Sverrir spilar og syngur um litla smákarla er fengu lán fyrir laxveiði jörðum, ásamt öðru rusli er hrjáir Þjóð mína.
8.11.2009 | 09:23
Sverrir fékk plötuna löng þráðu, og söng sannleikan um vitfyrta menn í banka og ég flutti í höll er ekki var fengin að láni, ekki veit ég hvernig stendur á að seðla spreðarinn ógurlegi setti spænskar bogdyr + rennihurðir í slotið, ekki vantaði heldur Símens þvottavél með alles en hægt er að kalla eftir úthengju, kaninn, gaurinn atarna, vill endilega að ég búi hjá sér er ég hef nú þegar hafið enda naglarnir ekki einu sinni kaldir eftir síðasta hamars högg, hvað með það þá setti hann þennan líka kraft-mikla nuddpott í annan enda sundlaugarinnar, er fleytir manni í hringi meðan fíla líkneski spreyja vatni yfir mann úr rana sínum. Er ég spurði eins og álfur út úr hól lét svarið ekki á sér standa, en ég spurði sakleysislega um baðkar, þá kom, notaðu sturtuna og baðaðu þig í pottinnum. Það er gott sem og flott, hvað þá fyrir sálarlífið að vera komin í slot aftur, enda leiður á búskap í Arabískum brögunum Niron condos, þar er hver kjaftar upp í annan um náungan. Hér vantar ekkert nema brosið á Sheferinn en það kemur með tíð og tíma. Meira segja Netið slær öllu við nema kannski ofur netinu í Usa og á fróni. Bendi síðan á að gott er að skoða og hlusta á þetta, Loksins Loksins. Íslandi er borgið enda bráðum koma jólin með skattinum hennar (frú) Jóhönnu, tómum veskjum, búðum og svöngum börnum hvað ætli mörg þeirra fari í jólaköttinn?
Muna nú að hlusta á tónlistar spilarann hjá Serði þar sem hann syngur um þessa landráða menn er létu mig aldrei hafa veiðileyfi í lang(þrá) Á, í hæstalagi var að ég fengi að veiða í bæjarlæknum heima hjá mér. Það er allt annað er menn reisa eða kaupa slot þegar þeir eiga fyrir því heldur en steli því er þeim hugnast frá Íslensku þjóðinni og börnum framtíðarinnar.
Sverrir Serðir Monster Stormsker á heiður skilið fyrir að syngja af snilld um þessa vesalinga er skömmtuðu sér auðinn sjálfir, þessir menn eiga ekkert betra skilið en heimsókn til Sheriff Joe Arpaio í Maricopa County Phoenix, Arizona. þar eru þeir gert að klæðst bleikum undirfatnaði ásamt röndótum vinnufatnaði, með heims sókn í TENT CITY, eru þessir vesalingar geymdir í eyðimörkinni ásamt því að vera notaðir til rusla tínslu með fram hraðbrautum Arizona.
![]() |
Skulda milljarð út á jarðakaup |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Norðmenn ljúga aldrei eða var það ?! Hvað með Rússa?
1.11.2009 | 02:57
Það er ekki gott þegar fréttir eru pantaðar eftir behag.
Ég held nú að Margeir væri ekki sá maður er hleypti nokkrum misjöfnum að sér eða Banka sínum, þannig vinna bara ekki góðir skák menn, þeir vega og meta hættuna sem og ávinning, en áróðurs vél Jóhönnu nær langt út fyrir 12 mílurnar eins og sjá má á ræðum litla mansins, er gegnir forystu í Norsku stjórninni og gaggar eftir beiðni (frú) Jóhönnu.
Jóhanna og hennar áróðursvél hikar ekki ef hún þarf að mala og tæta niður uppbyggingu...
Ég bara spyr hvað verður um börnin okkar ef fram gengur sem horfir ?Það sást best er Rússar voru fengnir til að neita Íslandinu blá já þjóð okkar, lána fyrirgreiðslu á þeirri forsendu að það gæti skaðað AGS-IMF lána fyrirgreiðsluna, plottið varð furðu ferð Vinstri grams til Tyrklans til að sannfæra Rússa um að hafna lána beiðninni og draga loforð þeirra til baka, Rússar urðu ekki smá hissa, en Rússar vildu að Grímur hinn grami, skrifaði undir höfnun á láni er Rússar höfðu boðið Íslandinu góða, ekki nóg með það heldur hafði verið send Ónemd á undan til kremlar er hafði það að markmið að stoppa Rússa í velvilja sínu gagn vart Íslensku þjóðinni og láni því er undir búið hafði verið í Kreml.
Rússar þurftu á fimmta dag að reyna er best þeir gátu að kyngja því, Ísland hreinlega vildi ekki aðstoð, þessi þjóð er var með allt niðrum sig segið nei ?! Hvað lá hér að baki ? Ég hef aldrei hitt Rússa er ekki hefur staðið við orð sín ! það ætti Jóhanna að vita ! Rússar vildu að sjálfsögðu stað festingu á að ísland vildi ekki lánið og þeir ættu að draga sig til baka nú þegar til þess að styggja ekki ESB draum Jóhönnu Sigurðardóttur, það tók þá á fjórða dag að kyngja þessari undarlegu beiðni (frú) Jóhönnu en (frú) Jóhanna gleymir bara einum hlut, Kreml lekur eins og gata sigti, enda vissu þeir sjálfir að NATO og allar hinar vestrænu þjóðir myndu hefja upp raust sína ef Íslandinu hinu litla varnalausa ey ríki yrði hjálpað í eymd sinni gagnvart níðingum bandalagsþjóðanna í NaTo.
Ég held að við eigum nú meira skylt með Hvít Rússum en slepjulegum Hollendingu eða Úrkynjuðum Bretum ekki þarf annað en skoða tanngarð þessara dusilmenna.
Meira segja Puntin sjálfur hafði áhuga á lendingar leyfum hér í kef fyrir klærnar sínar, ekkert að því svo lengi er þeir borga fyrir loftríms þjónustu, já meira segja Össur hinn dáði kynlífsfræðingur brosti útaf eyrum, Rússinn kemur Rússinn kemur, nei og aftur nei sagði Jóhanna ESB vill ekkert með Púttin hafa vegna þess að Rússar loka bara fyrir gasið eftir hentileika, ef ESB hagar sér ekki vel að mati Rússa, að vísu er gífurleg þörf fyrir að koma gasinu og olíu í verð í mið Evrópu ESB, ekki það þeir halda orðið megin hluta Evrópu í krumlu sinni með gas sölu og ef ESB geltir er bara snúinn hálf hringur á krana leiðslunni og kabum bara bilað pressan datt niður um helming.
Þess vegna er ekki nema von að ESB lýti HÝRU auga til Íslands og þeirrar orku er hér býr, bæði í fallvötnum og yrðum jarðar, hvað þá raforkunni sem er fyrir löngu hægt að selja með strengjum yfir til ESB þjóðanna, framkvæmd og framkvæmdin borguð af ómældum Andrésar andar brunni ESB , hugsum okkur bara ef hægt verður að ná svartagullinu úr djúpinu, þá myndi blýant nagarinn í Brussel brosa fullu tunglskini.
Þar sem ég er að skríða síðustu metrana á sextugs aldurinn þessa dagana, og er kannski ekki frásögu færandi, gæti ég hugsað mér að detta inn í góðan skóla þar sem almennileg kennsla fer fram í að matreyða lygar ofan í þjóðir, mér er spurn hvort ekki sé hægt að sækja um styrk hjá (frú) Jóhönnu til þess arna? Ég er alltaf að skilja það betur og betur hvað einfalt það er að ljúga að vammlausu fólki, t.d fóstra mín lét ekki líða þann dag að hún næði ekki að ljúga uppá mig við föður minn heitin, jafn vel þótt ég væri ekki einu sinni á landinu og hafði ekki verið lengi, en það vissi hún reyndar ekki og fékk bágt fyrir, sama leikin notar (frú) Jóhanna ásamt meðreiðar sveini sínum Steingrími Jóhanni, það er svo gott að fara með lygar.
Sá er hefur í fórum sínum stórbókina myrkraverk er stjórnin notast við og kölluð er sannleikurinn í háðveigi hafður er bent á að skila henni nú þegar.
Satt og logið, sitt er hvað, sönnu er best að trúa. En hvernig á að þekkja það, þegar flestir ljúga? eða annað.
Þurfa þykir eru menn hreinlega ataðir aur, þvílík manvonska og hatur hef ég ekki áður séð á Íslandinu góða, en tja ég hef bara lifað rétt fimmtíu ár...
Ég bendi en á sundin blá fyrir forristu sauðinn, fyrir vestan væri búið að slátra honum eða reka fyrir björg, saman ber féð í Tálkna.
![]() |
MP skoðar málefni Røsjøs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú er gaman (kærastan) og ég hér saman...
31.10.2009 | 16:31
Búuuuuuuu
Hvar eru Deildarbungubræður ?!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hátíð í hamborgar bæ Davíðs...
31.10.2009 | 14:11
Mikið er ég fegin að nú um helgina verður hætt að selja McDonalds-hamborgara á Íslandi enda á McDonalds-hamborgari ekkert skylt við það er bloggari kallar almennilega ekta borgara, enda búin til úr kjöt rusli, kjötfalsi segja sumir sem er svo undarlegt á bragðið að halda mætti að maður væri að éta spil enda hefur McDonalds-hamborgarinn löngum verið kallaður plastic burger.
Bara það að stinga honum í ísskápinn og gleyma honum í um eitt ár, þá kemur í ljós að grænmetið er úldið og að mestu uppgufað (mynd ekki sýnd af tillitsemi við framleiðandann) en kjötið er eins og það hefði verið að koma af pönnunni, eitthvað er nú af rotvarnarefnum þarna !
það er nú eitt að kaupa McDonalds eftir auglýsingunni á skiltinu hjá þeim eða hvað þú færð afgreitt?! En þetta fann ég á netinu og hef sjálfur lent í, The McDouble Lie
![]() As Advertized in the window | ![]() As Delivered Friday, September 13, McDonalds @ Market & 7th in San Francisco my by FRIDAY THE 13th has some thing to do with it ?! |
Er ég bjó í Usa þá datt mér það engan vegin til hugar að fara á McDonalds, nema fyrir þrábeiðnidóttur minnar en hún hafði verið mötuð á McDonalds áróðri í leikskóla sínum og vildi barnaBorgara.
Nema viti menn henni fannst hann ekki góður og nefndi staðin aldrei nema í sambandi við draslið er börn fengu með, öllu heldur vildi hún ásamt föðurnum skreppa á Sonic drive inn og fá eldsteiktan eðalborgara, þar fylgdi að vísu með dót fyrir börnin en öllu veglegra en með plastborgurum
McDonalds og rúsínan, allt afgreitt af ungum fljóðum á hjólaskautum, bara eins og maður sé mættur í American Graffiti.
Hverju sem því magamáli líður þá er það góð hugmynd að breyta til og von mín að Metro búi nú til alvöru borgara, Gangi þeim vel!
Hvað sem öllum borgurum líður má ekki gleyma svakalegri magalöngun minni er brýst fram með látum, sérlega ef ég hef verið lengi erlendis þá fer ég fá þessa svakalegu þörf fyrir heim för, með það eitt í huga að fá mér ein eða tvo tvöfalda Búllu borgara, Jááá! Ég sakna þess að sleikja útum með Guðjóni frænda mínum Valdimarssyni yfir guðdómlegum Búllu BorgURUM...
Ég get þó alveg látið mér nægja pínu borgara í hraðsendingu ef einhver er á leiðinni.
Jæja tíminn líður og (It is that time of year again) á ég víst að vera mættur í Haloween Party fyrir löngu, græjaður í búning og alless en hér í Asíu er þetta ekki ólíkt því er fram fer í USA, í dag voru börn á þeytingi um allar trissur uppá klædd í hina furðulegustu búninga syngjandi trick or treat á bjagaðri ensku en skiljanlegri og hafði ég mjög gaman af, og nú er stund þeirra öldruðu runnin upp, hehe...
Bloggari tekur fram að skrifin eru alfarið hans eigin skoðun og má vera að dótlan hafi breyt um skoðun :)
![]() |
Davíð fær ókeypis borgara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Rökleysa öfgamanna, kæra bara aftur og aftur !
31.10.2009 | 09:25
Spilling, geðþóttaákvarðanir, lygar, valdhroki, blekkingar, dómgreindarleysi, veruleikafirring, rökleysa, hentistefna, hryðjuverk og skilningsleysi á bágri stöðu þjóðarinnar eru einkennis merki svo kallaðra VG náttúruverndarsinna, en eru í reynd náttúruhryðjuverkamenn.
Þessu fólki er skítsama um hagi fólksins er býr þetta land enda svífst það einskis til að koma hugsýki sinni á framfæri.
Flest er þetta fólk saman safn af skríl er ekkert betra hefur að gera en valda vanda og leiðindum hvar sem það kemur, það sem merkilegra er að þessi skríl leitast iðurlega til að koma fram undir huldu höfði, bera grímur eða klúta fyrir andliti og minnir þá skríllinn á hryðjuverka menn úr B bíó mynd.
Þetta er fólkið er stunda skemmdar verk á nóttunni, hlekkjar sig við hina og þessa hluti, allt gert til að mynda óróa og vald óþægindum, og þetta kalla þeir náttúruvernd. Það liggur í augum uppi að það var ekki mikið gefið af vitsmunum til þessa ógæfu fólks og er það miður.
Þau áform um að kæra en og aftur ákvörðun um Suðvesturlínu, er gáfuleysi í hæsta máta og eingöngu gert til að tefja fyrir framkvæmdum, ekkert er hugsað til fjölskyldnanna er gætu hugsanlega gætu fengið vinnu við framkvæmdir þannig að svöng börnin þeirra, hættu að fara hungruð í rúmið sitt, en það má ekki verða í huga náttúruöfgamannsins, til þess eru útmygnar hundaþúfur hist og her um heiðar landsins alltof verðmætar í kolli þessa vitgrana lýðs.
Ég legg til að stofnuð verði sveit vaskra manna til að skrá niður allt það er þessir náttúru hryðjuverkamenn taka sér fyrir hendur, þá þarf að ljósmynda allar þeirra athafnir þannig að mögulegt verði að lögsækja þetta fólk er fram líða stundir, enda held ég að flestir landsmenn séu búnir að fá sig full sadda af skemmdar verkum og skrílslátum þessa lýðs.
Íslenska þjóðin þarf á allt öðru að halda þessa dagana, en endalausum töfum á uppbyggingu atvinnulífsins, hvað þá óróa og skemmdarverkum á eigum þjóðarbússins sem og annarra.
þá er það skylda löggæslunnar að taka þessa villuráfandi óróabelgi úr umferð um leið og þeir sýna ákafan brotavilja sinn! Illt skal með Illu út reka...
Minni síðan á einfalt IQ próf Gáfna Próf
fyrir ráðherra eins og Svandísi Svavarsdóttur !
Satt og logið, sitt er hvað, sönnu er best að trúa. En hvernig á að þekkja það, þegar flestir ljúga? ...
![]() |
Kæra ákvörðun um Suðvesturlínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Umhverfisráðherra fær á kjaftinn...
30.10.2009 | 15:01
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ber að setja af nú þegar, hún hefur unnið þjóðinni glórulaust ógagn og verið landinu til skammar gagnvart fjárfestum!
Nú hefur Skipulagsstofnun en á ný tekið ákvörðun um að umhverfisáhrif Suðvesturlína skuli ekki metin með öðrum framkvæmdum sem tengjast fyrirhuguðu álveri í Helguvík á Reykjanesi.
Skipulagsstofnun hefur nú rekið fyrri ákvörðun sína hart niður í kok valdníðslu herrans er situr sem umhverfisráðherra ætti það að þagga gagg ráðherrans um stund.
Uppskafningurinn Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra má láta rigna uppí nef sér eins og henni lystir, en það skal hún gera á öðrum vettvangi og á launum er ég þarf ekki að borga sem skattgreiðandi.
Umhverfisráðherra hefur reynt að leggja eins marga steina í götu þjóðarinnar og hún mögulega getur og þorir til þess eins að þjóðin fá nú aðeins að kenna til te vatnsins undir hennar stjórn, enda hatar hún allt og alla er einhvers mega sín, henni hugnast engan vegin að gæta að hag Íslensku þjóðarinnar við uppbyggingu atvinnu lífs, frekar en karli föður hennar hugnaðist að gæta að hagsmunum Ísland er hann var sendur með erindi til Breta og Hollending, en í þeirri sneypu för páraði hann nafn sitt bara sí svona undir einn þann mesta landráða gjörning er dunið hefur á Íslensku þjóðinni frá upphafi Íslands byggðar, semog Icesave samningurinn er, enda HAFÐI KARLUGLAN EKKI NENNU TIL AÐ ÞJÓNA ÞJÓÐ SINNI, hann ætlaði í sumarfrí!
Það er víst löngu sönnuð kenningin að sækjast sér um líkir! Þetta málstæki er ekki til út af engu...
Minni síðan á einfalt IQ próf Gáfna Próf
fyrir ráðherra eins og Svandísi Svavarsdóttur !
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin! Satt og logið, sitt er hvað, sönnu er best að trúa. En hvernig á að þekkja það, þegar flestir ( ráðherrar ) ljúga? ...
![]() |
Ekki sameiginlegt mat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kalla ekki allt ömmu sína - nema þá helst Jóhönnu !
30.10.2009 | 10:03
Það er ótrúlegur sannleikur í skrifum þeirra AMX manna og virkilega gaman að lesa greinar þeirra, enda hitta þeir ótrúlega oft naglann á höfuðið. Hér er til dæmis ein grein sem engin ætti að láta framhjá sér fara, enda lýsir hún tepruskap stjórnarherranna réttilega.
Hér kemur greinin:
Þeir hafa fylgst með þjóðmálum lengi og kalla ekki allt ömmu sína - nema þá helst Jóhönnu vegna virðulegs aldurs. Nú er svo komið að þeir vita ekki alveg hvaða orð eigi að nota nú um nýjasta útspil Steingríms og Jóhönnu sem létu þau boð út ganga að þau hafi ekki keypt Saga Class flugsæti á leið sinni á þing Norðurlandaráðs.
Heyrnarbesti smáfuglinn stóð í þeirri trú að sér hefði, í fyrsta sinn, misheyrst því annað væri ómögulegt. Taldi hann að það gæti ekki staðist að þau Icesave-hjón, Steingrímur og Jóhanna, sem eru að binda á bak þjóðar sinnar 619 þúsund milljónir króna af erlendum skuldum einkafyrirtækis sem engin lög segja að Íslandi beri að greiða, hafi raunverulega slegið sér á brjóst fyrir að spara um 30 þúsund á hvort þeirra með vali á flugsætum!
Icesave-hjónin náðu svo nýjum lægðum þegar í ljós kom að þau keyptu flugsætin til þess að bugta sig og beygja fyrir erlendum þjóðhöfðingjum og gerðu fátt til að tala máli Íslands. Ráðherrarnir hafa kannski gleymt því að ræður allra á þinginu eru aðgengilegar á netinu svo máttleysið er ljóst hverjum þeim sem aðgang hefur að tölvu.
Grín þeirra Icesave hjóna varð svo algjört þegar smáfuglinn frá Keflavíkurflugvelli benti hinum á að sætin sem þau keyptu voru í raun Saga Class en heita bara nýju nafni: Economy Comfort þar sem allt er eins og á Saga Class nema aðeins minna af kampavíni.
Grein, Fuglahvísl AMX, mynd Bloggari.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ef ASÍ mælir með þessu er þjóðin að heita má dauð !
28.10.2009 | 12:31
Ég veitt ekki hreinlega hvaða brögðum Jóhanna og Steingrímur Jóhann beita, Þráhyggja stjórnarliða við að koma Íslensku þjóðinni á vonar völ er með einsdæmum og engu líkt í sögu þjóðarinnar.
Hagfræðiprófessorsins James K. Galbraith segir að reyni stjórnvöld að axla slíka skuldabyrði muni vinnufærir einstaklingar flytja af landi brott.
Hvað varðar eftirmál bankahrunsins segir Galbraith að Ísland beri siðferðilega skyldu gagnvart alþjóðasamfélaginu til að sækja hugsanlega svikahrappa til saka eftir því sem landslög leyfa.
(frú) Jóhanna Sigurðardóttir hefur lítið sem ekkert gert í því að koma lögum yfir þessa menn er ábyrgir eru fyrir ófarnaði þjóðarinnar og þá skal ekki gleyma nennu leysi Svavars Gestssonar í sambandi við Icesave samningana.
Gæti þetta hafa eitthvað með málið að gera?:
Meðfylgjandi er yfirlit styrkja til Samfylkingarinnar frá lögaðilum árið 2006 sem voru hærri en 500 þúsund
* Actavis hf. 3.000.000
* Baugur Group hf. 3.000.000
* Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 1.000.000
* Eimskipafélag Íslands 1.000.000
* Exista ehf. 3.000.000
* Eykt ehf. 1.000.000
* FL-Group hf. 3.000.000
* Glitnir 3.500.000
* Kaupþing 5.000.000
* Ker hf. 3.000.000
* Landsbanki Íslands 4.000.000
* Milestone 1.500.000
* Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis 1.000.000
* Straumur Burðarás fjárfestingabanki 1.500.000
* Teymi ehf. 1.500.000
* Samtals yfir 500.000 36.000.000
Gögn Cilla Ragnarsdóttir.
Hitt sé fyrir stjórnvöld erlendra ríkja, sem brugðust skyldum sínum við bankaeftirlit, að ákveða hvernig deila skuli tapinu sem af því hlaust milli reikningshafa og skattborgara sinna segir Galbraith.
Þá hefur Gunnars Tómassonar hagfræðingur vakið máls á skuldastöðu þjóðarbúsins í fjölmiðlum og sagt að Ísland sé mjög nálægt því að stefna í greiðsluþrot.
![]() |
„Skrípaleikur“ að leggja á slíka byrði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Já kýlum þá alla !
28.10.2009 | 10:52
Ambrose Evans-Pritchard, viðskiptaritstjóri The Daily Telegraph, hótar því að svara að sjómannasið þeim sem enn einu sinni líkja hruni íslensku krónunnar við stórslys í hans eyru.
Það er ávalt gott að eiga góða að er verja Íslensku krónuna og þar með Íslensku þjóðina.
Það starf ætti nú samt öðrum frekar að vera á höndum sitjandi stjórna er ekkert gerir til varnar krónunni né þjóð, fyrir utan örfár illa skrifaðar greinar í vælutón (frú) Jóhönnu og ósanninda raups Steingríms Jóhanns.
Það vill engin né nennir að hlusta á væluþvæting eða ósannindi, þess vegna er gott að eiga góða að er vita og sjá lengra en nef þeirra nær.
Veika krónan er að gera nákvæmlega það sem hún ætti að gera, skrifar Evans-Pritchard. Útflutningur frá Íslandi sé að rétta úr kútnum og vörur framleiddar á Íslandi séu að koma í stað innflutnings í stórum stíl. Hann segir að höggvara áhrif krónunnar séu töfrum líkust. Ef ég heyri enn einn segja að hrun íslensku krónunnar hafi verið stórslys, held ég að ég kýli hann, skrifar Evans-Pritchard í gamansömum tón. Síðan bendir hann á að efnahagur Íslands sé að rétta hraðar úr sér en segja megi um efnahaginn á Írlandi, í Lettlandi og Litháen. Síðasttöldu löndin séu öll í viðjum fastgengis - innan eða utan evru. Hann telur að áhrif þessa komi enn betur í ljós á næstu tveimur árum.
Það er lífs nauðsyn fyrir Íslensku þjóðina að eiga sem flesta velunnara og verjendur að, þjóðinni til heilla. Það er mín skoðun að sitjandi ríkisstjórn er ekkert af þessu, og síst verjendur okkar.
Maðurinn á heiður skilið !
![]() |
Hótar að svara að sjómannasið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ríkisstjórnin hefur eytt ári í ekkert !
26.10.2009 | 13:36
Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, segir að stjórnvöld hafi eytt heilu ári í ekki neitt á rás eitt í morgun og því þurfi að hækka skatta nánast tvöfalt á næsta ári miðað við það sem áður var áætlað.
Erlend fyrirtæki, sem undir bjuggu sjö ólík verkefni hér á landi, settu áform sín um starfsemi og fjárfestingar í biðstöðu þegar þau fréttu að í fjárlögum væri gert ráð fyrir því að taka hér upp nýjan orkuskatt. Mannvit verkfræðistofa og dótturfélag þess HRV unnu að undirbúningi verkefnanna. Þau byggðust öll á orkunýtingu, m.a. vegna gagnavera og í tengslum við áliðju.
Hvers á þjóðin að gjalda er ríkistjórnin hefur ekkert gert nema leggja stein í götu viðreisnar, er nú svo komið að erlend fyrirtæki er tilbúin voru til fjárfestinga á Íslandi eru óðum að pakka samman vegna heimsku og sinnuleysi stjórnvalda.
það er stjórninni meira kappsmál að sinna ræðuhöldum í útlöndum en huga að þjóð sinni, og kjarasamningum sem og stöðuleikasáttmálanum, en Forsætisráðherra og fjármálaráðherra eru stödd í Stokkhólmi þar sem þau sitja þing Norðurlandaráðs. Með í för eru Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
Ég segi svei þeim!
Svartsýni eykst með hverri mínútunni.
Það er ekki boðlegt fyrir þjóð vora að sitja lengur undir óskapnaðnum og verður þjóðin nú að taka höndum saman til að koma þessu ógæfu fólki frá völdum hið snarasta !
Hér er um líf eða dauða íslensku þjóðarinnar að tefla.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og meðreiðarsveinn hennar, Steingrímur Jóhann eru hreinlega að keyra landið okkar niður fyrir sex fetin, og það má bara ekki verða.
Neyðarstjórn óskast strax !
Fólk ætti að hugsa þessi orð: Heimurinn er í raun mjög hættulegur staður, ekki vegna þeirra er illt gera, heldur vegna þeirra er horfa á og gera ekkert !
![]() |
Í bið vegna orkuskatts |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)