Skotvopnið gert upptækt á grundvelli skotvopnalaga, Voru þetta ný lög samin á staðnum?

Stendur það einhverstaðar í skotvopnalögum að það sé bannað að skjóta Appelsínum?loggan-dolum2Pistol Insect Killer

Lögreglunni í Borgarfirði og Dölum barst í vikunni tilkynning um notkun óvenjulegs skotvopns á bæ einum í héraðinu. Þar höfðu ungir piltar útbúið sér skotvopn þar sem appelsínum var skotið langar leiðir úr plaströri. Skessuhorn greinir frá þessu.

Er þá bara bannað að skjót appelsínum,,, Ég bara spyr sí svona ? þessi er þó ágætt til að skjóta mandarínum nú eða bara vínberjum á velvalin skotmörk...

Fleiri furðulegri-myndir af svona eða bara fólki er að finna HÉR!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 


mbl.is Óvenjulegt skotvopn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll; Einar !

Þú munt vart; geta ýmyndað þér, á hvaða braut Ísland er nú komið.

Ég þori að fullyrða; að hvergi; heimskautanna í millum, sé að finna annað eins samfélag - og orðið er, hér á landi.

Þegar; við vorum að bekkjast, hvor við annan, hér í gamla daga, vissum við þó, að morgundagurinn bæri í skauti sér, einhvers konar tækifæri, fyrir hvern og einn.

En; í dag, kysi maður helzt, að dvelja í grafar þögninni, í Catacombunum, undir Rómar borg, með löngu dauðu fólki (elstu grafirnar; ca. 16 - 1800 ára gamlar, misminni mig ekki), heldur en að rotna lifandi, að óbreyttu, í þessu skrum samfélagi, sem Ísland er orðið.

Og; ég get lofað þér því - að þessi ''frétt'', sem þú vísar hér til, verður alls ekki, sú fáránlegasta, sem þú átt eftir að fregna héðan, sannaðu til.

Með beztu kveðjum; austur til siðmenningarinnar, í Asíu /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.6.2010 kl. 20:05

2 Smámynd: Einar B  Bragason

Þakka Kveðjuna Óskar. já ég er eiginlega orðlaus á ástandinu og þó sérstaklega hvernig stendur á því að fólk lætur þetta viðgangast ? Mér er var svefn samt yfir þessu og löngu ljóst að hér þarf að grípa inní á einhvern máta.. Kv frá Siam.

Einar B Bragason , 29.6.2010 kl. 20:16

3 identicon

Það er nú hægt að gera svona "leikföng" talsvert kraftmikil, og þau geta verið bæði verið varasöm fyrir þá sem eru að leika sér með þau, og þá sem eru í næsta nágrenni,

    hér er smáklippa á you tube af skoti úr svona tæki.

              http://www.youtube.com/watch?v=8UO6lmoN9Ac

 Ég veit hinsvegar ekki hvort skotvopnalögin ná yfir þetta, ef þau gera það þá ættu drengirnir  að geta fengið byssleyfi á apparatið , þegar þeir eru búnir að fara á appelsínubyssnámskeið

Bjössi (IP-tala skráð) 30.6.2010 kl. 03:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband