Sverrir Stormsker spyr hvað eru stjórnmál?

sverrirSverrir hefur víst alltaf verið svona, eða eins og hann er með skarpar og flugbeittar skoðanir á öllu, það kom strax í ljós í barnæsku eins og sjá má á þessari sögu er ég heyrði og átti sér stað er hann var innan við metri að hæð og þá þegar farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni.

Einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann: "Hvað eru Stjórnmál?" Pabbi hans svaraði: Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á þennan hátt: Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig auðmagnið. Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldum og þess vegna skulum við kalla hana stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum svo við skulum kalla þig fólkið. Við getum síðan haldið áfram og kallað barnfóstruna öreiga. Litla bróður þinn skulum við kalla framtíðina. Farðu nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og saman.

Þannig að Sverrir litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem pabbi hans sagði honum. Um nóttina vaknaði hann upp við grátinn í bróður sínum, þegar hann kemur inn í herbergi hans finnur hann fljót að bleian hans er blaut og mikil fýla af henni. Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína sofandi. Þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst. Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni. Að lokum gefst Sverrir litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.

Næsta morgun segir hann við föður sinn: "Pabbi, ég held núna að ég skilji hvað stjórnmál ganga út á."  Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því. Þá sagði Sverrir litli: Jú sjáðu til, á meðan auðmagnið riðlast á öreiganum er ríkisstjórnin steinsofandi. Fólkið er hunsað og framtíðin er í djúpum skít.............


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband