Byssumaður meindýraeyðir vopnaður vasaljósi. Hum!
16.12.2009 | 16:04
Já það er margt skrítið í kýrhausnum, hvernig væri að lögreglan réði þennan mann í vinnu til sín og arkaði með hann niður á Alþingi, þar eru ýmis óprúttin möppudýr eru að störfum í hinum ýmsu deildum við að skera niður laun og störf löggæslumanna, þeir gætu þá kannski gert greinar mun á meindýraeyði og byssu manni, en nú eru þeir svo þreyttir að það er aldrei að vita hvern þeir taka næst, þá gætti lögreglan einnig handtekið stórafbrota menn er höndla með eignir þjóðarinnar án þess að hafa til þess nokkra heimild og má líkja því við að stjórnvöld sé í raun að versla með stolnar eignir enda hafa stjórnvöld ekki forræði yfir þessum eignum, hvert manns barn, er komið er nokkuð á legg veit að það er strangalega bannað samkvæmt lögum að höndla með þýfi, því þýfi er það og ekkert annað ef heimild til ráðstöfunar skortir.
Löggæslan ætti því að handtaka skrílinn er ráðstafar eignum þjóðarinnar í heimildarleysi nú þegar, enda fóll er svífst einskis er kemur að virðingu fyrir lögum eða meðhöndlun á eignum þjóðarinnar.
Einnig mætti hugsa sér að sleppa meindýraeyðinum lausum í stjórnarráðinu eftir störf hans á Alþingi og greiða honum vel fyrir ómakið! Málið dautt og lögreglan þarf ekkert að segja sorry...
Bendi líka landsmönnum á að vera ekkert að hækka of mikið í græjunum er horft er á ræmu, því þá er eins víst að sérdeildin mætti í popkornið !
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Lestu nánar um meindýraeyðirinn hér fyrir neðan...
![]() |
Byssumaður reyndist meindýraeyðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
ÁTVR skili milljarði í ríkissjóð. Milljarð fyrir kenderí, kenderíið eða ófá kenderíin...
14.12.2009 | 17:23
Ég segi skál og mynni á að ég get útvegað áfyllanlega plastkúta 2500ml. merkta smisslof frænda, hentuga undir mjólk beint frá bónda er kreppan verður algjör, eins þjóðin stefnir í með Grýlu og Leppalúða í brúni.
Nú er það bara spurningin hvort þessi stjórn vilji ekki selja Á.T.V.R. eins og önnur stjórn seldi símann forðum daga, en þar var ef ég man rétt skylda á símanum að skila í það minnsta milljarð í ríkissjóð. Það var ekki gáfuð stjórn, þessi stjórn er þó verri en allt er dunið hefur á Íslensku þjóðinni frá upphafi Íslands byggðar, það að hún ætlar að berja á sjómönnum og hirða af þeim sjómannaafsláttinn bara svona til að æra sjómenn akkúrat er við þurfum hvað mest á þeim að halda til að brauðfæða þjóðina sínir heimskuna, það er nefnilega svo skrítið að fiskur verður að hveiti og kaffi, hvað þá eldsneyti o.s.f. merkilegt nokk. Þá eru það endalausar ákvarðanir um álögur eða ekki álögur, niðurfellingar á styrkjum eða bótum saman ber fæðingar orlof, síðan er þvaðrað um refaveiðar eða ekki refaveiðar o.s.f. Hvað er í gangi spyr ég. Nú ætti glöggur maður eða fréttastofa að taka saman allar svona breytingar og hringlandaháttinn í ákvörðunum, eitt í dag og annað á morgun svo enginn veit neitt í sinn haus, sífelldar tilkynningar streyma frá ráðuneytum (frú) Jóhönnu Sigurðardóttur en ruglið er algjör á þeim bæ og liggur við að maður hald að þetta sé skemmti leikrit eftir þá bræður Jón Múla Árnason og Jónas Árnason, en það er bara ekki svo, þetta er harmleikur er þjóðin er ekki búin að bíta úr nálinni með. Þessi sitjandi stjórn veit bara ekkert í sinn haus, hvað þá aðra hausa, enda er stjórnin er löngu búin að missa tökin á sjálfri sér og ástandi þjóðarinnar. Hvað sem því líður þá hætta menn ekkert að drekk þótt sopinn sé dýr, en þeir kaupa hann bara ekki í ríkinu, heldu mun smygl stóraukast sem aldrei fyrr og ekkert verður um innkomu milljarð þann er Skatt-Grímur dreymir um.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Bloggar | Breytt 15.12.2009 kl. 06:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þetta er nú meira myndbandið, en textinn er snjall + klipping .... The Tiger Woods Anthem
14.12.2009 | 05:55
The Tiger Woods Anthem. Created and Produced by Hugh Fink, Scott Ganz, and Andrew Samson Edited by Jon MenellVocals by Kenny CeteraTigers Wife Voiced by Tracy Meyer
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrrverandi Eiður Guðnason...Og nú er það útvarp Saga enn og aftur!
13.12.2009 | 15:03
Það er merkileg hvað siðapostullinn eða Mogga hatarinn skemmtir sér á kostnað hins annars ágæta manns Eiðs Guðnasonar. Getur það verið að það sem aðallega er að pirra Eið sé einfaldlega það, hvað hann er mikið fyrrverandi ? Hann t.d. titlar sig sem Eiður Svanberg Guðnason, fv. sendiherra og former ambassador. En hann er mikið meira fyrrverandi en það, enda fyrrverandi blaðamaður á Alþýðublaðinu, fyrrverandi ritstjórnarfulltrúi, fyrrverandi yfirþýðandi, fyrrverandi fréttamaður, fyrrverandi fulltrúi dagskrárstjóra frétta- og fræðsludeildar Sjónvarps, fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands, fyrrverandi alþingismaður, fyrrverandi umhverfisráðherra, fyrrverandi aðalræðismaður í Þórshöfn, fyrrverandi formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, fyrrverandi í forsætisnefnd Norðurlandaráðs, fyrrverandi fulltrúi Íslands á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, fyrrverandi fulltrúi Íslands á þingi Evrópuráðsins, fyrrverandi formaður stjórnar Sementsverksmiðju ríkisins, fyrrverandi formaður þingflokks Alþýðuflokksins, fyrrverandi í Vestnorræna þingmannaráðinu og verðandi fyrrverandi Morgunblaðs lesari sem og mbl bloggari svo ekki sé mynst á fyrverandi sögu útvarps hlustandi, er þá fátt eitt upp talið um fyrrverandi störf Eiðs Guðnasonar. Þá er hann virkur við að skamma einn og annan ef honum ekki líkarSverrir Stormsker er langt frá því sá einni er kemur við siðgæðis stuðul Eiðs t.d. kallaði hann Jónas Kristjánsson ritsóða meðal annars, en hann segir að Sverrir Stormsker hafi sett Íslandsmet í sóðaskap í Morgunblaðinu ! Lesa má grein Sverris Stormskers um að Serði Monster sé meinað að syngja í Hvítasunnukirkjunni HÉR! Og Lesa má umvöndunar grein Eiðs Guðnasonar við Sverrir Stormsker og þó, aðallega við ritstjórn Morgunblaðsins HÉR! Ég tek það fram að Eið Guðnason þekki ég ekkert nema af afspurn og mörgum ágætum fyrrverandi verkum hans, enda hef ég aldrei lesið fyrrverandi mbl bloggin hans fyrr en nú er hann sendir tóninn langt fyrir neðan beltisstað og ljóst að Eiður Guðnason skilur ekki þjóðina, greinina né hvað hún fjallar um, Sverrir afturámóti þekki ég all vel og hef á honum miklar og góðar mætur. Og nú útvarp Saga sjá Hér!
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Bloggar | Breytt 3.6.2011 kl. 02:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bullundirskriftir hjá samtökum InDefence
11.12.2009 | 19:29
Síðustu daga hefur nokkuð borið á fölskum undirskriftum og eru þær raktar m.a. til stjórnarráðsins og Hagstofunnar.
Ég skora á þig að skora á forseta Íslands!
Áskorun til forseta Íslands:
Þjóðaratkvæðagreiðslu um ný Icesave lög
InDefence slóð HÉR
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR !
Þá bendi ég þér á að lesa fréttina alla á MBL.IS !
![]() |
Bullundirskriftir raktar til stjórnarráðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Steingrimur Jóhann frestar Jólunum !
10.12.2009 | 10:22
Þ. U. Á. segir, Þetta verða alvöru jól, Grýla og Leppalúði í Stjórnarráðinu, Alþingi troðfullt af jólasveinum, og þjóðin í heilu lagi í Jólaköttinn...
Skora á þig að skora á forseta Íslands!
Áskorun til forseta Íslands:
Þjóðaratkvæðagreiðslu um ný Icesave lög
InDefence slóð HÉR
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR !
![]() |
Útlit fyrir háa bakreikninga vegna skattabreytinganna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 11.12.2009 kl. 08:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Akkuru eins og barnið sagði...
6.12.2009 | 06:40
Glitnisgaur kom fyrstur,
gráðugur í öll bréf.
Hann laumaðist í vasana
og lék með fólksins fé.
Hann vildi sjúga þjóðina,
þá varð henni ekki um sel,
því greyið var sko afæta,
það gekk nú ekki vel.
Björgúlfsaur var annar,
með gráa hausinn sinn.
Hann skreið úr skipi hafsins
og skaust í bankann inn.
Hann faldi sig í Rússlandi
og froðunni stal,
meðan bjórmeistarinn átti
við Yeltsín gamla tal.
Bjármann hét sá þriðji,
böðullinn sá.
Hann krækti sér í milljarða
þegar kostur var á.
Hann hljóp með þá til Noregs
en hirti ekki um sjóðina,
sem féllu hver af öðrum
við sjáum núna slóðina.
Sá fjórði, Bændasleikir,
var fjarskalega sljór.
Og ósköp varð hann leiður,
þegar bankadruslan fór.
Þá þaut hann eins og Welding
og þotuna greip,
og flaug með henni í London
því krónan var svo sleip.
Sá fimmti Smárasnefill,
var skrítið fjármagnsstrá.
Þegar hinir fengu í nefið
hann barði dyrnar á.
Þeir rukuupp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti ann sér að pokanum
og fékk sér góðan verð.
Sá sjötti Sigjónárna,
var alveg dæmalaus.-
Hann framundan rústunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið vildi skýringar
á auralausum reikningum,
hann slunginn var að afsaka
og skyldi ei neitt í hlutunum.
Sjöundi var Heiðarmár,
sá var sjaldan sýndur,
ef fólkið vildi tal af onum
hann var alltaf týndur.
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó þjóðarskútan maraði
þá hálfu kafi í.
Baugabur, sá áttundi,
var skelfilega þver.
Hann hluta keyptaf bönkunum
með hluta úr sjálfum sér.
Svo lánaði hann sér milljarða
og yfir öðrum gein,
uns hann stóð á blístri
og stundi og hrein.
Níundi var Nógafaur,
næmur á fé og snar.
Hann hentist út um heim inn
og hluti keypti þar.
Á enskum bita sat hann
í símaleik
og át þar hluti drjúga,
enga Breta sveik.
Tíundi var Skallakjaftur,
tungulipur mann,
sem hamaðist á landslýð
og æsti upp hann.
Ef vammlegt var hvergi
né ósiðlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.
Ellefti var Stjórnaskelfir
aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hláleg
og heljarstór eyru og nef.
Ef fnyk af féhyggju
ekki hann fann,
þá léttur, eins og reykur,
lyktina upp spann.
Sólráður, sá tólfti,
kunni að spinna vef.-
Hann þingmannasveitina
sveigði í kosningaþref.
Hann krækti sér í fylgi,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist enginn
akkurinn hans þá.
Þrettándi var Kreppugeir,
þá var komið kvöld,
alltaf kom hann síðastur
á bankahrunsöld.
Hann blekkti litlu börnin sín,
sem mótmæltu prúð og fín,
og trítluðu um bæinn
með spónaspjöldin sín.
Skora á þig að skora á forseta Íslands!
Áskorun til forseta Íslands:
Þjóðaratkvæðagreiðslu um ný Icesave lög
InDefence slóð HÉR
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR !
Hef ekki grun um hver setti þetta saman en datt á mig í tölvupósti.
Bloggar | Breytt 10.12.2009 kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Steingrimur Jóhann
2.12.2009 | 03:26
Eftir að horfa á fréttir RUV í gær sló mig þessi hugsun maðurinn er hrat bullari og skrökvari hann lítur ekki fréttamann í augu og blikkar í sífellu semsagt skröku-lygi í hverju orði er dettur fram úr tanngarði mannsins, hvet ruv til að senda myndbandið til snillana hjá FOX í USA og atferlisfræðinga þeirra :) til að dæma um líkams tjáningu Fúl Gríms Platara.
Þá mun þjóðin sjá vitfyrninguna er býr í kolli vandráðs.
Sjá slóð í skrökulygi HÉR maðurinn blikkar út í eitt!
Skora á þig að skora á forseta Íslands!
Áskorun til forseta Íslands:
Þjóðaratkvæðagreiðslu um ný Icesave lög
InDefence slóð HÉR
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR !
![]() |
Stenst Icesave stjórnarskrá? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 10.12.2009 kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sjómenn æfa reiðir !
29.11.2009 | 14:17
Ég er nokkuð viss um að nú hafi Steingrími Jóhanni tekist það ótrúlega ! Honum hefur loksins tekist að skíta í hattinn sinn og á þeim tíma er þjóðin má síst af öllu við því, sá gjörningur að ráðast á sjómannaafsláttinn er regin fyrra, enda mun það eingöngu hleypa illu blóð í sjómenn okkar á þessum tímum er við þurfum hvað mest á þeim að halda til að draga björg í bú, það er ekki mjög viturlegt að berja þann er fæðir mann.
Sjómenn hreinlega sigla í land við þessa skatta hækkun, því þetta er ekkert annað en skatta hækkun á aðrar skattahækkanir ofan, t.d. kolvetnisskattur, hækkað olíuverð osf. Allt lendir þetta á endanum í launaumslagi sjómanna, er hafa ekkert í höndunum hvort veiðist eður ei, fyrir utan smánar tryggingu er nær varla fyrir leikskóla gjöldum eins barns í landi.
Hver segir að þeir muni veiða sama magn í næstu viku og í þeirri liðnu, engin veit hvað morgundagurinn dregur að landi, hvert verður gengið, fellur pundið eða evran, hvaða áhrif verða af falli Dubai ? Hvað með aflabrest eða gæftaleysi svo mánuðum skiptir ?
Það eru fáar starfsstéttir er búa við eins mikið launa óöryggi og sjómenn, þeir dvelja langdvölum í burtu frá fjölskyldum sínum og geta ekki fylgst með eða gætt að öryggi barna sinna, fyrir þetta meðal annars fá þeir sjómanna afslátt þá er starfið oft á tíðum stórhættulegt. Þessu vill landkrabbinn gleyma enda sjóveikur um leið og hann lítur til hafs. Furðulegt með þetta pakk er lítur alltaf öfundar augum yfir til nágrannans og nú er það sjómaðurinn er loksins á fyrir pylsu og kók (þessa vikuna). Þetta er sama fólkið er heilsaði ekki einu sinni fyrir banka hrun ! Ég segi svei...
Nei það er óðmanns æði að æra sjómenn á þessum ögurstundum.
Sjómenn verða ekki glaðir með að vera hýrudregnir og hugsanlegt að Skatt Grímur verð látin ganga plankann eða það sem verra er kjöldregin fyrir asnaskapinn, enda karlinn ótrúlega lagin að koma þjóðinni í boba, það er bara eins og þessi stjórn sé staðráðin í að koma þjóð okkar fyrir kattarnef.
Þá segir í frétt á Rúv: Sjómenn bregðast hart við boðuðu afnámi afsláttarins, það yrði einhliða kjaraskerðing. Sjómannafélag Íslands hefur ályktað gegn þessum hugmyndum og boðar að verði þeim hrint í framkvæmd, muni félagið hvetja sjómenn til að leggja niður störf án fyrirvara og sigla í land. Þá hefur Farmanna- og fiskimannasambandið ályktað gegn þessu líka.
Konráð Alfreðsson segir að tillaga fjármálaráðherra um afnám sjómannaafsláttarins hafi komið aftan að sjómönnum. Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, segir sjómönnum vera afar heitt í hamsi yfir áformum ríkisstjórnarinnar um afnám sjómannaafsláttarins.
Skora á þig að skora á forseta Íslands!
Áskorun til forseta Íslands:
Þjóðaratkvæðagreiðslu um ný Icesave lög
InDefence slóð HÉR
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR !
![]() |
Sjómenn vara stjórnvöld við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lífið er Banani bananana nanan nanana, banana....
27.11.2009 | 11:58
Fínt að vera í sveitinni, fékk lánaða stiga og skar niður risa Banana klassa er
ég burðaðist með heim, nú það voru borðaðir bananar eins og þeir komu fyrir
og í jógúrt, steiktir með steik, og nú það allra besta frosnir Bananar frysti helling, skrapp í risa Tesco/Lotus markaðinn sem er hér ei langt frá og keypti snikers, mars, Toblerone og slatta af súkkulaði + spýtur fyrir íspina ekki málið, stakk einni spýtu í rassinn á hverjum er ég hafi þverskorið og bræddi Toblerone + 3 til fjórar matskeiðar smjöri ósaltað og hent helling af eðal súkkulaði í pottinn, er þetta bráðnaði allt
samman var bara að stinga Banana í bráðið súkkulaðið og vola geggjað, ég notaði á endanum
háan plast stauk og heitt vatnsbað er ég var búin að bræða, þá var einfalt að stinga banananum á kaf, einnig má velta
honum upp úr ýmsu t.d kókós rosa gott.
Næsti skammtur fór í blandarann og hakkað í spað með vanilluís og mjólk, ok hristingur með bönunum geggjað í þessum hita 34.c núna og ég í eldhúsinu hahaha..
Ætla síðan að fá mér rölt á sveitamarkaðinn á eftir og kaupa meir af ávöxtum til að búa til gott ávaxta mix í skál, flott að eiga í ísskápnum og sletta síðan skvettu af ísköldu Grand Marnier yfir, holt, gott og kælandi, kætandi :)
Já bráð ánægður með sveitina hvað þá íbúðina, sundlaugina, Internethraðann og öryggis gæslan fín. Myndavélar, sjálfvirk flæði ljós, verðir og hundar, gerist ekki betra, og það sem best er eingöngu gaurar hér á mínu reki, og flottar dömur í grend og þar er ekki rigningu fyrir að fara. Fínt að vera komin aftur til suðaustur Asiu. þá hef ég heyrt af því að svarta liðið komi frá Kandahar og Pakistan í jóla frí og verði hér yfir jól og áramót skondið að taka sér jóla frí í miðju stríði en svona er heimurinn í dag.
Hér kemur eitthvað skondið ekki er nú gott um það að spá nema það verður glasalegt... Hum... bara alltaf verið að laga og breyta svona á þetta að vera...

Skora á þig að skora á forseta Íslands!
Áskorun til forseta Íslands:
Þjóðaratkvæðagreiðslu um ný Icesave lög
InDefence slóð HÉR
Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR !
Bloggar | Breytt 9.2.2010 kl. 05:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)