(Skattaparadísin Ísland) Þjóðarsvikarar!
25.6.2009 | 15:34
Þú mátt ekki eiga eitt né neitt lengur, nú áttu klæðast gráum klæðum er ógnarstjórnin leggur til ! Þetta er aðal áhersla vinstriflokkanna, þeir rífa niður allt er heitir einstaklings frelsi, jafna allt út í flatneskju liðleysunnar, flata pönnuköku án sykurs, sultu eða rjóma. Óstjórnarstjórn Jóhönnu og draumkommans Steingríms J er að takast að draga landið aftur á 18 öld. Nú stendur til að vinnandi fólk gjaldi miðstjórninni allt að 45% af innkomu sinni sem og neyslu! Hvar eiga heimilin eða hinn vinnandi stétt að taka frá fyrir skuldum, fyrir nauðþurftum sem og skólagöngu barna þeirra, eða eiga smá varasjóð ef óhapp verður ? Mér er það einnig spurn hvernig á Gamalmennið, Sjúklingurinn eða Öryrkinn að lifa? Fólkið er minnst á og á engan möguleika á að bjarga sér, Ólukku konan Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J eru svikarar á öllum þeim kosningaloforðum er frá stjórnarflokkunum komu fyrir kosningar.
Sannleikurinn er sá að allt það er þetta ólukku fólk vann við að bæta hag þeirra lægst settu, var bara unnið til að veiða atkvæði og slá ryki í augu þeirra sem minnst mega sín. Bankamála og sjáfskipaður fjármálasérfræðingurinn Steinríkur, skerðir nú kjör aldraðra og öryrkja, sem mest hann getur að undirlagi konunnar með steinhjartað, þeim tókst að ljúga svo að þjóðinni að hún féll kylliflöt fyrir orðskrúðinu og þeirri vinnu er framkvæmd var áður til að bæta kjör þeirra er minnst máttu sín fyrir þjófnaðinn, en nú rífur ólukkuparið allt til baka og meira en það, parið það arna hættir ekki hér heldur ætlar sér að ganga milli bols og höfuðs á heimilunum í landinu sem og rest af landslýð. Allt er þetta gert í anda og stíl Stalíns er rak alla bændur á vergang, drap þar með meira af fólki sínu úr sulti og örbyrgð, en öll heimsstyrjöldin kostaði Rússa. Alræðisvaldið ógurlega er komið til að vera, nema Þjóðin grípi strax til aðgerða. Það er lífsnauðsyn þjóðarinnar að koma í veg fyrir óhæfuverk þjóð-svikaranna er starfa sem strengjabrúður IMF=AGS. En það var að undirlægi IMF=AGS að Jóhanna ætlar sér að troða Ice-slave neyðarsamningunum ofaní kokið á þjóðinni við mikinn fögnuð Breta og Hollendinga.
Slóð í forsíðu HÉR
Ekki meira en 45% skattar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.