Skrítin frétt eða ég er bara ekki að skilja hagræðinguna ??!
11.9.2009 | 04:15
Enn ef fréttin er rétt er hún skondin og sýnir vanda Löggæslumanna landsins í hnotskurn. Hvaða hagræðing er í því að senda Dalamenn og Borgfyrðinga til Reykjavíkur til að framkvæma húsleit ? Er meira til að mannskap fyrir vestan en sunnan og er meira til af bílakosti fyrir vestan hvað þá eldsneyti, ég er bara ekki að skilja þetta nema það eitt að í Reykjavík er orðið of mikið að yfirmönnum og of lítið af undir mönnum enda eru þeir reknir heim en yfirmenn halda vinnu.
Getur það verið satt er heyrst hefur, að yfirmenn Lögreglunar í Rvk sinna ekki almennum smá löggæslustörfum eins og að kíkja í heimsókn hjá fíklum ? þannig að undirmenn að vestan eru sendir og þá væntanlega á mjög sparneytnum bílum til RVK eða tóku þeir einfaldlega rútuna og strætó á brotastað?
En er ég ekki að sjá hagræðinguna, hefði RVK lögreglan ekki getað farið á reiðhjóli á staðinna nóg af þeim í þeirra vörslu miðað við fjöldann á árlegu uppboði hjá lögreglunni, voru brotamenn kannski ekki í göngufæri við næstu löggu, ég bara spyr enda ekki að ná þessu.
Setjum nú svo að ég ráði mig til löggæslu starfa á Egilsstöðum má ÉG ÞÁ SKREPPA REGLULEGA Í BÆINN OG FÁ MÉR EINA MEÐ ÖLLU Á BÆJARANS BESTU, LÍTA KANNSKI VIÐ HJÁ EINUM EÐA TVEIM SMÁ HASS-REYKINGAMÖNNUM EÐA DÓPHAUS ER TEKUR RÓANDI, bara til að RÉTLÆTA Reykjavíkur skreppinn minn og pulsulöngun ? Tja..Já mér er spurn...
P.S. Kanski næsta skrefið í gáfulegum sparnaði verða einfaldlega að senda svo sem eina PAPPALÖGGU í pósti til brota manna.....
Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
Lögðu hald á fíkniefni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.