Alþjóðleg glæpasamtök = Alþjóðagjaldeyrissjóðinn AGS/IMF
17.10.2009 | 10:35
Það er löngu ljóst að Þjóðin vill ekkert með AGS/IMF að gera bara hér á þessu bloggi hefur það komið fram í skoðanakönnu á því hvort lesendur beri traust til AGS/IMF þar kemur í ljós að 84,2% bera ekki traust til AGS/IMF þannig að ég er ekki hissa á að 58% almennings sé á móti AGS/IMF.
AGS/IMF eru þekktir fyrir að vinna gegn þeim þjóðum er þeir segjast vera að hjálpa enda aðgerðir þeirra hannaðar til þess að flækja þjóðir í en meiri vandræði til þess eins að hægt sé að sölsa þjóðarauð landa undir AGS/IMF og eða meðlima þjóðir þeirra, í Þessu tilefni Breta og Hollendinga er eru eignar aðila að sjóðnum.
Þessar meðlima þjóðir AGS/IMF notast við skipulagðar aðfarir gegn íslensku þjóðinni ! Merkilegt en satt þá eru þær stundaðar af erlendum ráðamönnum Nato ríkja og það með fullþingi Íslenskara stjórnmálamanna... Hvers á þjóðin að gjalda þegar svo kallaðar vinaþjóðir ráðast með skepnuskap á örríkið okkar Ísland?
Hver á sökina á því að þjóðin er nú í heljargreypum AGS/IMF og getur sig hvergi hrært ?
Hvað hefur hinn almenni borgari, atvinnurekandinn eða heimilin í landinu eiginlega gjört til þess að ávinna sér þvílíka andúð vinstriaflanna er fara með völd á Íslandi að þau eyra engu heldur rífa niður og tæta í sundur allt atvinnulífið hér á landi ?
Það þarf bara að líta til verka Svandísar Svavarsdóttur!
Hvað þá formanns Vinstri Gremju Steingríms Jóhanns er böðlast áfram í skattpíningum á sveltandi heimilum landsmanna, að ég nefni nú ekki atvinnulífið sem er nú ein rjúkandi rúst eftir svokallaðan stuðning hans við atvinnulífið enda var stuðningurinn 0 eða öllu heldur -0 niðurrif.
Er það eðlilegt að ríkisstjórn Íslands taki við dags skipunum frá AGS/IMF ?
ER það rétt að stjórnin starfi í umboði AGS/IMF samkvæmt leynisamningum þar af lútandi við Alþjóðaglæpasjóðinn?
Er þjóðin þegar búin að missa sjálfstæði sitt? og hvar er sjálfstæði Íslensku þjóðarinnar statt ?
Er ekki mál að þjóðin rísi upp gegn niðurbrots áætlunum vinstri flokkanna ?
Það gerist ekkert nema þú takir hendur úr vösum þínum, ekki bíða, niðurbrotsöflin bíða ekki, þar er ekki setið með hendur í vösum, heldur er vargurinn á fullu við að rífa niður þjóð okkar og það á meðan þú situr og lest þetta !
Það er mál að taka hendur úr galtómum vösum okkar, enda er verk að vinna !
Ísraelsmenn eru þessa daganna að lögsækja fyrrverandi ráðherra sinn. Þetta gera flestar lýðræðisþjóðir, þær lögsækja ráðherra er brjóta á þjóð sinni og sýna þjóðinni vanvirðingu ! Hvenær lögsækjum við Íslendingar brotlega ráðherra okkar? Eins og Svandísi Svavarsdóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir ítrekuð stjórnarskrárbrot er þessir ráðherrar fremja á Íslensku þjóðinni? Ef dómstólar landsins gera ekkert þá verður dómstól götunar að taka til hendinni gegn þessum niðurrifs öflum og koma þeim frá í eitt skipti fyrir öll, þjóð okkar þolir ey meir!
Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
Meirihluti vill segja upp samningi við AGS | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hm, ég hélt að Jóhanna væri dómstóll götunnar!
Baldur Hermannsson, 17.10.2009 kl. 13:56
Hún er dómari glötunar
Geir (IP-tala skráð) 17.10.2009 kl. 16:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.