Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Þvílikt hneigsli, þvílík frekja, Já svei.....

Mér er spurn hversvegna í ósköpunum er verið að fljúga með umhverfisráðherra á gosstöðvarnar, konan gerir ekki greinar mun á gosi úr ölflösku eða gosi úr iðrum jarðar, slíkt er gáfnafar ráðherra, hvers vegna á íslenska þjóðin að borga fyrir þessa auka þyngd í vélina þegar gæslan á ekki fyrir daglegum rekstri, mér er spurn geta ráðherrar pantað sér sí svona eitt stk útsýnisflug eftir löngun og sent reikninginn á þjóðina ?

Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar flaug yfir gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi í gær þar sem aðstæður á svæðinu voru bornar saman við fyrri mælingar eftirlits og leitarratsjár flugvélarinnar.

Með í för voru vísindamenn en einnig Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins sem og Guðmundur Guðmundsson upplýsingafulltrúi, Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Þórunn Hafstein, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu.

Gos-bullur-í-flugferð

Ekkert af þessu fólki hafði neina nauðsyn eða þörf á að fara í skemmti ferð á kostnað Íslensku þjóðarinnar hvað þá að eyða fjármunum frá sveltandi landhelgisgæslu okkar.

Sif

Það er nú þannig að hver flogin kílómeter, (míla) kostar sitt á kíló og það á ekki að vera fylla vélar gæslunnar af mis fyrirferða miklu fólki er hefur truflandi áhrif á störf vísindamanna sem og gæsluliða um borð.

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, á ekkert inni hjá Landhelgisgæslunni enda einn þeirra ráðherra er hvað hatramast berst gegn framförum, hvað þá að hún hafi nokkurn skilning á þörfum gæslunnar eða búnaði hennar, hún er ekki sá aðili er vill veg Landhelgisgæslunnar sem mestan og er langur vegur þar frá.

Goggi (Georg Kr. Lárusson) verður að leggja blátt bann á gesti og gangandi og þá sérlega á puttaferalanga ráðuneyta er vilja sníkja sér útsýnisflug, að öðrum kosti verður Georg að setja á hátt gjald til borgunar á þeim kostnaði er auka kílóin valda gæslunni.

Landhelgisgæslan á ekki að bera kostnað af blýant nögurum sem í skjóli stofnanna eða embætta krefjast þess að fara í útkíkk, þar skulu misþungir ráðherrar ekki vera undanskyldir.

Svandis-Svavarsdottir-umhverfisradherra

„Þetta var einstök upplifun,“ sagði Svandís Svavarsdóttir að loknu flugi með landhelgisgæslunni. Þetta var sem sagt skemmti ferð hjá ráðherra á kostnað skattborgara!

Það er að vísu skiljanlegt að gæslan vilji umfjöllun, enda rær stofnunin lífróður í að ná skilningi ráðamanna á nauðsyn þess að fá að halda búnaði sínum, það er ekki svo langt síðan að einhverjum ráðleysis ráða manninum datt það snjallræði í hug að skila flugvél gæslunnar, það var sem betur fer ekki hægt og ákváðu þá lít greindir ráðamenn að leita eftir sölu á vélinni, því lík heimska að manni verður orðvant.

Vélin er þjóðinni bráð nauðsynleg og sannar gildi sitt með hverju því verkefni er lagt er fyrir hana, þá er hún algjört tækniundur er kemur að leit og björgun, menn einfaldlega selja ekki frá sér björgunar hringinn eða öryggi sitt, öll umræða um slíkt er heimskra manna tal.

Að sögn vísindamanna hefur tækjabúnaður flugvélar Landhelgisgæslunnar haft gífurlega mikið að segja til að greina umfang og eðli eldsumbrotanna.

imagesCAGGDEPAÞað er því ljóst að Georg Kr. Lárusson verður einfaldlega að fá þann skilning og það fé er sæmir rekstri Landhelgisgæslunnar, en til þess að svo megi verða þarf að skipta um ráðamenn í landinu, hvað þá ef frú Katla fer að yggla sig þá þarf fólk með bein í nefinu og vitræna getu til stjórnunnar á landi okkar og þjóð, landið okkar og stjórnkerfi er löngu komið að niðurlotum vegna ruglingslegra aðgerða og aðgerðaleysis sitjandi stjórnvalda er engan vegin valda starfi sínu.

Líf og framtíð þjóðarinnar veltur á því að efnt verði til kosninga nú þegar!

Bendi á aðra grein máli mínu til stuðnings HÉR!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)


Al Gore mokar snjó um víða veröld!

alÆtli það séu ekki ófáir er spá í það hvað Al Gore er að gera þessa dagana, hann skyldi þó ekki vera að moka snjó kalinn.

The holy crap: Al Gore er jú einn að þessum vitgrönnu mönnum er étur upp delluna er vellur útúr tanngarði fólks er allt þykkist vita, t.d. eins og það að Jörðin sé að farast úr hita, hver man ekki gáfurnar er hann sýndi sem varaforseti árin 1993 til 2001. 

Þar hélt maður hreinlega að maðurinn væri bara grínari, en því miður var ekki svo, heldur var þar á ferð aumur kjánaskapur.

Iceland_satellite-mini
Hvað um það, en nú kemur það í ljós að líklegast sé jörðin bara í sínum hefðbundnu hita og kulda sveiflum, og nú að fara inn í kulda sveiflu, við taki allt að 30ára kulda tíð með snjó um allar jarðir og skíðafæri í Hveradölum enda snjóar og snjóar um víða veröld.
Og Al Gore segir bara sí svona: Do Winter What Happend ?
winter-really-sucks-al-gore

Nú þegar ofurviktin (óviktuð)  í umhverfisráðuneytinu er búin að gaspra úr sér vitið, að hætti Al Gore, væri henni umhverfisradherranær að fara fram á það við bangsa pabba Steingrím J. að fella niður þessa ansk.. kolvetnis skatta, þannig að fjölskyldur geti ekið milli húsa og skutlað börnum sínum í skóla í vondum veðrum, kynnt bíla sína sæmilega og húsakynni, hvað þá þennan okur skatt á rafmagn er Vinstri Glærir hafa einnig troðið uppá þjóðina, þannig að nú getur hún ekki lesið við rafljós lengur, hvað þá stautað í rauða kverinu, handbók VG. Þetta sýnir berlega að viskubrunnur Vinstri Æringja er gjörsamlega tómur og allt sem frá þeim kemur er tóm skattlögð tjara...

Það er ljóst að Al Gore verður að skila Nobel verðlaununum ásamt öðrum er hann gorefékk fyrir ósanninda áróðurs vinnu sína vegna hitnunar jarðar árið 2007.

Það er vonandi að hann verði dæmdur til þegnskyldu vinnu á snjóskóflu fyrirgore_snowstorm lygaþvæluna er hann bar á borð fyrir saklaust fólk út um allan heim. 

Þetta fólk situr nú í skíta kulda og á ekki fyrir ofurskatt lögðum orkugjöfum til að veita sér yl. 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)

Greinin er endur birt vegna veðurs!


mbl.is Fólk hvatt til að ganga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband