Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

Gegn Þjóðinni ! Gegn markmiðum Seðlabanka. Gegn þér og mér !

Stígur ekki á sviðið en einn gæðingurinn Magnús Árni Skúlason, er hugsar aðeins um sinn eigin rass, en ekki starfið er hann gegnir í þágu þjóðar sinnar. Ég er kjaft stopp enda situr kauði í bankaráði Seðlabankans.  Það væri réttast að leggja á þessa djöfla er sí og æ eru að hygla sjálfum sér á kostnað þjóðarinnar, það má vel vera að athæfið sé löglegt, en siðlaust er það ef haft er í huga hver stað landsins er, eða öllu heldur þjóðarinnar!

pokinn-minn

Magnús Árni Skúlason er situr í bankaráði Seðlabankans fyrir hönd Framsóknarflokksins, hafði samband við stóran hluthafa í stoðtækjaframleiðandanum Össuri og starfsmenn lyfjafyrirtækisins Actavis með það fyrir augum að benda þeim á heppilegan viðskiptaaðila með gjaldeyri erlendis.

Maður er hagar sér á þennan hátt í boði stjórnmálaflokks eru vesalingur! það á að setja hann af með það sama enda starfar hann ekki í seðlabankanum bjóðandi uppá viðskipti með gjaldeyrir eins og mál standa! Þetta er kannski það sem kallað er að vera innan búðardrengur, nei hann hyglir bara sínum rassi á kostnað þjóðar sinnar.

Það er deginum ljósara að hann situr ekki í bankaráði Seðlabanka Íslands hugsandi um velferð og hag þjóðar sinnar.

Nú vill kappinn bara stefna Morgunblaðinu fyrir að kjaft frá, verði honum af góðu enda saklaus unnnns annað kemur í ljós, en einhvernvegin liggur það í loftinu að hér sé maðkur undir steini, miðað við svör forsjármanna fyrirtækja og hans sjálfs....

Nú bíð ég spenntur eftir viðbrögðum Seðlabanka Íslands!

Ég á bara eitt orð handa þessu skrýpi, SVEIATTAN !!!

Bendi þér á að lesa alla fréttina um athæfi kauða HÉR !

Slóð í forsíðu Bloggs + fleiri greinar HÉR


mbl.is Gegn markmiðum Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítin frétt eða ég er bara ekki að skilja hagræðinguna ??!

Enn ef fréttin er rétt er hún skondin og sýnir vanda Löggæslumanna landsins í hnotskurn. Hvaða hagræðing er í því að senda Dalamenn og Borgfyrðinga til Reykjavíkur til að framkvæma húsleit ? Er meira til að mannskap fyrir vestan en sunnan og er meira til af bílakosti fyrir vestan hvað þá eldsneyti, ég er bara ekki að skilja þetta nema það eitt að í Reykjavík er orðið of mikið að yfirmönnum og of lítið af undir mönnum enda eru þeir reknir heim en yfirmenn halda vinnu.

loggan--dolum2Getur það verið satt er heyrst hefur, að yfirmenn Lögreglunar í Rvk sinna ekki almennum smá löggæslustörfum eins og að kíkja í heimsókn hjá fíklum ? þannig að undirmenn að vestan eru sendir og þá væntanlega á mjög sparneytnum bílum til RVK eða tóku þeir einfaldlega rútuna og strætó á brotastað?

En er ég ekki að sjá hagræðinguna, hefði RVK lögreglan ekki getað farið á reiðhjóli á staðinna nóg af þeim í þeirra vörslu miðað við fjöldann á árlegu uppboði hjá lögreglunni, voru brotamenn kannski ekki í göngufæri við næstu löggu, ég bara spyr enda ekki að ná þessu.

loggustjori

Setjum nú svo að ég ráði mig til löggæslu starfa á Egilsstöðum má ÉG ÞÁ SKREPPA REGLULEGA Í BÆINN OG FÁ MÉR EINA MEÐ ÖLLU Á BÆJARANS BESTU, LÍTA KANNSKI VIÐ HJÁ EINUM EÐA TVEIM SMÁ HASS-REYKINGAMÖNNUM EÐA DÓPHAUS ER TEKUR RÓANDI, bara til að RÉTLÆTA Reykjavíkur skreppinn minn og pulsulöngun ? Tja..Já mér er spurn...

P.S. Kanski næsta skrefið í gáfulegum sparnaði verða einfaldlega að senda svo sem eina PAPPALÖGGU í pósti til brota manna.....

Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR


mbl.is Lögðu hald á fíkniefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hunda (ó)heppin(n) hunda-líf hunda-ævi hunda-veður hunda-sund hund-blautur hund-votur hund-óánægður hund-leiður á Jóhönnu sem og öðrum Rauðum hundum ....

Frú Jóhanna er í fullu starfi við að gera ekkert, já ekkert fyrir Íslensku þjóðina, það eina er kemst að er að setja landið undir erlenda stjórnarherra.

Það er margnum orðið lönguljóst afhverju ekkert er gert fyrir fjölskyldurnar í landinu, landi sjálft og orðstýr þess eða annað. Ástæðan er einföld, svöng og hungruð heimilislaus þjóð lætur betur að stjórn en þjóð er býr við allsnægtir. Þess vegna er þegnum landsins stefnt vísvitandi í allsherjar fátækt og hungurvofu. Jóhanna Sigurðardóttir hefur ekki nennu til að sinna vanda þjóðarinnar hvað þá að koma fram í erlendum fjölmiðlum til varnar landinu eða þjóðinni er landið býr. 

Það fólk er slapp úr landi og undan ógnarskattstjórn hins nýja hundingjaherra, má nú prísa sig sælt fyrir það eitt að þurfa ekki að þolla ásetning frekkari skattpíninga hundingjana er sitja sem fastast og hlusta ekki á neyðaróp íslensku þjóðarinnar.

situr a þjod sinni
Það er einlæg von mín að hundingjastjórnin falli á þessu ESB krossaprófi þannig að Íslenska þjóðin eða það sem eftir er af henni og ekki er flúin land, haldi þjóðarsjálfstæði sínu!
Jóhanna Sigurðardóttir hefur einnig bara eina stefnu og henni varðar ekkert um hag landsmanna, enda eru bara 24 tíma í sólahringnum 20 fara í sleikjuskap og þá einna helst við hryðjuverka manninn Gordon Brown meðan skósveinn hennar, kynlífsdoktorinn gerir sig til við Wouter Bos þann hollenska túlipana með það að markaði að Jóhanna Sigurðardóttir geti framselt Ísland undir erlenda stríðsherra, fyrrverandi þrælasala, nýlenduherra og kaupahéðna er vilja leggja heiminn undir fáeina útvalda, Jóhanna ætlar sér að vera í þeim hóp, er hún hefur lokið níðverki sínu og fært Ísland og þjóðarauð í hendur þeirra útvöldu.

Ætla mætti að hún myndi nota þessa 4 tíma er eftir til hjálpar og lausnar á vanda heimila eða fyrirtækjanna. Nei þeir fara í brellibragða vinnu í ósanninda (parabole) þökunnar sjálfum sér verksmiðju þá er Skammfylkingar og Vinstri Glærir reka og stofnsettu til þess að styrkja eiginvöld og kvöl þeirra er ekki leika með.

Síðast en ekki síst er fyrirbærið notað í njósnavinnu með uppsetningu á gagnaupplýsingaskattkerfis er miðar að því að finna alla þá er hugsanlega lumma á nokkrum krónu, í annars gatslitnum og gottsem galtómum eldhúsbuddum sínum.

Eru nú öll tölvukerfi landsmanna er áður voru notuð til uppbyggingar á velferðarkerfi landsmanna samkeyrð með öðrum gagnagrunnum til þess að ná þeim aurum, ef vera skildu til og eyrna merktir voru skólagöngu barnanna eða til framfærslu gamalmenna sem og þeirra er minna máttu sín eða veikir eru. Þetta er sá kærleikur er hundingjastjórnin atarna leggur afsér. 

Þar á bæ vinna menn einnig hörðum höndum við uppfinningar á nýju skattpíningar kerfi nefnt "SteinGrímur" sérhönnuð til þess að svínbeygja þjóðina undir rass Jóhönnu Sigurðardóttur. Stendur til að nota kerfið allt til þar er komið að fólk getur sig hvergi hreyft fyrir fátækt, hvað þá tjáð sig.

--------------------

Einar Karl Haraldsson, upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneytinu, segir forsætisráðherra reyna að halda sig til hlés og sinna aðeins því nauðsynlegasta, eins og undirbúningi ríkisstjórnarfunda og móttöku skiptastjóra ESB. „Hún hefur ekki gefið kost á viðtölum og það gildir jafnt um franska sjónvarpið sem annað.“

Það er borgaraleg skylda okkar að rísa upp og verja land okkar fyrir ógnar ógninni er nú steðjar að þjóð vorri ! 

Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR


mbl.is „Verður að ræða meira við erlenda fjölmiðla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband