Steingrímur Jóhann Sigfússon heimtar afsökun!?

Hvernig stendur á því að ekki er skipt um yfirmenn í hinum ýmsu stofnunum kerfissins er komu að hruni bankanna? Það er athyglisvert að en starfar mikið til sama fólkið við stjórn Íslenska hagkerfisins og var hjá  bönkunum og innraeftirlitinu fyrir hrun? Hvað veldur mér er spurn?

Hvernig stendur á því að Steingrímur Jóhann Sigfússon leyfir sér að senda óhæfan vínanda til alvarlegra samninga gerðar fyrir þjóðina, vínanda með enga reynslu né getu til eins né neins, nema það vera prumphænsni fyrir snobbið í Skandinavíu? Hvers vegna lokaði Steingrímur á alla þá hjálp mætra manna og sérfræðinga er stóð í boði ? Hvað veldur slíkum hrossabrestum hjá Steingrími ?

sorry

Hér er nauðsynlegt að Steingrímur Jóhann Sigfússon dragi hausinn úr sínum sandkassa og biðji þegna þessa lands afsökunar á gjörðum sínum ! steingrimur-med-hausin-i-sandi

Hinum skal refsa og gera eigna lausa, það er nefnilega svo að þjófar þola það engan vegin að þeim sé gengið og (eigur þeirra) þjófstolnar gerðar upptækar. Það er versta refsingin fyrir þá að taka af þeim fenginn.

Ég bíð eftir afsökun frá fyrri sem og núverandi ríkisstjórn á vinnubrögðum eða öllu heldur vinnubragðaleysi, hvað þá þeirri stjórn er nú situr og matar almenning á eigin sannleika í Icesave málinu, sér í lagi öllu því pukri og óheillindum er fylgt hefur því ógæfumáli.

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Bíður eftir afsökunarbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Judas Iscariot hinn Íslenski hrossabrestur.

Menn fara ekki var hluta af því í fréttum hverskonar fljótfærnisvinnubrögð voru viðhöfð af hendi samningarnefndar Íslands og þá eina helst Svavari Gestsyni, haft var eftir honum sjálfum að hann ætlaði að haska þessum af því hann nennti ekki að hafa þetta hangandi yfir sér í sumarfríi sínu, getur þetta verið rétt að mann auminginn hafi hent þjóðinni fyrir úlfa og krotað nafn sitt undir óhæfuna, skálandi að lokum við Breta og Hollendinga? Því trúi ég bara ekki, að nokkur maður geti verið svo heimskur að svíkja þjóð sína á slíkan hátt. Það er bara einn til verri í sögunni og hann var nemdur Judas Iscariot. Nú virðis komið svo að Íslenska þjóðin hafi eignast sinn eigin Judas Iscariot !
Judas Iscariot
Þá segir fjármálaráðherra Steingrímur Jóhann Sigurðsson að það ekki hafa verið mistök að láta Svavar Gestsson leiða Icesave samningarnefndina, í stað þess að fá erlendan sérfræðinga í verkið, og hælir flokks bróðir Svavari í há stert! Mennirnir eru gjör sneyddir allri sóma kennd og má þá skilja örvæntingu þeirra við að fela óhæfu plaggið fyrir þjóðinni. Það er dapurleg tilfinning að þessir menn telji sig vinna Íslandi gagn, það er gott ef menn geta logið en að geta logið svo að sjálfum sér er ótrúlegt, sveiattann á ykkur þvílík er hneisan. Nú er svo komið að það lítur út fyrir að allir þingmenn VG muni samþykkja frumvarpið á Alþingi. Hvernig er hægt að ofurselja sig svona lyginni ? Okkar stolta þjóð með allan sinn vilja getur ekki ráðið við nýðings plaggið breyt eða óbreyt, það er flestum Íslendingum full ljóst.

Eftir situr svo spurningin um hvað var Svavar Gestsson eiginlega að hugsa er hann páraði nafn sitt undir aftöku á Íslenskuþjóðinni?

Nafn þessa manns er leiddi íslensku samningarnefndina og sveik þjóð sína, verður ávalt í mynni barna Íslands, eða svo lengi sem Íslandsbyggð stendur!
 
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Full samstaða um Icesave í VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg Jóhanna !

Við áhorf á frétti RÚV fékk ég hreinlega hland fyrir hjartað eða þannig. Nú  lítur út fyrir að það hafi aldrei verið annar vilji Jóhönnu en að setja fyrirvara og varnagla á Icesave samningana, vei lygum þessara konu. Nú segist hún allt að því Lilju kveðið hafa, en ekki ætlað sér að lauma óskoðuðum nauðarsamningum í gegnum þingið óséðum, Það veit hvert manns barn þjóðarinnar, að það þurfti að handtoga hvert plagið á eftir öðru upp úr leyndó skúffu kerlingar og sennilega ekki öll kurl komin í ljós enn. Forsetisráðherra heldur greinilega að þjóðin, saman standi af eintómum börnum og eða vanvitum, er ljúga má öllum fjandanum að. En segja má að þarna hafi spádómur Sæmundar komið fram! Jóhanna Sigurðardóttir tók hreinlega í höndina á sjálfri sér og þakkaði sjálfri sér pent fyrir og það í beinniútsendingu! Ef þetta er ekki heimsmet í hræsni veit ég ekki hvað er...

svinslegtedli

Ég velti oft fyrir mér hvað gerir fólk svínslegt í sér ?

Kannski Steingrímur fást til að svara því ?

Þá trúi ég engu um þessa svo kölluðu fyrirvara sem fulltrúar allra flokka nema framsóknarflokksins í fjárlaganefnd samþykktu og eiga að tryggja að greiðslur vegna Icesave verði ekki of íþyngjandi fyrir þjóðina, tómt bull að mínu hyggju viti eingöngu gert til að slá ryki í augu almennings.

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Hagvöxtur stýri greiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin svikin í hendur örbyrgðar ! Hver er svikarinn á myndinni?

Þegar svik starfandi Ríkisstjórnar koma í ljós, sér þjóðin að verkin er starfandi stjórn framdi eru ófyrirgefanlega! Nú þegar er búið að binda þjóðina á klafa og  hún ræður engan vegin við greiðslurnar, þá mun þjóðin rísa upp og dómstóll götunar tekur við. Þá mun þetta landráða fólk biðja guð að hjálpa sér. Það er ljóst að á Ísland er ekkert framundan nema sultarólina og aftur hvarf í moldarkofan. Það mun Steingrími hugnast afar vel ! Það er einnig með ólíkindum að það þurfi langa og erfiða fundi til að ná fram einhverri glætu í þennan óhæfusamning þessa fólks er situr á sínu breiðu rössum í konungshúsi við Austurvöll, það er furðulegt nokk, að þetta er fólkið er á að gæta hagsmuna þjóðarinnar, en gerir allt annað og liggur á bakinu fyrir Breta skömmina sem og Hollendinga. Heimurinn er loksins að átta sig á nauðungar gjörnað Breta og Hollendinga gagnvart Íslendingum, hann sér líka undirlægju hátt Íslensku ríkisstjórnarinnar og skítlegt eðli Jóhönnu um að setja land okkar og stjórnartauma undir Evrópuvaldið, með þeim skítlegaklút lemur hún þingið áfram með lygum og hótunum, við þjóð sína segir hún bara ósatt enda telur hún þjóð sína börn!

Svikarinn

Meira segja Andrew Hill segir í Financial Times í dag að "Bretar hafi beitt Íslendinga hörku, eitthvað sem þeir hefðu aldrei gert gagnvart stóru ríki" ekki nema von að Andrew Hill segi þetta hann veit að Bretar eru gungur og leyni plottarar upp til hópa, þess ber en merki t.d. á Arabíuskaganum og í suðaustur Asíu. Og nú er það örríkið Ísland er verður fyrir barðinu á plottinu með digri hjálp sitjandi stórnar.

Ég segi svei þér Jóhanna Sigurðardóttir þinn tími mun koma, já til þess að svar til saka þinna og þíns meðreiðarsveins!

Megi Gordon Brown svelgjast illilega á tungu sinni og gjörðum, fari Maxime Verhagen sömuleið !

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is FT: Ábyrgðin sameiginleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt Líf og Nýr formaður Borgarahreyfingarinnar!

Var ekki einhver þáttur í sjónvarpinu í denn er hét borgarættin ?

Hvað um það, hér má sjá Þór Saari þingmann Borgar afhenda Baldvin Jónssyni Borgara lykilinn. Sennilega má greina nokkurn trega hjá þingmanninum ef grannt er skoðað, eða var það gleði ?

formadur-borgara1

Er nú Baldvin lang hæstur borgara!

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Nýr formaður Borgarahreyfingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þráinn Bertelsson kýs nýtt þingmannslíf !

Þráinn Bertelsson vill í dag kveðja sitt borgara líf , enda leggur hann stund á flokka líf, þar sem hann hugsar mikið um sitt þingmanns líf. Nú hugsar hann eingöngu um lyga líf og hefur enga nennu til að sjá rógbera líf skrifað um sitt heilsu líf, honum líkar heldur ekki svona sögu líf, þolir það ekki fyrir sitt litla líf. Hann vill ekkert tal um sitt geð líf, hvað þá hans heila líf, hann vill sækja sitt mann líf og muna líf í dómara líf. Þráinn mun sækj fjármagn í launa líf, enda með tvöfalt greiðslu líf, ekki slæmt er ríkir kreppu líf ! Hann fær laun fyrir sitt listamanna líf og laun fyrir sitt þingmanns líf, hann á jú bara eitt líf en dreymir drauma um níu líf. Þráinn Bertelsson dreymir þá um forseta líf, sem ku ekki vera neitt slor líf.

Borgaralif

Þráinn Bertelsson á ekki að stunda ervitt líf og láta hirð líf vera. 
Ég bendi honum á hið ljúfa líf sem og gott fjalla líf.
Má Þráinn Bertelsson eiga eilíft líf ! 

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Þráinn segir sig úr þingflokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú lífið liggur við og meira til ! Og hvað með það að Icesave ógnar ESB-aðild, GOTT!

Ég á mér draum að gerður verði sanngjarn Icesave-samningur sem þjóðin geti staðið við. Hitt er svo annað mál Ísland á ekki að borga krónu, Bretar misstu þann rétt ef nokkur var með setningu hryðjuverkalaganna og Hollendingar fyrir eigin óstjórn á peningamálum, enda fylgjast þeir ekki með hvað hægrihendi þeirra gerir við þá vinstri, þeir geta sjálfir sér um kennt en reyna eins og lítilmennið að klína þessu á þann er minnstur er og minnst hefur getuna til varnaðar, sem sagt þeir eru einfaldir eineltis SVÍN er kenna öðrum um eigin ófarir.  

island-sveltir-g

Eins og sjá má í greininni hér fyrir neðan um Aung San Suu kyi þá gera Bretar ekkert fyrir einn né neinn enda dusilmenni þeir arðrændu Bruma og skyldu nýlendu sína eftir í höndum voðamanna ! Gera síðan ekkert til hjálpar fólkinu er þeir rændu og settu í ánauð. Það var annað uppá teningnum er Argentína skrapp í heimsókn á sínar eigin eyjar er Bretar nemdu Falklands eyjar hvernig sem í ósköpunum Bretar fengu það út að þeir ættu eyjar uppí landsteinum Argentínu, það veit ekki einu sinni Páfinn í Róm, og nú hafði Argentína gert sér lítið fyrir og heimsótt nokkrar breskar rollur á eyjaklasa sínum Malvinas er Bretar höfðu komið þar fyrir í Argentínsku fæði og það í óþökk Argentínumanna. Bretar urðu svo hissa, að þeir ruku upp til handa og fóta með fullu herútboði og sendu heri sína þvert yfir jarðarkringluna, því ekki mátti það verða að bresk jarmandi ær gætu lent í læri til spænsku hjá Argentínumönnum, í þetta eyddu þeir ómældu fé og mannslífum, já það er greinilega gott að vera Bresk rolla. Bretar virðast hafa mikla þörf fyrir að kúa smáþjóðir, tölum nú ekki um örþjóðir eins og Íslensku þjóðina er lét þá kenna te vatnsins í þorskastríðum okkar, en hér höfðu Bretar stundað rányrkju um aldir og töldu sig hafa rétt til þessa að murka lífið úr þorskstofnum okkar! Já miklir menn eru Bretar og Hollenskir nýlendu arðræningjar. Það sem fyrir liggur er ekki bara vatnið okkar og orkan né olían, það má ekki gleyma norður siglingar leiðinni er ísinn opnast yfir pólinn, þar með eykst hernaðar mikilvægi sem og viðskiptaleg lega Íslands sem aldrei fyrr!

  Í upphafi skal endinn skoða. Megi Ísland eiga góða helgi !

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !

Slóð í myndbanda síðu: HÉR 


mbl.is Icesave ógnar ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má Össur vera að því að senda eitt eða tvö gelt ?!

Aung_San_Suu_KyiAung San Suu kyi var í morgun dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir að gerast brotleg við skilmála fyrri dóms. Hvernig gat konan gerst brotleg mér er spurn, en það var bilaður Bandaríkjamaður John William Yettaw er tókst að synda yfir vatn í nágreni við heimili  Suu kyi og var hún gerð ábyrg fyrir því maðurinn mætti holdvotur heim til hennar þar sem hún sat í stofufangelsi. Þetta kemur sér ákaflega vel fyrir ógnarstjórnherforingja í Burma (Myanmar), þar sem nú getur Suu kyi ekki tekið þátt eða látið aðsér kveða í næstkomandi kosningum er flestir telja sýndarmennsku eina. Það er komin tími á að Þjóðir heims láti í sér heyra og mótmæli við böðlanna í Burma. Aung San Suu kyi er orðin 64ára gömul og ekki víst að hún þoli þetta öllu lengur enda verið veik undanfarið. 

Það er ekki nóg fyrir böðlana í Bruma að dæma Suu kyi í fangelsi heldur hafa þeir einnig sett lög um að ríkisborgarar Burma geti ekki gengt opinberum embættum ef þeir hafi sofið hjá eða eignast börn með útlendingum, en Suu kyi er gift breskum manni og á með honum tvo syni. Það þýðir að hún getur ekki boðið sig fram til embættis í Burma. 

Evrópusambandið hefur fordæmt dóminn og krafist lausnar Suu Kyi, en afhest ekkert að frekar en fyrriSuu Kyidaginn, Usa prumpar uppi í vindinn og Thailand hristir hausinn og gerir ekkert frekar en fyrri daginn enda hefur Thailand ekki aðstoðað þegna Burma að neinu marki, heldur snúið heim þeim flótta mönnum er koma yfir landamærin. Sennilega vegna viðskipta á Olíu og fl..

Viðtökur á þeim flótta mönnum er heim er snúið eru ekki glæsilegar en konum er nauðgað af hermönnum og margur karlinn hreinlega myrtur. Heiminum er hreinlega skítsama að því er virðist eins og honum var í sambandi við hörmungarnar í Cambodiu.

Hvað þarf til til að Þjóðir heims hlutist til um aðgerðir vegna ástandsins í Burma, það virtist ekki vera nóg að þeir börðu og drápu Budda munka landsins, lokuðu leiðtoga stjórnarandstöðunnar Aung San Suu Kyi og friðarverðlaunahafi Nóbels í tug ára fangelsi.

aÞað er skylda Íslenskra stjórnvalda sem og annarra þjóða að láta heyra í sér og mótmæla kröftuglega helst ætti að beita ógnarstjórnina hörðum viðskiptaþvingununum, það mun ekki koma niður á almenningi í Burma, hann hefur ekkert fyrir! Landið var lengi eitt ríkasta land Suðaustur Asíu eða áður en kommúnistar tóku við stjórnartaumum landsins. Burm var og er stór útflytjandi hrísgrjónum, Olíu, Gasi, Eðalsteinum og viði, þá helst tekki (Teak) en þeir flytja út 75% af öllu tekki er notað er í heiminum. Þá rennur allur þjóðarauður Burma í vasa örfárra herforingjana, en þjóðin á vart til hnífs né skeiðar. Það er mál að eitthvað verði að gert!

Hann er stórskrítinn þessi heimur þegar t.d. Bretar berja á örþjóð út í ballarhafi, en sinna ekki fyrrverandi nýlendu sinni í Asíu er þeir rændu og rupluðu, fólkið skiptir þá engu er þar býr! Semsagt þeir gefa ekkert nema skítinn úr sjálfum sér til annar eins og þeir gerðu við Brasilíu er þeir sendu þeim farma af úrgangi sínum, þannig eru Bretar, bara hreint út sagt hyski! Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, segist bæði vera reiður og sorgmæddur yfir dómnum, því trú ég ekki frekar en öðru er útur þeim kjafti hrinur ! Orð á borði engar aðgerðir !!!

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR 

mbl.is Hörð viðbrögð við dómi yfir Suu Kyi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á hvaða lyfjum er Jóhanna Sigurðardóttir, mér er spurn?

Er þessi kona ekkert að taka sönsum? Hvernig stendur á því að henni er svona mikill akkur í að knésetja þjóð okkar og koma henni undir erlenda stjórn. Hvernig getur hún endalaust logið að sjálfri sér og þjóðinni í sömu setningunni? "Það er ekki öll nótt úti enn," sagði Jóhanna, veit hún ekki að hennar nótt er löngu liðin. Burt með þetta þvaður og allt hennar pakk!

alfur3
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR 

mbl.is Ekki öll nótt úti enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nenni ekki að vera hristur fyrir að vera Íslendingur erlendis !

Skrapp á töltið, röltið og hitti breskan slána er spurði mig hvaðan ég kæmi, ég eins og álfur sagði frágin-i-toniklandi þar sem við hendum tómum gordon gin kútum á snúrur til brúks á tulipaniÍslenskum landa. Ég fékk einn good morning, ok var ekkert að æsa mig yfir því enda ekkert tonig með og hélt áfram að ganga minn veg, enda allt annar Einar.. Hitti ég ekki fyrir Túlibana all háværan og bað hann um að lækka röddina, banin-n gjörsamlega trillist er hann sá bolinn er ég var í með Íslensku flagi og braut bjór flösku á hausnum á mér, ég hafði eitthvert orð um að hann væri viðundur í Asíu drekkandi piss bjór og það Hæni-gena-lausan. Þá þurfti ég endilega að varpa því út úr mér að ég myndi aldrei ganga í hollenskum klossum fyrir blómálfa "HELDU AÐEINS NOTA FINSKA gúmmískó,,. kallinn trompaðist og ég 3 tíma í bið spítala + saumaskap, argg, ég nú gleraugna laus. Þá er bara að skreppa og kaupa bónus á nefið til að sjá djásnið er ég þarf að vinda... Mikið ánægður með sjálfan mig að geta hresst svona upp á lífið án þess að slasa þá, eða þeir mig alvalega ! Myndin er eingöngu ósk um að hann verði hengdur til þerris! Hinn asninn er fjármálaráðherra túlibana.. Mæli svo með að við förum í víking og tökum tappann úr niðurfalli niðurlands eða þannig...

sé ekki alveg hvað ég skrifa svona gluggalaus þannig bara líta framhjá því :)

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR 

mbl.is Bretar bjóða aðstoð við rannsókn á bankahruni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband