Harkalegar aðgerðir gegn örríkinu Íslandi !

Það eru skipulagðar aðfarir í gangi gegn íslensku þjóðinni ! Merkilegt en satt þá eru þær stundaðar af erlendum ráðamönnum Nato ríkja og það með fullþingi Íslenskara stjórnmálamanna... Hvers á þjóðin að gjalda þegar svo kallaðar vinaþjóðir ráðast með skepnuskap á örríkið Ísland?

Hver á sökina á því að þjóðin er nú í heljargreypum AGS/IMF og getur sig hvergi hrært ?

Hvað hefur hinn almenni borgari, atvinnurekandinn eða heimilin í landinu eiginlega gjört til þess að ávinna sér þvílíka andúð vinstriaflanna er fara með völd á Íslandi ?

The-Icelandic-tragedy-is-human-made
Hvað meina Hollendingar með því að þeir hafi ekki samið við Alþingi Íslendinga um Icesave, heldur Ríkisstjórnina?

Er það ekki bráð undarlegt hvernig ríkisstjórnin hagar sér gagnvart AGS/IMF og hvað liggur á bakvið þennan undirlægju hátt stjórnvalda við AGS/IMF ?

Er það eðlilegt að ríkisstjórn Íslands taki við dags skipunum frá AGS/IMF ? 

ER það rétt að stjórnin starfi í umboði AGS/IMF samkvæmt leynisamningum þar af lútandi við  Alþjóðaglæpasjóðinn? 

Er þjóðin þegar búin að missa sjálfstæði sitt? og hvar er sjálfstæði Íslensku þjóðarinnar statt ?

Er ekki mál að þjóðin rísi upp gegn niðurbrots áætlunum vinstri flokkanna ?

Það gerist ekkert nema þú takir hendur úr vösum þínum, ekki bíða, niðurbrotsöflin bíða ekki, þar er ekki setið með hendur í vösum, heldur er vargurinn á fullu við að rífa niður þjóð okkar og það á meðan þú situr og lest þetta ! 

Tökum hendur úr galtómum vösum okkar, það er verk að vinna !

Ísarelsmenn eru þessa daganna að lögsækj fyrrverandi ráðherra sinn. Þetta gera flestar lýðræðisþjóðir, þær lögsækja ráðherra er brjóta á þjóð sinni og sýna þjóðinni vanvirðingu ! Hvenær lögsækjum við Íslendingar brotlega ráðherra okkar fyrir marg ítrekuð stjórnarskrárbrot er þeir fremja á Íslensku þjóðinni?

Þess má geta að mönnum gefst kostur á að skrifa nafn sitt á mótmælendalista > kjosa.is < eða þangað til forsetinn hefur staðfest eða synjað lögunum um ríkisábyrgðina, skráðu þig > núna < fyrir framtíð barna okkar !

Slóð í forsíðu og fleiri greinar HÉR


mbl.is Segja Íslendinga beitta fjárkúgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband