Hrein drottningar svik við land okkar og þjóð. Utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson og skósveinar gera lítið úr þjóð okkar!

Er Össur gjörsamlega genginn af göflunum?

Framganga Utanríkisráðherra vekur upp spurningar um hvort hann gangi heill til skógar. Hvernig vogar Utanríkisráðherra að senda hágrátandi skósveina sína á fund Bandarískra erindreka og gera lítið úr þjóðinni ? 

Ráðuneytisstjórinn í utanríkisráðuneytinu, sendiherra Íslands í Washington og Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður Össurar grátbáðu Sam Watson, forstöðumanns bandaríska sendiráðsins í Reykjavík um afskipti Bandaríkjastjórnar af Icesave-deilunni til hjálpar Íslendingum.

Þetta ferli allt er hrein hneisa fyrir Íslensku þjóðina.

Ossur-Skarphedinsson-and-his-clowns

Össur Skarphéðinsson á að kalla sendiherra Íslands í Bandaríkjunum heim, enda ekki hæfur til starfa í utanríkisþjónustu Íslands þar sem hann niðurlægir forseta lýðveldisins frami fyrir háttsettum erindreka Bandaríkjanna, sendiherrann á að hafa skoðanir sínar á forsetanum fyrir sjálfan sig, en ekki bera þær á torg í nafni og umboði Íslendinga, þetta er jú þjóðhöfðingi Íslensku þjóðarinnar og það hæfir ekki sendiherranum að tjá sig á þennan hátt.

Kl: 12:20 19,02,10 Það að hlusta á utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson í hádegisfréttum RÚV, var eins og búist var við, maðurinn heldur að þjóð sín sé upp til hópa vanvitar og þar að auki ólæsir hvað þá á enska tungu, en í slóðin hér fyrir neðan kemur berlega í ljós sá dónaskapur og virðingarleysi er Íslenski sendiherrann Hjálmars W. Hannessonar, í Washington, D.C sýnir forseta íslenska lýðveldisins. 

Ég endurtek að sendiherrann í Bandaríkjunum á að hafa sínar skoðanir fyrir sig, ekki opinbera starfsmenn erlendra ríkja! Manninn á að kalla heim og utanríkismálanefnd alþingis hlítur að taka málið upp, annað er óhæfa.

Það er löngu ljóst að Össur Skarphéðinsson veldur ekki starfa sýnum og á að halda sig við það sem hann kann en hann er mentaður kynlífsfræðingur.

Það er ekki annað í stöðunni en að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segi afsér, utanríkisráðherrann getur ekki hlaupist lengur undan ábyrgð !

Hér má sjá leyniskjalið í heild sinni! ansi fróðleg lesning er vekur upp spurningar um störf starfandi ríkistjórnar og lýðræðið. þá vekur það undrun að Steingrímur Jóhann kannast ekkert við málið, hvað er hér eiginlega í gangi, mér er spurn ?

''Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kannast ekki við að íslensk stjórnvöld hafi ákveðið að biðja Bandaríkjamenn um stuðning í Icesave-deilunni. Hann segist fyrst hafa heyrt af efni fundanna í dag. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir fundi íslenskra ráðamanna með þeim bandarísku hafa verið lið í að afla stuðnings við málstað Íslendinga í Icesave-deilunni.''

Alþingi og lýðræðis saga Íslendinga hefur orðið fyrir álitshnekki !

Slóð í forsíðu og fleiri furðu greinar: HÉR  !  :)


mbl.is Minnisblað sendimanns birt á Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband