Hvernig létta eldri borgarar sér lífið og tilveruna undir sífelldum árásum Jóhönnu á lífeyrir þeirra?

Almenningur veltir því stundum fyrir sér hvað eldri borgarar geri sér til dægrastyttingar.
Um daginn fórum við hjónin til dæmis niður í bæ og versluðum lítið eitt. Við vorum ekki nema 5 oldmínútur í búðinni. Er við komum út, var lögregluþjónn að skrifa loggasektarmiða. Við gengum rakleitt til hanns og ég spurði hvort hann væri ekki til í að gefa eldri borgurum landsins smá séns? Hann lét sem hann sæi okkur ekki og hélt áfram að skrifa sektarmiðann, rétt eins og við værum ekki til. Ég kallaði hann Nasistalöggu, möppudýr, fant og fúlmenni. Hann rétt leit til mín, greinilega öskurreiður og skrifaði annan sektarmiða, því bíllinn var á of slitnum dekkjum. Þá kallaði konan mín hann öllum illum nöfnum, svo sem skíthaus, hálfvita, sauðnaut, og valdhrokagikk. Hann kláraði að skrifa seinni miðann og bætti honum undir logga_818247.jpgrúðuþurrkuna. Svo tók hann til við að skrifa þriðja sektarmiðann , því bíllinn var óskoðaður. Svona leið næstakorterið. Við úthúðuðum lögreglumanninum og hann nánast fjölritaði sektarmiðana og stakk þeim þegjandi og hljóðlaust undir rúðuþurrkuna, en fjári var hann rauður í framan.

Okkur var svo sem slétt sama. Við erum löngu hætt að keyra bíl, komum með strætó í bæinn, en straetogrípum hvert tækifæri sem gefst til að skemmta okkur svolítið. það er svo mikilvægt fyrir fólk á okkar aldri !

 

 

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband