En reynir Steingrímur að slá ryki í augu þjóðarinnar !

Það að ríkisstjórnin ætlar sér að skipa starfshóp til að undirbúa skaðabótamál á hendur þeim sem ollu almenningi fjárhagstjóni í aðdraganda bankahrunsins er tómt bull þar að segja skipun nefndar eða starfshóp gerir hann sjálfsagt eða hefur framkvæmt en það að hann geri síðan eitthvað er fyrra! Steingrímur Jóhann mun aldrei bíta nær þeim er hafa fætt hann og styrkt til þess er samheldni skúrkana of mikil.

kann-ekki-ad-segja-satt

Steingrímur Jóhann hefur hvað eftir annað á stuttum ríkistjórnar ferli sínum á samt Jóhönnu Sigurðardóttir verið staðin að ósannsögli og að hagræða sannleikanum, tæpitungulaust farið með lygar! Það er mér mikil undrun hvernig þjóðin getur látið þetta viðgangast dag eftir dag, viku eftir viku að ráðamenn þjóðarinnar fari með blekkingum og lygum á hendur þjóðinni er þeir eiga að gæta, Steingrímur Jóhann t.d. greiðir atkvæði sín í því hlutfalli er veitir honum sem lengsta setu í ráðherra stóli, hann greiðir ekki atkvæði sín eftir sinn sannfæringu né betri vitund. Þetta hefur allt komið fram í fjölmiðlum sem og hefur hann sagt sjálfur frá, eins og frægt er orðið með atkvæðagreiðslu hans í ESB málinu, en þar segir sannleiks kappinn að hann hefði greitt atkvæði á móti aðildarumsókn ef hann hefði verið í stjórnarandstöðu! "Skaðabótamál ríkisins gegn þeim sem kunna að hafa valdið ríkinu og almenningi í landinu fjárhagslegu tjóni í aðdraganda bankahrunsins, snúast ekki aðeins um að greiddar verði bætur - heldur að réttlætinu sé fullnægt." segir Steingrímur Jóhann, réttlætið snýst ekki síður um það að ráðamenn þjóðarinnar segi satt við þjóð sína !

Það er mál að þjóðin hugsi til þess að þvo lygamarðarkjaft Steingríms með grænsápu og það uppá Íslenskan,  engin verði þau vettlingatökin þar... 

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Höfða einkamál gegn hrunfólkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stal bara 180.000 kr. úr gjaldkerakassa bankans.

Og hvað með það, hversvegna ætti að birta um þetta frétt, nema þá vegna þess að nú liggur það fyrir þjófinum að verða dröslað á Bessastaði þar sem hann verður orðlagður að hætti húsbónda útrásarvíkinga, með tilheyrandi lófataki. Umræddur (þjófur) er þó í nokkrum vanda staddur, hann getur varla flokkast undir útrásarvíking né innrásarvíking, enda bara staddur á staðnum er hendi hans hrasaði (óvart) ofaní skúffu bankagjaldkera !

dont-steal2 

Þá er það stóra spurningin, hvar var gjaldkerinn og af hverju var skúffan opinn, aldrei hef ég séð gjaldkera yfirgefa sjóð sinn ólæstan. Þessi banka (ræningi) gerði ekkert af sér, annað en það að hann stal smáaurum eða öllu heldur lánaði sjálfum sér að hætti bankastjóra, enda lærir þjóðin það er fyrir henni er haft! Þá er það viðtekin venja að heiðra svona mikla garpa sér í lagi ef upphæðin hefði verið hærri þá væri (þjófi) klappað á öxlina og boðið til veislu, enda var þetta næstum því tær snilld að hætti Sigurjóns Þ. Árnasonar Icesave-stjóra Landsbankans!

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Stal 180.000 úr gjaldkerakassa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðu frétt ! Sykurskortur í Indlandi ??

Merkileg frétt þetta:

"Mikill skortur er á sykurbirgðum á Indlandi og í Pakistan. Verð hafa hækkað upp úr öllu valdi og er almenningur farinn að ókyrrast mjög. Indversk stjórnvöld hafa gripið til þess ráðs að takmarka það mjög hvað fyrirtæki geti safnað miklum birgðum af sykri".

"Fram kemur í einu dagblaði í landinu að birgðirnar í landinu hafi dregist saman um 4,5 tonn. Það dugi aðeins í tvo mánuði í landinu". 

sykur

Er ekki eitthvað mikið rangt við þessa frétt ? Indland er annað fjölmennasta land jarðarinnar og  Þar býr rétt yfir einn milljarður manna. Þannig ég spyr hvað hefur samdráttur uppá 4,5 tonn að segja um sykur skort í Indlandi ? Ef meðal sykur neysla á Íslandi er nær kílói eða tæplega 850 g á íbúa á viku !

Ég bara spyr...

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Mikill sykurskortur í Suður-Asíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnvöld blekktu þjóðina vísvitandi!

Staðreyndir um Icesave samninginn og framvinda málsins. Lygin ríður ekki við einteyming!
Það er greinilega eitthvað mikið að í kolli þessa fólks er veður á skítugum skónum yfir samlanda sína með lygum og bellibrögðum, ef til væri snefill af sóma tilfinningu í þessu pari, þá ætti það að að segja af sér nú þegar ! Þjóðin hefur aldrei þurft að búa við aðra eins ómerkinga sem og lyga merði sem Steingrímur ærulausi og ósanninda konan Jóhanna Sigurðardóttir eru, að ekki sé nú minnst á  hrossabrestinn Svavar Gestsson, þann mann á með sönnu að dæma fyrir landráð, þar sem hann hafði ekki nennu til að sinna vanda og örlögum þjóðar sinnar á ögurstundu.
Aldrei í sögu þjóðarinnar hefur annað eins lítilmenni farið fram fyrir hönd Íslands, með jafn skelfilegum afleiðingum!
hrossabresturinn
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Ríkisábyrgðin falli niður 2024
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis "Vítaverð"

Það má sanni teljast að Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis vakti sérstaka athygli erbjollusaudur hún ávítti Tryggva Þórs Herbertssonar fyrir að nota orðið vítavert, hvað fimmta varaforseta gengur til er mér með öllu óljóst ? Er fimmti varaforseti að vekja á sér athygli á kostnað Tryggva Þórs Herbertssonar eða fór hún vitlaust fram úr rúmi sínu? Hvað á maður að halda konan varð sér til skammar og það sem verra er þinginu til leiðinda. Til setu sem forseti þingsins verður að veljast fólk er veldur starfanum, ekki bjöllusauðir er klingja í sífellu eftir lundarfari sínu þennan daginn eða hinn, þingi og þjóð til ama. Þetta á jafnt við alla forseta þingsins, þann fyrsta sem og þann FIMMTA!

Í fróðlegri athugun Eyjunnar í ræðusafni Alþingis á netinu, sem nær til ársins 1974, leiðir í ljós að þingmenn hafa notað orðið ‘vítavert’ 160 sinnum á þessu tímabili. Hefur það sjaldnast verið gert í tengslum við umræður um áminningar og þingvíti, heldur oftast í almennum ræðum um einstök mál. Þá hefur orðið verið notað um 40 sinnum í þingskjölum á sama tímabili. Dæmunum fjölgar ef ýmsar beygingarmyndir orðsins, svo sem ‘vítaverður’ og ‘vítaverðar’ eru einnig taldar með.

Sjá má slóð í upptökur af framferði Álfheiðar Ingadóttur fimmta varaforseta Alþingis HÉR!

Skyldi þetta hafi verið skítlegteðli eða er eitthvað annað hér að baki?

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

'


Það á ekki af forseta vorum að ganga er hann skreppur á bak.

Ólafur virðist þeim ósköpum gæddur að geta ekki hangið á baki svo vel sé, ég veit þó ekkert hvernig hann ber sig að, eða hvernig reiðmaður Ólafur Ragnar er. Þetta glæsilega fall bar að með svipuðum hætti og fyrir 10 árum þegar Dorrit hlúði að manni sínum eins og nú, hann mun vera axlarbrotinn.

hestamaðurinn-Olafur

Það skiptir miklu máli hvernig Ólafur ríður, hvort hann ríði hart eða hægt og ljúflega eða fylgist að með öðrum í hópreið, síðan er það náttúrulega stóra spurningin, var vel valið undir Ólaf ? 

Megi Ólafur ná bata hið fyrsta og legg ég til að hann leggi af glæsilega reiðmennsku um sinn, eða stundi þær framvegis heima við enda stutt í hjálp, ef leggja þarf hann inn.

 

P.S.  Hesturinn heitir Glæsir og er hann í góðu standi eftir slysið. Honum varð ekki meint af.

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Ólafur Ragnar slasaðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt kemur þetta að lokum...

Opnað fyrir eitt Kreditkort til handa Íslendingum ef þannig má að orði komast og er það vel sýnir að okkur eru ekki allar bjargir bannaðar.

fjármalafjotrar 
Coface er þriðja stærsta greiðslutryggingarfélag í heimi, en enn sem komið er hafa þau tvö stærstu, Euler Hermes og Atradius, ekki opnað fyrir Ísland. Það verður fróðlegt að heyra og sjá útúrsnúninga sem og hótanir Breta og Hollendinga um varnagla Icesave samningana! Ísland á að gefa þeim langt nef og greiða eingöngu eftir getu. Aðeins það er við eigum með réttu að greiða, ekkert annað. Ef hrossabresturinn Svavar Gestsson hefði ekki verið svona fljótur á sér og á leið í sumarfrí væri  staðan allt önnur og málið löngu farið fyrir dómstóla, hvernig væri að fjármálaráðherra tæki það nú upp hjá sjálfum sér og svipta manninn launum, enda karl uglan kominn á aldur, venjuleg verkamannaeftirlaun ættu að duga Lallanum, enda á Íslenskaþjóðin ekki að þurfa borga ofur eftirlaun og bitlinga til handa manni er nær lagði þjóðina niður sexfetin, þannig menn eiga ekki rétt á að sinna opinberum störfum né þiggja ríflegar sponslur frá Íslenskaríkinu OKKAR!
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Opnað fyrir Ísland á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Her manna vinnur nú fyrir kanann i Keflavík!

Á keflavikur flugvelli vinnur nú her manna við að setja kanann upp að nýju, það virðist sem kaninn ætli sér að taka Ísland með látum í þetta sinn, slíkur er hraðinn við uppsetningu tækjabúnaðar og ráðningar mann til starfa fyrir kanann, það fór þó aldrei svo að kaninn yrði lengi fjarverandi og velta menn nú fyrir sér hvað Steingrímur Jóhann taki til bragðs er kaninn hefur starfsemi sína aftur á vellinum.

kaninn2

Hafa margir haft á orði að nú verði teknar upp, áður aflagðar Keflavíkur göngur, verður spenandi að sjá hvort ekki verða þar kunnugleg andlit á ferð. Þá hefur heyrst að fyrsta flugtak Kanans verð þann 1. september næst komandi og bíða menn spenntir eftir að sjá hvort hljóðmúrinn verði brotin í flugtakinu. 

KANINN - Armed Forces Radio Service Keflavik eða AFRTS

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

Heldur er Icesave-pólítík Steingríms Jóhanns efnislaus !

Hann ætlar sér ekki að kyngja því að hrossabrestur vinur hans hafi klúðrað Icesave samningnum við greyin Breta og Hollendinga, já maður segir víst greyin um hunda. Steingrímur Jóhann Sigfússon verður gott nokk að kyngja því að það verður að semja aftur eða öllu heldur koma Bretum og Hollendingum í skilning um það að við borgum ekki meir en þjóðin þolir, annað er ekki í boði !

 Steingrímur Jóhann virðist vera algjörlega út á þekju er við hann er rætt svo mikið er víst! Maðurinn fer ávalt með sömu rulluna um Icesave eða "Engin ástæða væri til annars en að samþykkja samningana". Þetta  hefur hann sagt fyrirvara laust sem og með fyrirvara ?! Honum virðist það engu skipta hvort fyrirvara eru eður ei, bara samþykkja og allt er klappað og klárt. Nei ef það væri nú svo gott, Það er löngu ljóst að maðurinn er í einhverju allt öðrum hæðum en lágt settur skattpíndur almúginn. Það er því bráð nauðsinnlegt að hjálpa manninum niður !

Steingrimur-J

Þessi aðferðarfræði Steingríms Jóhanns er í einu orði sagt efnislaus!

Það veit sá er allt veit að sitjandi stjórn er ekkert annað en saman safn af laumupúkum er koma ekki til dyranna eins og þeir eru klæddir heldur íklæddir spunavef lyga. þetta er stjórnvaldið á Íslandi, fólk er getur varla tölt sér á salerni án þess að ljúga til um aðgerðina eða (að)ferðina. Við þurfum stjórn með bein í nefinu, stjórn eins og þá er leiddi þjóð okkar í gegnum þorskastríðin, og mest af öllu þurfum við sterka kynningar herferð á stöðu okkar, smæð og getu eða getuleysi þjóðarinnar gagnavart kúgunnar stefnu Breta og Hollendinga. Steingrímur Jóhann verður að fara gera sér grein fyrir því að sólin sest í Bretaveldi. Þá er Steingrímur komin á þann aldur í pólítík að hann ætti að vita þann einfalda sannleika, þvermóðska og ósannsögli verður ekki lengur liðin meðal þjóðarinnar. 

Fellu pólitík Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns er með öllu óþolandi. Þjóðin á ótvíræðan rétt til að vita hverju fram vindur frá degi til dags, enda hennar að greiða á endanum.

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Eiga að viðurkenna staðreyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju spáir þú ?

Spáðu í mig þá mun ég spá í þig sagði skáldið, en ég spái því að mikil tíðindi berist innan tíðar!
Fortune Teller
Hvað það nú verður, ekki er gott að spá því!


Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband