjö klukkustunda munur á klukkunni var farið að síga ögn í mig vegna háðunga þessara lítilmenna er virtust skemmta sér konunglega yfir óförum þjóðar minnar.
Gat ég ekki annað en tilkynnt þessum vinum Íslensku ríkistjórnarinnar að einhver yrði að borga an*skotans Ginið ofan í forsætisráðherra ótukkt þeirra, er ég nemdi Gordon Gin Brown.
Varð mér þá snarlega ljóst að það er þeim ekki nóg að við séum að flytja í torfbæi aftur, heldur eru Íslendingar rétt barðir af Bretum, enda kunna Bretar ekki að haga sér með nokkur móti er þeir ferðast erlendis, ávalt til vandræða og settir í sér hverfi og hótelbyggingar ætluðum Breskum vargi, hvar sem þeir koma þessir vesalings vinir Jóhönnu og Steingríms J. eru þeir til leiðinda.
Ég hefði haldi að þeir hefðu átt að kætast við fréttir af mafíu okurvöxtum til handa bresku lákrúnunni og greiðslu himinhárra reikninga er Íslenska þjóðin á að borga nú, án þess að bera til þess nokkra skyldu, hvað þá getu, þökk sé stjórnvöldum.
Það er ekki nóg að þjóðin hafi miss eigur sínar heldu fer hún nú á vonar völ og verður lítið ef ekkert um heimsóknir til farlægra landa í því ólífi sem VG og samviskulausi flokkarnir hafa sett mig og mína í það sem við eigum eftir Ó lifað undir sultarmörkum.
Hafið Skömm fyrir og legg hér með á sitjandi stjórnvöld ''vesæl-dóm'' með öllu því er til heyrir.
Ekki þætti mér týra beinnt að fréttir af illgjörðar fólki Íslensku þjóðarinnar er berast fljótlega upp úr nýju ári, síðan er það nú svo hver er nú ekki skærasta ljósaperan í seríunni er ekki best að skipta um hana eða hreinlega slökva áhenni ?
Lýk hér skrifum mínu með þeirri von að þjóðin varpi sitjandistjórn á dyr nú þegar!
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
Fréttir af Icesave berast víða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aftaka á Íslendingum, þjóðarböðlar framselja Íslendinga í hendur Breta og Túlibana!
31.12.2009 | 02:16
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna samþykkt.
Andþjóðfélagslegir Íslenskir Alþingismenn.
Ég kýs þig ekki, þú kaust með Icesave.
Árni Páll Árnason, Árni Þór Sigurðsson, Björgvin G Sigurðsson, Björn Valur Gíslason, Guðbjartur Hannesson, Helgi Hjörvar, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Bjarnason, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Kristján L Möller, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Magnús Orri Schram, Oddný G. Harðardóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Róbert Marshall, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Anna Pála Sverrisdóttir, Steingrímur Jóhann Sigfússon, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Þráinn Bertelsson, Þuríður Backman, Össur Skarphéðinsson, Arndís Soffía Sigurðardóttir, Álfheiður Ingadóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Ásmundur Einar og Guðfríður Lilja.
Skráum okkur öll á http://www.indefence.is
nú eru undirskriftir um 41.000
Setning dagsins er síðan þessi:
Það er mikið áhyggjuefni hversu auðveldlega illa gefnir (og jafnvel, illa innrættir) einstaklingar komast til valda á þjóðþingi okkar Íslendinga. D. Ö. J.
Skilyrði verður að setja um gáfnafar þingmanna, hvað þá ráðherrar.
Lýk hér skrifum mínu með þeirri von að þjóðin varpi sitjandistjórn á dyr nú þegar!
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
Alþingi samþykkti Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bjarnfreðarson? Hvað er um að vera í koll fjármálaráðherra? En fresta þeir fundi Alþingis til kl:12,00
30.12.2009 | 09:38
Undur og stórmerki hvernig Svavar Gestsson kemur fram, það er eins og hann haldi að hann sé æðstiráðamaður þjóðarinnar, þennan mann á að setja í gapastokk.
Í bréfinu segir að Svavar hafi farið fram á að leynt yrði gögnum fyrir yfirmanni sínum, Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra.
Össur sagði að gott væri að fá upplýsingar um málið, en hann ætti erfitt með að trúa slíku.
Uppnám varð á þingi eftir að bréfið barst en í því segir að í skjölum frá lögmannsstofunni, sem vantar á vefsíðuna www.island.is, sé minnst á hugsanlega málshöfðun vegna aðgerða breskra stjórnvalda.
Mun þá vera átt við málaferli vegna yfirtöku breska fjármálaeftirlitsins, FSA, á Heritable, breskum banka en að fullu í eigu Landsbankans. Bankinn var með tryggasta innlánasafn Landsbankans og eru eignir hans nú um 60 milljarðar króna fram yfir skuldir. Má því heita öruggt að allar kröfur á hendur honum verði greiddar að fullu.
Steingrímur J. Sigfússon ( Bjarnfreðarson ) fjármálaráðherra sagði það misskilning að eitthvað nýtt kæmi fram í gögnunum og en ver hann nennulausan Svavar Gestsson með ósannindunum.
Svavar Gestsson ekki kallaður fyrir!
Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, segir að Svavar Gestsson, formaður íslensku Icesave samninganefndarinnar verði ekki kallaður fyrir fjárlaganefnd, þrátt fyrir kröfu stjórnarandstöðunnar þess efnis.
Auðvitað á að kalla manninn fyrir og draga uppúr honum sannleikan, en það er ljóst að VG ætlar sér ekki að ástunda nokkur þau vinnubrögð er talin væru til heiðarleika !
Svavar neitaði að mæta!
Ef Steingrím skattakrækir tekst að keyra Icesave viðbjóðin í gegnum þingið er ljóst að hann ber enga virðingu fyrir Íslensku þjóðinni, hann virðist í raun eingöngu sækist eftir voðveiflegum atburðum til handa þjóð okkar.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
Vilja að Svavar verði kallaður fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skúrkur ársins. Það var úr mörgum að velja þegar kom að vali á skúrki ársins en einn stóð uppúr.
30.12.2009 | 03:22
Skúrkur ársins í mínum huga er mannleysan Svavar Gestsson er klárlega mun vera sá skúrkur þjóðarinnar er hvað mest ærulaus er, enda eru en að koma í ljós stórfurðulegir gjörningar er hann virðis vera viðriðin.
Steingrímur lýsti efasemdum um það sem kemur fram í bréfi lögfræðistofunnar Mishcon de Reya að Svavar hafi viljað halda tilteknum gögnum leyndum fyrir Össuri, yfirmanni sínum. Að þrautreyndur embættismaður og sendiherra, sem væntanlega kann þá grundvallarreglu að ráðherra eigi að sjá allt sem skiptir máli, hafi farið að óska eftir slíku. Ég á afar erfitt með að trúa því," sagði Steingrímur en sagðist engin gögn hafa í höndum um þetta.
Steingrímur J er en við sama heygarðshornið og ver vin sinn mannleysuna Svavar Gestsson fram í rauðan dauðan enda af sama sauðahúsinu.
Allt þetta Icesave mál verður sífellt furðulegra, og er vonlaust að trúa einu orði er frá Steingrími J kemur enda maðurinn einn mesti lygari Íslandssögunar. Ég velti því fyrir mér hvað ósanninda skúrkurinn notar eiginlega til að halda tungu sinni frá því að verða kolsvört og nef hans vaxi í það óendanlega ?
Hér er greinilega einhver svartigaldur í gangi.
Það er ljóst að ekki verður mikið eftir af þjóð okkar ef Icesave ruglið verður samþykkt og ljóst að þjóðin mun að öllum líkindum tapa sjálfstæði sínu og getu til að vera þjóð meðal þjóða.
Það er uppúr stendur er að Svavar Gestsson er Íslands skúrkurinn, Steingrímur J ósanninda maðurinn og forsætisráðherra þjóðar okkar, Jóhanna Sigurðardóttir er einræðisherra. Aldrei hefur annar forsætisráðherra sýnt aðra eins tilburði til einræðis með endalausum hótunum og baktjaldamakki að það hálfa væri nóg.
Ekki það að það hafi skilað nokkrum árangri til bættra lífskjara til handa íbúum þessa lands, það hefur allt verið á hinn vegin, algjört stjórnleysi ásamt getuleysi. Nú er þannig komið að heimili landsmann eru að niðurlotum komin, landsflótti skollinn á sem aldrei fyrr, enda hótunarstjóri ríkisins upptekkin við að taka í höndina á sjálfri sér og þakkar sjálfri sér í tíma og ótíma fyrir vel unnin störf.
Ég ætla rétt að vona að þingmenn felli óhæfu verk Svavars Gestssonar er hann færði þjóðinni brosandi útundir eyru, þingmenn verða að senda frumvarpið þangað er það á heima, sem sagt á hauganna ásamt manninum sjálfum er páraði undirskrift sína undir óhæfuna og rauk í sumarfrí.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Það bara tekur því ekki að nefna Þráinn Bertelson enda kjarklaus þingflokkslaus maður er fer sem skugginn af sjálfum sér með veggjum.
![]() |
Steingrímur segist trúa Össuri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Steingrímur J sendir flokksfélögum Jólapistilinn og sé ég ekki betur en karluglan sé dottinn í Lenín eða áróðursmeistarann Joseph Goebbels ( segðu lygina nógu oft þá verður lygin að sannleika ) Nei ég sé það núna, nú sækir hann í áróðursvél Öfga múslima fylgd þú mér (Al-Qaeda) og samfélagið allt mun uppskera ríkulega, framundan er paradís, ég Steingrímur mun veita þér hreinar meyjar, enda hef ég bannað kaup á vændi, er það það sem liggur þarna í orðum Steingríms ? Hvern fjárann varðar nokkurn um bann á vændi er þjóðin sveltur og er að missa heimili sín, þá er hann uppveðraður yfir því sem áhefur unnist en að mínu mati hefur ekkert áunnist, Það hefur allt verið á hinn veginn, sjá lof lista Steingríms t.d. Hann nefnir þar, nýtt tekjuskattskerfi er dreifir byrðunum á allt annan og réttlátari hátt en skattkerfi frjálshyggjunnar gerði.
Hæsti virðisaukaskattur í heimi persónulegt met Steingríms kemst væntanlega í heimsmetabókina
Það þurfti Vinstrihreyfinguna grænt framboð til segir Steingrímur stoltur.
Þetta gerir hann þótt hann viti að eldhúsbuddur heimilanna eru tómar, fer þarna í smiðju Stalín og slátrar fjölskyldunum og heimilum þeirra.
Hann segir ennfremur, Af mörgu öðru er að taka. Þar má nefna hærri grunnframfærslu námslána.
Hvað meinar hann? Enn ein lyga þvælan, skýra og metnaðarfulla stefnu í loftslagsmálum. Enginn hefur samþykkt eitt né neitt, loftslagsráðherrann sækir í smiðju föðurs síns og talinn einn mesti svikahestur þjóðarinnar, hann verður væntanlega skráður sem slíkur enda maður með enga nennu fyrir þjóð sína, og fór ráðstefnan út um þúfurnar í Köben, þá var fréttaflutningur VG eins og þeir hefðu bara bjargað heiminum og ráðstefnunni allri. Síðan kom nú þetta: kaup á vændi hefur verið bannað.
Bannar elstu starfsgrein í heimi, vændi hefur alltaf aukist við fátækt og er landlægt í draumalöndum Steingríms enda eðli mannfólks að reyna að hafa í sig og á.
Þetta skilur Steingrímur ekki frekar en aðrir komm(ú)nista foringjar er sendu og senda enn nauðþurftarkonur sem og karla í gúlakið.
Lög sem bæta stöðu sprotafyrirtækja hafa verið samþykkt. Hver sér ekki að þetta er bull? Gott og vel, hvað með eldri rótgróin fyrirtæki óskyld víkinga útrás, já staðreyndin er sú að þau geta átt sig í augum Steingríms enda gæti þar leynst framsóknarmaður eða það sem verra er sjálfstæðismaður í stjórn þeirra fyrirtækja.
Varnarmálastofnun verður lögð niður á næsta ári.
Já, þar kom að því gefum hverjum sem er fullt aðgengi að lofthelgi Íslands, nú má fljúga hvaða tyggjóflugvél yfir landið fullvopnuðu af kjarnorku kabúmm. Keflavíkur göngur aflagðar enda skótau á þrotum og herinn löngu farinn, sparnaður það. Enda fá Bretar að vaða um kef eins og þeir eigi völlin.
Hvernig var það með Rússa lánið, þar gekk maður undir manni um að sannfæra RÚSSA um að Ísland vildi bara ekki lánið og það sem meira er að til eru afrit af öllum samskiptum Gríms og Rússana og mun einn fréttavefurinn birta efnið er skjöl og hljóð hafa verið sannreynd. Það er nú svo að upp komast svik um síðir !
Rússar skildu aldrei hvers vegna Íslendingar vildu ekki hjálp frá þeim! Og voru lengi að hugsa málið hvað þá að senda frétt um að þeir bara gætu ekki lánað Íslandinu smáa, smá aura að skipun Steingríms.
Kallinn svika Grímur var að fara á límingunum yfir seinagangi Rússa er vildu í raun ekki taka þátt í lygum Gríms.
Málið var, Steingrímur sendi hóp manna til kremlar til að sannfæra Rússa um það væri best að rússnesk stjórnvöld myndu draga boðið til baka, þetta skildi Kreml ekki og var lengi að átta sig á ætlunarverki Gríms, en Glúmur sagði að hægari væru heima tökin ef þjóðin væri í svelti. Þá gætu þeir komið sem bjargvætturinn síðar enda hefðu þá vestræn ríki snúið við okkur baki. Steingrímur ætlar sér ekkert í ESB, hann ætlar Kremlverjum þjóð okkar ?
En það sem stendur upp úr með komu Rússa er að þá má væntanlega skjóta GRÍM og annan enda óþurftar hávaðavaðall í fyrrverandi kaffihúsa jarmfræðingnum, uppeldisfræðingnum og vörubílstjórunum hvað þeim 13 jólasveinum er halda að hann sé guð, Grímsi er stal jólunum sagði ávalt á kaffisnakkinu, einn daginn verð ég stór og ég lem Davíð! Hum og hann lamdi saklausan Geir er var ekki einusinni hálfur Davíð.
Til er myndband er sínir virðingu fjármálaráðherra fyrir Alþingi og forsætisráðherra, Steingrímur lemur í tvígang í forsætisráðherra þar sem hann situr í sæti sínu, maðurinn hefði þá þegar átt að vera sviptur þingmannsstörfum og legg ég til að nú verði gefin út líkamsárásarkæra fyrir hönd fyrrverandi forsætisráðherra enda málið ekki fyrnt.
þetta mun vera hin mesta vanvirðing er nokkur hefur sýnt elsta þjóðþingi veraldar og sýnir að fullu innræti Steingrím, en atriðið er í á c.a. þriðju mínútu, hver hefur leyfi til að berja í sitjandi forsætisráðherra, ég er en urandi reiður og heimta að maðurinn verði kærður nú þegar fyrir vanvirðingu við Þingið, sitjandi forsætisráðherra þessar aðfarir stríða gegn öllum skráðum þingsköpum semog óskráðum hefðum hvað þá með þessu athæfi sínu sýndi Steingrímur sitt rétta andlit og þetta andlit á ekki heima í Æðstu stofnun þjóðarinnar
Þá held ég að KollGrímur geri sér enga grein fyrir því hættuástandi er hann hefur sett þjóðina í.
Hann getur ekki treyst á lögregluna né aðra til að halda uppi lög og reglu þar sem hann er að svelta gunnstoðir samfélagsins. Þá gerir hann sér ekki grein fyrir því að nú þegar eru menn að hamstra skotfæri og vopnabúnað. Maðurinn eða (frú) Jóhanna virðast ekki skilja það að þjóðin er á barmi upplausnar og með upplausn fylgja voðaverk... Ég vil ekki sjá þjóð mína í þannig ástandi !
Já miklir menn erum við Hrólf... Steingrímur!
Það eru víst jól og það er vont að horfa á þjóð mína svona niðurbrotna, ég heiti því að ég mun geri allt það er í mínu valdi stendur til að Ísland muni bera sitt stolt !
Lýk hér skrifum mínu með þeirri von að þjóðin varpi ósannindamanninum og Stalínistanum Steingrími J á dyr nú þegar!
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
Tók við af búskussa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 30.12.2009 kl. 05:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)