Færsluflokkur: Bloggar
En lýgur lygamörðurinn og spunna meistarinn Steingrímur J að þjóðinni og það bara svona rétt fyrir Jólin!
24.12.2009 | 16:18
Það er ekki skemmtilegt að sitja undir þessari endalausu lygasúpu er Steingrímur J. matreiðir ofan í þjóðina og hér er en ein ósanninda súpan er Steingrímur J. matreiddi ! Og með hans eigin orðum segi ég, ¨og étana sjálfur¨
Hvernig sefur þessi maður á nóttunni ég bara spyr ?
Mishcon de Reya segir í bréfi sínu að tekið hafi verið tillit til allra hliðarsamkomulaga tengdum Icesave-málinu við vinnslu álitsgerðarinnar, en öðru hafði verið haldið fram á stjórnarheimilinu. En Steingrímur J. Sigfússon sagði í Morgunblaðinu 22. desember síðastliðinn að álit Mishcon hafi ekki tekið tillit til allra hliðarsamninga í málinu. Þetta segir breska lögmannsstofan rangt !
Enda nú komið í ljós að þetta er tóm lygi hjá hinum dæmalausa fjármálaráðherra.
Í bréfi Mischon De Reya segir að rangt sé sem sagt er, að betra sé að afgreiða Icesave-málið heldur en að slá því á frest. Hvort betra sé að afgreiða málið hið fyrsta eða taka til ítarlegrar skoðunar öll þau gögn sem liggja til grundvallar málinu, segir Mishcon að sé ekki þeirra ákvörðun að taka.
Maðurinn gerir ekki greinar mun á réttu né röngu og lýgur út í eitt, það er bráð undarlegt að þegar lygarnar eru reknar ofan í lygamörðinn hvað eftir annað, að hann gerir ekki annað en lifta öxlum og tautar sem svo, þjóðin hefur ekki vit á einu né neinu er þessi stjórn gerir og stingur þar með hausnum í sandinn...
Ég skil ekki af hverju maðurinn fær að komast upp með þetta endalausa lyga þvaður ?!?
Lýk hér skrifum mínu með þeirri von að Þjóðin varpi ósanninda manninum Steingrími J á dyr nú þegar!
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
De Reya svarar Steingrími |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 25.12.2009 kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kæru ættingjar, bloggarar, þjóðfélagsrýnar, vinir nær og fjær.
23.12.2009 | 14:28
Bloggar | Breytt 25.12.2009 kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvað er í kolli SkattGríms er svartnætið leggst yfir heimili landsmanna? Þar rís engin sól.
21.12.2009 | 14:46
Þetta vogaði Steingrímur sér að segja á Alþingi fyrr í dag er hann setti þjóðina í Jólaköttinn.
Ég deili ekki þessari miklu svartsýni sem svífur yfir vötnum í ræðuhöldum stjórnarandstæðinga. Og þó að það sé um það bil svartasta skammdegið akkúrat þegar við eigum þessi orðaskipti þá er nú engu að síður ástæða til að muna eftir því að sól fer að hækka á lofti.
Er maðurinn í lagi eða er þetta bara samviskulaus einkahúmor ?
Formaður Neytendasamtakanna segir að hækkun virðisaukaskatts sé aðför að heimilunum í landinu sem flest verði nú fyrir tvöföldum áhrifum, annars vegar í formi hækkaðs vöruverðs og hins vegar hækkunar verðtryggðra lána.
Tillögur meirihluta efnahags- og skattanefndar voru samþykktar á Alþingi í morgun þar sem horfið var frá fyrri hugmyndum um 14% milliskattsþrep, sem átti að leggjast á sykraðar vörur og mat seldan á veitingahúsum. Þess í stað var samþykkt lagafrumvarp um að almennur virðisaukaskattur verði hækkaður um eitt prósentustig. Hann verður þá sá hæsti í heiminum eða 25,5% Það er því ljóst að það eru harðir tímar framundan fyrir heimilin í landinu, já og landsmenn alla.
Það mætti halda að Steingrímur Jóhann hefði enga samvisku né gáfur til að leita aðra leiða en skattpína þjóðina þannig að hún eigi sér ekki viðreisnar von, en þetta hafa vinstri glæpamenn stundaði í gegnum söguna, átrúnaðar goð Steingríms, hrakti t.d. þjóð sína á vergang og drap þar með meira af löndum sínu en öll seinni heimsstyrjöldin hafði kostað þjóð hans, það voru mikil gáfu spor, og nú ætla Steingrímur að feta sama stíginn og slátra fjölskyldum landsins með ofur sköttum.
Fjölskylda er ekki getur borgað ógnar skatta Steingríms J. verður einfaldalega gjaldþrota og lendi á vergang eins og þjóðin í austri.
Maðurinn eða öllu heldur mannleysan Steingrímur Jóhann skilur ekki að það er eingin aur lengur í eldhús buddum landsmanna, BUDDURNAR ERU TÓMAR! hvað þarf til að ríkisstjórnin skilji þann einfalda sannleika ?
Íslenska þjóðin verður að rísa upp áður en lífið verður murkað úr henni, þetta er bara byrjunin á ægi krumlu vinstri manna, ef stjórnvöld verða ekki stöðvuð nú þegar, þarf ekkert að huga að framtíð Íslands né Íslendinga, það sitja æruleysingjar við stjórnvölin og það æruleysingjar er einskis svífast til að halda völdum eins og vísvitandi lygar þeirra og hræðslu áróður ber vott um!
Steingrímur Jóhann er ákaflega fær maður er kemur að því að kenna öðrum um, hvað þá að þylja upp heilu lyga ræðurnar eða í besta falli skrökulygis ræður, þá á hann afar auðvelt með að snúa málum uppí andhverfu sína eins það að svart sé hvít og öfugt.
ATH þetta er bara skattarnir, það má ekki gleyma því að Steingrímur J. uppá stendur það að þjóðin hafi ekki vit á Icesave málinu og ætlar sér ásamt Jóhönnu að troða samningnum niður í kokið á okkur Íslendingum, þótt ljóst sé að um og yfir 70% þjóðarinnar sé andvíg þessum óheilla samning sem Icesave gjörningurinn er, hér er virðingin augljós er Steingrímur og (Frú) Jóhanna sýna og bera fyrir þjóð okkar !
Lýk hér skrifum mínu með þeirri von að Þjóðin varpi Steingrími Jóhanni á dyr nú þegar!
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
Fjármálaráðherra segir bjartari horfur framundan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.12.2009 kl. 01:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bretar sýna Íslendingum hernaðarmátt sinn og nota Keflavíkurflugvöll til þess með leyfi utanríkisráðherra!
21.12.2009 | 00:02
Það er hneisa og niðurlæging fyrir land og þjóð að Utanríkisráðherra Íslands skuli ekki banna aðgengi Breta að lendingum á Keflavíkurflugvelli. Keflavíkurflugvöllur er ekki eign Nato né Breta heldur Íslendinga og Íslendinga eingöngu, þess vegna er það heigulsháttur Utanríkisráðherra og hreinn undirlægju tepruskapur að leifa Bretum að fara fram eins og þeir vilja í Kef.
Rúmlega 50 flugvélar á vegum breska hersins hafa nýtt sér aðstöðuna á Keflavíkurflugvelli frá því Bretar beittu hryðjuverkalögum gegn Íslandi. Þegar Bretar beittu hryðjuverkalögum gegn Íslandi líktu margir því við beina stríðsyfirlýsingu.
Bresk stjórnvöld hafa enn ekki upplýst hvers vegna þessum lögum var beitt gegn annarri Nató þjóð.
Bretar hafa einnig hótað Íslendingum efnahagsþvingunum vegna Icesave málsins og talaði fjármálaráðherra Steingrímur Jóhann um grímulausar hótanir í því sambandi á Alþingi fyrir nokkrum dögum.
En er það eðlilegt að Íslendingar haldi áfram að þjónusta breskar herflugvélar og stríðstól eins og ekkert hafi í skorist? Ég krefst þess fyrir hönd þjóðarstolts Íslendinga að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra taki sig saman í andlitinu og banni allfarið lendingar breskra herflugvéla á Íslandi og heimsóknir Breskra herskipa. Það er nauðsyn að vekja athygli á framferði Breta og Hollendinga gagnavart smáþjóðinni Íslandi, það gerum við best með að banna lendingar og komur stríðstóla þeirra til Íslands.
Össur segir í viðtali við Vísi, Við erum aðilar að Nató. Bretar eru líka aðilar að Nató. Við höfum reyndar notað Nató til að mótmæla harkalega framferði Beta gagnvart okkur en á meðan þetta er gert í krafti alþjóðlegra samninga þá hugsa ég að það sé ekki óeðlilegt," segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.
Mótmæli utanríkisráðherra hafa hingað til verið eins og hjá manni er kastar af sér vatni og það upp í vindinn, gerir ekkert nema það eitt, að hann útatar sjálfan sig fyrir máttleysisleg vinnubrögð og framkomu.
Kynlífsfræðingurinn Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra á ekki bara að sitja og hugsa, hann á að framkvæma, ég bara spyr hvar væri landhelgin okkar ef Einar Ágústsson f.v. utanríkisráðherra hefði bara setið hugsað ? Nei það er ljóst að maðurinn Össur Skarphéðinsson er ekki starfi sínu vaxin, né hefur hann getu til að gæta að hagsmunum þjóðarinnar hvað þá velferð...
Þá má ekki gleyma því að Breta ótuktin á harma að hefna frá þorskastríðs árunum.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Upplýsingar visir.is, Alþingi,.mynd er breytt mynd og á sér ekki stoð í raunveruleikanum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skatt Grímur genginn af göflunum !?!
20.12.2009 | 03:27
Hvert ætlar Steingrímur Jóhann með þjóðina ? Norður og niður?
Samkvæmt núgildandi lögum hækkar persónuafsláttur til samræmis við breytingar á neysluverðsvísitölu. Þetta ákvæði kom inn í lögin árið 2007. Frumvarp fjármálaráðherra gerir ráð fyrir að þessi tenging við verðbólgu verði afnumin.
Margir af þeim sem komu fyrir efnahags- og skattanefnd gerðu athugasemdir við afnám vísitölubindingar persónuafsláttar við neysluverð og á það var bent að kaupmáttur almenns launafólks hefði lækkað í kjölfar verðbólgu. Áhrif þessara breytinga væri enn meiri því að í frumvarpinu væri fallið frá hækkun persónuafsláttarins árin 2010 og 2011 samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða í tekjuskattslögum.
Það eru skemmtilegar jólagjafirnar er streyma frá ríkisstjórninni þessa dagana, nú á endanlega að ganga frá heimilum landsmanna með ofur sköttum og pyntingum.
Það verður að færa þennan mann Steingrím Jóhann Sigfússon í bönd nú þegar, ef þjóðin lætur þennan mann vaða upp öllu lengur er þjóð vor dauð!
Ég mynni á að ráðherrar hafa verið settir af fyrir smærri röskun á skattgleði, en Steingrímur Jóhann er haldin greinilegri skatta-þráhyggju og legg ég til að honum verði einfaldlega týnt í fjasi og þrasi dagsins.
Fyrir þennan mann verða eingin fundarlaun hvorki skattlaus né skattskyld, hvað þá nokkur eftirgrennslan, þjóðin hefur fengið nóg að því skattaofstækisrugli er fram streymir úr tanngarði þessa vitgranna manns.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
Þrepin tengd við launavísitölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Uppreisn, verði Icesave kröfur samþykktar !!!
19.12.2009 | 07:12
Er Steingrímur Jóhann farinn á límingunum ? Hann skilur greinilega ekki þýðingu eða áhrif illgjörða Breta og Hollendinga gagnvart Þjóð okkar ? þetta sagði hann þann 23.10.2008 hvað hefur síðan komið fyrir kollinn á kallinum ? eða öllu heldur hvað fékk eða fær Steingrímur Jóhann fyrir að svíkja þjóð sína ásamt maddömunni (frú) Jóhönnu Sigurðarsyni ? Mér er spurn hvaðan kemur öll þessi mannvonska er hjúin sýna þjóð sinni ? Hvað veldur því að þau kappkosta að landsmenn að fíflum.
Steingrímur Jóhann segir þann 23.10.2008 í viðtali við Rúv þetta, Formaður vinstri grænna, Steingrímur Jóhann Sigfússon, segir að það verði gerð uppreisn hér á landi verði gengið að kröfum Breta og Hollendinga um að Íslendingar greiði 600 milljarða króna vegna Icesave-reikninganna.
Þann 23.10.2008, sagði Pétur Blöndal í hádeginu að einungs fjárkröfur Breta og Hollendinga væru margfalt hærri en þær stríðsskaðabætur sem Þjóðverjar voru neyddir til að greiða í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Grófir útreikningar bendi til þess að þær hafi numið um einni milljón króna á hvern Þjóðverja. Þær lögðust þungt á þýskt efnahagslíf, verðbólgan magnaðist og atvinnuleysir jókst gríðarlega.
Steingrímur segir, eins og Pétur, að Íslendingar eigi að spyrna gegn kröfum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem gera ráð fyrir að gjaldeyrislán sé háð því að samið verði við Breta. Íslendingar hafi uppfyllt allar lagalegar skyldur og tilskipanir Evrópusambandsins um innlánstryggingarkerfi. Íslendingar eigi ekki að láta undan kröfum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins því þeim beri ekki skylda að greiða tapið vegna Icesave-reikninganna.
Það er ekkert leyndarmál að til eru þau öfl meðal þjóðarinnar er aldrei munu líða það að þjóð okkar verði beigð eða brotin með ill gjörðum Breta og Hollendinga er ráðast að efnahag örríkis með það eitt í huga að knéseta þjóð okkar og ná yfirráðum yfir gnægtabrunnum lands okkar.
Ég held að landsmenn ættu að fylgjast vel með fréttum á komandi dögum, enda skal endinn í upphafi skoða, ég hugsa að margurinn verði ekki ögn heldur mjög hissa á atburðum komandi daga og vikna. Oft var þörf en nú er nauðsyn að Íslenska þjóðin standi saman, allir sem einn.
Mynni síðan Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím Jóhann á stjórnarskrárlög þessa lands:
91. gr. Hver sem kunngerir, skýrir frá eða lætur á annan hátt uppi við óviðkomandi menn leynilega samninga, ráðagerðir eða ályktanir ríkisins um málefni, sem heill þess eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin, eða hafa mikilvæga fjárhagsþýðingu eða viðskipta fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum, skal sæta fangelsi allt að 16 árum.
Það er það lýðum ljóst að eitthvað mjög svo dularfullt gengur á í kolli Steingríms Jóhanns, ekki bara það að hann snýst eins og vindurinn, heldur er sennilegt að maðurinn sé ær eða andsetinn. Þá er eins gott að Steingrímur Jóhann muni það að það var hann sjálfur er boðaði uppreisn hér á landi verði gengið að kröfum Breta og Hollendinga, ef fer fram sem horfir!
Þá er það spurning dagsins er Steingrímur Jóhann búin að gefa út veiðileyfi á Ögmund Jónason ? Menn rak í rogastans er kastljós flutti ekki frétt í gærkvöldi um að Ögmundur vildi ekki tjá sig við kastljósið, þannig að kastljós fullyrðir að Ögmundur sé bara fullur og biðst undan viðtali, allt er þetta einhvern veginn í stíl við óprúttin vinnubrögð og stíl Steingríms Jóhanns enda örlar á fingraförum hans, á ekki fréttinni, spurningin er síðan, hvenær er maður fullur og ekki fullur.
Þjóðin verður að nú þegar að losna undan skítlegu eðli Steingríms Jóhanns !
Þá skora ég á alla íslendinga sem hafa tök á því að mæta og taka þátt í mótmælaaðgerðum hagsmuna heimilanna sem hefjast klukkan 15.00 í dag á Austurvelli !
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Bloggar | Breytt 20.12.2009 kl. 04:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Samtals kusu 7454. Atkvæði féllu þannig að 5188 (69,6%) vildu að Alþingi synjaði ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu, 2144 (28,8%) vildu að Alþingi samþykkti ríkisábyrgð og 122 (1,6%) tóku ekki afstöðu.
Og nú er mál til komið að Jóhanna Sigurðardóttir sem og snakkurinn Steingrímur Jóhann er farið hefur offari í Icesave málinu, skilji það að þjóðin vill ekki þennan samning né Icesave skömmina í heild sinni, enda hefur þjóðin ekkert með Icesave að gera. Það er því mál að jarða Icesave nú þegar !
Þá er einnig mál að þetta fólk taki hatt sinn og staf, enda í engu unnið af heillindum fyrir þjóð okkar í þessu svo kallaða Icesave máli, þar hefur annað og meira hangið á spítunni.
![]() |
70% vilja hafna Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fyrrverandi gæfa þjóðarinnar snýr aftur smátt og smátt !
17.12.2009 | 12:51
Það er mikil guðs lukka að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, verður ekki yfirmaður embættis hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. Konan er í fyrstalagi algjörlega vanhæf, þá hefur hún hvað eftir annað verin staðin að ósannsögli en það mun vera hefði hjá samfylkingunni og þeim samspillingar kerfiskellingum er þar starfa og hafa starfað. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar verður að átta sig á því að hún er FYRRVERANDI ÓGÆFA þjóðarinnar! Enda hleypur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eftir hverjum bitlingnum er gefst og lætur sig engu varða fyrri loforð er hún hefur gefið kjósendum sínum. Það er mál að Ingibjörg Sólrún haldi sig heima við og hugi að sjálfri sér og látti þjóð okkar vera, það er nóg komið af endalausu baktjalda makki og svarta galdri! Það væri hrein fyrra og óhæfa að veit henni starf hjá ÖSE, enda ljóst að það vill eingin heyra í kerlingunni bak naggið, hvorki í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna né hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu.
Nú er mál að hún sötrir sitt Te heima við.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
Ingibjörg Sólrún varð ekki fyrir valinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 19.12.2009 kl. 07:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Byssumaður meindýraeyðir vopnaður vasaljósi. Hum!
16.12.2009 | 16:04
Já það er margt skrítið í kýrhausnum, hvernig væri að lögreglan réði þennan mann í vinnu til sín og arkaði með hann niður á Alþingi, þar eru ýmis óprúttin möppudýr eru að störfum í hinum ýmsu deildum við að skera niður laun og störf löggæslumanna, þeir gætu þá kannski gert greinar mun á meindýraeyði og byssu manni, en nú eru þeir svo þreyttir að það er aldrei að vita hvern þeir taka næst, þá gætti lögreglan einnig handtekið stórafbrota menn er höndla með eignir þjóðarinnar án þess að hafa til þess nokkra heimild og má líkja því við að stjórnvöld sé í raun að versla með stolnar eignir enda hafa stjórnvöld ekki forræði yfir þessum eignum, hvert manns barn, er komið er nokkuð á legg veit að það er strangalega bannað samkvæmt lögum að höndla með þýfi, því þýfi er það og ekkert annað ef heimild til ráðstöfunar skortir.
Löggæslan ætti því að handtaka skrílinn er ráðstafar eignum þjóðarinnar í heimildarleysi nú þegar, enda fóll er svífst einskis er kemur að virðingu fyrir lögum eða meðhöndlun á eignum þjóðarinnar.
Einnig mætti hugsa sér að sleppa meindýraeyðinum lausum í stjórnarráðinu eftir störf hans á Alþingi og greiða honum vel fyrir ómakið! Málið dautt og lögreglan þarf ekkert að segja sorry...
Bendi líka landsmönnum á að vera ekkert að hækka of mikið í græjunum er horft er á ræmu, því þá er eins víst að sérdeildin mætti í popkornið !
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Lestu nánar um meindýraeyðirinn hér fyrir neðan...
![]() |
Byssumaður reyndist meindýraeyðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
ÁTVR skili milljarði í ríkissjóð. Milljarð fyrir kenderí, kenderíið eða ófá kenderíin...
14.12.2009 | 17:23
Ég segi skál og mynni á að ég get útvegað áfyllanlega plastkúta 2500ml. merkta smisslof frænda, hentuga undir mjólk beint frá bónda er kreppan verður algjör, eins þjóðin stefnir í með Grýlu og Leppalúða í brúni.
Nú er það bara spurningin hvort þessi stjórn vilji ekki selja Á.T.V.R. eins og önnur stjórn seldi símann forðum daga, en þar var ef ég man rétt skylda á símanum að skila í það minnsta milljarð í ríkissjóð. Það var ekki gáfuð stjórn, þessi stjórn er þó verri en allt er dunið hefur á Íslensku þjóðinni frá upphafi Íslands byggðar, það að hún ætlar að berja á sjómönnum og hirða af þeim sjómannaafsláttinn bara svona til að æra sjómenn akkúrat er við þurfum hvað mest á þeim að halda til að brauðfæða þjóðina sínir heimskuna, það er nefnilega svo skrítið að fiskur verður að hveiti og kaffi, hvað þá eldsneyti o.s.f. merkilegt nokk. Þá eru það endalausar ákvarðanir um álögur eða ekki álögur, niðurfellingar á styrkjum eða bótum saman ber fæðingar orlof, síðan er þvaðrað um refaveiðar eða ekki refaveiðar o.s.f. Hvað er í gangi spyr ég. Nú ætti glöggur maður eða fréttastofa að taka saman allar svona breytingar og hringlandaháttinn í ákvörðunum, eitt í dag og annað á morgun svo enginn veit neitt í sinn haus, sífelldar tilkynningar streyma frá ráðuneytum (frú) Jóhönnu Sigurðardóttur en ruglið er algjör á þeim bæ og liggur við að maður hald að þetta sé skemmti leikrit eftir þá bræður Jón Múla Árnason og Jónas Árnason, en það er bara ekki svo, þetta er harmleikur er þjóðin er ekki búin að bíta úr nálinni með. Þessi sitjandi stjórn veit bara ekkert í sinn haus, hvað þá aðra hausa, enda er stjórnin er löngu búin að missa tökin á sjálfri sér og ástandi þjóðarinnar. Hvað sem því líður þá hætta menn ekkert að drekk þótt sopinn sé dýr, en þeir kaupa hann bara ekki í ríkinu, heldu mun smygl stóraukast sem aldrei fyrr og ekkert verður um innkomu milljarð þann er Skatt-Grímur dreymir um.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Bloggar | Breytt 15.12.2009 kl. 06:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)