Stormur í aðsigi hjá Jóhönnu og hún heldur fast í stólin ''sinn''.
25.3.2011 | 03:06
Jóhanna Sigurðardóttir vinnur nú hörðum höndum við að strá ryki í augu landsmanna.
Rær lífróður til björgunar á stól er henni er fyrir munað að skila til þjóðarinnar, telur reyndar að stólinn sé hennar og aðeins hennar, á stólnum skal hún sitja hvað sem á dynur, hvað sem lögum eða ólögum sætir og nú er henni orðið það ljóst að þjóðin tekur ekki við öllu meir, hún er södd af svikum, lygum, útúrsnúningum og aumingjaskap, löngu nóg komið segir skvaldur götunar, fólkið er fullt upp í kok.
Öllum er það ljóst að Jóhanna Sigurðardóttir hefur verið mjög svo iðin við að traðka á landslögum, hæstarétti, stjórnarskránni sem og réttindum borgarana allt hvað henni hefur hentað í það og það skiptið!
Konan er þess full viss að landslög og eða stjórnarskrá voru ekki samin né sett með hana í huga og því þarf hún ekkert að fara að lögum, hvað þá hlusta á eða gegna dómum hæstaréttar enda telur hún að þar gegni bara embættum, hempuklæddir ''einkavinir'' Davíðs, á þá þarf hún hvorki að hlusta né sýna virðingu jafn vel þó hempuklæddir séu.
Á dauða mínum átti ég von frekar en því að einhverjir kæmust að þeirri niðurstöðu að ég hefði brotið jafnréttislög segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra er sendi bréf á tölvupóstlista Samfylkingarinnar í gærkvöld.
Veruleikafirring Jóhönnu Sigurðardóttur er nú fullkomin og Það er ljóst að konan er algjörlega blind á allt er heitir siðferði eða landslög, forsætisráðherra landsins telur sig en og aftur yfir aðra sett og hafin, þannig fólk að ekki heima við stjórnvöl Íslendinga.
Annað eins virðingarleysi hefur enginn stjórnmálamaður sýnt réttarríkinu Ísland frá upphafi Íslands byggðar.
Þetta er konan er sveik börnin okkar, heimilin, gamla fólkið, sjúklingana, lífeyrisþegana og síðast en ekki síst þjóðina alla sem og sjálfa sig.
Jóhanna finnur nú verk í sínum beinum, verk er segir að hennar dagar eru senn taldir, en hún hlustar ekki heldur boðar skattalækkanir, já skattalækkanir, grænahaga og þúsundir starfa handa öllum, hver trúir svona ræðum, ræðum er einræðisherrar og stjórnarskríbentar víða um heim hamast við að þylja yfir lýð sínum þessa dagana, en ekkert gengur, þá er borið fé á almenning, það er blóðugt svika fé, er almenningur þiggur ekki né hlustar á lygina endlausu, burt með svikin burt með óheillindin, burt með einræðisherrann, burt með spillingarveldin, burt með aðgerðarleysið, og burt með þig Jóhanna Sigurðardóttir.
Við segjum einnig NEI við svikamillu þinni Icesave III, þann gjörning máttu eiga sjálf ásamt þeim í neðra.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR ! :)
Veit varla hvaðan á mig stendur veðrið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Mannréttindi, Stjórnmál og samfélag, Af því ég þarf ! | Breytt 25.11.2012 kl. 03:02 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.