Einfalt og gott ráð til bandvíddar sparnaðar á facebook !

Einfalt og gott ráð til bandvíddar sparnaðar á facebook. ! 
Eins og allir vita er í gangi mafíu gjald hér á Íslandi og notendur rukkaðir sérstaklega fyrir erlent niðurhal, þá er snjall kostur að óvirkja nýjan fídus í facebook sem er sjálfspilun (auto start) á vídeó skrám er póstað er á fréttaveitu féssins. Fyrst er farið upp til hægri í litla þríhyrninginn og smellt á "stillingar" þar er síðan valmöguleiki neðst hægra megin "myndbönd" þegar þangað er komið er hægt að "virkja" (sem er sjálfvirk stilling) eða óvirkja. Eftir að hafa valið "óvirkja" stillinguna þá getið þið valið hvaða myndbönd þið viljið að spilist, en ekki öll sem kostar erlent okurgjald frá Intís og netþjónustuaðilum ! Ath: þetta niðurhals gjald þekkist óvíða og þá aðallega í einræðis og kúunnar ríkjum! 
Endilega dreifa þessu þannig að aðrir geti sparað og Net níðingarnir maki ekki krókinn...
 
facebook-front 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)   



Tóma myndin má ekki vera tóm!

Sigmundur Davíð og félaginn: Þessir Íslendingar hafa bara gullfiska mynni, þannig lofaðu og lofaðu en mundu lofaðu MIG mest...

 Loforðameistarinn

Ekkert meir um það að segja...

Slóð í eldri furðu greinar hér!

 


Jólakveðjur

Ég óska vinum og velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þá þakka ég ánægjuleg samskipti hér á blog.is  Mínar bestu jólakveðjur send ég á ættingja mína, börn, barnabörn sem og fjölskyldu nær og já líklegast flestir fjær!

Jólin 2013 

Einar B Bragason 

 Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)   


Tæknin tekur völdin aftur og ný búin...

Einhvern tíma í denninu hefði ég haldið að þessi mynd væri frá geimverum komin enda með Alien út lit og nú held ég að Jónasi sé brugðið og hann muldri ''hver fjanda... er nú þetta''... ekki nema von enda ég sjálfur veltandi vöngum hvað þetta væri og þýddi enda þessar myndir orðnar um allt, ég googlaði myndina og hló, já tæknin lætur ekki að sér hæða.

vioflix

Prófaður að skanna þessa furðu mynd með smart símanum þínum :) 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)   

 


Æringi eða græningi ?

1381399_613789632010629_1259957515_n
Í þessum kolli skeður bara ekkert og jólin að bresta Á!
 
 Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)   


Bakka bræður...

Bakka bræður 

Þessir bræður boðuðu að allar sex Jóhönnu skerðingar á örorku og kjörum eldri borgara frá árinu 2009 yrðu afturkallaðar þegar eftir kosningar.

Aðeins tvær hafi nú gengið til baka restin kemur sennilega aldrei enda lugu þeir hvor í kapp við annan um að mál eldri borgara og öryrkja yrðu löguð STRAX að afloknum kosningum, á daginn hefur komið að þessir kumpánar notuðu sömu aðferð og frú Jógrímur þar að segja lugu beint uppí opið geðið á kjósendum og almúginn féll fyrir skruminu á sama hátt og áður er Jógrímur laug!

Aðgerðir fyrir heimilin eru/voru skrifaðar á munþurrkur er nú hefur verið fleygt eins og tít er um þannig skrifelsi...  

Þolinmæðin er þrotin... Ekkert er aðgert nema það að málið er sett í nefnd á NEFND ofan...

Nefndir ykkar geta starfað endalaust eins og sagan sýnir án úrlausna og það á ofur launum á kostnað skattgreiðenda.

Ég segi bara lítið svei enda orð laus... 

                         Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)   


Þá er hún dauð...

Áður fyrr var því trúað að við andlát afbragðs ríkisstjórna fylgdu stórmerki á himinhvolfinu, engin þau merki sjást nú á himinhvolfinu, enda bar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur engin þau merki er kallast geta afbragð!
Raunarrökum móðurharðinda hafa verið dæmd dauð og ómerk!

Þjóðin hefur loksins verið bænheyrð! 

rikisstjorn johonnu2

Óvinsælasta ríkisstjórn Íslandssögunnar hefur loksins gefið upp öndina! 

Nú er  nýr og fallegur dagur, sólin skín, verið að skrúbba og bóna stjórnarráðið hátt og lágt, nú loftum við út!

Íslenska þjóðin á uppleið, íslenskir flóttamenn, já hjúkrunar fólkið og læknarnir, það er gleði og það er von, fólkið okkar hugsar til heimferðar!

Nú reisum við nýtt Ísland og Íslenska þjóð!
Án Samfylkingar-Jafnaðarmanna og án Vinstri grænna!
Ísland hefur verið verið svikið NÓG!
 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)    

 


Jóhanna talin af...

Jóhanna Sigurðardóttir töltir heim á leiðÞað versta er fyrir hvern mann kemur er að vita ekki sinn vitjunar tíma, en það hefur einmitt hent frú jóhönnu Sigurðardóttur hún veit bara ekki að hennar tími er löngu liðin og á þeim tíma er liðin er síðan tími frú jóhönnu leið hefur hún unnið sér það helst til frægðar að vera sá einni forsætisráðherrann Íslendinga er sveik hvert og eitt og einasta kosningaloforð er hún hafði gefið kjósendum sínum.

þá er hún sá forsætisráðherra er svelti gamalmennin og murkaði nær lífið úr þeim er mynna máttu sín er hún lækkaði bætur þeirra meðan hún hækkað eigin laun og meðreiðarsveina, þá slátraði hún stolti þjóðarinnar, Heilbrigðiskerfinu, tók alvöru þrautreyndu lyfin af sjúkum og gaf þeim handónýt samheitalyf er gögnuðust lítt eða illa, þá hækkaði hún lyfja verðið þannig að sjúkir fá ekki lyf við hæfi enda ekki nokkur sá sjúklingur til er auraráð hefur til lyfja kaupa eftir allan þann ógnar  niðurskurð er varð á öllu því er við kemur sjúklingum og bótaþegum, allt var þetta gert í nafni svonefndrar Norænnar velferðar!

Þá er jóhanna eini forsætisráðherrann er hreinlega talaði sig inná þjóð sína með skrökvulygum og það þegar þjóðin lá í sárum.

Hún hefur einnig unnið sér þann titil til frægðar að vera einn sá versti forsætisráðherra er setið hefur allt frá stofnun lýðveldis Íslendinga.

Einnig mun hún vera sá forsætisráðherra er setti stóran part þjóðarinnar á vergang og er prósentan líklega hærri en í móðurharðindum fyrri alda, það má segja að hún hafi einnig rekið yfir 9000 manns úr landi með óstjórn og aðgerðaleysi, reyndar rekið mest allt okkar menntafólk og frumkvöðlafólkið, já nú er svo komið að flestir allir er erfa áttu landið eru farnir og koma líklegast aldrei aldrei aftur !

Ekki nóg með það þá er hún sá forsætisráðherra er hafði meðstjórnanda er seint verður talin til hinna mestu sanninda manna Íslands sögunar heldur er hann líklega einn mesti skrögvusögu maður er Ísland hefur alið, er frú jóhanna þó engin eftir bátur í þeirri list.

Það verður bara segjast eins og það er, það er hæglega hægt að skrifa sig vitlausan ef maður ætti að lýsa afrekum frú jóhönnu í óstjórn, getu eða nennu leysi, þannig að betur er heima setið og allt annað þarfara að gera fyrir venjulegt fólk eins og bara það eitt að tölta haltrandi með börnin í vor veðrinu, já afhverju ekki t.d. í fátækrahjálpina.

Frú jóhanna bar ekki mikla virðingu fyrir framtíð Íslands er hún rak framtíð þjóðirnar út úr heimilum sínum og sett börnin okkar klæðalítil á götuna enda gerði hún ekkert fyrir heimilin í landinu jú ekki má gleyma því  mikla afreki að leggja 12.2 milljónir til hliðar er átti að nota til rannsókna á heimilana og hvað kæmi heimilum barna okkar best, skemmst er frá því að segja að aurarnir eru þarna enn og safna ryki svo mikil var kærleikurinn fyrir lausnum til handa heimilum barna okkar. 

Nú ætlar Samfylkingin að byrja uppá nýtt og nú undir nafninu Samfylkingin-Jafnaðarmannaflokkur, Nýtt áður notað gammalt Nafn Og Ný Kennitala Og Nýtt ryk í augu kjósenda, Og Nýja slagorð: Svona sjórna Jafnaðarmenn, ekki er nú öll vit-leysan eins þetta ætti að sjálfsögðu að vera "svona stjórnuðum við" enda allt í niðurníðslu er óstjórnin kom að, jóhanna Sigurðardóttir hefði betur heima setið...

Ísland er ein rjúkandi rúst eftir hamfarir óstjórnarinnar, nema hjá þeim austurevrópu ofríkis forsjárhyggju manna er að verkinu komu blindaðir af hugblindu og ósannindaflóði...

Og nú er það: 

Arni Pall
Samfylkingin - Jafnaðarmannaflokkur Íslands er sá flokkur er lagði upp með velferðina, ferðina er aldrei var farinn og eftir sátu lífeyrisþegar og sjúkir í sárum, því gleymum við EKKI !
 

Megi stjórnvöld ganga á fund Karon ferjumanns Íslandi til heilla, þaðan verður ekki aftur snúið fyrir þetta gjörninga fólk!

Það líður að kosningum til Alþingis, reisum nýtt Ísland og Íslenska þjóð!
Án Samfylkingar-Jafnaðarmanna og án Vinstri grænna!
Ísland hefur verið verið svikið NÓG!
 

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)   

 


Velferðin er aldrei var farin!

Hnefann í borðið
Aldrei aftur svikastjórn samfylkingar og vinstri græna !
Velferðin er aldrei var farin!
Hvar er velferðin var það ekki ferðin sú er aldrei stóð til að fara ?

Upl: ég og þú!
 
Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)
 

  


Vinstri Grænir samir við sig, innrætið opinberað!

Framganga vinstri grænna er með ólíkindum og sést hér svart á hvítu:

 Ertu undrandi? eða ertu ein(n) af þeim er ekki hlustar er SJS opnar munninn?

Þetta er ekki eina dæmið þar sem vinstri grænir snúast hvern hringinn eftir annan og ljóst að þar skiptir vindáttin engu máli eða þjóðarhagur, Bakki er jú í heimakjördæmi Steingríms J. Sigfússonar en hann er maðurinn og flokkurinn er galaði og galaði landvermd eins og engin væri morgun dagurinn! 

Það líður að kosningum til Alþingis, endur reisum nýtt
Ísland og Íslenska þjóð!
Án Steingríms J Sigfússonar og án Vinstri grænna!
það hefur verið verið svikið NÓG!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)

 

 

 

 

Myndband: Lára Hanna Einarsdóttir

Uppl: Kosningasjónvarp RÚV 2007 og 2009 og Fréttir í febrúar og mars 2013.

Annað: eigandi vefbloggs 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband