Færsluflokkur: Bloggar
Furðu frétt ! Sykurskortur í Indlandi ??
25.8.2009 | 13:52
"Mikill skortur er á sykurbirgðum á Indlandi og í Pakistan. Verð hafa hækkað upp úr öllu valdi og er almenningur farinn að ókyrrast mjög. Indversk stjórnvöld hafa gripið til þess ráðs að takmarka það mjög hvað fyrirtæki geti safnað miklum birgðum af sykri".
"Fram kemur í einu dagblaði í landinu að birgðirnar í landinu hafi dregist saman um 4,5 tonn. Það dugi aðeins í tvo mánuði í landinu".
Er ekki eitthvað mikið rangt við þessa frétt ? Indland er annað fjölmennasta land jarðarinnar og Þar býr rétt yfir einn milljarður manna. Þannig ég spyr hvað hefur samdráttur uppá 4,5 tonn að segja um sykur skort í Indlandi ? Ef meðal sykur neysla á Íslandi er nær kílói eða tæplega 850 g á íbúa á viku !
Ég bara spyr...
![]() |
Mikill sykurskortur í Suður-Asíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Stjórnvöld blekktu þjóðina vísvitandi!
25.8.2009 | 08:17
![]() |
Ríkisábyrgðin falli niður 2024 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis "Vítaverð"
22.8.2009 | 16:06
Það má sanni teljast að Álfheiður Ingadóttir, fimmti varaforseti Alþingis vakti sérstaka athygli er hún ávítti Tryggva Þórs Herbertssonar fyrir að nota orðið vítavert, hvað fimmta varaforseta gengur til er mér með öllu óljóst ? Er fimmti varaforseti að vekja á sér athygli á kostnað Tryggva Þórs Herbertssonar eða fór hún vitlaust fram úr rúmi sínu? Hvað á maður að halda konan varð sér til skammar og það sem verra er þinginu til leiðinda. Til setu sem forseti þingsins verður að veljast fólk er veldur starfanum, ekki bjöllusauðir er klingja í sífellu eftir lundarfari sínu þennan daginn eða hinn, þingi og þjóð til ama. Þetta á jafnt við alla forseta þingsins, þann fyrsta sem og þann FIMMTA!
Í fróðlegri athugun Eyjunnar í ræðusafni Alþingis á netinu, sem nær til ársins 1974, leiðir í ljós að þingmenn hafa notað orðið vítavert 160 sinnum á þessu tímabili. Hefur það sjaldnast verið gert í tengslum við umræður um áminningar og þingvíti, heldur oftast í almennum ræðum um einstök mál. Þá hefur orðið verið notað um 40 sinnum í þingskjölum á sama tímabili. Dæmunum fjölgar ef ýmsar beygingarmyndir orðsins, svo sem vítaverður og vítaverðar eru einnig taldar með.
Sjá má slóð í upptökur af framferði Álfheiðar Ingadóttur fimmta varaforseta Alþingis HÉR!
Skyldi þetta hafi verið skítlegteðli eða er eitthvað annað hér að baki?
'
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það á ekki af forseta vorum að ganga er hann skreppur á bak.
20.8.2009 | 14:43
Ólafur virðist þeim ósköpum gæddur að geta ekki hangið á baki svo vel sé, ég veit þó ekkert hvernig hann ber sig að, eða hvernig reiðmaður Ólafur Ragnar er. Þetta glæsilega fall bar að með svipuðum hætti og fyrir 10 árum þegar Dorrit hlúði að manni sínum eins og nú, hann mun vera axlarbrotinn.
Það skiptir miklu máli hvernig Ólafur ríður, hvort hann ríði hart eða hægt og ljúflega eða fylgist að með öðrum í hópreið, síðan er það náttúrulega stóra spurningin, var vel valið undir Ólaf ?
Megi Ólafur ná bata hið fyrsta og legg ég til að hann leggi af glæsilega reiðmennsku um sinn, eða stundi þær framvegis heima við enda stutt í hjálp, ef leggja þarf hann inn.
P.S. Hesturinn heitir Glæsir og er hann í góðu standi eftir slysið. Honum varð ekki meint af.
![]() |
Ólafur Ragnar slasaðist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Allt kemur þetta að lokum...
19.8.2009 | 17:21
Opnað fyrir eitt Kreditkort til handa Íslendingum ef þannig má að orði komast og er það vel sýnir að okkur eru ekki allar bjargir bannaðar.
![]() |
Opnað fyrir Ísland á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Her manna vinnur nú fyrir kanann i Keflavík!
18.8.2009 | 10:17
Á keflavikur flugvelli vinnur nú her manna við að setja kanann upp að nýju, það virðist sem kaninn ætli sér að taka Ísland með látum í þetta sinn, slíkur er hraðinn við uppsetningu tækjabúnaðar og ráðningar mann til starfa fyrir kanann, það fór þó aldrei svo að kaninn yrði lengi fjarverandi og velta menn nú fyrir sér hvað Steingrímur Jóhann taki til bragðs er kaninn hefur starfsemi sína aftur á vellinum.
Hafa margir haft á orði að nú verði teknar upp, áður aflagðar Keflavíkur göngur, verður spenandi að sjá hvort ekki verða þar kunnugleg andlit á ferð. Þá hefur heyrst að fyrsta flugtak Kanans verð þann 1. september næst komandi og bíða menn spenntir eftir að sjá hvort hljóðmúrinn verði brotin í flugtakinu.
KANINN - Armed Forces Radio Service Keflavik eða AFRTS
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heldur er Icesave-pólítík Steingríms Jóhanns efnislaus !
17.8.2009 | 20:22
Hann ætlar sér ekki að kyngja því að hrossabrestur vinur hans hafi klúðrað Icesave samningnum við greyin Breta og Hollendinga, já maður segir víst greyin um hunda. Steingrímur Jóhann Sigfússon verður gott nokk að kyngja því að það verður að semja aftur eða öllu heldur koma Bretum og Hollendingum í skilning um það að við borgum ekki meir en þjóðin þolir, annað er ekki í boði !
Steingrímur Jóhann virðist vera algjörlega út á þekju er við hann er rætt svo mikið er víst! Maðurinn fer ávalt með sömu rulluna um Icesave eða "Engin ástæða væri til annars en að samþykkja samningana". Þetta hefur hann sagt fyrirvara laust sem og með fyrirvara ?! Honum virðist það engu skipta hvort fyrirvara eru eður ei, bara samþykkja og allt er klappað og klárt. Nei ef það væri nú svo gott, Það er löngu ljóst að maðurinn er í einhverju allt öðrum hæðum en lágt settur skattpíndur almúginn. Það er því bráð nauðsinnlegt að hjálpa manninum niður !
Þessi aðferðarfræði Steingríms Jóhanns er í einu orði sagt efnislaus!
Það veit sá er allt veit að sitjandi stjórn er ekkert annað en saman safn af laumupúkum er koma ekki til dyranna eins og þeir eru klæddir heldur íklæddir spunavef lyga. þetta er stjórnvaldið á Íslandi, fólk er getur varla tölt sér á salerni án þess að ljúga til um aðgerðina eða (að)ferðina. Við þurfum stjórn með bein í nefinu, stjórn eins og þá er leiddi þjóð okkar í gegnum þorskastríðin, og mest af öllu þurfum við sterka kynningar herferð á stöðu okkar, smæð og getu eða getuleysi þjóðarinnar gagnavart kúgunnar stefnu Breta og Hollendinga. Steingrímur Jóhann verður að fara gera sér grein fyrir því að sólin sest í Bretaveldi. Þá er Steingrímur komin á þann aldur í pólítík að hann ætti að vita þann einfalda sannleika, þvermóðska og ósannsögli verður ekki lengur liðin meðal þjóðarinnar.
Fellu pólitík Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns er með öllu óþolandi. Þjóðin á ótvíræðan rétt til að vita hverju fram vindur frá degi til dags, enda hennar að greiða á endanum.
![]() |
Eiga að viðurkenna staðreyndir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hverju spáir þú ?
16.8.2009 | 23:19
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Steingrímur Jóhann Sigfússon heimtar afsökun!?
16.8.2009 | 20:57
Hvernig stendur á því að ekki er skipt um yfirmenn í hinum ýmsu stofnunum kerfissins er komu að hruni bankanna? Það er athyglisvert að en starfar mikið til sama fólkið við stjórn Íslenska hagkerfisins og var hjá bönkunum og innraeftirlitinu fyrir hrun? Hvað veldur mér er spurn?
Hvernig stendur á því að Steingrímur Jóhann Sigfússon leyfir sér að senda óhæfan vínanda til alvarlegra samninga gerðar fyrir þjóðina, vínanda með enga reynslu né getu til eins né neins, nema það vera prumphænsni fyrir snobbið í Skandinavíu? Hvers vegna lokaði Steingrímur á alla þá hjálp mætra manna og sérfræðinga er stóð í boði ? Hvað veldur slíkum hrossabrestum hjá Steingrími ?
Hér er nauðsynlegt að Steingrímur Jóhann Sigfússon dragi hausinn úr sínum sandkassa og biðji þegna þessa lands afsökunar á gjörðum sínum !
Hinum skal refsa og gera eigna lausa, það er nefnilega svo að þjófar þola það engan vegin að þeim sé gengið og (eigur þeirra) þjófstolnar gerðar upptækar. Það er versta refsingin fyrir þá að taka af þeim fenginn.
Ég bíð eftir afsökun frá fyrri sem og núverandi ríkisstjórn á vinnubrögðum eða öllu heldur vinnubragðaleysi, hvað þá þeirri stjórn er nú situr og matar almenning á eigin sannleika í Icesave málinu, sér í lagi öllu því pukri og óheillindum er fylgt hefur því ógæfumáli.
![]() |
Bíður eftir afsökunarbeiðni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Judas Iscariot hinn Íslenski hrossabrestur.
16.8.2009 | 14:54
![]() |
Full samstaða um Icesave í VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)