Færsluflokkur: Bloggar
Talbeinið
16.5.2009 | 08:50
Ræðukóngar Alþingis eru nú sestir að í ræktinni þar sem þeir æfa kjammann, því ekki geta þeir inn byrt tal olíu, eða söngolíu til að liðka um talbeinið.
Ég ætla bara vona því mikið liggur við að þeir taki þetta þing í að tala minni en geri því meira fyrir þjóð og land.
![]() |
Ræðukóngarnir eru sestir í ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn raunverulegi Lóu þræll!?
16.5.2009 | 00:08
Hafa ekki allir þessir Júdasar verið gungur upp til hópa ? Í kvöld sá einn í sjónvarps fréttum, mann er gerir ekki annað en klúðra málum og felur sig ætið undir pilsfaldi kvenna, síðast hjá frænku sinni og nú hefur honum tekist það ótrúlega, á einhvern furðulegan máta að skríð undir pilsfald Jóhönnu. Þessi maður nennir ekki einu sinni að sleikja frímerki á þeim sendi bréfum er hann sendir heldur notar til þess undir sáta sína, hvað þá að hann hvað þá hann hafi haft nennu til að koma sendi bréfum sínum sjálfur á áfanga stað er hefði vakið mikla fjölmiða athygli er Þjóðin þarf svo sannarlega á að halda, til að sýna heiminum að hér búa ekki gungur né lítill menni, heldur hnarreist og stolt þjóð. Ekki getur gunga þessi gefið veimiltítlu Breta hér á landi frí né sett frímerki á afturenda hans með þeim skilaboðum að öryggis hans vegna verði hann að fara heim. Hér búi nefnilega yfir 300.000 hryðjuverkamenn þannig að gjörsamlega sé úti lokað að gæta hans. Þessi sama gunga getur heldur ekki sent tilvonandi landstjóra IMF heim í bæli þjóða þjófana, hann getur heldur ekki sagt og ámynt staulann að hér sé ekki við hæfi og tíðkist ekki í landi okkar að tala niður til seðlabankans okkar eða stjórnkerfis. Alþingi er einn af elstu lýðræðis kerfum í heiminum og hingað koma engir blesar á skítugum skónum og tali niður til okkar eða um. Já ég er að tala um LóuÞrælinn öðru nafni Össur Skarphéðinsson Hvað fær hann marga silfur peninga fyrir landið og þjónusuna í að gera ekkert. Það að gera ekkert er bleyðu skapur og hátterni fjósbita púka, það á ekki að líðast að hér starfi utanríkisráðherra er gerir ekkert nema brosa framan í heiminn, milli þess að hann hleypur undan pilsfaldi gæslukonu sinnar með hálf kláruð leindó, svona rétt til hrekkja þjóð sína. Maður á aldrei að bera á borð hálf kláraðar vísur, þá er betur heima setið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
KvótaReglan er margbrotin !
15.5.2009 | 17:22


![]() |
Allir þingforsetar konur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 16.5.2009 kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn andar köldu ofan í hálsmálið á mönnum !
15.5.2009 | 15:30
Gylfi Magnússon efnahagsráðherra telur svigrúm til vaxtalækkana, þvert á skoðun fulltrúa
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra veltir því fyrir sér hvort Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn andi ekki köldu ofan í hálsmálið á mönnum, í Seðlabankanum, sem á að taka sjálfstæða afstöðu til vaxtastigsins. Franek Rozwadowski, sendifulltrúi AGS er ekkert annað en Þjóða ræningi sem og allt
gengið IMF - World Bank er ef þú hefur nennu til að lesa á netinu hvað þeir fást við kemur í ljós að þessir menn eru ekki vandir að virðingu sinn og svífast einskins til að ná markmiðum sínu. Nú ásælast þeir orkuna okkar og svarta gullið á drekasvæðinu en þar gæti verið að finna eitt mesta olíusvæði heims. Hvað þá allt vatnið er við eigum, en það er gullkista er fáir gera sér grein
fyrir. Þá er það engin tilviljun hvernig Gordon Brown lætur þar sem Englands Banki á
stóran hlut í IMF Europe og ætti öllum að vera það full ljóst að hann ætlar sér að
ganga milli bols og höfuðs á Íslendingum, Þjóðinni okkar ! Bretinn fyrir gefur ekkert og er minnugur eins og fíll. Við gerðu Breta að atlægi með að ná landhelgi okkar út í 200.mílur og það að smá þjóð eins og við stæðum upp í hárinu á þeim er og var ekki þolandi. Þó svo Gordon hrökklist frá völdum þá breytir það engu það kemur annar í manns stað sem er eins þekkjandi. Rekum IMF úr land nú þegar!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ögmundur Jónasson við sama heygarðshornið !
15.5.2009 | 14:20
Sorry varð að laga þetta hjá mér eftir að hafa horft á fréttirnar sá ég hver hinn raunveruleigi júdas er !
Það er alveg undarlegt með sumt fólk hvað það getur bullað endalaust!
Hvað er þetta annað en neysluskattur og það dulbúinn í lýðheilsusjónarmið forsjárhyggju neyslustýring ! Fáðu þér svala eða kókómjólk ljúfurinn sami sykurinn.
Er þetta að undirlægi IMF skattleggja allt og alla til að draga úr neyslu? Ykkur gengur ekkert annað til en koma landinu undir stjórn ESB eða annarra glæpona. Varstu vakinn upp í gærmorgun með símtali er sagði nú er komið að þér að skattleggja þjóðina, Landsstjórinn frá IMF segir það taki engin eftir þessum skatti enda skattur til heilsubótar. Formaður Tannlæknafélags Íslands, tekur jákvætt í hugmyndir Ögmundar um sykurskatt, bull og vitleysa heldur þú að maðurinn sé tannlæknir af góðmennsku sinni Nei kallinn það eru launin vegna okkur verðskrár tannlækna. Honum ber hinsvegar skylda að bulla svona vegna tannvermdar stefnu stjórnvalda.
![]() |
Sykurskattur fyrir lýðheilsu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Innbrotsþjófur nokkur "Greiðvikinn"
15.5.2009 | 00:42



![]() |
Greiðvikinn innbrotsþjófur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Franek Rozwadowski, er mafíu sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ekkert annað!
14.5.2009 | 15:30




![]() |
Seðlabankinn í klemmu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)


![]() |
Brown ræðst alltaf á Ísland í vandræðum sínum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stjórnarandstaðan undir járnaga Jóhönnu og steinþegir !?
14.5.2009 | 08:55
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna eru bundnir trúnaði og gátu því afar takmarkað tjáð sig um þingsályktunartillöguna í gegnum saman límdan munna sér enda bundnir Jóhönnu þögn þegar eftir því var leitað. Bæði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, sögðu þó í gegnum tunguhaftið, að þeir væru afar undrandi. Orðrétt sagði Bjarni: Þessi þingsályktunartillaga sem grundvöllur fyrir viðræður við Evrópusambandið kom mér verulega á óvart. Sigmundur Davíð bætti við að framsetningin væri allt öðruvísi en hann hefði búist við. það verður fróðlegt að sjá hvað Jóhanna er að tefla, Hvernig stendur á því að Jóhanna er hlaupin í felur og Össur tekin við að funda með stjórnarandstöðunni ? Báðir funda þeir hvor í sínu lagi með Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, í dag auk Birgittu Jónsdóttur, þingkonu Borgarahreyfingarinnar. lesa meira á vef mbl.is
![]() |
Kanna hvort einhverjir fletir séu til samstöðu" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fær Framsókn flokksherbergið aftur fyrir að þegja og styðja ESB Jóhönnu?
14.5.2009 | 01:11
Sorry Kom mér mjög á óvart líka, nú er bara að ganga til verks og segja upp stjórninni og það strax og henda IMF út eða setja kallinn í járn og senda hann heim með togara ! Einar B Braga.
Kom mér mjög á óvart segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins í gegnum saman límdan munn sér enda bundin Jóhönnu þögn það verður fróðlegt að sjá hvað "háttvirt" Stýran er að tefla, en eru til margar útfærslur um umsókn í ESB. Kannski Stýran sé orðin göldrótt og í skjóli þess flýgur hún inn um gullnahliðið í Brussel. Hvað um það, það er slæmt að tapa heimili sínu, enn en verra að tapa flokksherbergi sínu það veit Sigmundur Davíð Gunnlaugsson enda hafa framsóknamenn verið duglegir við að selja sálu sína fyrir hina ýmsu bittlinga, kæmi mér ekki á óvart að þeir fengju græna klefann sinn aftur, og þá fyrir stuðning við leyniplaggið er þjóðin má ekki sjá. Er búið að leigja skrifstofu fyrir ESB hér? og aðra fyrir Leyniplaggið er það fer til Brussel ? Kannski er skjalið svo leynilegt að meira segja Olli Rehn stækkunarstjóri og lykkla Pétur ESB fær ekki að sjá það. Uppfyllir leyniskjalið kanski skilyrði Mastricht sáttmálans ? En sá sáttmáli var marghveri þjóðinni erfiður ljár í þúfu. Kannski leyniskjalið sé skipti minnt á fiskveiði heimildum þjóðarinnar enda ESB búið með allan þann fisk er þeir geta með góðu móti veitt, á ESB í staðin að borgar útrásar skammir og skuldir víkinganna? Eða það sem er öllu verra er, er leyniskjalið afsal á svartgullinu á drekasvæðinu? Það er nú svo að ESB vill leynt og ljóst losna við að vera háð Rússum er kemur að olíu og gasi. Hverju sem leyndiskjalið leynir þá er þetta hrikaleg framkoma við þegna þjóðar okkar, sem og algjört virðingarleysi.
![]() |
Sigmundur Davíð: Kom mjög á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 15.5.2009 kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)