Stórhættulegt fyrir Ólaf Hauksson Sérstakan...! Gæti hann ekki flægst í vefinn ?

Það er margt skondið og skrítið á þessari eyju okkar, nú þarf ''sérstakur'' Ólafur að bregða sér til London til að freista þess að fá áheyrn hjá mjög svo ''sérstökum'' Sigurði yfir spunnara Einarssyni hvað heldur nú til í heimsborginni London og spinnur þar vefi sína sem aldrei fyrr að sögn kunnugra, ætli þetta spjall þeirra mjög svo sérstöku manna fari ekki fram í bakherbergi hjá New Scotland Yard eða öllu heldur á venjulegri knæpu þar í bæ. já ég bara spyr sí svona?

Kaupthing-and-the-spider-Sigurdur-Einarsson-2g

Nei hvernig læt ég auðvitað fer þetta allt vel fram og í mesta bróðerni undir hlöðnum borðum veitinga, ljúfra tóna og Havanna enda málið allt mjög svo sérstakt að engu er líkt.

Þá má ekki styggja óstöðugan né riðla sérstökum vefnum, hvernig var nú þetta með Kónguló kónguló vísaðu mér á berjamó, þá mun ég ''sérstakur'' Ólafur gefa þér gullskó eða varð það, sérstaka betrunar inni-skó !

Það er best að fara bara ekkert sérstaklega til London segir ''sérstakur'' Ólafur er ekkert sérstaklega á leið til London til að ná tali af Sigurði ''sérstökum'' Einarssyni, fyrrverandi mjög ''sérstökum'' stjórnarformanni Kaupþings. Engir ''sérstakir'' sérsveitarmenn eru heldur í för með ''sérstökum'' Ólafi, sem þó er vissulega á sérstakri leið til útlanda. Pressan.is segir frá... En ekki í hvaða sérstaka partý né með hvaða sérstaka partý-i þessi ekki svo sérstaka útrásarferð er.

Ætli maður hugsi nú nokkuð sérstaklega um það ?!?

Fleiri sérstakar og ekki svo sérstakar furðu-myndir af svona eða þessu fólki er að finna HÉR!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)        


mbl.is DV: Freistar þess að ræða við Sigurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endalaus skrökvulygi Steingríms J og (frú) Jóhönnu.

Stjórnar-parið Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. hafa stjórnað með því innræti og valið þann kostinn að segja sífellt ósatt við þjóðina og það allar götur síðan fyrir upphafið á stjórnartrúlofun þeirra, ætli það þekkist nokkurs staðar í hinum vestræna heimi annars staðar en hér að ráðherrar hreinlega séu staðnir af lygum á lygar ofan, sannleikanum hagrætt, snúið og hann bókstaflega undin í afstæðu sína, þetta mun víst þekkjast í einræðisríkjum sem og nokkrum þekktum dálætis ríkjum Steingríms í Austurevrópu og gamla Sovét er menn stjórnuðu með lygum, misþyrmingum og fjölda aftökum á þegnum landa þeirra.

Hvað verður uppá teningnum hér á landi er haldreipi lyga heldur ei lengur yl á heittelskuðum stólsetum þeirra, fær þá þjóðin virkilega að kenna til tevatnsins meir en orðið er?

stjornin

Fleiri furðu-myndir af svona eða þessu fólki er að finna HÉR!

Skrökvulygar Jóhönnu og Steingríms J. eru ekki lýðandi enda svívirða við yfir 1000 ára sögu Alþingis!

Þegar ráðherrar verða uppvísir af ósannindum, ber þeim að víkja þá þegar og sæta refsingu fyrir virðingarleysi við þjóðina sem og löggjafarþingið. 

P.s.benda á ágæta grein BB. Hér!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)       


Íslandi aftur til fortíðar. Fyrirlitning á þingmönnum, ríkisstjórn, réttarkerfinu, og lögreglunni magnast nú dag frá degi, ef fram fer sem horfir á Ísland enga framtíð í framtíðinni...

Höft, boð og bönn það sem koma skal, kommúnistar herða en á snörunni um háls þjóðarinnar! 

Steingrími J og kumpánum eru að sýna sitt rétta eðli þessa dagana er þeir þrengja hægt og bítandi að frelsi Íslenskrar alþýðu, nú er það en og aftur gjaldeyririnn, nú má aðeins sækja um gjaldeyrir að hámarki 350.000 krónur var í fyrir höftum 500.000 krónur. Þessir menn gefa það út trekk í trekk að gjaldeyris höftin verði feld niður á næstunni, en hvað gera þessir menn þeir herða en kyrkingar takið á þjóðinni og ætluð sér aldrei að færa gjaldeyris viðskiptin í eðlilegan farveg. Hér er rekin rýtingur í bakið á fyrirtækjunum, námsmanninum, ferðalangnum og hverjum þeim er gjaldeyrir þarf á að halda, mér er spurn hvern fjandann fær maður fyrir 350.ooo smá krónur í dag þegar dollarinn sleikir 130 krónurnar dag eftir dag? En rauðliðar senda frá sér fréttir um gott gengi krónunar og stöðugt, hér er ljóst að þessir menn hafa ekki hundsvit á því er þeir eru að segja eða framkvæma. 

Íslenska þjóðin á bágt, hún er ofurlið borin af valdhroka vitstola manna er aðhyllast löngu gjaldþrota stjórnunarhætti sovét kommans.  

Steingrimur-J

Steingrímur J. ætlar sér með þjóðina aftur til þeirra daga er Austurevrópa var upp á sitt besta að mati Steingríms en skelfing ríkti meðal þegnanna enda var stjórnskipulag með þeim hætti að lýðurinn var niður barinn og haldið við og undir sultarmörk með boðum og bönnum svo ekki sé nú mynnst á vænan skammt af skelfingu á smurða með ofbeldi er átrúnaðar goð Steingríms beitu óspart sem stjórntæki, menn er muldruðu í mógin var hreinlega misþyrmt eða þeir bara hurfu, ef ekki öll fjölskyldan. 

Er Ísland á hraðri niðurleið undir stjórn Jóhönnu og Steingríms?

Svarið er því miður já, forsjárhyggjan ríður ekki við einteyming á Alþingi, reglur boð og bönn eru afgreidd á færibandi eftir lundarfari ráðherra eða hvernig stendur í bólið hans þann daginn, engu skiptir hvort reglur stangist á við aðrar reglur, séu vitrænar, nauðsynlegar eða þörf á þeim yfir höfuð...  

Áður en þú snýrð þér við verður búið að banna sjónvarpið á fimmtudögum, litsjónvörp, kosningar verða aflagðar enda þarf ekkert að  vera kjósa þetta meir, þeir sem vita og geta eru þegar í ríkisstjórn, það er mat Steingríms J. á stöðunni.  Smátt og smátt er honum á undra skömmum tíma að takast ætlunarverk sitt að kné setja Íslenskt þjóðfélag undir ægivald kommúnista reglugerðar bákn uppfullu af boðum og bönnum, þetta gera kommarnir dulbúnir sem vinstri grænir. Það er ekkert vænt né grænt við vinstri græna, þar er samankomið fólk með skelfilegar fyrirætlanir til handa þjóð okkar.

Það er mjög ógnvænlegt hvað fáir hafa áttað sig á lyga gjörningum ríkisstjórnar flokkanna og því hvert stjórnin stefnir með íslensku þjóðina.

Dagar lýðræðis á Íslandi eru taldir ef fram fer sem horfir, þúsund ára saga Alþingis að engu orðin.

Þessa stjórn verður að setja af nú þegar með góðu eða ILLU! Annars á Ísland enga framtíð í framtíðinni...  

Fleiri furðu-myndir af svona fólki er að finna HÉR!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)       


mbl.is Lækka heimild til kaupa á ferðagjaldeyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlar þessi kona Steinunn Valdís að segja af sér ? Eður ei.

Það er ekki annað hægt en minna á þann sorglega veruleika að hér á meðal vor þrífast hreinræktaðir hræsnarar er halda að þeir séu alfarið yfir allt almennt siðferði hafnir, þá er þetta fólk svo óforskammað að það heldur því blákalt fram að samfélagið sé með ofsóknir á hendur þeim þegar við þá er kvartað eða beðið er um skýringar.

Steinunn Valdís er einn þessara aðila er kastar sífellt grjóti úr glerhúsi sínu enda kann hún ekki að skammast sín hvað þá að hún hafi vit til þess að gera það eina rétta í stöðunni sem er að segja af sér nú þegar.

Allt annað er hrein vanvirða við þúsund ára sögu Alþingis og Íslensku þjóðina alla! 

Vanvirding-vid-Althingi

Það er einnig nokkuð merkilegt hvað íslenskir stjórnmála menn stóla einat á gleymsku kjósanda sinna, en nú liggja þeir nokkrir lágt og láta lítið á sér kræla meðan stormurinn geisar allt í kringum vesaldóm þeirra, vitandi fyrir víst að alltaf lygnir hann á endanum, í þessu máli má það bara ekki þannig verða, ærulausir atvinnu pólitíkusar eiga ekki að fá að komast upp með það að hafa selt sig og sálu sína stórglæpamönnum,  mönnum og fyrirtækjum er ullu þjóðinni óbætanlegum skaða. Hvergi í heiminum komast stjórnmála menn með tærnar þar sem Íslenskir starfsbræður þeirra hafa hælanna í slíkri háttsemi, hvað þá að þeir komist upp með brot af því er íslenskir græðgis pólitíkusar hafa komist upp með hér á landi og eru en að komast upp með.

Það er mál að tekið verði harkalega á þessu siðferðis lausa fólki er matað hefur krókinn gengdarlaust undanfarin ár og sérlega þá er útrásinni stóð sem hæst.

Þar fer Steinunn Valdís fremst í flokki Samfylkingar. 

Myndin talar sínu máli:

FlowingMoney

Ég segi það en og aftur: Það er full ljóst að þessi siðblinda kona á ekkert erindi á Alþingi Íslendinga og skal hún tafar laust víkja þar sæti!

Fleiri furðu-myndir af svona fólki er að finna HÉR!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)    


Ruglið í (á) Vef mogganum gengur út yfir allan þjófabálk!

Ekki veit ég hvað gengur á þarna uppá hæðinni  Hádegismóum en þar eru vinnu brögð furðuleg, fyrir utan venjulegt skítkast í Forsetan sem hann á stundum skilið og stundum ekki, þá er bara ekkert að ske á moggavefnum fréttirnar eru illa unnar með orð réttu eftirapi annar frétta miðla innlendra sem erlendra sem er jú mun oftar, þá er ekki verið að sýna neina nennu í að afla eða skrifa góðar fréttir, öll sjálfstæð hugsun eða framtaksemi virðist horfin hjá þessum blaðamönnum er skrifa í eða á vefmoggann í dag, mig grunar að eins sé farið með blaðið sjálft, en það sé ég ekki sem stendur enda erlendis.

newspaper-editors-demotivational-poster

Þá tek ég sérstaklega eftir því að greinar er snúa að sitjandi stjórn og því liði er henni fylgir á sér einhvern verjanda eða einhverja verjendur hjá stjórnendum vefmoggans.

Það er nú þannig, ef einstaka notendur blog.is vitna mikið í greinar eða frétt(ir) og skammast út í stjórnvöld eða einhvern þeim tengdum, þá vill greinin er bloggari vitnar í hverfa snarlega og er þá sett aftur fyrir aðra mjög svo svipaða er birtist óvænt um sama mál og er af nákvæmlega sama meiði, þannig að greinar eða athugasemdir bloggara hverfi af síðum vefmoggans, hreinlega lenda þar sem sólin ekki skín, enda engin augljós opinber hlekkur í fyrri frétt eða fréttaskot, þetta þykkir mér undrum sæta og er svo um nokkra aðra er hafa láð máls á þessum atvikum. Mæti á stundum halda að  einhver stafsmaður vefmoggans væri þar að störfum með einka ritskoðun og eða að vinna fyrir einhver allt önnur sjónarmið en morgunblaðið er hvað þekktast fyrir að reka.

Ef margir eru að tjá sig um frétt, þá á sú frétt að fá að standa á síðum vefmoggans meðan pláss er og lesendur mbl.is hafa áhuga á því að lesa fréttina eða tjá sig um málefnið!

Það er nú svo að nóg er af fréttum þarna úti bara ef blaðamenn vefmoggans nenntu að skrifa í stað þess að hanga við það eitt að kópera og peysta fréttir eftir aðra, þá er það fyrir neðan allar hellur að lágt settir skúringa pjakkar velji og hafni því er bloggarar skrifa eða tjá sig um á líðandi stundu með sífeldu púsleríi á fréttum vefmoggans.

 Það er ljóst að eitthvað er skrítið þarna í hádegismóum.

Með von um að menn vakni til lífsins enda þessi þúfugangur leiðinlegur til lengdar...  

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)    


mbl.is Dýrkeypt yfirlýsing forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steinunn Valdís á að sjá sóma sinn í því að segja af sér tafarlaust!

Það er ekkert um þetta að segja, annað en það er myndin sýnir en hún talar sínu máli:FlowingMoney

Það er full ljóst að þessi siðblinda kona á ekkert erindi á Alþingi Íslendinga og skal hún tafar laust víkja þar sæti!

Fleiri furðu-myndir af svona fólki er að finna HÉR!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)    


Fólk með skítlegt eðli veður upp í Reykjavík!

Eftir að hafa horft á kvöld fréttir stöðvar 2 í gærkvöldi varð mér bara hálf illt við að sjá þetta uppvöðslu fólk er kallar sig mótmælendur eða eitthvað er hentar þá stundina, enda skipta þeir um nafn oftar en hægt er að kasta af sér vatni, hvað um það þá er það eftir tektarvert að þetta fólk er ég kalla kaffi húsa vesalinga með húfur og virðast eingöngu ofsækja sjálfstæðis fólk sem og fjölskyldur þeirra, enda standa þeir ekki t.d fyrir utan hjá Jóni bytling ofur styrkveitanda  eða öðrum þeim ræningjum er verst hafa farið með Íslenskt þjóðfélag, nei þeim er það fyrirmunað, betra og eðlilegra þykir þeim að valda skelfingu meðal ungra barna sjálfstæðis mann og henda jafnframt skítlegum orðum í ástkæran leikara þjóðarinnar.

hufupakk

Þá er það stóra spurningin: Getur einhver frætt mig um það hvaða peninga Þorgerður Katrín á af hafa tekið af af vesalings rauðklæddu konunni, en hún uppá stóð að Þorgerður Katrín og eiginmaður hennar hafi tekið aura frá henni persónulega eins og sjá má í fréttum stöðvar 2 HÉR Þá vill ég fá að vita það hvort konan segir það satt að Þorgerður Katrín hafi rænt þessa konu eða að öðrum kosti, þá verði gengi í það að konan verði látin gjalda lyga sinna og verði dæmd sem ómerkingur með skítlegt eðli, það er með öllu óþolandi að kaffihúsa kommar og húfu auðnuleysingjar fái að vaða uppi stjórnlaust í þjóðfélaginu með þagnar leyfi og velvilja sitjandi ráðamanna, enda gerir löggæslan ekkert í því að verja saklausa þegna þessa lands hvað þá að þeir amist við þessum lýð, ég mælist til þess að þessi lágkúru hópur auðnuleysingja hætti því að garga og góla fyrir utan heimilli landsmanna og fá sér labbi túra til hita kælingar t.d. til keflavíkur eins og forðum daga, en þar sem ég veit að þetta fólk er duglítið til göngu getur það þá hæglega tölt sér í bónus í staðinn og fengið sér klapp á kollinn...

Það er rangt að kjarkmikið og gott fólk hrökklist frá störfum fyrir þjóðanna, þjóðin þarf á fólki með dug og getu að halda og hefur ekkert við liðleysur Vinstri Græningja að gera, hvað þá fólk með sjúkleg bráð einkenni 'HSJ' haturskýki Jóhönnu.

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)    


Björgólfur Thor segir sorry allabaddarí fransí....

Ekki held ég að það hjálpi nú buddunni minni eða fyrrverandi hlutabréfa eign minni í ansko... bankanum þínum og víðar, hjá mér færðu ekki klapp á kollinn góurinn.

Bjorgolfur-Thor

''Ég bið Íslendinga afsökunar á að hafa ekki staðið mig betur.“

Þetta segir Björgólfur Thor Björgólfsson kaupsýslumaður í niðurlagi greinar sem hann skrifar í Fréttablaðið í dag.

Já hann er en á hvolfi og á fjármálafylleríi þar sem hann sýslar með aurana mín og þjóðarinnar. 

Minn tími mun koma, lifið heil.

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)    


mbl.is Björgólfur biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný tækni tekinn í notkun samhliða útkomu rannsóknarskýrslu Alþingis...

Það mætti halda að ný stútfull bankabók væri að berast landsmönnum í hendur á morgun, þvílík er spennan og magaverkurinn hjá þjóðinni, ekki það að þetta er sennilega að hluta til bankabók í mörgum bindum og nefnd skýrsla, en hætt er við að innistæða hennar sé væntanlega mjög döpur.

En fréttir herma að fjölmiðlarnir verði með allt sitt á útopnu, hvað þá ef ég heyrði ekki einhversstaðar að skýrslan verði lesin upp með tilþrifum á netinu og hafa nú fréttaþyrstir tekið nýja tækni í notkun ekki ólíka labrab eins og sést hér á myndinni.

rapglap2a
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)    

mbl.is Mikil eftirvænting eftir skýrslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svandís Svavarsdóttir þarf á vitrænni hjálp að halda!

Hún verður lengi í minni höfð heimskan er streymir í stríðum straumum útúr talanda Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra, nú dettur henni í hug að friðlýsa eldinn í iðrum jarðar sem og hraunið er upp vellur í hamförum náttúrunnar.

Menn hefðu átt að gera þetta mikið fyrr t.d. eins og í vestmanneyja gosinu eða voru menn bara heimskir hér áður fyrr og báru þeir enga virðingu fyrir náttúruöflunum og jarðfræðilegum hönnunum eldsins í neðra, ég spyr ráðherrann?

Henni hefði sjálfsagt dottið það í hug að banna dælingu vatns á hraunið enda er hraunið stórskemmt eftir vatnsdælinguna og ekki svipur hjá sjón miðað við hvernig það hefði getað orðið og fengið að loka innsiglingu eyjamanna í friði og jarðað en fleiri mannvirki eins og vilji gosstöðvarinnar stóð til.

umhvefis-radherra

Nú verður ráðherrann að vera samkvæm sjálfri sér og setja lög á regnið, vindinn og almenna veðrun, en veðrun veldur óhemju skemmdum á landslagi og það á örskömmum tíma, þá mun veðrun valda því að öll þau spor er ferðamenn og eldfjallarýnar skilja eftir sig hverfa og þar með sönnun þess að þar hafi komið eldfjallarýnir, þetta verður ráðherrann einnig að friðlýsa og legg til að hann send hóp manna nú þegar til töku á afsteypum á þeim fótsporum er en finnast á svæðinu, þá ber ráðherra að skrásetja sérlega öll þau kennileyti er finnast um mannaferðir og markað hafa landið á gosstöðvunum, þetta og viðlíka upplýsingar mega alls ekki verða veðrun eða gjósku falli að bráð.   

Snúum okkur að alvöru málsins, það er flestum ljóst að hið há alþingi verður nú þegar að setja bjargráðalög á hæstvirtan umhverfisráðherra er hafa það að markmiði að friða þjóðina, já landsmenn alla fyrir athyglis þrá og sýki ráðherrans, vitleysan og heimskan er ræður húsum í þessu ráðuneyti heimskunnar ríður ekki við einteyming.

Síðan er það spurningin hvenær er hraun heilt eða ónýtt hraun ? er það ónýtt hraun er hvílir undir suðurlandsveginum ? þá geri ég ráð fyrir að hús ráðherrans sé byggt á sandi, en ekki ónýtu hrauni.

„Yfir höfuð þá finnst mér þetta mjög mikið áhyggjuefni, það er að segja umgengnin við þetta nýja hraun. Það væri náttúrulega þyngri en tárum taki ef að hraunið væri ónýtt áður en það kólnar," segir Svandís.

þá spyr Jónas: Væri ekki kjörið fyrir hana að setja reglugerð um, að ekki megi spora út sjávarsand á fjöru.

Það vekur einnig furðu mína að þessi kona setur ekki á reglugerð er banni útlendingum að bera burt landið okkar, það er nefnilega svo að útlendingar fara iðurlega úr landi með grjótmola í vasa og ekki síst hraunmola, að fenginni eigin reynslu veit ég að það er góður business í því að selja útlendingum hraunmola.

Að lokum hverju reiddust goðin er eldurinn brann og hraunið rann, er Svandís Svavarsdóttir var kagandi í ráðuneyti umhverfis og gasprandi eins og fífl í öllum fjölmiðlum ?

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 


mbl.is Gosstöðvarnar friðlýstar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband