AGS glæpahyskið leggi spilin á borðið!

Nú eru greinilega tvær grímur farnar að renna á Vinstri Græna. Atli Gíslason þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs skorar á Franek Rozwadowski, sendifulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi að leggja á borð alla skilmála og öll skilyrði fyrir því að Ísland fái lán frá sjóðnum. Atli sagðist í samtali við RÚV vera farinn að halda að þjóðin væri aftur komin í fullveldis- og sjálfstæðisbaráttu.

Í skoðana könnun hér á blogginu er að finna óhyggjandi tölur um það traust er þjóðin hefur á IMF=AGS !

imf

Könnunin sýnir er 120 hafa tekið þátt í skoðana könnun um hvort þú treystir IFM = AGS. Nei 82,3% Svörin eru sláandi það sláandi að það ætti að gera mark vissa könnu um allt land, ég held þó að netverjar sýni nokkuð glögga mynd að því trausti er IMF ber hér á landi. Könnun finnur þú vinstra megin á síðu ! Endilega taktu þátt!

Ég endurbirti:

Franek RosvadovskyFranek Rozwadowski, "landsstjóri" og fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi, heldur því fram að Þjóðarbúið fari ekki á hliðina vegna Iceslave! Hver á trúa manninum, ef þjóðarbúið rúllar er þjóðarauðurinn í höndum þessara IMF=AGS manna! Það hefur sýnt sig víða um heim hvernig þessir skúrkar hjá IMF=AGS vinna og hver enda lok þjóða hafa verið er lent hafa í ægi krumlum IMF=AGS. Þjóðirnar hafa hreinlega tapað landgæðum sínum og þjóðarauð í hendurnar á þessu missendis mönnum, er sett hafa fram kröfur um einkavæðingu á öllu því bita stæða er þjóðirnar hafa átt, síðan kaupa þeir á mjög svo niðursettu verði, eða hreinlega á smánar verði allt það er einkavætt var í eigu þjóðar.Það er löngu leynt og ljóst að stjórnvöld Breta, beita gífurlegu þrýsting á alþjóðagjaldeyrissjóðinn, með það eitt í huga að knésetja þjóð okkar, enda illmenni sem og lítilmenni, þekktir fyrir að ráðast á hernaðarvanbrúnarþjóðir. Tek ég þá smátt upp í mig! 

Þessi ljóti leikur AGS að tefja allar lánveitingar til þjóðarinnar er ekkert nýtt í aðferða fræði AGS, þetta hafa þeir gert víða um veröldina til að knésetja þjóðir og þjóðarbú enda tilgangur frestunnar ætið sá að koma ríkinu í greiðsluþrot!

ulfurÞá hefur stjórnin reynst vera úlfur í sauðargæru, brotið öll kosninga loforð er hún lofaði þjóðinni. Ráðist á heimili landsmanna er hún lofaði að standa vörð um, ráðist að lífeyrisþegum er varla áttu til hnífs né skeiðar fyrir, ráðist á fyrirtækin, atvinnulífið, hækkað verð á orku upp úr öllu valdi, hleypt erlendum banka mönnum sem eru hreint út sagt glæpa hyski að stjórnartaumum landsins, mönnum er hafa það eitt að markmið sínu að komast yfir orku landsins sem og vatnið okkar, líklega gull framtíðarinnar. Hvernig fólk og hverskonar stjórn hagar sér svona?

hnefi 

Stjórnin hefur í hótunum við þegna landsins, ber vilt og galið lygar á borð sem og hræðsluáróður, stjórn er svífst einskins til að halda völdum og ber enga virðingu fyrir þjóðinni, stjórn er reynir að þvinga þjóð sína í þágu Breskra kúara og Hollenskra túlibana. Samt sem áður er þessi stjórn allt af því valdalaus þar sem erlend sveit þjóða morðingja ( IMF=AGS ) fer með yfirstjórn allra mála á Íslandi. Það eru ótvíræð brot á stjórnarskrá okkar sem og á fullveldi okkar.

AGS=IMF er saman safn af óværu, því skal bregðast við óværunni með öllum þeim meðulum sem og  óhefðbundnum meðulum er duga og það strax!

Slóð í forsíðu og fleiri greinar: HÉR  !
Slóð í myndbanda síðu: HÉR

mbl.is Vill að AGS leggi spilin á borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Minnsta málið..afþökkum lán AGS og Norðurlandana og sjáum svo bara til.

Þarf ekki nema einfalda þingsályktunartillögu á þingi frá minnihlutanum.

Jón Ingi Cæsarsson, 26.7.2009 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband