Íslandi aftur til fortíðar. Fyrirlitning á þingmönnum, ríkisstjórn, réttarkerfinu, og lögreglunni magnast nú dag frá degi, ef fram fer sem horfir á Ísland enga framtíð í framtíðinni...

Höft, boð og bönn það sem koma skal, kommúnistar herða en á snörunni um háls þjóðarinnar! 

Steingrími J og kumpánum eru að sýna sitt rétta eðli þessa dagana er þeir þrengja hægt og bítandi að frelsi Íslenskrar alþýðu, nú er það en og aftur gjaldeyririnn, nú má aðeins sækja um gjaldeyrir að hámarki 350.000 krónur var í fyrir höftum 500.000 krónur. Þessir menn gefa það út trekk í trekk að gjaldeyris höftin verði feld niður á næstunni, en hvað gera þessir menn þeir herða en kyrkingar takið á þjóðinni og ætluð sér aldrei að færa gjaldeyris viðskiptin í eðlilegan farveg. Hér er rekin rýtingur í bakið á fyrirtækjunum, námsmanninum, ferðalangnum og hverjum þeim er gjaldeyrir þarf á að halda, mér er spurn hvern fjandann fær maður fyrir 350.ooo smá krónur í dag þegar dollarinn sleikir 130 krónurnar dag eftir dag? En rauðliðar senda frá sér fréttir um gott gengi krónunar og stöðugt, hér er ljóst að þessir menn hafa ekki hundsvit á því er þeir eru að segja eða framkvæma. 

Íslenska þjóðin á bágt, hún er ofurlið borin af valdhroka vitstola manna er aðhyllast löngu gjaldþrota stjórnunarhætti sovét kommans.  

Steingrimur-J

Steingrímur J. ætlar sér með þjóðina aftur til þeirra daga er Austurevrópa var upp á sitt besta að mati Steingríms en skelfing ríkti meðal þegnanna enda var stjórnskipulag með þeim hætti að lýðurinn var niður barinn og haldið við og undir sultarmörk með boðum og bönnum svo ekki sé nú mynnst á vænan skammt af skelfingu á smurða með ofbeldi er átrúnaðar goð Steingríms beitu óspart sem stjórntæki, menn er muldruðu í mógin var hreinlega misþyrmt eða þeir bara hurfu, ef ekki öll fjölskyldan. 

Er Ísland á hraðri niðurleið undir stjórn Jóhönnu og Steingríms?

Svarið er því miður já, forsjárhyggjan ríður ekki við einteyming á Alþingi, reglur boð og bönn eru afgreidd á færibandi eftir lundarfari ráðherra eða hvernig stendur í bólið hans þann daginn, engu skiptir hvort reglur stangist á við aðrar reglur, séu vitrænar, nauðsynlegar eða þörf á þeim yfir höfuð...  

Áður en þú snýrð þér við verður búið að banna sjónvarpið á fimmtudögum, litsjónvörp, kosningar verða aflagðar enda þarf ekkert að  vera kjósa þetta meir, þeir sem vita og geta eru þegar í ríkisstjórn, það er mat Steingríms J. á stöðunni.  Smátt og smátt er honum á undra skömmum tíma að takast ætlunarverk sitt að kné setja Íslenskt þjóðfélag undir ægivald kommúnista reglugerðar bákn uppfullu af boðum og bönnum, þetta gera kommarnir dulbúnir sem vinstri grænir. Það er ekkert vænt né grænt við vinstri græna, þar er samankomið fólk með skelfilegar fyrirætlanir til handa þjóð okkar.

Það er mjög ógnvænlegt hvað fáir hafa áttað sig á lyga gjörningum ríkisstjórnar flokkanna og því hvert stjórnin stefnir með íslensku þjóðina.

Dagar lýðræðis á Íslandi eru taldir ef fram fer sem horfir, þúsund ára saga Alþingis að engu orðin.

Þessa stjórn verður að setja af nú þegar með góðu eða ILLU! Annars á Ísland enga framtíð í framtíðinni...  

Fleiri furðu-myndir af svona fólki er að finna HÉR!

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  ! :)       


mbl.is Lækka heimild til kaupa á ferðagjaldeyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband