Þvílikt hneigsli, þvílík frekja, Já svei.....
23.3.2010 | 11:51
Mér er spurn hversvegna í ósköpunum er verið að fljúga með umhverfisráðherra á gosstöðvarnar, konan gerir ekki greinar mun á gosi úr ölflösku eða gosi úr iðrum jarðar, slíkt er gáfnafar ráðherra, hvers vegna á íslenska þjóðin að borga fyrir þessa auka þyngd í vélina þegar gæslan á ekki fyrir daglegum rekstri, mér er spurn geta ráðherrar pantað sér sí svona eitt stk útsýnisflug eftir löngun og sent reikninginn á þjóðina ?
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar flaug yfir gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi í gær þar sem aðstæður á svæðinu voru bornar saman við fyrri mælingar eftirlits og leitarratsjár flugvélarinnar.
Með í för voru vísindamenn en einnig Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins sem og Guðmundur Guðmundsson upplýsingafulltrúi, Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Þórunn Hafstein, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu.
Ekkert af þessu fólki hafði neina nauðsyn eða þörf á að fara í skemmti ferð á kostnað Íslensku þjóðarinnar hvað þá að eyða fjármunum frá sveltandi landhelgisgæslu okkar.
Það er nú þannig að hver flogin kílómeter, (míla) kostar sitt á kíló og það á ekki að vera fylla vélar gæslunnar af mis fyrirferða miklu fólki er hefur truflandi áhrif á störf vísindamanna sem og gæsluliða um borð.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, á ekkert inni hjá Landhelgisgæslunni enda einn þeirra ráðherra er hvað hatramast berst gegn framförum, hvað þá að hún hafi nokkurn skilning á þörfum gæslunnar eða búnaði hennar, hún er ekki sá aðili er vill veg Landhelgisgæslunnar sem mestan og er langur vegur þar frá.
Goggi (Georg Kr. Lárusson) verður að leggja blátt bann á gesti og gangandi og þá sérlega á puttaferalanga ráðuneyta er vilja sníkja sér útsýnisflug, að öðrum kosti verður Georg að setja á hátt gjald til borgunar á þeim kostnaði er auka kílóin valda gæslunni.
Landhelgisgæslan á ekki að bera kostnað af blýant nögurum sem í skjóli stofnanna eða embætta krefjast þess að fara í útkíkk, þar skulu misþungir ráðherrar ekki vera undanskyldir.
Þetta var einstök upplifun, sagði Svandís Svavarsdóttir að loknu flugi með landhelgisgæslunni. Þetta var sem sagt skemmti ferð hjá ráðherra á kostnað skattborgara!
Það er að vísu skiljanlegt að gæslan vilji umfjöllun, enda rær stofnunin lífróður í að ná skilningi ráðamanna á nauðsyn þess að fá að halda búnaði sínum, það er ekki svo langt síðan að einhverjum ráðleysis ráða manninum datt það snjallræði í hug að skila flugvél gæslunnar, það var sem betur fer ekki hægt og ákváðu þá lít greindir ráðamenn að leita eftir sölu á vélinni, því lík heimska að manni verður orðvant.
Vélin er þjóðinni bráð nauðsynleg og sannar gildi sitt með hverju því verkefni er lagt er fyrir hana, þá er hún algjört tækniundur er kemur að leit og björgun, menn einfaldlega selja ekki frá sér björgunar hringinn eða öryggi sitt, öll umræða um slíkt er heimskra manna tal.
Að sögn vísindamanna hefur tækjabúnaður flugvélar Landhelgisgæslunnar haft gífurlega mikið að segja til að greina umfang og eðli eldsumbrotanna.
Það er því ljóst að Georg Kr. Lárusson verður einfaldlega að fá þann skilning og það fé er sæmir rekstri Landhelgisgæslunnar, en til þess að svo megi verða þarf að skipta um ráðamenn í landinu, hvað þá ef frú Katla fer að yggla sig þá þarf fólk með bein í nefinu og vitræna getu til stjórnunnar á landi okkar og þjóð, landið okkar og stjórnkerfi er löngu komið að niðurlotum vegna ruglingslegra aðgerða og aðgerðaleysis sitjandi stjórnvalda er engan vegin valda starfi sínu.
Líf og framtíð þjóðarinnar veltur á því að efnt verði til kosninga nú þegar!
Bendi á aðra grein máli mínu til stuðnings HÉR!
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Umhverfismál, Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 15:53 | Facebook
Athugasemdir
Fáir ráðherrar eru meiri baráttumenn fyrir nýjungum en Svandís Svavarsdóttir. Þú ert hinsvegar í hópi þeirra fjölmörgu sem sátu eftir fyrir 40 árum þegar álbræðsla taldist til framfara á Íslandi.
Allar siðaðar þjóðir hafa fyrir löngu ákveðið að bægja málmbræðslu frá nýtingu vistvænnar orku.
En þú getur huggað þig við að þú átt marga jábræður í þínum akademiska framfaraheimi!
Árni Gunnarsson, 23.3.2010 kl. 12:26
Það var OG...
Einar B Bragason , 23.3.2010 kl. 12:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.