Þjóð í fjötrum ranglætis, frá allsnægtum til örbirgðar !?
30.6.2009 | 06:31
Er Þjóðin endanlega búin að missa vonina og tekin upp á því að brenna og brjótaniður eigur sínar (fyrrverandi kannski) í örvæntingu sinni?
Slökkvilið var kallað að Granaskjóli 34 vegna vélsleða sem stóð á björtu báli á plani hússins. Nærliggjandi götum var lokað meðan á slökkvistarfinu stóð en talsverður reykur var vegna brunans. www.vísir.is segir frá.
Hvað er til ráða er þjóðin missir vonina og hefur ekki traust á stjórnvöldum?
Það er öllum sönnum Íslendingum full ljóst að þjóðin getur ekki meir, hvað þá farið að borga fyrir glæpamenn, til þess eins að halda Bretum og Túlípönum ánægðum er smyrja vel á útrásar summuna okur vöxtum. Hvenær hafa Bretar eða Túlípanarnir í Hollandi gert nokkuð fyrir landi okkar annað en ásælast landgæði þessi ?
Þjóðfélagið er hreinlega komið á hvolf og elskuleg stjórnvöld gera ekki annað en stýra skútunni beint í strand fyrir vinni sína hjá AGS.
Þetta fólk á að draga fyrir dómara ásamt útrásarstyrkjaraðillum þeirra.
Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR
Athugasemdir
Þeir sjálfboðaliðar sem vinna árið út og árið inn, verða að fá frí, ekki síður en aðrir.
Samtökin ætla að hafa betri samráð um lokunartíma svo ekki verði allt lokað í einu, eins og þú nefndir réttilega.
Fólkið sem starfar í slíkum góðgerðarsamtökum held ég að skili sínu með sóma.
Velti líka fyrir mér að þeir Íslendingar sem áttu í Lsb. töpuðu ca 33% af sparifé sínu á þeim reikningum. En nú fá Bretar og Hollendingar endurgreitt að fullu???!
Til að fyrirbyggja misskilning >>> ég óska hinum almenna Breta og Hollendingi alls hins besta og vil ekki að þeir tapi nurlinu sínu, eða sjóðum hjálparsamtaka, vegna íslenskra krimma.
Maí (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 06:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.