Þau stórmerku tíðindi er berast eru þau að það er staðfest að Davíð Oddson og stuðningsmenn hans hafa klofið sig út úr Sjálfstæðisflokknum, og hafa þeir fengið úthlutað bókstafnum N fyrir næstu kosningar, en N mun standa fyrir X-N í snarpri sókn. Þá segja heimildir að kjörorð klofningsarmsins séu: Viðreisn, þor og uppbygging. Í fréttatilkynningu segir að boðað verði til fréttamannafundar á Hótel Nordica kl. 18:00 með léttu fæði fyrir þá er vilja og enn annar klukkan 22:00 á Hótel Nordica, er þá ætlun að skipa í aðgerðahópa. Enn er búist við einhverjum mótmælum fyrir utan Hótel Nordica og hefur lögreglan þegar kallað út auka lið til að gæta þess að ekki komi til átaka enda mikill mannfjöldi á svæðinu. Það er því ljóst að spennandi dagur er framundan og verður 1. apríl að öllum líkindum skráður í söguna sem ein af mestu uppákomum í íslenskum stjórnmálum, enda hafa yfir 28000 manns skráð sig nú þegar á undirskriftalista til stuðnings framboðsins en listar liggja enn frammi á öllum N1 þjónustustöðum sem og víða í borginni. Þá eru handalögmál fyrir utan Nordica enda fjöldinn of mikil fyrir veitingar en þeir telja að þrjú veitingahús gefi tapas til að hita upp fólkið.. Opinn bar verður síðan á Eika grilli !
Athugasemdir
Sævar Ciesielski fékk úthlutað bóksafnum N
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 01:43
Góður
Finnur Bárðarson (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 01:44
Helvíti gott!!!
Þór Jóhannesson (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 01:46
Þetta er því miður of stuttur fyrirvari fyrir mig til að geta tekið þátt í stofnun nýs framboðs. Ég hefði líklega hlaupið ef ég hefði verið staddur í Reykjavík.
Offari (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 01:48
ertu að meina þetta ? og hvert á ég að hlaupa ?
Brynjar Jóhannsson (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 01:49
Já en er þetta ekki vegna 1.aprí,s , bara gabb
Helga Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 01:50
Ég spái því að Davíð Oddson láti ekki sjá sig, hann er svo mikill prakkari.
Jón Gunnar Bjarkan (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 01:52
þú byrjar daginn snemma
Páll Geir Bjarnason (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 01:53
Ekki nóg með það, Stymmi Gunn skipar 1. sætið í Kraganum
Kolla (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 01:54
Djöfull er leiðinlegt að lesa þennan kjaftavaðal í þér og endurtekningar. Hangir erlendis og rífur kjaft. Vel geymdur þar greinilega í Tai strákunum.
Davíð Löve. (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 01:56
Haltu þig bara heima og vertu ekkert að spreða tíma í mig þar að auki hef ég ekkert á móti Thai-strákum sem og öðrum strákum en er ekkert fyrir að lúlla hjá þeim eins og þú virðist hafa reynslu af Kæri Hjólhestur :) gleðilega Páska til þín líka.. !
Einar B Bragason , 11.4.2009 kl. 10:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.