Færsluflokkur: Bloggar
Hún var kona !
18.2.2010 | 07:23
Hún var kona sem fékk menn til að hlaupa um stræti.
Hún var kona sem fékk menn til að aka útaf.
Hún var kona sem fékk menn til að klifra í trjám.
Hún var kona sem fékk menn til að taka 180 gráðu beygjur.
Hún var kona sem fékk menn til að nauðhemla..........
Já...Hún var kona með bílpróf!!!!!!
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ráðherra / Þingmanna próf.
17.2.2010 | 13:08
Persónuleikapróf við ráðningar, Íslandsbanki og Capacent hafa undirritað samkomulag um að Íslandsbanki fái að nota svonefnt OPQ32, sem er persónuleikapróf sniðið að ráðningum og þróun stjórnenda og sérfræðinga.
það er málið og löngu sannað að það er bráðnauðsynlegt að setja Þingmenn/Ráðherra í gáfnapróf (IQ) og þar að auki persónuleikapróf. (OPQ32)
Fólk er gegnir ábyrgðarstörfum verður að vera skyldað í þessi próf sérstaklega Ráðherrar, má þar sterklega nefna t.d. Umhverfisráðherra er að mínu mati þarf nauðsynlega að gangast undir próf sem þessi, samanber undanfarnar embættisfærslur ráðherrans, eins má nefna fjármálaráðherra semog ýmsa skólastjórnendur er ábyrgð bera á uppfræðslu barna okkar.
Hér er slóð í einfalt Þingmanna/Ráðherra: IQ próf til gamans.
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
Persónuleikapróf við ráðningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú er það borðleggjandi að sitjandastjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er ein mesta ógnarstjórn gagnvart alþýðunni og heimilum landsmanna að það hálf væri nóg.
Það að landsmenn gefast upp og flytji af landi brot bendir eindeigið til þess að hér er eitthvað mikið að í stjórnsýslunni. Skjaldborgin er Jóhanna Sigurðardóttir hét að reisa um heimilin reyndist engin og orðin tóm.
Það að stjórnvöld séu vísvitandi já vísvitandi að tapa mesta auð Íslands úr landi er glæpur og ljóst að það er eitthvað mikið að, ég segi vísvitandi vegna þess að fólkið er auður Íslands og sitjandi stjórn gerir ekkert ég endurtek EKKERT! til þess að halda vörð um mannauðinn!
Árið 2009 fluttu 4835 fleiri frá landinu en til þess og segir Hagstofan, að aldrei áður hafi jafn margir flutt frá landinu á einu ári. Næstflestir brottfluttir umfram aðflutta voru árið 1887 en þá fluttu 2229 fleiri frá landinu en til þess.
Gagnsæi stjórnvalda var og er ekkert, allt er framkvæmt með stimplinum TRÚNAÐARMÁL / JÓHÖNNU LEYNDÓ. Ekkert gefið upp um eitt né neitt og stjórnsýslan fer fram í myrkvuðum skugga herbergjum eða leynikrókum hist og her um landið.
Uppbygging atvinnuveganna og þjóðarsáttin var brotin niður ekki að það vantaði viljann hjá verkalýðsfélögum eða lífeyrissjóðum, nei það var ríkistjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er lagði stein í allar framkvæmdir með svikum á svik ofan.
Þá er þessi sitjandi ríkisstjórn sú stjórn er verst hefur komið fram við íbúa lands okkar með geigvænlegum skattahækunum er enga eiga sér líka í veröldinni ekki einu sinni hjá ógnarstjórnum eða fógetanum í skíraskógi.
Er ekki komin tími á að þessi óreiðustjórn leggi upp laupana og segi af sér ?
Eða er ekki komin tími á að þessi stjórn verði borin út áður en henni tekst að koma Íslensku þjóðinni algjörlega fyrir kattarnef !
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR !
![]() |
Mestu búferlaflutningar Íslandssögunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hryðjuverkamaður í fjármálaráðuneytinu!
16.2.2010 | 05:48
Það er löngu ljóst að Stengrímur Jóhann Sigfússon vinnur ekki með hagsmuni Íslensku þjóðarinnar að leiðarljósi, ef hann kallar ekki úlfur úlfur þá er hann leggjandi línurnar fyrir nýlendu nýðingana í Englandi og Hollandi.
Hvað halda samninga menn Breta og Hollendinga er þeir lesa skýrslur sínar um uppgjafar og aumingja tóninn í lítilmenninu Steingrími Jóhanni Sigfússyni ? Hann hreinlega gefur út opinbert veiðileyfi á Íslendinga, með þeim skilaboðum að Íslendingar gefist upp og bretar/hollendingar eigi að vera harðir, ekki gefa neitt eftir þetta eru skilaboðin er dusilmennið sendir frá sér, það þarf ekki glöggan mann til að lesa þetta á milli línanna í boðum Steingríms Jóhanns Sigfússonar.
Þennan mann á að bera nú þegar útúr fjármálaráðuneytinu og kagstrýkja fyrir að vinna gegn Íslensku þjóðinni. (LANDRÁÐ) það er löngu komin tími á að þjóðin setji á svo kallaða þjóðstjórn valinkunnra manna er hafa getu og þor til að vinna fyrir Íslensku þjóðina af heilindum. Það er nóg komið af svikum og prettum sitjandi stjórnvalda.
Nú þarf umbyltingu á öllu er lítur að stjórn Íslands!
Steingrímur Jóhann Sigfússon ásamt meðreiðar (frú) Jóhönnu Sigurðardóttur eiga að víkja nú þegar. Parið hefur unnið landi og þjóð þvílíkan skaða að ekki á sér fordæmi í vestræni sögu, hvað þá Íslenskri.
Framganga Steingríms Jóhanns Sigfússonar í fréttum er hagsmunum Íslendinga ekki til framdráttar heldur hreint og beint hryðjuverk gagnvart samningsstöðu Íslensku þjóðarinnar.
Það að geta ekki treyst því að fjármálaráðherra standa vörð um hagsmuni Íslands nær út yfir alla þjófabálka!
![]() |
Hóflega bjartsýnn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Valentínusardagur ! Hver var eiginlega Valentínus ?
14.2.2010 | 15:40
Sendi þeim er halda upp á Valentínusar daginn bestu kveðjur !
Valentínusdagur eða Valentínusardagur (14. febrúar)
Heilagur Valentínus er nafn yfir tvo, eða jafnvel þrjá, píslarvotta í sögu kirkjunnar.
Annar var rómverskur prestur og læknir sem varð fyrir barðinu á Kládíusi II, Rómakeisara, í ofsóknum hans á kristnum mönnum.
Hinn var biskupinn af Terní á Ítalíu. Mögulegt er að sögurnar af þessum tveimur mönnum eigi uppruna sinn í einum og sama atburðinum en hafi brenglast í gegnum tíðina.
Um þriðja manninn er lítið vitað annað en að hann á að hafa dáið í Afríku.
Heimildir eru sem sagt óljósar og ekki hægt að segja nákvæmlega til um hvenær Valentínus dó, hvort sem hann var einn maður, tveir eða þrír.
En sennilegt tímabil er valdatími fyrrnefnds Kládíusar II, 268270 eftir Krist. Og Valentínus var kristinn.Valentínusardagur sem svo er nefndur og haldinn hátíðlegur sem dagur kærustupara á uppruna sinn í Evrópu á 14. öld.
Síðar virðast Bandaríkjamenn hafa verið einna iðnastir við að halda uppi merkjum þessa dags. Hefðir í kringum daginn, sem að nokkru leyti hefur rekið á fjörur Íslendinga, virðast ekkert hafa að gera með dýrlingana sem báru nafnið Valentínus.
Engin tengsl eru milli dýrlinganna og þeirrar hefðar sem náð hefur talsverðri útbreiðslu, að piltar og stúlkur skiptist á ástleitnum kveðjum þennan dag.
Um uppruna þess siðar er lítið vitað.
Þá er mjög skammt síðan hann náði fótfestu á Íslandi.
Heimildir Almanak Háskóla Íslands, Britannica.com og fleiri
Bloggar | Breytt 15.2.2010 kl. 08:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Glæpur gegn þjóðinni, skuldbindingar í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla.
13.2.2010 | 19:28
Mun Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra fá hæstarétt til þess að snúa héraðsdómi að fyrri héraðsdómi, er var á hinn veginn og þá bönkum í hag. Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra hefur verið hávaða samur mjög um að þessi tenging væri eðlileg og lögleg, undarleg viðhorf og túkun sitjandi viðskiptaráðherra telja margir starfandi viðskiptafræðingar. Það verður fróðleg að sjá hvort ráðherrann verði læsturinni með skoðanir sínar og ef svo fer á hann að hafa vit á að bera þær hvergi á borð nema þá eingöngu fyrir sjálfan sig bakvið lás og slá.
Hefur þjóðin nokkra trú í dag á hæstarétti ? Enda hefur dómurinn fellt margan furðudóminn undanfarin áratug.
''Óheimilt er að binda skuldbindingar í íslenskum krónum við gengi erlendra gjaldmiðla. Þetta er kjarni niðurstöðu dóms Héraðsdóms Reykjavíkur, sem í gær sýknaði mann á Akureyri af kröfum Lýsingar hf. vegna eftirstöðva af bílaláni."
![]() |
Gengislánin dæmd óheimil |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lygar um ásakanir ransakaðar eða raðakasnar rinakasá mu ragyL
12.2.2010 | 13:20
Hversu oft má snúa málum í andhverfu sína eða setja allt á annan endann, hreinlega á hvolf?
Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, hefur fyrirskipað rannsókn á þeim ásökunum stjórnenda hollenska seðlabankans, að íslensk stjórnvöld hafi sagt hollenskum stjórnvöldum ósatt um stöðu íslenska bankakerfisins í aðdraganda bankahrunsins á Íslandi haustið 2008.
![]() |
Rannsaka ásakanir um lygar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
KitKat fyrir banana.
11.2.2010 | 10:06
Ætlar að láta af þeim vafasama sið að borða heil 4 Kit Kat súkkulaðistykki á dag.
Í staðinn ætlar hann að borða banana.
Já batnandi mannöpum er best að lifa, enda hefur hann víst sama hegðunar mynstur og frændur hans Górillur, er argur að eðlis fari og gjarn á að grýta lausa munum á skrifstofu sinni í Niðurstræti 10, tja rétt svona eins og Górilla gerir er henni líkar ekki eitthvað... Aumingja Gordon Brown...
![]() |
Gordon Brown skiptir KitKat út fyrir banana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við segjum einfaldlega NEI !
10.2.2010 | 16:06
InDefence samtökin saka bresk og hollensk stjórnvöld um efnahagslegan hernað gegn Íslandi.
![]() |
Hvetja Íslendinga til að segja nei |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Illa innrættar persónur tala illa um aðra, dreymdi rottur í haugum, nótt er leið. Veit einhver ráðningu ?
9.2.2010 | 12:00
Draumurinn !
Skrítin draumur, ég var beðin um að aðstoða við að hreinsa og drepa rottur, en þessar rottur, silfurgráar, voru í haugum á stað er ég kom mikið á er ég var ungur, þær bitu ekki og voru salla rólegar er ég drap þær með fægiskóflu og það furðulega við þetta þær forðuðu sér ekki, en urðu bara að blóð klessu er ég barði ofan á þær plast fægiskóflunni.
Veit einhver ráðningu við þessum draum?
Gáfaðar persónur tala um hugmyndir.
Minna gáfaðar persónur tala um hvað gerðist.
Sá sem tapar heilsunni missir mikið.
Sá er tapar eigum sínum tapar miklu.
Sá sem missir vin, frænda eða bróðir tapar miklu meira.
Það er jú ekkert upphaf og enginn endir, njótum lífsins og verum góð hvort við annað því lífið er svo stutt þrátt fyrir allt og þess vegna ætti ekki að vera tími til að tala illa um aðra.
Öll dýrin í skóginum vilja vera vinir og við mannverurnar í okkar frumskógi freistinga lífsins viljum líka vera vinir og góð hvort við annað. Eða er það ekki ?
Dagurinn í gær er liðinn farinn.
Dagurinn í dag er enþá bara svona.
Morgundagurinn er vonandi óvænt ánægja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)