Merkilegt fólk íklætt rauðum bolum...
9.4.2010 | 14:11
Er maður fylgist með sjónvarpsfréttum í Tælandi, er merkilegt að sjá aldraðar vopnlausar kerlingar slást við fullvopnaða hermenn, hvað þá allt þetta fólk er á það sameiginlegt að ganga í rauðum bolum, að þrátt fyrir háþrýstidælur og táragas þá tekst þeim að afvopna Tælenska herinn er hopar undan.
þetta sýnir að samstaðan er lykil fólksins, það verður fróðlegt að sjá hverju framvindur hér í Tælandi á næstu dögum því nú líður að Tælenska nýárinu (Songkran) og þá fara flestir til sín heima og sletta vatni á hvern annan sem mest þeir geta, því er það ljóst að annað hvort sverfur til stáls nú eða leikurinn hefst aftur að loknu frí á nýju ári samkvæmt tímatali þeirra en með upphafi Songkran hefst regntímabilið formlega og ekki vanþörf á því hér er allt skraufa þurrt svo þurrt að til mikila vandræða horfir víða.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
![]() |
Mótmælendur náðu sjónvarpsstöð á sitt vald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er fulltrúi Norðurlanda og Eystrasaltslanda skíthæll?
9.4.2010 | 10:54
Mikið er ég fegin að þessir frændur okkar norðurlanda þjóðirnar eru ekki mjög náskyldar okkur, en það má með sanni segja að þessir frændur eru frændum verstir.
Það mætti halda að þeir dragi lappirnar eingöngu til þessa að sjá til þess að illa fara fyrir íslenskum frændum þeirra er þeir öfunda ávalt með þvílíku slefi að hálfa væri nóg.
Þessir skíthælar senda íslendingum ekki einusinni maðkað mjöl sem þeir þó gerðu forðum, nú senda þeir bara loforð á loforð ofan, skrautlega skreytt með skrúðmælgi og framset sem orðin tóm !
En tíminn vinnur ekki með þessu illgjörðar frændfólki okkar heldur með Íslensku þjóðinni, og það væri bara að æra óstöðugan AGS/IMF sjóðinn að elta ólar við hann, sendum fúlltrúa hans úr landi nú þegar og það með togara.
Íslenska þjóðin þarf ekki og vill ekki liggja við betlistaf né láta niðurlægja sig á alþjóða vetfangi eins og virðis vera eini tilgangur gjörða þessara svo kölluðu frændþjóða okkar...
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
![]() |
Íslandslán ekki á dagskrá AGS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
VG eða vinstri græningjar keppast hreinlega við að sýna framá stjórnvisku hæfileika sína í öllum þeim málaflokkum er þeir snerta á, stjórna á einfaldan hátt með því að beita ''ég ræð'' og valda offorsi, sérlega þegar þeir eru ekki of uppteknir við að ráða vini og vandamenn í stöður innan stjórnkerfisins og þá einna helst í ótímasett sérverkefni í þeim ráðuneytum er þeir hafa bitlingavöldin í og ráða launagreiðslu upphæðum sjálfir.
Ofbeldisfærslur heilbrigðisráðherra eru slíkar að menn hreinlega hugsa sig tvisvar um og þá hvort það sé einhver heilbrigð hugsun í þeim heilbrigðis gjörningum er frá heilbrigðisráðherranum koma og er nú svo komið að sjúklinga hefur sett hljóða svo hljóða að þeir þegja sem mest þeir kunna og geta með góðu móti enda ekki aðgerðir til mótmæla vænlegar til bata eins og sjá má á aðgerðum þeim er heilbrigðisráðherrann framkvæmir eða hótar að framkvæma á undirmönnum sínum.
Það er greinilega komin tími á þennan ráðherra er gerir lítt annað en dæsa yfir almúganum.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
![]() |
Ákvörðun Álfheiðar ólíðandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 8.4.2010 kl. 06:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Össuri Skarphéðinsson utanríkisráðherra farinn á límingunni...?
30.3.2010 | 15:28
Á Bak við þungbúna ásjónu utanríkisráðherra er maður fullur angistar enda ljóst að einhver er að njósna um hann og húsmóðir hans.
Það sem er öllu verra og vekur angist Össurar er sú staðreynd að einhver lekur leyndóskýrslum um hann og húsfrúna, það þolir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra engan vegin.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hver sagði að kettir væru falskari en kölski sjálfur ?
29.3.2010 | 16:25
En á ný kemur Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna með yfirlýsingar er engin skilur nema hann sjálfur og tilkynnir súr á svip að stjórnarsamstarfið mun ekki vera í neinni hættu, ákaflega þykir þessum fress ketti veitingar húsmóðir hans góðar þótt súrar séu, og en og aftur malar Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
![]() |
Stjórnarsamstarfið ekki í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Steingrímur J. Sigfússon hefur verið greindur...
29.3.2010 | 03:51
Menn hafa löngum velt því fyrir sér hvað hafi eiginlega komið fyrir Steingrím J Sigfússon og hvað valdi sinna skiptum hans í flestum málum enda fer maðurinn ávalt með hinn furðulegustu ósannindi og grípur daglega til skrökvulygi, þá er það sú staðreynd hvað fer mest fyrir brjóstið á (frú) Jóhönnu Sigurðardóttur er hvað Steingrímur snýst óendanlega og hagar sér ávalt eins og köttur í kringum heitan graut, þessi hegðun Steingríms hefur orðið til þess að Jóhanna hefur fengið til liðs við sig hin þekkta kínverska atferlisfræðing Votmyway og landa hans hegðunar sérfræðinginn Mjaegsja, og er skemmst frá því að segja að niðurstaðan varð samhljóma.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Var Hannes Smárason barinn í almenningsgarði...
28.3.2010 | 14:30
Það virðist sem þessi þurfi að tjá sig eitthvað við Hannes Smárason.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
Myndin og greinin er uppspuni frá rótum :)
Bloggar | Breytt 29.3.2010 kl. 07:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Steingrímur lætur sér ekki seigjast og hlustar alls ekki, heldur leggst á fjórar. Það er skömm af kallinum!
26.3.2010 | 18:00
Það er merkilegt hvað Steingrímur J hlustar alls ekki á þjóðina og hunsar ítrekað vilja hennar, Þjóðin vill ekki fleiri lán og hún vill ekki samstarf við AGS-IMF, hvað er það eiginlega í kolli Steingríms J er veldur því að hann er algjörlega út úr öllu samhengi eða tengingu við Íslenska þjóð?
Það á að segja upp öllu samstarfi við AGS-IMF nú þegar enda gengur sjóðurinn erinda kúunnar stefnu Enskra og Hollendinga gegn þjóð okkar.
Alstaðar þar sem AGS-IMF hefur komið að málum hefur það kostað þau ríki sjálfstæði og missi þjóðarauðs þeirra í hendur AGS-IMF, má þar nefna t.d. mörg ríki í Afríku.
Þá má nefna Argentínu er varð fyrir hreinni hefndar aðför enskra vegna Mavinas-eyja (falklandseyjar) stríðsins en eftir það hafa enskir lagt sig fram við að knésetja Argentínu í gegnum AGS-IMF, það er nefnilega þannig að enskir gleyma seint og illa og nú er komið að hefndar stund enskra gagnvart Íslendingum og þorskastríðanna enda beita enskir sér nú óspart í stjórn AGS-IMF.
Íslenska þjóðin verður að losna undan sitjandi stjórn og ofurvaldi AGS-IMF á Íslensku þjóðinni, líf þjóðarinnar og auðlyndir eru í stórhættu undir vitfyrtum stjórnartaumum (frú) Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar.
Íslenska þjóðin verður að krefjast kosninga nú þegar, þjóðinni til bjargar !
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
![]() |
Bjartsýnn eftir fund með Strauss-Kahn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þvílikt hneigsli, þvílík frekja, Já svei.....
23.3.2010 | 11:51
Mér er spurn hversvegna í ósköpunum er verið að fljúga með umhverfisráðherra á gosstöðvarnar, konan gerir ekki greinar mun á gosi úr ölflösku eða gosi úr iðrum jarðar, slíkt er gáfnafar ráðherra, hvers vegna á íslenska þjóðin að borga fyrir þessa auka þyngd í vélina þegar gæslan á ekki fyrir daglegum rekstri, mér er spurn geta ráðherrar pantað sér sí svona eitt stk útsýnisflug eftir löngun og sent reikninginn á þjóðina ?
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar flaug yfir gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi í gær þar sem aðstæður á svæðinu voru bornar saman við fyrri mælingar eftirlits og leitarratsjár flugvélarinnar.
Með í för voru vísindamenn en einnig Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins sem og Guðmundur Guðmundsson upplýsingafulltrúi, Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Þórunn Hafstein, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu.
Ekkert af þessu fólki hafði neina nauðsyn eða þörf á að fara í skemmti ferð á kostnað Íslensku þjóðarinnar hvað þá að eyða fjármunum frá sveltandi landhelgisgæslu okkar.
Það er nú þannig að hver flogin kílómeter, (míla) kostar sitt á kíló og það á ekki að vera fylla vélar gæslunnar af mis fyrirferða miklu fólki er hefur truflandi áhrif á störf vísindamanna sem og gæsluliða um borð.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, á ekkert inni hjá Landhelgisgæslunni enda einn þeirra ráðherra er hvað hatramast berst gegn framförum, hvað þá að hún hafi nokkurn skilning á þörfum gæslunnar eða búnaði hennar, hún er ekki sá aðili er vill veg Landhelgisgæslunnar sem mestan og er langur vegur þar frá.
Goggi (Georg Kr. Lárusson) verður að leggja blátt bann á gesti og gangandi og þá sérlega á puttaferalanga ráðuneyta er vilja sníkja sér útsýnisflug, að öðrum kosti verður Georg að setja á hátt gjald til borgunar á þeim kostnaði er auka kílóin valda gæslunni.
Landhelgisgæslan á ekki að bera kostnað af blýant nögurum sem í skjóli stofnanna eða embætta krefjast þess að fara í útkíkk, þar skulu misþungir ráðherrar ekki vera undanskyldir.
Þetta var einstök upplifun, sagði Svandís Svavarsdóttir að loknu flugi með landhelgisgæslunni. Þetta var sem sagt skemmti ferð hjá ráðherra á kostnað skattborgara!
Það er að vísu skiljanlegt að gæslan vilji umfjöllun, enda rær stofnunin lífróður í að ná skilningi ráðamanna á nauðsyn þess að fá að halda búnaði sínum, það er ekki svo langt síðan að einhverjum ráðleysis ráða manninum datt það snjallræði í hug að skila flugvél gæslunnar, það var sem betur fer ekki hægt og ákváðu þá lít greindir ráðamenn að leita eftir sölu á vélinni, því lík heimska að manni verður orðvant.
Vélin er þjóðinni bráð nauðsynleg og sannar gildi sitt með hverju því verkefni er lagt er fyrir hana, þá er hún algjört tækniundur er kemur að leit og björgun, menn einfaldlega selja ekki frá sér björgunar hringinn eða öryggi sitt, öll umræða um slíkt er heimskra manna tal.
Að sögn vísindamanna hefur tækjabúnaður flugvélar Landhelgisgæslunnar haft gífurlega mikið að segja til að greina umfang og eðli eldsumbrotanna.
Það er því ljóst að Georg Kr. Lárusson verður einfaldlega að fá þann skilning og það fé er sæmir rekstri Landhelgisgæslunnar, en til þess að svo megi verða þarf að skipta um ráðamenn í landinu, hvað þá ef frú Katla fer að yggla sig þá þarf fólk með bein í nefinu og vitræna getu til stjórnunnar á landi okkar og þjóð, landið okkar og stjórnkerfi er löngu komið að niðurlotum vegna ruglingslegra aðgerða og aðgerðaleysis sitjandi stjórnvalda er engan vegin valda starfi sínu.
Líf og framtíð þjóðarinnar veltur á því að efnt verði til kosninga nú þegar!
Bendi á aðra grein máli mínu til stuðnings HÉR!
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Aparnir á hæstvirtu Alþingi
22.3.2010 | 16:14
Stjórnvöld setja lög á kjarasamninga flugvirkja, en það mun vera bannað samkvæmt mannréttindasáttmála og vinnumálasáttmála Sameinuðu þjóðanna, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Ég held að það hefði mátt gefa þessum samninga umleitunum aðeins meiri tíma, þótt svo að flugvirkjar hafi verið ansi stífir á kröfum sínum.
Lög á ekki að setja á kjarasamninga nema í algjört óefni sé komið, en sitjandi stjórn kippir sér ekkert upp við það að svínbeygja stéttarfélög sem og hinn almenna borgar, þar á bæ er lýðræðið og mannréttindi fótum troðin...
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
![]() |
Mannréttindi á ekki að taka af fólki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)