Hryðjuverka maðurinn Gordon Gin Brown

Nú er lag syngur liðið á Alþingi, og ekki seinna vænna enda liðleskjurnar á Alþingi verið gjörsamlega vanhæfar í að taka sér eitthvað það fyrir hendur er heitir að verja heiður og eða framgang þjóðarinnar, þingmenn ættu að íhuga það alvarlega að stefna sjálfum sér í leiðinni fyrir getuleysi og ekki má nú gleyma enska vælukjóanum Darling en Fjórtán þingmenn Framsóknarflokksins, Hreyfingarinnar og Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um málshöfðun á hendur breska ríkinu fyrir alþjóðlegum dómstól vegna beitingar hryðjuverkalaga. 

devils-disciple

Gordon á það skilið að vera sóttur með öllum tiltækum ráðum! 

Þingmenn hafa þann starfa að gæta að Íslensku þjóðinni og verja heiður hennar hvað best þeir geta en til þess hafa þeir ekki haft neina nennu hvað þá þá vitsmuni er þarf til sækja til saka eða hafa uppá ómenninu Gordon með handtöku skipun gegnum Interpol er átti að gefa út þá þegar er enskir réðust að tilvist Íslendinga, Það sem Gorndon Brown og hans kumpánar aðhöfðust  var hroðalegt hryðjuverk gagnvart smáþjóðinni Íslandi.

The Icelandic tragedy is human made
Þingmenn og framámenn í stjórnsýslulandsins hafa heldur ekki haft rænu, vilja né þor til þess að ákæra glæpsamlegan gjörning Browns og Darlings til Atlandshafsbandalagsins, aðeins haft uppi hvísl í skúmaskotum þar sem engin hefur heyrt er ekki vildi heyra. Það er þó lítið ljós í allmyrkri Íslands ef þingmenn gerast nú menn og sækja það fast að lögsækja þessa ensku illgjörðarmenn, þá Darling & Gordon.

Ég held nú samt og er nokkuð viss um að hér verður ekkert aðhafst í réttlæti til handa þjóð okkar og hér sé bara en eitt pípið eða gaulið er framgengur á Alþingi.

Fleiri myndir og frétti af svona fólki, eða bara venjulegu fólki er að finna HÉR!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)


mbl.is Vilja höfða mál gegn Bretum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

það er og verður þjóðinni til skammar að hafa svona líð á alþingi því þeir dauðu væru búnir að fara í mál við Breta um leið og hryðjuverkalögin voru sett á íslendinga að vakna núna og sýnir hver leikaraskapurinn er hjá þessu lifandi dauðum þingmönnum...

Jón Sveinsson, 18.11.2010 kl. 18:28

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Eru Íslendingar ekki með svona leyniskyttur sem eyða mænnum sem eru svona leiðinlegir við okkur? Ríksstjórnin þarf að setja upp svona hóp eins og USA er með. Þeir skjóta bara menn erlendis sem ekki vilja semja um eitthvað...og það virðist ganga ágætlega. Mál gegn Bretum? Íslendingar kunna ekkert í alþjóðlegum málaferlum...

Óskar Arnórsson, 20.11.2010 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband