Stuðningsleysið að æra Jóhönnu og Steingrím.

Stuðningsleysið við Icesave og hinn mikli frétta flutningur af hinum ýmsu þingmönum er ekki styðja ómagasamning VG við Breta og Hollendinga, er kallast í daglegu máli IceSlave, hefur nú kallað á nýa taktík, ræða skal málið í nefndum og bakvið luktar dyr, þá verða óþægir þingmenn tuskaðir til og kaffærðir í hótunum stjórnarníðinganna. Allt er heitir lýðræði eða að fara að eigin sannfæringu er nú barið niður með djöfulgangi. Nú er vonin að almenningur og óstýrlátir óbreytirþingmenn róist nokkuð við fríið um verslunarmannahelginna. Tíminn verður notaður til að tala þingmenn og þjóð til, væntanlega með hræðsluáróðri og lygum. Það er því ljóst að það á ekki að beita neinum vettlingatökum við að koma ósómanum í gegnum þingið!

Þá er snobbið er fylgir því að smáþjóð sæki um aðild að ESB fáránlegt það var ekki nóg að sendahandtekinn sendiherra Íslands með bréfsnepillinn, nei utanríkisráðherra varð að mæta sjálfur og láta taka myndir af sér við endurtekna afendingu umsóknarinnar, sem og hristandi hendur ráðamanna Svía.

ossur-handtekkinn2

Fréttir af því að Norræni fjárfestingabankinn sé hættur að lána Íslendingum kom eins og pöntuð fyrir tvíeykis hyskið Jóhönnu og Steingrím, var einhver að sækja um lán þar fyrir utan gamalt lán vegna Hverahlíðarvirkjunar? Nei þessi frétt er hræðsluáróður ætlaður til að slá ryki í augu Íslendinga ef ekki yrði falist á Icesave þá engan fyrirgreiðsla til ykkar. Svona má lengi telja upp bolabrögð er stjórnin notar með utanað komandi hjálp allt er þetta sótt í smiðju Joseph Goebbels áróðursmeistara Nasista er sagði, "ljúga bara nógu mikið þá verður lygin að sannleika".

Mér er spurn, hef reyndar verið að velta því fyrir mér fyrir undanfarið, fyrir hverja þessi stjórn eiginlega vinnur og gætir hagsmuna ? það eru komnar á mig tvær grímur! Hver er megin ástæða þess að öll þessi leynd og pukur er frami höfð af hendi stjórnvalda?

Með því að þingið er sent heim, mun verið að reyna að koma í veg fyrrir að þingmenn fái að sjá hin og þessi plögg er stjórnin liggur á, eins mun Jóhanna vera orðin ansi pirruð á þessu þrasi og þvermóðsku þingmanna er ekki vilja láta hengja þjóð sýna. Er það eðlilegt að við Íslendingar eigum t.d. að borga Bretum tvo milljarða fyrir lögfræði kostnað? Eigum við sem sagt að borga fyrir snöruna er hengir þjóð okkar.

Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að krafa Breta um að Íslendingar greiði lögfræðikostnað upp á 2 milljarða króna vera hámark niðurlægingarinnar fyrir íslenska þjóð. Jafngilti upphæðin 100 þúsund vinnustundum hjá íslenskum lögfræðingum.

Það er eitthvað mikið að og rangt hér á ferðinni svo rangt að stjórnin eyðir óhemju orku í að fela gögn og halda til hliðar eins mikið af gögnum og frekast er kostur, þá er stjórnin hvað eftir annað staðin að hreinum og beinum ósannindum, "LYGUM" !

ESB er ekki bara sósíalískur klúbbur, ESB hefur sýnt að þar á bæ grassera fasískar kenningar undirniðri og nú hafa þessir karlar og kerlur með þessa aðferðafræði náð undir sig Evrópu og það án vopna skarks, fyrst var þetta reynt með styrjöldum, síðan risabönkum og er það gekk ekki nógu vel og hratt fyrir sig,NWOvar ESB stofnað og virkjað, Evrópa tekin innan frá, enda skilyrði fyrir inntöku í ESB að afsala sér sjálfstæði þjóða og færa stjórnsýslunna undir Brussel sem og sameiginlegri nýtingu á auðlindum, þar má Ísland sér lítils á móti margnum. ESB er að þrengt vegna Rússa gassins enda skrúfa Rússar fyrir og frá eftir því hvernig stendur í bælið þeirra þann daginn sérstaklega ef þeir þurfa að ná fram einhverju hjá ESB, þetta þolir ESB ekki. Ef það er Olía við Ísland þá er gas, eftir því sækist ESB sem og raforkunni, vatninu okkar o.s.f. Bretar og Hollendingar eru taflmenn notaðir til að kúa smáríkið til hlýðni og notaðar eru fjármálastofnanir ávið IMF-AGS og Norræna fjárfestingabankann. Ekkert fellur ESB og Worldbank betur en soltin þjóð, þannig þjóð á engra kostavöl nema segja já og amen !

 

Á bakvið þetta allt stendur svo The New World Order (NWO) og hverjir eru nú þar fremstir í flokki ?

Það er vita skuld ástæða til að vera smeykur við þennan Golíat. Lánin til okkar munu koma og verða notuð í gjaldeyrisvarasjóð en sá sjóður mun tæmast á einni nóttu er gjaldeyris hömlum verður af létt. Þjóðin verður gjaldþrota og komin undir kúgaranna ásamt öllum okkar gnægta brunnum.

Það er fyrir neðan allar hellur að sitjandi stjórn vinni á móti þjóð okkar en ekki með !

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Hlé gert á störfum þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband