Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Ætlar þú að grilla í dag ?

Ég las það á blog.is að það sé algjör gúrkutíð í grillingum landans og menn grilli hist og her og sérlega á pöllum sínum og við sumarbústaði. Sakna ég þess mjög að geta ekki grillað fyrir mig og mína, enda veit ég fátt betra en grillmat. Ég vill þó benda grillurum á að hafa gott auga eða augu með grillveislum sínum !

eye (2)

Hvað er til ráða við leiðindum ?

Þegar fólkið er hundleiðinlegt er lítið annað að gera en létta á sálartetrinu með smá speki.

positive_thinking_1

Eins er hægt að leggja leið sína á súpergóðan söluturn !

post-5-1109149989

Eða fara eina ferð á nýja hraðbátnum..

speedboat

Þá má alltaf skella sér á góðan, löglegan súlustað..

sulusex

Eins má taka fram veiðidótið og skreppa í bæinn að veiða.

ribalkaa

Og enda svo daginn með því að líta í ruslið og nú ætti skapið að vera orðið stórgott..

sma1


Sendi einhverjum pakka fljótlega..

Gripið hef ég rottur tvær, hvað skal við þær gera ?
987_krysy
Já, það er nú það, ætla að sjá hvað ég geri við þær og hverjum ég sendi þær !
Hef annars ekkert til að tjá mig um enda búinn að tapa geðheilsunni á þessari endalausu bið er ég er látinn sæta, enda hundslappur og hreinlega veikur! 
(Girrrrrrrrrrrr) Angry

Fylliraftur tók þátt í brunaútkalli, frétt á mbl.is

Fylliraftur tók þátt í brunaútkalli. Fleiri þýskum slökkviliðsmönnum brá heldur betur í brún er þeir sáu að mjög ölvaður maður hafði slegist í hópinn með þeim er þeir voru í miðju brunaútkalli. IMG_0602

Maðurinn var klæddur í slökkviliðsgalla með hjálm á höfði. Að sögn lögreglu þaut maðurinn, sem er 38 ára, á slökkviliðsstöðina þegar hann heyrði brunabjölluna hringja. Á slökkvistöðinni aðstoðuðu grunlausir slökkviliðsmenn manninn við að klæða hann í hlífðargalla. Í framhaldinu fór maðurinn inn í næsta slökkviliðsbíl sem var tilbúinn. Þegar slökkviliðið kom á staðinn áttuðu menn sig fljótlega á því hvað væri á seyði og kölluðu eftir aðstoð lögreglu. „Þegar eldur kviknar, þá eiga allir að leggjast á eitt,“ sagði maðurinn við lögregluna er hún spurði hann hvað hann hefði verið að gera. Maðurinn var látinn sofa úr sér á lögreglustöðinni og var sleppt í framhaldinu. Hann verður ekki ákærður fyrir athæfið. Þessi hlýtur að vera náskyldur mér hahhaha


Hver er munurinn á heila karla og kvenna?

Ég hef verið að skoða mun kynjanna á netinu og fann ótrúlega skrýtna hluti um konur hvað þá menn, kynin eru eins ólík og mest getur verið, en geta þó ekki án hvors annars verið í flestum tilvikum.Tounge

jamm

Hlekkur: Hver er munurinn á heila karla og kvenna? InLove


Konur og aftur Konur og meira af Konum

Hvernig skyldi standa á því að maður eða menn eins og ég sjá ekki sólina fyrir fallegum konum, feministiþannig að maður er með lafandi tunguna niður á maga. Ég er samt ekki neitt gefin fyrir margar enda best að vera (einar) konu maður að fenginni reynslu, en þegar maður er rosesvona ungur eins og ég, þá er radarinn alltaf á fullu. Það er í lagi að horfa er það ekki ? Sérlega er maður hangir á sundlaugar BARMInum eða STRANDbarmi daginn út og inn. Enda er hér allt fullt af konum ekki bara Asiu konum heldur mikið af Evrópu konum og gífurlegur fjöldi af austantjalds stelpum, enda virðist það lið vaða í aurum eftir fall sovétskúrkanna. Ég hef átt því láni að fagna að geta ferðast víða og skoðað hin ýmsu lönd, ekkert land eða heimsálfa hefur komið mér eins mikið á óvart og Asía fjær og þá suðaustur Asia, fólkið á þessu svæði er mjög sérstakt enda brosir þetta fólk twinsút í eitt, þjónustu lundin ódrepandi, og konurnar alveg sér kafli  af Íslenskum ólöstuðum ! Ég man eftir því að þegar ég var krakki þá sá ég myndir af Erro og austurlenskri spúsu hans. Hef aldrei gleymt því, ég hét mér þá að ég yrði að fara í ferðalag er ég yrði stór og skoða svona "konur" það tók mig yfir fjörtíu ár að verða nógu stór til að fara til Asiu ..


Þetta er undarlegt með skóinn er fannst í Svíþjóð.

Ég var að lesa þessa frétt á MBL áðan varð hreinlega steinhissa, en þar segir að strandvörður hafi fundið skó og er betur var að gáð var fótur í skónum, hum þessi skór eða fótur mun hafa rekið á land þarna. Og mér varð hugsi, gekk ekki þessi fótur eða skór á land? Það er sagt að hvalir gangi á land þó enga hafi þeir fæturna og þeir gera þetta víst dauðir líka miða við það er foturmaður les í blöðum. Hef ekki verið hægt að orða þetta sem svo að fótur hefði gengið á land og verið vel skóaður, mér er spurn? Það skrítna við þetta mál er að ég var að horfa á gervitunglasjónvarpið í dag, stöð er sendir út frá suður Afríku, þar var í fréttum að menn höfðu fundið hægri fót á strönd. Það skyldi þó ekki vera að þetta hafi verið vinstri fótarskór er innihélt fótinn er fannst í Svíþjóð, já ég bara spyr. Nú veit ég ekkert hvort einhver fótur sé fyrir þessari sögu frá Afríku eða Svíþjóð en ef satt er og þeir eiga sama eiganda hvernig komst þá Svía fóturinn alla leið til Tylösand í Svíþjóð, varla hefur hann gengið óstuddur ? Var þetta kannski skórinn og fóturinn ? hann er að vísu í sandalalostfoot5 á myndini hér hægra megin ? Jari


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband