Færsluflokkur: Bloggar

Taugarnar og ósannindin...

En og aftur reynir jógrímur hinn tómhenti að beita skrökvuplati á þjóðina , enn og aftur sýnir sig hversu lágt velferðastjórn jógríms leggur sig! Enn nú trúir engin ekki einu sinni erlendir ráðamenn er hiksta hátt og skörunglega þegar mynnst er á ríkisstjórn Íslands !
Íslenska þjóðin er búin að fá nóg af þessu fólki er kann lítið annað en bandormalygasúpu!
óþverinn

Stjórnkerfið er sjúkt og það ber að bólusetja þessa lofaorða ráðherra við ósanninda orminum!
 
Upl: ég og þú!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 

Allt er þessi velferðarríkisstjórn gerir er ákaflega ógeðfellt! 

Það líður að kosningum til Alþingis, endur reisum nýtt Ísland og Íslenska þjóð

 




Ekkert á diskinn minn...

Þessa dagana kemur fátæktin í velferðarríki Jóhönnu Sigurðardóttur berlega í ljós, það má ekki opna dagblað eða skoðar fréttir á netinu að maður reki ekki augun í tugi greina um örbyrgð og hungur.

Hvernig má það vera ? Í hvert sinn er forsætisráðherra velferðar opnar munninn opinberlega syngur hún á hæstu tónum, allt er í himnalagi ligga ligga lá, ríkissjóður standi aldrei betur og atvinnu sé að finna í grennd... 

Forsætisráðherrann hefur sennilega sett leppinn fyrir rangt auga, hann sér ekki vonleysið né örbirgðina allt um kring! 

Kreppubrauð

Eftir hartnær 4ra ára setu velferðarstjórnarinnar Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ekkert breyst til batnaðar, af hverju það? jú það er til einföld skýring forsætisráðherrann Jóhanna Sigurðardóttir hefur ekki lyft einum einasta fingri til eins eða neins nema þá til að þiggja laun sín og hækka þau reglulega ásamt því að skattpína almúgann enda verða spesíurnar hennar að koma einhvers staðar frá, hvert er þá handhægast fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að sækja þær? jú í vasa smælingjana gamla fólksins lífeyrisþegana er hafa þurfta að þola rányrkju á réttmætum lögfestum bótum sínum og það af hendi velferðar forsætisráðherrans Jóhönnu Sigurðardóttur ekki nóg með það heldur sigar hún vinstri hönd sinni Steingrími J Sigfússyni til að leggja á ofurskatta er hann leggur kampakátur á galtómar eldhúsbuddur barnafjölskyldna til þess eins að auka við örbirgðina, allt annað er látið sitja á hakanum eins og leiðréttingar á lífskjörum eða uppbygging, reyndar allt það er gætti rétt við þjóðina er sett í skúffu og skúffað.

Ákall forsætisráðherrans og velferðarmeistarans Jóhönnu Sigurðardóttur líkar Steingrími J Sigfússyni afar vel enda er hann sein þreyttur við að semja og flytja álögu lög, en Íslensku þjóðinni er ekki skemmt, hún er vannærð og það er farið að síga í hana!

Steingrímur J Sigfússon hefur farið offari í skatta gauli sínu!

SkattGrímur

Það slær mann að sjá fréttir þess efnis að Fjölskylduhjálp Íslands úthlutaði fjögur hundruð aðstoðarpökkum í gær enn um hundrað manns urðu tómhentir frá að hverfa, ekki hefur verið mikið á disknum hjá þeim enda fer fólk almennt ekki í biðraðir eftir björginni nema allt sé komið í þrot! Íslendinga eru í eðli sínu stolt þjóð svo stolt að menn og konur læðast með veggjum eftir björginni er reynist síðan uppurin...

Það á ekki að líðast að ráðamenn þjóðarinnar hengi haus og hunsa fólkið í landinu, nú í desember verður alger sprengja í hjálpar beiðnum segir Ásgerður hjá Fjölskylduhjálpinni og hún er hrædd um að Fjölskylduhjálpin nái ekki að standa undir eftirspurninni og aðstoða alla er þurfa, við fáum að öllum líkindum ekkert frá ríkinu, og við fáum eina og hálfa milljón frá borginni, en við báðum um tíu," segir Ásgerður.

Á meðan er Velferðarstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að dæla 280 milljónum í grængælu verkefni sem allir vita að skilar engu, hvað þá arði, væri þeim milljónum ekki betur varið til styrktar Fjölskylduhjálp Íslands og öðrum álíka hjálparstofnunum? Hvað með borg Gnarrs Reykjavík er skilar tæplega fjórtán milljörðum í skattheimtu afgang!

14 MILLJARÐAR Í afgang duga ekki til að rétta illasettum hjálpar hönd, borgarstjórinn Gnarr sér ekki og vill ekki sjá illa setta borgar, hann sér eingöngu sinn eigin disk og á hann vantar ekkert!  Borgarstjóranum Jóni Gnarr varðar ekkert um aðra en sjálfan sig og fyrir honum er þetta allt grín!

Hér verður eitthvað að gerast, ef framheldur sem horfir verður það skelfilegt að vera Íslendingur, Þökk sé velferðarstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur!

Uppl: www.visir.is ásamt ýmsum á netinu. 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 

Allt er þessi velferðarríkisstjórn gerir er ákaflega ógeðfellt! 

Það líður að kosningum til Alþingis, endur reisum nýtt Ísland og Íslenska þjóð!

 


NorænaVelferðarstjórnin hvað ?

Velferðarstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur lítur sér ekki nær heldur spanderar gjaldeyrir í allar áttir.

Spanderar erlendum gjaldeyrir í þróunar aðstoð á meðan þúsundir Íslendinga leita eftir mataraðstoð hjá hjálpar stofnunum!

Spanderar erlendum gjaldeyrir í rannsóknar vinnu erlendis er hreinlega kemur hungraðri Íslenskri þjóð ekkert við, og á meðan svelta heilu fjölskyldurnar í þessu landi.

''Íslensk stjórnvöld ætla að úthluta yfir 80 milljónum króna fyrir árslok til baráttu fátækra ríkja við loftslagsbreytingar. Fyrir tveimur árum var lofað um 120 milljónum, en til þessa hafa aðeins um 40 verið greiddar. Þær hafa að stórum hluta farið í rannsóknir á jafnréttismálum íbúa í þróunarlöndum''.

Hvern ansk.. kemur hungruðum Íslenskum börnum það við hver er út koman í rannsókn á jafnréttismálum erlendis meðan Íslenskar barna fjölskyldur ganga við betlistaf.

JolagladningurJohonnuSigurdardottur

''Ísland hefur til þessa úthlutað um 40 milljónum króna, 350 þúsund dölum. Um 130 þúsund dalir fóru í sjóð Sameinuðu þjóðanna sem veitir fátækustu löndum heims stuðning við að undirbúa og framkvæma áætlanir um aðlögun að loftslagsbreytingum, 150 þúsund dalir fóru í verkefni sem er ætlað að auka skilning á áhrifum loftslagsbreytinga á afkomu fólks sem lifir af fiskveiðum, einkanlega með tilliti til jafnréttismála, eins og segir í upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu''.

Ætli hungruð börn hér á landi kæri sig kollót um hvort fátæk börn erlendis skilji upp eða niður í áhrifum loflagsbreyting á jafnréttismál, nei þau hugsa fyrst og síðast um hvort þau fá eitthvað að borða í dag eða hvort það verða jól !

''40 þúsund dalir fóru í sjóð samtaka sem miða að því að auka hlut kvenna í alþjóðlegum viðræðum um loftslagsmál. Sjóðurinn borgar ferðakostnað kvenna frá þróunarlöndum á alþjóðlega fundi. Rúmir 26 þúsund dalir fóru í verkefni í Úganda sem felst í rannsóknum og námskeiðum á sviði kynbundinna áhrifa loftslagsbreytinga, eins og segir í tilkynningu ráðuneytisins. Afganginum af þessum styrk, 650 þúsund dölum, um 80 milljónum, verður úthlutað fyrir áramót''

Þetta er bara brot af því er ríkisstjórn velferðar eyðir hist og her en ætti að að vera sett í þjóð okkar! Hvernig var þetta settu fyrst á ÞIG súrefnis grímuna síðan á barnið, sem þýðir hvað jú fyrst skaltu gæta að sjálfum þér þannig að þú sért fær til þess að aðstoða aðra, Þetta ætti fyrverandi flugfreyan að vita en virðist hafa gleymt, velferðar stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur telur vænlegra að borga fyrir og halda námskeið í Úganda um kynjabundin áhrif loflagsbreytinga.

Tja maður bara spyr sig hvað gengur velferðar ráðherranum Jóhönnu Sigurðardóttir til?

Í þokka bót hækkar velferðarstjórnin laun sín og lækkar greiðslur til lífeyrisþega en greiðslur til lífeyrisþega hafa lækkað um rúmlega helming frá hruni en öll almenn laun hafa hækkað og þá sérstaklega hjá ráðamönnum þjóðarinnar.

Væri ekki nær að velferðastjórnin notaði þessa peninga til styrktar gjaldþrota heimilum, matarlausum Íslenskum börnum og Íslensku hjálpar stofnunum ?

Nei Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ríkisstjórnar Velferðar varðar ekkert um svöng börn, fátæk gamalmenni eða skólausa öryrkja.

Upl: ruv.is 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 

Allt er þessi velferðarríkisstjórn gerir er ákaflega ógeðfellt! 

Það líður að kosningum til Alþingis, endur reisum nýtt Ísland og Íslenska þjóð!

          

 


Jólaglaðningur öryrkja er í anda velferðar...

Velferðarstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur slær nú öll fyrri met í aðför að þeim er minnst mega sín og en og aftur þakkar hún kjósendum sínum fyrir stólinn semog launin er hún þiggur.

Ekki virðist Jóhönnu Sigurðardóttur hafa dugað að skera bætur kjósenda sinna þ.a.s. lífeyrisþega niður um rúman helming heldur bætir hún en um betur og ræðst með klærnar í jólauppbót þeirra er minnst mega sín, allt í nafni velferðar.

Johanna Sigurðardóttir

Desember uppbót lífeyrisþega í ár er 12% lægri, 12% lægri en árið 2011 en þá var hún 42% á fjárhæðir tekjutryggingar og heimilisuppbótar í stað 30% í ár,  það munar um minna þegar ekkert er til... 

Hætt við að mörg heimili lífeyrisþega hafi lítið til að moða úr þessi jólin og einhver verði nú grátur svangra barna er hvorki fá jólamat við hæfi né jólagjafir hvað þá sæmileg föt í tilefni hátíðar ljós og friðar.

Jóhönnu Sigurðardóttur virðist ekki svíða að sjá sína fyrrverandi skjólstæðinga ekki geta séð sér farborða og það virðist vera markmið velferðarstjórnarinnar að stór auka örbirgðina!

Það er líðum ljóst að Jóhönnu Sigurðardóttur en nokk sama um þá staðreynd að tug þúsundir lífeyrisþega tapaði nær öllum ef ekki öllum sparnaði sínum við fall bankanna enda hafði þeim verið ráðlagt að fjárfesta í bönkum og sjóðum, nú er svo komið að það er bara ekkert eftir, allt löngu farið, en það er ekki nóg að mati velferðarstjórnar Jóhönnu, heldur ræðst jóla mærin Jóhanna Sigurðardóttir en og aftur á tekjurnar, Jóhanna Sigurðardóttir veit það mæta vel hversu langt, langt er síðan þær fóru niður fyrir allt er getur kallast velferð eða hungurmörk hjá elli og örorkku þegum, en henni er sk.. sama, lyftir bara öxlum og strýkur ketti sínum.

    Já mikill er jólaandi þinn Jóhanna Sigurðardóttir.

Ættla má að þessi jólin verði jólaköttur Jóhönnu bústnastur katta. Jólakötturinn

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 

Allt er þessi velferðarríkisstjórn gerir er ótrúlega ógeðfellt! 

Það líður að kosningum til Alþingis, endur reisum nýtt Ísland og Íslenska þjóð!

 


Innræti Steingríms J. og félaga...

Steingrímur J. Sigfússon, nýsköpunarráðherra verður seint talin til Íslands gæfu manna, hvað þá til þeirra manna er hafa unnið þjóð sinni gagn eða staðið vörð um land sitt hvað þá þegnana.

Þar hefur allt verið á hinn vegin, karluglan hefur lagt sig svo fram við undir róður gegn samlöndum sínum og hagsmunum þjóðarinnar að hann gengur nú keng bogin um ganga ráðuneytinýsköpunar, enda yfir klyfjaður af brellibrögðum og skrökvulygi að það hálfa væri nóg. 

Steingrimur J Sigf sson Hinn Islenski Baron Munchausen 

Þessi skrif hér að ofan voru reyndar skrifuð 29.09.2010 og það merkilega er að ekkert hefur breyst í hegðunar mynstri ráðherrans það eina er breyst hefur eru nafngiftir hans á ráðuneitum og málaflokkum er hann höndlar í blindri skrökvulygi.

Merkilegt þetta ráðuneitinýsköpunar, hefur einhver orðið var við eða hrassað um einhverja nýsköpun þar? Nei þar skeður einfaldlega ekkert, í besta falli er þar helt upp á nýtt kaffi er þú borgar í þokkabót! 

Innræti þessara ráðamanna hefur ekkert breyst og því ekki líkur á að eitthvað breytist meðan svo er.

Það líður að kosningum til Alþingis, endur reisum nýtt Ísland og Íslenska þjóð!  

Hér er slóð í gömlu greinina: Smelltu hér!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :) 

 


Ekki gott þegar félagarnir reka mann heim!

Björn Valur rekinn útaf, það eru góð tíðindi fyrir virðingu alþingis !
En hvað ætli Steingrímur segi við því,  ætli það sé eitthvað á þessa leið ?

FulGrimur 

Jú ég get mér til að hann sé ekki ánægður með að hvolpurinn hafi verið rekin heim.... 

 


Uppsker eins og hann sáir!

Björn Valur Gíslason alþingismaður endaði í sjöunda sæti listans.

painted-into-corner 

Væntanlega mun virðing mín fyrir Alþingi stóraukast að afloknum kosningum í vor.

Slóð í forsíðu og aðrar furðu greinar: HÉR ! 

 


Nú verða Íslendingar að gæta sín...

Håper på gigantfunn ved Jan Mayen - fréttir berast að hugsanlegum risa setlögum norður af landinu (Drekasvæðinu) er ljóst aðCANCLNUG setja verður Jógrím af sem allra fyrst og þá helst í gær enda yfirlýst stefna vinstri græningja að leyfa hvorki stóryðju né ljá máls á nokkru því er kallast gæti upp bygging, efnahagsbati eða upprisa velmegunar, hugsýkin er algjör ekkert má koma þjóðinni til bjargar.

Það er löngu lýðum ljóst að Jógrímur hugnast ekki að hér þrífist sæmilegt mannlíf né nokkurt það er kallast gæti velferð, allt tal um Íslenska velferð er niðurskurður á niðurskurð ofan, ekki nóg með það heldur hefur hálfur Jógrímur = Steingrímur boðað að nú skuli settur á auka kolefnisskattur til þess eins að setja erlend sem Íslensk stórfyrirtæki í þrot og þar með hrekja þau úr landi.

Fjármálaráðherra ber að draga fyrir landsdóm, enda maðurinn ekki heill og hefur unnið þjóðinni stórtjón með brellibrögðum sínu og ósaninda pólitík.

Um hinn helming Jógríms er það að segja að hann gerir ekkert, já ekkert ef frá eru talin svikin loforð við elli lífeyrisþega og öryrkkja, já fólkið er kaus ráðherrann með von um betri tíð en ráðherrann gerir hreint ekki neitt nema halda sem fastast í forsætisráðherra stól sinn er þjóðin reyndar á...

umhvefis-radherraEkki má gleyma að nefna óværuna í umhverfisráðuneytinu er fellur á hverju greindarprófinu eftir öðru enda rekur hver vitleysan aðra í kolli umhverfisráðherra þannig það hálfa væri nóg.

Íslenska þjóðin verður að standa upp og hrekkja þessa niðursetninga út af stjórnarheimilinu þannig að heimilin í landinu eygi sér viðreysnar von, bjarga verður fyrirtækjum er veita okkur vinnuna þar með lífs brauðið, gæta verður að og hlúa að olíu draumnum, þar eru óteljandi möguleikar í öllu því er lítur að þjónust við olíuborpalla, þennan draum ber að hlúa að enda gæti hann reynst gæfa þjóðarinar, hér má Jógrímur ekki koma nærri, skemmandi, spillandi eða ofurskattleggjandi eins og allt annað það er hann vitgrannur tekur sér fyrir hendur !

jogrimur4

Nú er mál að reka fleyg í bak Jógríms!  

 

Slóð í forsíðu og aðrar furðu greinar: HÉR !

 

  


Duglegir brúarsmiðir úr landi...

Flytja duglegir brúarsmiðir úr landi líkt og flestir dugmiklir Íslendingar hafa gert, líklega, hvorki  brúasmiðir né aðrir dugandi menn þola öllu lengur óstjórnarástand jóhönnu sigurðardóttur, fólk þrífast ekki undir aðgerðaleysi og aumingja hætti, hvað þá skattaofsóknum skrökvu gríms.

Þjóðin er komin í þrot, bjartsýnin er engin, allt er bannað og frjáls hugsun illa liðin.

farinn

Ætli þeir verði margir brúsmiðirnir hér á land að ári?

Ástandið er slíkt að það er bókstaflega stór hættulegt að veikjast eða verð fyrir slysi, læknar eru farnir og nýnemar snúa ekki heim, frumköðlarnir, dugnaðarfólkið,  fyrirtækjaeigendur gjaldþrota sem ekki, flýaland, allir nema jóhanna sigurðardóttir sem er álíka veruleikafirrt og þráa sauðurinn í Lybíu, fer ekki rassgat og tautar hlíðin er mín,  hugvillan er algjör, hún skilur ekki að hún kann ekki og getur ekki, áttar sig ekki, nú þýðir ekkert að þylja fleiri skrökvulygar, fólk trúir ekki, trúir ekki sömu skrök sögunum aftur og aftur, það sést best á fólksflótta okkar hæfasta dugmesta fólks, þeir sem eftir sitja er fókið sem studdi forsætisráðherra til valda og uppskar niðurskurð á eymdarbótum sínum, sult og seyru ásamt því að vera borið út af heimilum sínum og sjúkrastofnunum.

Allt það er lofað var svikið og það sem verra er öllu er ekki var lofað var einnig svikið, það þarf einbeitan vilja til þannig verka.

rikisstjorn-johonnu_1098689.gif
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur

Það er ekki nóg að eiga duglega og hæfa brúarsmiði ef þeir fá ekki laun við hæfi, öll þessi vinna og álag skattlagði skósveinninn að hálfu og lagði á hin ýmsu gjöld, var þá lítið eftir í buddu brúarsmiða, en ljóst er að helmingur dugnaðarins kom ekki til vegna launa, heldur ástar á landi og þjóð, þessi menn eiga heiður skilið og það meira en þrjá gaffalbita af lambakjöti.

Ætli brosmildur Ögmundur hafi leit hugann að því er hann ók fyrstur yfir brúna hversu oft þeir fyrstu verða síðastir!

Sitjandi stjórn hefur nú sýnt það að hún hugsar frekar um eigin velferð en hag þjóðarinnar!  Hér er eitthvað mikið að, Já mikið!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
 


mbl.is Brúin kostar 30 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær er Morð Morð eða ekki Morð

Johanna einraedisherraRíkistjórn jóhönnu sigurðardóttur velferðar og gagnsæis er nú að takast hið setta markmið sitt, hún hefur nú þegar drepið niður og gengið frá flest öllum verktökum í landinu, slátrað öllum virkjunarframkvæmdum sem og framtíðarplönum ráðist að smáfyrirtækjum og meðalstórum, lagt þau að velli, flæmt mörg hinna stærri úr landi með ógnarsköttum drepið niður alla öryggiskend heimilli eiga að njóta, gefið bönkunum leifi til að ráðast að skjólvegjum heimila barnanna, barnanna er erfa eiga landið, framtíðinni, fært bankana aftur í hendur þeirra glæpamanna er drápu góðærið, ráðist með offorsi að minni mátta og lífeyrisþegum, allt að því svelt þá í hell, ráðist á steinhissa fyrrverandi forssætisráðherra með hengingar ól, þá hefur ríkisstjórn jóhönnu sigurðardóttur skorið læknastéttina niðurvið trog þannig að sjúkir og aumir sjá ekki framá lengingu lífdaga, breytir svosem engu menn með verki eða lasnir fá hvort sem er engin lyf er virka eingöngu eftirlíkingar lyfleysur kallaðar samheitalyf (Made In India).

 

Voðaverk Jóhönnu Sigurðardóttur

 

Maðurinn í handarkrika jóhönnu sigurðardóttur hefur hækkað skattbyrði landsmanna svo að hálfu og heilu starfstéttirnar hafa flúið land og snúa aldrei aftur!

Afreka skrá jóhönnu sigurðardóttir er einstök, ótæmandi, minnir á helför stjórnanda í Sýrlandi og Lýbíu gegn þegnum sínum.

Ríkisstjórn jóhönnu sigurðardóttur notar ekki púðurvopn í ásetningi sínum við að koma Íslensku þjóðinni fyrir kattarnef, nei hún notar niðurgang á niðurgang ofan, boð og bönn þannig að stoltir fyrrumstasi stasi menn reka upp stór augu yfir björtustu von jóhönnu sigurðardótur súkkulaði stráknum árna páli árnasyni er ''hótar'' ætlar sér að handtaka alla þá er koma til landsins með meira fimm, nei nú eru það víst sex evrur í rassvasanum og ekki er allt búið enn nú er komminn í seðlabankanum hækkaður í tign og gerður að yfirmanni hinar nýju stasi sveitar jóhönnu sigurðardóttur, en þar sigar árni páll seðlabankastjóra fram og aftur í ólöglegar aðgerðir það skiptir þetta fólk engu enda í engu farið eftir stjórnarskrá né tekið mark á Hæstarétti, ofaní alla reikninga skal rýnt, skoða skal hvað menn eyddu í, hvert þeir skruppu eða ferðuðust, hvað þeir létu ofan í sig og síðast en ekki síst hvort þeir litu annað fólk hýru auga erlendis eða greiddu fyrir drykk á súlustað, en það er landanum bannað og má hann ekki einu sinni reka sig í hugsun um slíkt.

Ekki má gleyma höfðingja gjörðum jóhönnu sigurðardóttur er hún samdi við verkalýðsforustuna um launa hækkannir, var þar vel að verki staðið launin hækkuðu meira segja gamlingjar og sárir fengu hækkun, enn viti menn steingrimmur nokkur j krumlaði hækkunina til baka og skósveinar jóhönnu í kaupmannstétt sáum um rest, situr nú almúgin aumari en fyrir öðlings hækkun laun var það kallað af ríkistjórnar velferðis og gagnsæis.

Hvenær er síðan lygi lygi eða aðeins hagræðing orða stjórmálamanns ?

lygarinnfjármálaráðherra jóhönnu sigurðardóttur kemur í kastljós og skrökvar sem aldrei fyrr, þeir sem á horfðu á lá við uppköstum af hryllingi yfir vanalegri en nú óstöðvandi skrökvulygi ráðherrans er hann sagði eldsneyti á íslandi mun ódýrar í krónum talið en á hinum norðurlöndunum, herranum er ekki við bjargandi hann nefnir ekki hversu mikið hærri launin eru hinum megin ála, hvað þá kaupmátturinn, hér á landi er hann engin enda ekki í anda vinstri vinstrisinna að lýðurinn geti keypt eitthvað annað en að honum er rétt.

Mér er það spurning hversvegna vitibornir frétta menn taka þegandi við öllu því er veltur útum talanda steingríms j sigfússonar!

Já hvenær er morð morð ?

Hér er verið að fremja þjóðarmorð morð á lífsgæðum morð á von, morð á heilsugæslu morð á þjóðarsál, morð á þjóðarvilja, morð á þjóðarauð, já hvenær er morð morð ?

Er ekki nóg komið og mál að byðja landvætti þjóðarinar um að rísa upp ásamt æðri máttarvöldum, hér verður að taka til hendi og strika yfir vondar gjörðir vondra.

Það eru jarðarfarir framundan, já þó nokkrar!

Jarðarfor-Johonnu

  Það að Íslenska þjóðin ráfar um í eymd og vonleysi sýnir best hversu hættulegt þetta vinstrar vinstra fólk er, enda ofstækis forsjárhyggja hér á ferð, kommúnisminn í allri sinni skelfingar myndi, hver mann ekki böðulinn joseph vissarionovich stalin, lærimeistara steingríms j., hver man ekki ógnar verk stasi ógnar verk kínverja gegn eigin þjóð, ógnarverkin um alla austurevrópu, það er sama hvar mann ber niður þar sem vinstri vinstrimenn hafa komið að málum ógn og skelfing, boð og bönn, þjóðarMORÐ!

JÁ GUÐ HJÁLPI ÍSLANDI GUÐ HJÁLPI ÞJÓÐINNI

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !

 


mbl.is Svört staða á bráðadeild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband